Vísir - 11.08.1973, Side 20
Vissara að hafa leyfi
landeigenda til að tína ber
— Óprúttnir menn hafa selt leyfi til tínslu í löndum annarra á Snœfellsnesi
,,Ég held að það sé
frekar litið um ber i ár.
Að visu hef ég ekki
farið sjálfur, en
krakkarnir eru ekki
farnir að koma með
nein ber enn” sagði
Kristbjörn Guðlaugs-
son bóndi á Arnarstapa
á Snæfellsnesi, þegar
við höfðum samband
við hann i gær.
A6 sögn Kristbjörns er venju-
lega hægt að fara að tina ber á
þessum tima, en i vor og sumar
hafi verið kalt og berin varla
hæf til tinslu fyrr en i fyrsta lagi
um 20. ágúst.
Óhemju margt fólk kemur á
þessar slóðir að tina ber á
hverju ári og hefur verið mikið
af þeim út með Snæfellsjökli,
fyrir utan Malarrif i Lónlandi
og raunar meira og minna
viöast á Snæfellsnesi.
„Það gerðist fyrir nokkrum
árum dálitið skringilegt.Margir
þóttust eiga berjalöndin og
seldu leyfi þeim, sem voru að
tina. Reyndust þetta ekki vera
eigendur, heldur menn, sem
voru að gabba fólk til að borga
fyrir að mega tina”, sagði'
Kristbjörn.
„Það er betra fyrir fólk að
hafa leyfi hjá landeigendum
fyrir berjatinslu” sagði Haukur
Hafstað hjá Landvernd, þegar
við höfðum samband við hann.
Hann sagði, að i 12. grein
náttúruverndarlaganna þar
sem ræðir um náttúru landsins
og umgengni, segi að al-
menningi sé heimilt að tina ber
af óræktuðu landi, ef þau eru
borðuð á staðnum.
Ekki er heimilt að tina ber án
leyfis landeigenda og setja i ilát
til að fara með heim með sér
eða til að selja.
Náttúruverndarráði er
heirailt að leggja bann við
notkun tækja við berjatinslu, ef
það telur, að spjöll hljótist af á
gróðri, og á það bæði við
eigendur og aðra.
„Enda er vel hægt að tina ber
með venjulegri tinu án þess að
skemma gróðurinn, ef rétt er að
farið”, sagði Haukur.
—EVI
Hjófið
losnaði
á ferð
— bíllinn valt og
fjórir slösuðust
Hjól, sem losnaði undan bll á
ferð, varð þess valdandi aö bif-
reiðin vait og fjórar menneskjur
slösuðust i gærdag. Slysið átti sér
stað á Vesturlandsveginum,
skammt frá Fossá i Kjós.
Þrir farþegar voru auk
ökumanns i bilnum. Allt fólkið
var flutt á slysadeildina til athug-
unar.
Taliö er að boltar, sem héldu
hjólinu, hafi losnað. Billinn
sjálfur er svo að segja gjör-
ónýtur.
önnur velta varð einnig á
Vesturlandsveginum i gær, rétt
hjá Tiðaskarði i Hvalfirði.
ökumaður bils missti stjórn á
honum og ók út af. Valt billinn.
Þrir farþegar voru i bilnum, en
engan sakaði.
— ÓH
Laugardagur 11. ágúst 1973.
/// i\\X
■i'.Vli.'.W.
Helgarveður:
Vott hjá okkur,
en sólskin á
N og A landi!
Bezta vcðrið um helgina vcrður
norðuuslan tii á landinu. Þangað
verður þvi bezt fyrir fcrðamenn
að halda og eyða þar frltlmanum.
1 gærkvöldi, þegar við ræddum
við veðurfræðinga, geröu þeir ráð
fyrir suðlægri átt með vætu á
Suður- og Vesturlandi. Ekki er
búizt við að það sjáist til sólar, og
heldur dimmt verður liklega yíir
öllu saman.
öðru máli er að gegna um
Norður- og Austurland. Þar eru
veðurguðirnir mönnum hliðhoilir
þessar stundirnar, og þar er gert
ráð fyrir þurru veðri og hlýju.
Þar skin sólin líklegast glatl, og
búast má við 15-20 stigahita á
Akureyri.
