Vísir - 11.08.1973, Síða 3
Visir. Laugardagur 11. ágúst 1973.
3
Drukknaði í
nógrenni við
félaga sína
„Það liggur eiginlega alveg
ljóst fyrir, hvernig drukknunin
við Hvitá átti sér stað”, sagði
Kristmundur Sigurðsson hjá
rannsóknariögreglunni i Reykja-
vik i viðtali viö Visi i gær.
„Piltarnir tveir, sem voru með
Sumarliða hafa nú verið yfir-
heyröir, og þeir sögðu, hvernig
þetta bar að.
Þegar þeir og Sumarliði urðu
viðskila við hina fjóra, gengu þeir
yfir hraunið frá Barnafossum i
átt þangað sem Hvitá rennur hjá
mótstaðnum.
Þegar þangað kom, óðu Sumar-
liðið og annar drengjanna út i
ána. Hún snardýpkaði þá allt i
einu, svo þeir hættu við, enda var
botninn einnig mjög grýttur.
Þeir gengur siðan niður með
ánni og ætluðu að fara til baka.
En fylgdarmenn Sumarliða voru
orðnir sárfættir, svo þeir fleygðu
sér niður til að hvila sig og
nærast. Sumarliði vildi þó gera
enn eina tilraun til að komast
yfir. Fór hann þvi frá þeim og
hvarf bak viö melrana. Hinum
megin við hann var áin. Þegar
piltarnir höfðu hvilzt, stóðu þeir
upp og fóru að svipast um eftir
Sumarliða. Þeir sáu hann hvergi.
Alyktuðu þeir þá sem svo, að
hann hlyti að hafa komizt yfir
ána.
Héldu þeir nú leið sina áfram.
Þegar þeir voru komnir yfir
göngubrúna hjá Barnafossum,
tók grænn SAAB-bill þá upp i og
ók þeim á mótsstað”.
Rannsóknarlögreglan hefur
náð tali af öllum piltunum nema
einum. Er sá frá Akranesi.
Einnig óskar rannsóknar-
lögreglan eftir þvi að ná
sambandi við mennina sem voru
á SAAB-bilnum.
—ÓH
KOM HEIM FRA
AÐ LÁTA SKÍRA
USA TIL
BÖRNIN
Fœr fréttir héðan að heiman
nœr daglega með
sendingum óhugamanna
//Lúterskur söfnuður er
enginn í námunda við þar
sem við búum, í New
Hampshire, svo að við
tókum þann kostinn að
koma með dæturnar hing-
aðtil islandsog láta skíra
þær að lúterskum sið, þótt
þær væru orðnar átta og
níu ára," sagði Þorvaldur
Sveinbjörnsson, frá Kot-
húsum í Garði, sem starf-
ar sem rafmagnsverk-
fræðingur hjá Western
Electric í viðtali við Visi.
Systurnar voru skirðar i Út-
skálakirkju, af séra Guðmundi
Guðmundssyni, sóknarpresti
þar, og heita þær Dawn Marie,
sú eldri, en Karen Ann hin
yngri. Reyndar var þeim gefiö
nafn strax eftir fæðingu eins og
tiðkast þar vestra, en engin
formleg athöfn fór fram, fyrr en
nú. Hálf þótti þeim einkennilegt
að standa við skirnarfontinn,
hér uppi á tslandi, en alveg
ófeimnar voru þær telpurnar.
Þorvaldur Sveinbjörnsson,
hefur starfað hjá W.E. í 13 ár og
hefur hlotiö skjótan frama, og
er talinn meðal fremstu verk-
fræðinga i sinni grein hjá fyrir-
tækinu, og verið falið að leysa
hin vandasömustu verkefni. S.l.
ár hefur hann svo til eingöngu
unnið við að reyna nýtt sima-
kerfi, sem á að taka i notkun
bráðlega. Er þar um lokað
þráðlaust kerfi að ræða. Fer
sendingin fram i 60 mm röri og á
stuttbylgjum og geta 60 mm
annaö 250 þúsund rásum.
Fréttir að heiman fær Þor-
valdur svo til dagiega, gegnum
sendingar útvarpsáhugamanna,
og heyrir hann þær yfirleitt
mjög vel. Þegar Þorvaldur
reyndi fyrst að ná þessum send-
ingum gekk þaö illa. Skrifaði
hann þá Vilhjálmi Þ. Gislasyni,
útvarpsstjóra bréf og bað um
upplýsingar varðandi sending-
arnar. Fékk hann mjög vinsam-
legt bréf frá Vilhjálmi og hald-
góðar upplýsingar. Siöan hefur
hann ávallt getað fylgzt með
þvi, sem heima gerist.
