Vísir - 11.08.1973, Page 9
Visir. Laugardagur 11. ágúst 1973.
9
Aldursforsetinn
stóðst prófið
B.J. Becker. Þótt hann sé orðinn
fiHára komst hann enn i iandsliðið
og greinar hans um bridge birtast
i fjölmörgum blöðum i Banda-
rikjunum.
Þrátt fyrir að Becker hafi svo
að segja komið beint af sjúkra-
húsi i heimsmeistarakeppnina,
þá kemur mönnum saman um
það, að hann hafi sjaldan spilað
betur. 1 eftirfarandi spili, sem
kom fyrir i leiknum við Dall-
as-Asana, sýndi hann mjög at-
hyglisverða varnarspila-
mennsku.
Staðan var allir á hættu og
norður gaf.
A K-G-9-3
¥ D-9-5-3-2
* K
* A-G-9
* 10-5-2 * A-8-4
t K-G-6 V 10-8-7
4 D-10-8-5-3 4 2
4» 4-3 * K-D-8-7-6-2
* D-7-6
V A-4
4 A-G-9-7-6-4
10-5
Aldursforseti i siðustu heims- verandi heimsmeisturum i Sagnir gengu þannig i opna
meistarakeppni var einn af fyrr- bridge, Bandarikjamaðurinn salnum:
Að lóta eitthvað eftir
sér einn daginn getur
kostað sult nœsta dag
Erla Norðfjörð hefur nú starfað í 3 ár hjá Geoffrey Beene
í New York við tízkusýningar
Það er liklega ekki alltaf tekið
út með sældinni að vera i tizku-
sýningum. En það hefur hún
lagt fyrir sig hún Erla Norðfjörð,
sem við höfum reyndar sagt frá
áður, en meðfylgjandi myndir
eru teknar af henni við starf sitt
i New York.
Erla er tvitug að aldri, en hóf
starf sitt sem tizkusýningar-
stúlka hjá Módel-samtökunum,
þegar hún var 16 ára að aldri.
Þar var hún i eitt ár, en fluttist
siðan ásamt fjölskyldu sinni til
New York og hefur dvalið þar
slöan. Hún heimsækir þó alltaf
Island öðru hverju.
Hún sótti fljótt um hjá einum
frægasta tizkuteiknara Banda-
rikjanna Geoffrey Beene, og
komst að. Þegar við röbbuðum
Htillega við móður Erlu, þar
sem hún er ekki á landinu sjálf,
sagði hún hana hafa verið mjög
heppna, þar sem erfitt er að
komast að oft á tiðum.
Erlu likar mjög vel við starf
sitt, en nú getur komið til
greina, að einhverjar
breytingar eigi sér stað hjá
henni. Liklegt er, að hún starfi
nú hjá fleiri fyrirtækjum en
þessu eina, þó að ekki sé alltaf-
ráöið með það.
En starf þetta er mjög erfitt.
Það þýðir til að mynda litið að
láta eftir sér að bragða á öllu
góðgæti sem hugurinn girnist.
Þær sem starfa sem tizku-
sýningarstúlkur þurfa að vera á
Hér er Erla
Norðfjörð i silfur-
litaðri kápu með
silfurref á erm-
um. Kápan er
eingöngu ætluð
sem kvöldkápa.
Aður en Erla hélt til New York
meö fjölskyldu sinni, starfaði hún
með Módel-samtökunum. Hér er
hún i grænbláum kvöldkjól með
rcfaskinni á ermum og skemmti-
lega húfu á koliinum i sama lit og
kjóliinn.
stöðugum kúrum, og ef eitthvað
er látið eftir sér einn daginn,
getur það kostað það, að við-
komandi þurfi að svelta næsta
dag!
Starfi þessu er skipt niður i
alls kyns flokka, og Erla starfar
sem svokallað house-modei.
Þaö þýðir, að hún þarf að
fylgjast með þeim fatnaði, sem
hún sýnir frá upphafi. Fötin eru
sniðin á hana, þau eru síðan
saumuð á hana, og hún þarf að
máta þau hvað eftir annað. Loks
sýnir hún fötin, og siðan eru þau
seld.
En starfið er vel launað, og
þvi fylgir án efa talsverð
ánægja. Það þýðir þó litið að
leggja þaö fyrir sig sem lifs-
tiðarstarf. Flestar starfa við
það i 10 ár eða svo, en siðan er
það búið...
—EA
Wolf Becker Hamman Rubens
Norður Austur Suður Vestur
1 2 ¥ P 2 G P
3~ * P 3 G P
P P
Opnun norðurs á tveimur hjört-
um sýndi 5-4 i hjarta og spaða, tvö
grönd spurðu um skiptingu og
þrjú lauf sýndu skiptinguna
4-5-1-3.
