Vísir - 11.08.1973, Side 6

Vísir - 11.08.1973, Side 6
6 Vísir. Laugardagur 11. ágúst 1973. VÍSIR Otgefandi:-Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Aiiglýsingar: Hverfisgötu 32. Slmar 11660 86611 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Slmi 86611 Ritstjórn: Slöumúla 14. Simi 86611 f7,lfnur) Askriftargjald kr. 300 á mánuöi innanlands I lausasölu kr. 18.00 einfakiö. Blaöaprent hf. Mallorka eða Mývatn ? Langþráður virðist sá draumur, að íslendingar geti ferðazt um land sitt eftir mannsæmandi vegum. Tuttugu minútna akstur frá höfuð- borginni — og draumurinn er úti. Við tekur enda- laus viðáttan, bugður og beygjur, holur, þvotta- bretti og hvörf. Nokkurra daga sólskin hefnir sin á ferðalangnum með ægilegum rykmekki, sem grúfir sig yfir vegina og útilokar, að notið verði fagurs útsýnis. Og stundum er jafnvel rykið horfið og eftir er litið annað en urð og grjót til að skrönglast á. Engin furða þótt margir biði eilitið forvitnir eftir tilraunum Sverris vegagerðarkappa Runólfssonar og félaga hans. Fá fullyrðingar Sverris staðizt, — eða hafa efasemdamennirnir rétt fyrir sér i þvi, að vél hans megniekkiað breyta islenzkum jarðvegi i gott vegagerðar- efni? Einmitt þessa dagana snúa fjölmennustu hóparnir heim að afloknu sumarleyfi sinu, brúnir og sællegir eftir sólskinið, — á Mallorka eða við Mývatn, fullir af lifsþrótti og reiðubúnir til að takast á við viðfangsefni næstu mánaða. Utanlandsferðin i dag er tiltölulega ódýr og lokkandi tilboð freista margra. í ár munu lika fleiri en nokkru sinni fyrr sækja sólarstrandir. Um það er ekki nema gott eitt að segja. Hins vegar virðist það augljós staðreynd, að fjölda- margir íslendingar vita næsta litið um land sitt. Liklega er það svo að margur treystir sér naumast með gljáfægðan bilinn út á hina viðsjár- verðu vegi. En landsbyggðin hefur þó stöðugt vinninginn. Fólkið heldur i ferðir, stuttar og langar, út frá bæjunum inn til sveitanna i óendanlega frið- sældina, laust frá sima og fjölmiðlun, rukkurum og erli. Það er eins og skorti á, að landsbyggðin sé gerð eins freistandi og sólarströndin bláa. Vegirnir eru að visu eins og þeir eru og geta raunar allt eins orðið ágætir, en misjafnir eftir þvi, hvaða vegagerðarmeistarar hafa um þá fjallað og hvaða efni þeir hafa til umráða hver i sinu héraði. En það má gera margt til að auka ferða- mennsku um okkar eigið land. Og slik ferða- mennska hlýtur að vera ákjósanleg frá hagrænu sjónarmið séð, auk þess sem það hlýtur að vera hverjum manni nauðsyn að kynnast eigin landi og komast i snertingu við náttúru þess. Það er vel, að vegamerkingum i Borgarfirði á að kippa i lag fyrir næsta ferðasumar, eins og vegamálastjóri lofaði i blaðinu i vikunni. I Borgarfjarðardölum hefur margur ferða- maðurinn hreinlega týnzt þrátt fyrir vegakortið góða, og áreiðanlega geta bændur i þeim fögru héruðum borðið um það. Eigendur veitingastaða við þjóðvegina hafa siðustu árin sýnt lofsverða viðleitni til að bjóða upp á falleg og vistleg húsakynni, sem gera ferðalagið á misjöfnum vegunum mun bærilega. Stórbættar vegamerkingar munu enn auka á vel- liðan á ferðalaginu. Hér þarf stórt átak til, en væntanlega munu viðeigandi yfirvöld hugsa hlý- lega til ferðafólksins á næsta sumri með stór- felldum endurbótum i þessum efnum —JBP— KÓLNAR MILU RÓSSA OG KÍNA — en er það alvara eða leikur? Kolsvartir skýja- bólstrarnir hafa hrann- azt upp enn einu sinni yfir sambúð Rússa og Kinverja, og að þessu sinni eru það Rússar, sem safna glóðum elds að höfði Kinverjum. sóslalistarikjum”, segir „Alex- androv”. bessi fréttaskýrandi Kreml sagði, að stefna Pekingstjórnar- innar „væri sifellt hættulegri”, sem er i rauninni hreinskilnisleg játning á þvi, að Kina er aðal- áhyggjuefni Moskvu á erlendum vettvangi. Alexandrov sagði, að leiðtogar Kina væru „sekir” um að við- halda „spennu” i sambúð „meiri- hluta sóslalistarikja”. Pravda staðfesti, að viðræðurn- ar til lausnar deilunni um Sino- Sovétlandamærin, sem hefur