Vísir


Vísir - 05.06.1973, Qupperneq 9

Vísir - 05.06.1973, Qupperneq 9
Vísir. Þriðjudagur 5. júni 1973. Vísir. Þriöjudagur 5. júni 1973. Fóstrur óskast Leikskólinn Kvistaborg i Fossvogi óskar eftir fóstrum frá 1. september eða fyrr. Upplýsingar á staðnum eða i sima 30311 hjá forstöðukonu. tfl Atvinnuveitendur Þeir atvinnuveitendur, sem geta tekið skólafólk i atvinnu i sumar, eru vinsam- lega beðnir um að hafa samband við Ráðningarstofu Reykjavikurborgar, simi: 18800. Fjórmagn Óska eftir miklu fjármagni i arðvænt fyr- irtæki i stuttan tima. Tilboð sendist augld. Visis merkt ,,5656”. Bíll óskast Litill fjögurra manna bill óskast, árg. ’70, ’71 eða ’72. Vel með farinn. Ýmsar gerðir koma til greina. Helzt Fiat 850 sportmódel. Simi 40265 eftir kl. 5. Ford Torino Til sölu Ford Torino árg. ’69, 8 cyl, 351 cup. sjálfskiptur með vökvastýri. Uppl. i sima 22022 milli kl. 9 og 4. Gagnfrœðaskólarnir í Kópavogi Þeir nemendur sem eiga að sækja 1. og 2. bekk gagnfræðaskólanna i Kópavogi næsta vetur og hafa ekki þegar innritað sig verða að gera það miðvikudaginn 6. júni og fimmtudaginn 7. júni. Innritunar- timi i Víghólaskóla er kl. 9-12 og 14-16 og i Þinghólsskóla kl. 10-11 báða dagana. Fræðsluskrifstofan. Bílstjóra ó vðrubíl Bilstjóra á vörubil og verkamenn vantar strax. Helzt Hafnfirðinga. Uppl. i sima 50994 og 30435. STÆKKUNAR^ . GLER Fjolbreytt urval stækkunarglerja, m.a.stækkunargler með Ijósi. FRÍMERKJAMIDSTÖÐIN Skólavöröustig 21 A-Sími 21170 Umsjón: Olafur Geirsson Þetta var býsna algeng sjón i leik Akureyringa og Keflvikinga um helgina. Mikill hluti Akureyrarliösins í vörninni, enda léku þeir algjöran varnarleik móti norðan strekkingnum I fyrri húlfleik. Asgeir Sigurvinsson, tBV., sem skoraði jöfnunarmarkiö gegn Belgíumönnum. Unglingalandsliðið: Tap gegn Sviss Þrátt fyrir aragrúa tækifæra og töluverða yfirburði tókst islenzka unglingalandsliðinu ekki að sigra Sviss- lendinga i gærkveldi i leik liðanna i Evrópu- keppninni. Sviss- lendingar sigruðu, gerðu 2 mörk gegn 1. Fyrsta mark leiksins kom strax á 3. minútu fyrri hálfleiks, og gerðu Svisslendingar það eftir gróf varnarmistök hjá Islendingunum. Landarnir áttu töluvert af tækifærum sam- kvæmt þvi, sem Hreggviður Jónsson, fararstjóri, sagöi okkur I morgun, en ekki tókst að skora. Annað m’ark Svissaranna kom svo á 6. mínútu siðari hálfleiks, eftir að mistök höfðu orðið hjá islenzku vörninni. Mark islenzka liðsins kom siðan strax á næstu minútu. Eftir að hornspyrna hafði verið tekin og skotið á mark Sviss, fékk Hörður knöttinn og skaut og skoraði. Ekki urðu mörkin fleiri þrátt fyrir ótal tækifæri tslending- anna, þeir skutu i stöng — það var bjargað á linu — boltinn fór rétt framhjá — markvörður Sviss varði — en boltinn fór ekki i markið. — England sigraði i C riðlinum og keppir við ttaliu i undanúr- slitum i dag. Belgía varð númer tvö i riðlinum. Vann Sviss og gerði jafntefli viö England og tsland. Sviss varð þriðja eftir sigur yfir tslandi, sem rak lest- ina með eitt stig. tlrslit höfðu aðeins borizt i tveim leikjum: Austur-Þýzka- land — Tékkóslóvakia 3-2. Rúmenia — Noregur 2-1. Noregur varð siðastur i sinum riðli með ekkert stig. HEIMSMEISTARINN I HNEFALEIKUM: FOREMAN ver titilinn Heimsmeistarinn i hnefa- leikum, Bandarikja- maðurinn George Foreman, ætlar að verja titil sinn 1. september næstkomandi i keppni gegn Joe King. Viðureignin verður i Mexicoborg og var tilkynnt um leikinn þar i borg i gær- dag Joe King er talinn vera númer 10 að styrkleika samkvæmt skrám Alþjóða- hnefaleikasambandsins og er hann sá fyrsti, sem reynir að ná titlinum af Foreman, siðan sá siðar- nefndi náði honum af landa sinum Joe Frazier i janúar síðast liðnum. Joe King þykir efnilegur hnefaleikari og likt og fyrr- verandi heimsmeistari, Mohamed Ali, hefur hann gaman af þvi að gefa út alls konar yfirlýsingar fyrir leiki um keppinautana, hvernig úrslitin verði og þá eru spádómarnir jafnvel i bundnu máli. Ilggg •■v n- g n v^v George Foreman, rétt áöur en hann vann meistaratitilinn af Joe Frazier f janúar siöastliöinn. Eru línurnor oð skýrost? — Fram vann Blikana