Vísir - 23.07.1973, Síða 9
Vlsir. Mánudagur 23. júli 1973.
9
Xú er hún
komin -
bókin um
gosið í
Evjum
ohdfal m fiju:
\ ICML4NDS \M STM \\N IMANDS
Valur í hœttu eftir
fimm-núll í hálfleik
Hann var skrítinn leikurinn í
gærkvöldi/ milli Vals og
Breiðabliks í 1. deild. Eftir að
Valsmenn höfðu bjargað fimm
sinnum á marklínu fyrstu
fimm mínútur leiksins, yfir-
tóku þeir algjörlega leikinn og
skoruðu fimm mörk í fyrri
hálfleik.
Já, heppni Valsmanna var
mikil, en slíkt afsakar ekki
Breiðabliksliðið að detta
niður svo gjörsamlega eftir
fyrsta mark Vals, en það
kom á l0.mínútu,er Hörður
Hilmarsson fékk boltann
rétt við vítateigshornið og
skaut lausu skoti undir
markmann Breiðabliks,
sem átti alla möguleika að
taka þann bolta. Við þetta
mark brotnuðu Breiða-
bliksmenn algjörlega og
Valurátti það,sem eftirvar
hálfleiksíns. Svo kom ann-
að mark Vals á 18. mín.
Hörðurgaf laglegan bolta á
Hermann, sem skoraði lag-
lega. Á 24. mín. eiga Blik-
arnir upphlaup;en Sigurður
Haraldsson bjargar glæsi-
lega.
Á 36. min. er mikil þvaga
fyrir framan Breiðabliks-
markið boltinn berst út á
kantinn, Kristinn gefur fyr-
irtil Jóhannesar, sem negl-
ir viðstöðulaust í netið af
25-30 metra færi. Glæsilegt
mark. Og enn skora Vals-
menn á 39. mín. Kristinn
gaf fyrir, Hörður lyfti bolt-
anum yfir varnarmann
Breiðabliks, til Hermanns,
sem labbaði með boltann í
netið, 4-0.
Fimmta mark Vals kom
svo á markamínútunni, 43.
mín. Markmaður Breiða-
bliks var kominn of langt út
og Hermann kom þjótandi
með boltann og lyfti hátt
yfir márkmanninn 5-0.
Staðan sem sagt að verða
vonlaus fyrir Blikana og
maður bjóst við markasúpu
í seinni hálfleik.
En Breiðabliksliðið, sem
kom inn á i síðari hálfleik
var allt annað og betra,
slenið farið af leikmönnum
og liðið lék mun betri
knattspyrnu. Og strax á 5.
mín. gaf það mark. ólafur
Friðriksson og Þór Hreið-
arsson léku laglega í gegn
og Þór skoraði. Svo á 7. mín
skoraði Guðmundur annað
mark Breiðabliks. Og enn
skora Blikarnir á 11. min. úr
vitaspyrnu, og var það
Magnús Steínþórsson, sem
tók hana og skoraði örugg-
lega. Á 44. mín. skora svo
Valsmenn 6. mark sitt og
var Alexander að verki.
Leikurinn var eftir atvik-
um nokkuð skemmtilega
leikinn af báðum liðum, en
þó eiga Breiðabliksmenn
að geta mun meira. Og ef
þeir spila næstu leiki eins
og seinni hálfleikinn og
berjast eins vel þá falla
þeir ekki.
Bókin hefur þegar hlotið fádæma góðar viðtökur,
enda er hér um að ræða frábært úrval Ijósmynda
frá meira en tuttugu Ijósmyndurum. Margar at-
hyglisverðustu myndirnar, sem teknar hafa verið
í Eyjum, flestar litprentaðar.
I upphafi er brugðið upp svipmynd af sérkenni-
legri náttúru Vestmannaeyja, sögu, lífi og starfi
fólksins í Heimaey eins og það var áður. Síðan er
saga gossins rakin í máli og frábærum myndum.
Textann skrifaði Árni Gunnarsson, fréttamaður,
sem þekkti Eyjar áður og fylgdist með gosinu frá
upphafi.
Látið ekki dragast að eignast þessa einstæðu
bók — og senda kunningjum og viðskiptamönn-
um erlendis VOLCANO — Ordeal by Fire in lce-
land’s Westmann Islands. Kostar aðeins kr.
995,00.
Iceland Review
LAUGAVEGI 18 A SÍMI 18950 _
Fluguveiðimenn
Rúmur mánuður er eftir af veiðitimabilinu
i efri hluta Laxár i Þingeyjarsýslu, en þar
er aðeins veitt með fluguveiðitækjum.
Veiðin er framúrskarandi góð og urriðinn
vænn.
í Kasthvammi i Laxárdal og Álftafirði við
Mývatn er hægt að fá aflann reyktan við
sauðatað og heimsendan.
Athugið hvaða dagar eru lausir.
Á
SP0RTVAL
| Hlemmtorgi — Simi 14390.