Vestur spilaði út tigulfimm og i
öðrum slag spilaði blindur út
spaðagosa. Becker gaf og siðan
aftur, þegar sagnhafi spilaði
heim á drottningu. Suður tók nú
tigulás og spilaði ennþá spaða.
Becker drap og spilaði hjartasjö.
Nú gat suður unnið spilið með þvi
að drepa á ásinn, en frá hans
sjónarhóli, þá gat Becker hæg-
lega verið að spila frá hjarta-
kóngnum. Hann gaf þvi slaginn
og vestur drap á kónginn og spil-
aði laufi. Blindur lét lágt, Becker
drap á drottningu og átti að spila
út i þessari stöðu:
A 9
¥ D-9-5
4 enginn
4> A-G
A enginn A enginn
V G-6 ¥ 10-8
4 D-10-8 4 enginn
A 3 A K-8-7-2
A enginn
¥ A
Hefði Becker spilað út hjarta i
þessari stöðu, þá voru niu slagir
upplagðir. 1 staöinn spilaði hann
laufi og gaf sagnhafa auka-slag.
Hins vegar skar laufútspilið á
samganginn hjá sagnhafa. Suður
drap með laufagosa, tók spaðaniu
og kastaði hjartaás, en gaf sið-
ustu tvo slagina, einn niður.
1 lokaða salnum spilaði norður
þrjá spaða og varð einn niður.
Auglýsing um
umferð í Reykjavík
Vegria þeirrar ákvörðunar borgarráðs
Reykjavikur að gera Austurstræti að
göngugötu i tilraunaskyni verða eftir-
farandi breytingar gerðar á umferð
bifreiða og reglum um bifreiðastæði i mið-
borginni á timabilinu frá 12. ágúst til 14.
október n.k.:
1. Austurstræti verður lokað fyrir umferð
allra ökutækja annarra en strætisvagna á
timabilinu frá 12. ágúst til 16. september
og allra ökutækja á timabilinu frá 16.
september til 14. október. Akstur með
vörur að verzlunum verður þó leyfður á
milli kl. 7 og 11 á virkum dögum, nema
laugardögum á milli kl. 7 og 9.
2. Pósthússtræti verður lokað fyrir allri
umferð ökutækja á milli Vallarstrætis og
Hafnarstrætis.
3. Aðalstræti verður lokað á kaflanum
milli Austurstrætis og Fischersunds fyrir
umferð allra ökutækja annarra en strætis-
vagna. Akstur með vörur að verzlunum
verður þó leyfður á milli kl. 7 og 11 á
virkum dögum, nema laugardögum, en þá
er akstur leyfður á milli kl. 7 og 9.
4. Akstur verður leyfður i báðar áttir um
Aðalstræti á milli Kirkjustrætis og
bifreiðastæðisins að Austurstræti 2 og á
kaflanum milli Hafnarstrætis og
Fischersunds.
5. Einstefnuakstur verður á Skólabrú og
Kirkjustræti til vesturs frá Lækjargötu að
Suðurgötu.
6. Bifreiðastöður á bifreiðastæðinu að
Austurstræti 2 verða takmarkaðar við
eina klukkustund. Gjald verður 20 krónur
fyrir hverjar byrjaðar 30 minútur.
Bifreiðastöður verða aðeins heimilaðar á
virkum dögum kl. 8-20, nema á laugar-
dögum, en þá eru stöður leyfðar kl. 8-14.
7. Hámarkstiminn við stöðumæla á
Kirkjutorgi verður styttur úr tveim
klukkustundum i eina klukkustund. Gjald
verður óbreytt, 5 kr. fy.rir hverjar
byrjaðar 30 minútur.
8. Bifreiðastöður á bifreiðastæðinu við
Glasgowsund á milli Vesturgötu og
Fischersund verða takmarkaðar við eina
klukkustund án gjaldtöku.
9. Bifreiðastöður á bifreiðastæði, sem af-
markast af Vonarstræti, Tjarnargötu óg
Kirkjustræti, verða takmarkaðar við tvær
klukkustundir án gjaldtöku.
10. Settir verða upp 10 stöðumælar á
bifreiðastæði á horni Kirkjustrætis og
Tjarnargötu til viðbótar þeim 7, sem fyrir
eru. Gjald verður 5,00 kr. fyrir hverjar
byrjaðar 30 minútur. Hámarks stöðutimi
verður ein klukkustund.
Lögreglustjörinn i Reykjavik,
9. ágúst 1973.