Vísir - 11.08.1973, Page 16

Vísir - 11.08.1973, Page 16
16 Vlsir. Laugardagur 11. ágúst 1973. n □AG | Q KVÖLD | | í DAG | | í KVÖLD | | í DAG | SJÓHVARP • Laugardagur 11. ágúst 20.00 Fréttir. 20.20 Ve*ur og auglýsingar 20.25 Söngelska fjölskyldan (The Partridge Family) Nýr, bandariskur mynda- flokkur í léttum tón. Mynd- irnar i'jalla um bandariska fjölskyldu, sem leggur upp i hljómleikaferð um landið. Þýðandi Ellert Sigurbjörns- son. 20.50 Ken Ilardy Sænskur töframaður sýnir spila- galdra og ýmiss konar sjón- hverfingar i sjónvarpssal 21.15 Leiðin til þroska Mynd um óvenjulega mennta- stofnun i Suður-Afriku, þar sem efnispiltar viðs vegar að úr heiminum koma til náms, og fræðast um sam- bandið milli manns og náttúru i könnunarferðum um óbyggðir. Þýðandi Ellert Sigurbjörnsson. 21.40 Hréf til þriggja eigin- kvenna Bandarisk biómynd frá árinu 1949, byggð á sögu eftir John Klempner. Leik- stjóri Joseph L. Mankiewicz. Aðalhlutverk Jeanne Crain, Linda Darn- ell, Ann Southern, Kirk Dogulas og Poul Douglas. Þýðandi Heba Júliusdóttir. Þrjár vinkonur, eiginkonur þriggja virtra og vel met- inna borgara, fá skilaboð frá frægri þokkagyðju um að hún hafi hlaupizt á brott með einum þeirra. En ekki er vitað að svo stöddu hver þeirra hefur verið yfirgefin. Um kvöldið mun allt heldra fólk héraðsins hittast i sam- kvæmi, og ef einhver hinna þriggja eiginmanna lætur ekki sjá sig þar, hlýtur hann að vera hinn seki. 23.20 Dagskrárlok. Sjónvarpið í kvöld kl. 20.25: „Söngelska fjölskyldan" NÝR BANDARÍSKUR MYNDAFLOKKUR í LÉTTUM TÓN t sjónvarpinu 1 kvöld er fyrsta sýning á „Söngelsku fjöl- skyldunni” (The Partridgc Family). Þetta er ameriskur mynda- flokkur, scm sýndur hefur vcrið i Handaríkjunum, Bretlandi og vlðar við miklar vinsældir. David Cassidy, sem er einn af lcikurum myndarinnar, gat sér einmitt frægð fyrir leik sinn og söng I þessum myndaflokki. Shirlcy Jones, scm lcikur móðurina, cr I raun og veru stjúp- móðir hans. Við ræddum við Ellert Sigurbjörnsson, og sagði liann okkur litillega frá efni fyrsta þáttarins. Frú Partridge (Shirley Jones) er ekkja með 5 börn. Krakkarnir syngja allir og spila á hljóöfæri og hafa þeir æfingar I bilskúrnum hjá sér. Nú veikist söngkona hjá þeim af mislingum og verður það til þess, að mamman hleypur i skarðiö fyrir hana. Þeim tekst að fá gefna út plötu með mikilli fyrirhöfn og nær platan geysi- legum vinsældum Þá fá krakkarnir þá hugmynd að kaupa gamlan strætisvagn og fara i hljómleikaferð um iandiö. —EVI Allir meðlimir I „Söngelsku f jölskyldunni”, sem sýnd verður I sjónvarpinu I kvöld. Linda Darnell og Poul Douglas 1 hlutverkum sínum i „Bref til þnggja eiginkvenna”. Sjónvarpið í kvöld kl. 21.40: „Bréf til þriggja eiginkvenna" Eiginmaður hverrar er hlaupinn ó brott? „Þptta er létt og skemmtileg mynd, sem gaman er að sjá”, sagði Heba Júliusdóttir, þýðandi myndarinnar „Bréf til þriggja eiginkvenna ”, sem sjónvarpið sýnir i kvöld. Hún byrjar á þvi að mann- eskja talar, sem kemur mikið við sögu i myndinni, en sést þó aldrei. Þrjár eiginkonur mikilsvirtra borgara taka mikinn þátt i góð- geröarstarfsemi og eru að fara með hóp barna i