Hitinn komst það hátt i gærdag
og búizt er við þvi hitastigi áfram.
Hins vegar komst hiti ekki nema i
10-12 stig i höfuðborginni i gær-
dag, og hiti verður ekki að neinu
ráði nú um helgina. — EA
Unnið við barna- k
gœzlusvœðið við \
Bernhöftstorfuna V
Unnið of kappi í Austurstrœti
— og á morgun verður lokað fyrir bílaumferð
Undirbúningur undir lokun
Austurstrætis fyrir biiaumferð er
i fullum gangi, en á morgun
verður gatan gerð að göngugötu
tii tvcggja mánaða.
Akveðið er að setja upp högg-
myndir á götunni eftir þá Sigur-
jón Olafsson og Asmund Sveins-
son. Auk þess verða þarna tré og
blóm í pottum og bekkir fyrir fólk
að tylla sér á. Biða menn með
eftirvæntingu eftir að sjá, hvernig
þessi tilraun tekst og hvernig
menn bregðast við þessari
breytingu á götunni. Fyrri
mánuðinn, sem tilraunin stendur,
munu strætisvagnar þó aka um
götuna, en gatan verður máluð og
svæði þeirra þannig afmarkað.
Hilmar Ólafsson hjá Þróunar-
stofnuninni sagði blaðinu i gær,
að leiksvæðið við Bernhöftstorf-
una yrði senn tilbúið, en þar
verður barnagæzla á meðan til-
raunin stendur yfir. Við báða
enda Austurstrætis verður merki,
sem sýnir, að ekki má aka inn á
götuna. —ÞS
Þessir hressu sjómenn á myndinnieru Skagstrendingar, sem leggja af staö i dag til Japan til að sækja
skuttogara. 1 tilefni ferðarinnar keyptu þeir scr allir boli meö50 milna landhelgisáróðri á.
Þá daga, seni þeir dveljast i Japan, ætla þeir að klsiðast bolunum til að vekja athygli manna á mál-
staðnum. „Þetta er kannski ekki stórt framtak, en nargt smátt gerir eitt stórt” sagði einn þeirra.
Togarinn, sem þeir eru að sækja, er eign Skagstrendii'gs h.f. Þeir munu fljúga til Japan, en eru 56 daga
að sigla til baka.
„Við munum sigra”, sögðu þeir, er þeir kvöddu. —ÓH
TVÖ ÍSLANDSMET Á
NORÐURLANDAMÓTINU
Tvö Islenzk met voru sett á
Norðurlandamótinu I sundi, sem
hófst i gærkvöldi. Vilborg Július-
dóttir synti 800 metra skriðsund á
10.03.5 og varð fimmta I röðinni.
Friðrik Guðmundsson setti met i
1500 metra skriðsundi, þar sem
hann varð fimmti. Timi hans var
17.28.0.
Sviar eru efstir að stigatölu
eftir fyrsta dag keppninnar, með
51 stig. Næstir koma Norðmenn
með 41 stig og siðan Finnar með
21, Danir 11, og Islendingar eru
með 7 stig. — ÓG.
ÁSATRÚARMENN
StCtPTA LANDINU
í„GOÐORÐ"
Nœsta blót í Reykjavík
Ásatrúarmenn hyggjast
skipta Iandinu í goðorð. Svcin-
björn Beinteinsson allsherjar-
goði sagði i viðtali við VIsi i gær,
að sennilega yrðu goðorðin 36.
Hafið þið mannskap til þess
arna i öllum hlutum lands?
„Ekki ennþá,” segir Svein-
björn, „en við væntum þess, að
það verði innan skamms.”
Sveinbjörn sagði, að fylgis-
menn hreyfingarinnar væru nú
eitthvað á annað hundrað.
„Þeim fjölgar hægt og bitandi,”
sagði hann.
Næsta blót verður varla fyrr
en i haust og þá sennilega i
Reykjavik, að sögn Svein-
bjarnar. Ekki er ákveðið, hvar i
Reykjavik það yrði.
Asatrúarmenn ætla að gefa út
i „talsverðu upplagi”
kynningarrit um stefnu sina, og
verður það gert með haustinu.
— HH