—Emm
~m---------------—------►
Þorvaldur ásamt börnum sinum
fyrir framan Brekkukotið I
Garðinum, þar sem kvikmyndin
var tekin i fyrrasumar svo sem
frægt er oröiö.
w ,<V Lija ' ¥
1 rl9 rn ,.%• "fti \ :1
* '■ Æ 1 vS ’tIL
i 'I WRá \ ’
R9L .
Tilraun Sverris
íathugun
„Það er verið að athuga þetta
núna, cn meira get ég ekki sagt
eða látið hafa cftir mér að svo
komnu máli”, sagöi vega-
málastjóri, Sigurður Jóhannsson,
þegar biaöið hafði samband við
hann i gærdag varöandi hina nýju
vegalagningarvéi Sverris
Kunólfssonar.
Vegamálastjóri sagði, að
ákveðið væri, að hann fengi einn
kilóinetra til reynslu fyrir þessa
nýju vél, en hins vegar hefur ekki
verið tckin ákvöröun um þaö,
hvar eða hvenær hún verður
reynd. Það mun þó liklega
skýrast bráðlega, og er i athugun
eins og fyrr segir. — EA
BRIMKLO MEÐ
ÓKEYPIS TÓNLEIKA
Þeir eru hressir i Brimkló, ekki
siður en i „Writing on the Wall”.
Þeir ætla að halda útihljómleika á
sunnudaginn.
„Við viljum bara spila músik
fyrir alla. Leyfa fólkinu að njóta
músikur i ró og næði”, sagði
Björgvin Halldórsson, söngvari
hljómsveitarinnar i viðtali við
Visi.
„Hljómleikarnir byrja klukkan
þrjú á sunnudaginn. Þeir veröa
haldnir i skrúögarðinum i
Laugardal. Auðvitaö miöum viö
hljómleikana fyrst og fremst við,
hvernig veðrið verður. Ef það
verður slæmt, þá frestum við
þeim um eina viku. Ef það verður
gott, þá er aldrei að vita, hvaö við
teygjum úr hljómleikahaldinu”.
Björgvin sagði, að lögin, sem
þeir flyttu, væru mikið til þau lög,
sem þeir hafa fengizt við aö spila
undanfarið.
„Nú og svo er eitt frumsamið
lag, ekki ætti þaö að skaða”.
Þess má geta hérna, að ekkert
mun kosta inn á hljómleikana —
það er algjörlega fritt inn á þá.
Við spurðum Björgvin hvers
vegna.
„Það er alveg óþarfi að vera
alltaf að taka borgun fyrir allt.
Megum við ekki spila einu sinni
fyrir fólkið?”
Brimkló ætlar svo að klykkja út
með dansleik um kvöldið i
Veitingahúsinu Glæsibæ.
—ÓH
Guðmunda í góðum
félagsskap í Tókíó
Mynd þessa tók Jón Björg-
vinsson i Tókfó I gær, sérstak-
lega fyrir VIsi. A myndinni er
islenzki þátttakandinn i Miss
Young International keppninni,
Guðmunda Hulda Jóhannesdótt-
ir. Með henni á myndinni eru
fulltrúar Bandarlkjanna (til
vinstri), og Sviss (til hægri).
Þegar myndin var tekin, var
kvöld I Tókió, og voru stúlkurn-
ar þreyttar eftir langan og
strangan dag. Þær höfðu staöiö i
iöngum og ströngum æfingum
fyrir úrslitakeppnina allan
daginn. Keppnin sjálf fór fram i
gær.
16 ára gömul dönsk stúlka
sigraði i Miss Young Inter-
national keppninni i Tókió I gær.
Hún heitir Dia Fris Jensen,
ijóshærö og bláeygö.
1 viötali viö fréttamenn á
eftir sagði hún:
„Ég er bara ánægð ég er
hamingjusamasta stúlka i
heimi”. Hún sagöi fréttamönn-
um, að aðaltómstundagaman
hennar væri að prjóna. Hún
sagði, aö kærastinn sinn vissi
ekki, að hún væri þarna, en
kannski myndi hún hringja i
hann og láta hann vita.
Númer tvö i keppninni var 18
ára gömul stúlka frá Thailandi,
og grisk stúlka lenti i þriðja
sæti.
Ungfrú Jensen, sem sigraöi,
sat á rauðum flosstól, er hún var
krýnd kórónu sigurvegarans.
Mál hennar eru 82-62-85. Eins og
menn muna sigraði Henný
Hermanns i þessari keppni fyrir
nokkrum árum. —óH