skemmti- siglingu. Þegar þær eru I þann mund að ieggja af stað frá bryggju, koma 3 bréf sitt til hverrar eiginkonu, frá Addieros, vinkonu þeirra, og segir hún þeim, að hún geti ekki komið með þeim i ferðalagið. Hún sé alfarin úr bænum og hafi tekiö einn af eiginmönnunum með sér. Báturinn er að leggja frá bryggju, svo að eiginkonurnar þrjár geta ekkert gert i þvi að hringja heim til að vita, hvaða eiginmaður er hlaupinn á brott. Þær verða þvi að sætta sig við að þjást allan daginn. Fara þær svo að rifja upp ýmis atriði, sem gerzt hafa i hjónabandinu og spyrja sjálfar sig, hvað hafi gerzt, sem ef til vill gæti valdið skilnaði. Aðalhlutverk: Jeanne Crain, Linda Darnell, Ann Southern, Kirk Douglas og Poul Douglas. Leikstjóri: Joseph L. Mankiewicz. —EVI Sjónvarpið á sunnudagskvöld kl. 20.25: „Heimskaut 7" Flug frá Kanada með viðkomu á íslandi „Ileinuyftaut 7” (eða „Arctic 7”) er nafn á gamalli herflugvél af gerðinni DC 3, sem er endurbyggð af áhuga- mannahóp, sem ferðast vitt og breitt um heiminn,” sagði Gylfi Pálsson okkur, þegar við spurðum um mynd- ina „Heimskaut 7” sem hann er þýðandi að. „Þetta eru 3 myndaflokkar og er sá fyrsti sýndur á sunnudags- kvöld. Eru þetta 7 manns allt ungt fólk frá Kanada, sem fara þaðan yfir til Grænlands, Islands, Fær- eyja og svo til London. I Grænlandi fara þau upp á jökulinn til að leita að flugvél, sem þau vita að er þar. Ætlunin er að ná henni og flytja hana á safn. A leiðinni frá Kanada hafa þau haft samband við Asgeir Péturs- son flugstjóra hjá Loftleiðum i loftskeytastöðinni, og hitta þau hann. Brugðið er upp svip- myndum frá Reykjavik. I Færeyjum siga þau i björg óg fara svo loks til London i menninguna og mengunina þ'ar úr heiðrikjunni i norðri”. — EVI ÚTVARP # Laugardagur n.ágúst 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (úr forustugr. dagbl.), 9.00 Morgunkaffið kl. 10.50: Þorsteinn Hannesson og gestir hans ræða um út- varpsdagskrána. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 óskalög sjúklinga. Kristin Sveinbjörnsdóttir kynnir. 14.30 A iþróttavellinum. Vilhelm G. Kristinsson segir frá. 15.00 Vikan, sem var.Umsjón- armaður: Páll Heiðar Jóns- son. 16.00 Fréttir. 16.15 Veðurfregnir. Tiu á toppnum. Orn Petersen sér um dæturlagaþátt. 17.40 i umferðinni. Jón B. Gunnlaugsson sér um þátt með blönduðu efni. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.20 Frá Norðurlandameist- aramótiuu i sundi. Jón As- geirsson lýsir frá Osló. 19.35 Pólskt kvöld.a. Um land og þjóð. Þrándur Thorodd- sen segir frá. b. Pólsk tóniist.a. Bogdan Paprocki syngur ariu úr óperunni „Halka” eftir Stanislav Moniuzsko. — óperuhljóm- sveitin i Prag leikur með, Boghdan Wodiczko stjórn- ar. b. b. Witold Malcuzynski leikur á pianó pólónesur nr. 1 i cis-moll op. 20 nr. 1 og nr. 2 i es-moll op. 26 nr. 2 eftir Chopin. c. Pólskir listamenn syngja og leika þjóðlög. c. „Armelle”, smásaga eftir Ireneusz Iredynski. i þýð- ingu Þrándar Thoroddsens. Sigurður Karlsson les. 21.05 Hljómplöturabb. Guðmundur Jónsson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Eyjapistill. 22.3Ö Danslög. Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.