Vísir - 16.08.1973, Side 4

Vísir - 16.08.1973, Side 4
4 Visir. Fimmtudagur 16. ágúst 1973. I’annig birtist Fia lesendum B.T. sem ein af „sumarstúlkum” blaðsins fyrr á þessu sumri. Topplaus fulltrúi ungu kynslóðarinnar Pia hefur hér fengið á höfuð sér kórónuna, sem júgóslavnesk stúlka hafði borið siðasta árið. Danska dagblaðið B.T. státar nú af þvi, að ein af „sumar- stúlkum” þess blaðs hefur nú hlotið titilinn „Miss Young Inter- national” i alþjóðlegri fegurðar- samkeppni táninga, sem fer ár- lega fram I Tokyo og útnefndi Henný Hermannsdóttur þá feg- urstu eitt árið. A stærri myndinni hér til hliðar sjáum við þá sextán ára gömlu Piu Friis Jensen, eins og hún birt- ist lesendum B.T. fyrr i sumar, en minni myndin er frá krýningunni i Tokyo siðastliðinn laugardag. t fegurðarsamkeppninni voru þátttakendur frá samtals 48 þjóð- um heims, þar á meðal tslandi. Verðlaunin, sem féllu i skaut Piu, var kvartmilljón islenzkra króna ásamt óteljandi tilboðum frá tizkusýninga- og ljósmyndafyrir- tækjum. A siðasta ári tók Pia þátt i „fegurðarsamkeppni Dan- merkur”, og kemur reynslan frá þeirri keppni stúlkunni vel núna, þvi hún verður á stöðugu ferða- lagi langt fram i næsta mánuð á vegum „Miss Young”-keppninn- ar, og þarf hún viða að koma fram á sýningum, auk þess sem hún þarf að vera til viðtals við fjölda blaða og timarita, að ógleymdum útvarps- og sjón- varpsstöðvum. JULIE ANDIIEWS, sem gekk ekkert sérlega vel að afla sjónvarpsþáetti sinum i USA vinsælda, er nú byrjuð að búa sig undir eitt aðalhlutverkanna i kvikmynd, sem á að gera eftir óperettunni „Bitter Sweet”. Óperettan sú er smiði Noels heitins Cowards. NANCY SINATRA er um það bil að ganga i það heilaga. Karlinn heitir Wes Farrell, og hefur hann hlotið „blessun” pabba gamla, hans Franks Gail Fisher — hinn blakki einkaritari spæjarans „Mannix”, sem við munum eftir úr sjónvarps- myndaflokknum, sem islenzka sjónvarpið hefur sýnt — giftist hinum blakka rithöfundi, Robert A. Walker, ekki alls fyrir löngu. Áður en þau höfðu náð að pakka niður fyrir brúðkaups- ferðina höfðu þau komizt að þeirri niðurstöðu, „að það væri kannski bezt, að þau færu sitt i hvora áttina.” Leonid Bresjnev — rússneski þjóðhöfðinginn — fór með Nixon i bió, þegar hann heimsótti hann vestur á dögun- um. Þeir sáu ameriska kúreka- mynd, sem ber nafnið „My darling Clementine”. Féll Bresjnev myndin svo vel i geð, að hann fékk eitt eintak af kvikmyndinni. Alla dreymir um fallegt innbú DOMINO er draumasett DOMINO gerir drauminn að veruleika VAKNIÐ — komið, skoðið og setjizt í DOMINO STAÐGREIÐSLU- AFSLÁTTUR, - GREIÐSLU- SKILMÁLAR HVERGI BETRI

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.