ver- ið eitt verst skemmda eplið i sam- búðartunnu Rússlands og Kina, væru algerlega komnar i strand. „Gagngerar tillögur” Ráðstjórn- arrikjanna voru hunzaðar af Kin- verjum eða blátt áfram hafnað, að þvi er „Alexandrov” fullyrðir. bessi Alexandrov-grein kom i kjölfar lausafrétta um að sambúð Kinverja og Rússa færi hrið- versnandi. Merki um það hefur mátt greina i auknum mann- safnaði og herstyrk við landa- mærin, algert bann á ferðafrelsi kinverskra sendifulltrúa i Moskvu, og auðvitað rússneskra sendifulltrúa i Peking. Fleira átti þó enn eftir að gerast i þessu munnhöggi Rússa og Kin- verja i vikunni. Lundúnablaðið „Daily Telegraph” sagðist hafa undir höndum 3000 orða skjal, sem afhjúpaði áætlanir Moskvu- stjórnar og um leifturstrið á hendur Kina. Blaðið segir, að tvennt aðallega — eftir þessari skýrslu að dæma — væri það, sem knúið hefði Rússa til þessara tryggðarofa. bað væri versnandi aðstaða á er- lendum vettvangi og minnkandi áhrifamáttur á kommúnista- blokkina, og svo örar framfarir Kinverja i átt til kjarnorkuveldis. Breshnev og Kosygin — frá Kreml andar nú mjög köldu í garð kinvcrsku „kammiratanna”. bessa vikuna hafa þeir ráðizt heiftarlega að utanrikisstefnu Peking, fordæmt hana, kallað hana hættulega og lýst þvi jafn- framt yfir, að Kinverjar hafi al- gerlega sagt skilið viö stefnu Marx og Lenins. Og samtimis þessu hafa hátt- settir talsmenn Kremlherranna hvatt til þess, að stofnuð yrðu „varnarsamtök” Asiu, sem Kin- verjar lita á likt og tilraun til þess aö umkringja þá og einangra. Fyrsta skrefið I þessu áróðurs- striði Moskvu við Peking var stig- ið á þriöjudag, þegar löng kjall- aragrein birtist i Pravda, aðal- málgagni kommúnistaflokks Ráöstjórnarrikjanna. Greinin var undirrituð: „I. Aiexandrov”. En þaö er einmitt dulnefni, sem hátt- settir meðlimir æðstaráðsins bregða stundum fyrir sig, þegar stefnuyfirlýsingum er varpað fram. Greinin var bituryrt I garð Kin- verja og þeim mun meir bar á þvi sem i henni var i leiðinni þess getið, að um þessar mundir væru auðvaldsrikin og kommúnista- löndin einmitt að setjast á friðar- rökstóla. — bað var álit „Alex- androvs”, að unnið væri að þvi að greiða úr Vietnamflækjunni, og að Mið-Asiuvandamálið væri „flókið”, en þó leysanlegt, og friðsamleg sambúð rikjanna væri að verða meginregla rikja, sem áður sátu aldrei á sárshöfði i kalda striðinu. „Eina undantekningin,” sagði Pravda, ,,er Kina, sem er stað- ráðið i þvi að vinna Ráðstjórnar- rlkjunum allt það ógagn, sem það má, og kljúfa þau frá banda- mönnum þeirra i Austur- Evrópu”. „1 samsæri með auðvald- inu”....,,kyndandi undir óánægj- unni i þriðja heimin- um”....„fjandskapast við alla i búðum kommúnista”.... — 1 þessum dúr voru ummæli Pravda um Kínverja. „Og þessu er aðallega stefnt að Ráðstjórnarrikjunum og öðrum llllllllllll Umsjón: Guðmundur Pétursson Tveir viðburðir hefðu svo ýtt á eftir K r e m 1 h e r r u n u m , samkvæmt frétt Daily Telegraph, til að fara með ófrið á hendur Klna. Annar væri dauði Lin Piao, marskálks, sem talinn var lik- legastur eftirmaður Mao Tse Tung og var mjög hollur Rússum. Að honum burtkölluðum eygja Rússar litlar vonir um að fá tjónkað neitt við leiðtoga Kina. Hinn var sivinsamlegri samskipti Kina og Bandarikjanna, sem opn- uöu möguleika til myndunar bandalags Kina og Bandarikj- anna gegn Ráðstjórnarrikjunum. bessi frétt Daily Telegraph hefur að sjálfsögðu ekki hlotið neina staðfestingu. Skjölin er blaðið vitnar til, eru sögð skrifuð af háttsettum manni innan ráða- klikunnar i Kreml. En menn eru ekki trúaðri á sannleiksgildi þess en svo, að þeir láta sér eins koma til hugar, að þeim hafi verið smyglað út i þeim tilgangi að sannfæra Vesturlandamenn um að Kina sé eina áhyggjuefni Rússa. bvi sé Vesturlöndum óhætt að ganga enn lengra i af- vopnuninni, að Rússar muni aldrei nota sér slikt. Að Lin Piao marskálk fráföllnum eiga Rússar sér engan tryggan málsvara i Pekingstjórninni.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.