Verða það Breiðablik KRingar og Akureyr- ingar; sem berjast við fallið i 1. deildinni þetta árið? — Þvi vildi einn góðkunnur knatt- spyrnuáhugamaður halda fram i gærkvöldi, eftir leik Fram og Breiðabliks, eii Fram sigraði með 2 mörkum gegn 1. Vist er um það, að slikir spádómar eru heldur hæpnir og oft á tiðum tilgangslausir með öllu, en þessi 3 lið, Breiðablik, KR og ÍBA, hafa öll leikið — og tapað — um helgina fyrir Fram, Val og Keflavik, og það hefur ekki dulizt neinum, hverjir eru betri aðil- arnir i þeim leikjum. Allir eiga þessir leik- ir þó það sameiginlegt, að þau lið, sem sigruðu, áttu i miklum erfiðleik- um með að skora úr aragrúa tækifæra og gerðu ekki nema 1 til 2 mörk i leik. Þannig að út úr þess- um vangaveltum kemur aðeins það, að ekkert er ennþá hægt að fullyrða um sigur- vegara eða botnlið, og allt getur gerzt. Um leikinn i gærkveldi er fremur litið að segja, leikmönn- um gekk illa að fóta sig á hálu grasinu og var þvi litið um fall- egt spil. Frammarar réðu gangi leiksins að mestu i fyrri hálf- leik, og gerðu þeir fyrra mark sitt á 18. minútu og var Ásgeir þar að verki, eftir að þvaga hafði myndazt við mark Breiða- bliks. Marteinn skoraði siðan siðara mark Frammara á 35. minútu meö skoti utan frá vita- teigshorni vinstra megin og i gagnstætt horn marksins — mjög laglega að staðið. — Yfirburðir Frammara voru samir fyrstu 25 minútur siðari hálfleiksins án þess þó, að um verulega hættuleg marktæki- færi væri að ræða. Eftir það fóru Breiðabliks- menn heldur að sækja sig og áttu til dæmis bæði ólafur og Þór Hreiðarsson góðar til- raunir, Ólafur skaut á mark, en Þorbergur sló yfir, rétt á eftir skallar Þór að marki Framm- ara, en Þorbergur ver. Þetta var hvort tveggja á 31. minútu. Mark Breiðabliks kom siðan á 40. minútu, og varð það eftir aukaspyrnu, sem Haraldur Erlendsson tók um það bil' 45 metra frá marki Frammara, hann spyrnti inn á vitateiginn, til Guðmundar Þórðarsonar, sem sneiddi knöttinn laglega i markið framhjá Þorbergi markverði. Mikið kapp hljóp i Breiðablik við markið, en allt kom fyrir ekki. Mörkin urðu ekki fleiri og Frammarar sigur- vegarar. Blikarnir fagna marki. Guðmundur aö lenda aftur á jöröinni cftir að hafa stýrt knettinum i netið, fram hjá Þorbergi markverði, sem liggur i grasinu. Marteinn Geirsson skýtur og innsiglar sigur Fram gegn Breiöablik i gærkvöldi. Ping pong nám í Kína Yfirburðir Kínverja í borðtennis hafa verið tölu- verðir hingað til en nýverið komu fyrstu útlendingarn- ir, sem verið hafa þar til þjálfunar og i þjálfunar- námi, þaðan. Það voru tveir Ástraliubúar, maður og kona, sem kepptu i ástr- alska liðinu, sem ferðaöist um Kínverska alþýðulýð- veldið, þegar „ping pong þíðan” stóð sem hæst 1971. Bæði lentu áströlsku borð- tennisleikararnir i ströngum æfingum og meðal annars þurftu þau að stunda lyftingar bæði kvölds og morgna. Að þeirra sögn voru kinversku þjálfararnir mjög góðir og kenndu þeim geysimarga nýja hluti varöandi borðtennis. t eina skiptið, sem var minnzt á Mao Tse-Tung var þegar þjálfar ínn sagði: „Mao formaður segir, að allir hafi sina galla, og ég veit, að ég er ekki fullkominn, svo ég biö ykkur afsökunar á mis- itökum minum”. Fór á handfœri frem ur en í 100 metrana Okkar langbezti spretthlaupari, Bjarni Stefánsson, mun ekki taka þátt i frjálsiþrótta- keppnum i sumar, i það minnsta ekki að neinu marki. Bjarni lauk nýlega stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlið og er nú byrjaður á handfæra- báti, sem rær fráHellfc- sandi, en færabátar afla nú mjög vel við Snæfellsnes. Sfðastliðin 4 ár hefur Bjarni verið okkar bezti hlaupari á styttri vegalengdum, og á hann meðal annars tslandsmetið i 400 metra hlaupi, 46,7 sekúndur, og hann hefur hlaupið 100 metrana á 10,5 sekúndum. Þannig er þetta hér á tslandi — i hinni algjöru áhugamennsku, — þegar alvara lifsins blasir við þá verða menn að velja á milli þess að sjá sér og sinum sómasamlega farborða — eða —. 1 Bjarni Stefánsson okkar bezti spretthlaupari undanfarin ár, sem nú stundar handfæraveiöar frá Hellissandi.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.