Vísir - 24.08.1973, Blaðsíða 1
vísm
6S. árg. Föstudagur 24. ágúst 1973 — 193. tbl.
GEYMIRINN
GJÖRÓNÝTUR
— olíufélagið
kvað enga olíu
þar geymda
— sjá baksíðu
ÍlfSflSRtSMlltl:
Þeir voru vopnaðir sakleys-
islegum vopnum, Danirnir,
sem iögregian gómaði i gær i
göngugötunni. Þetta voru
bara ofureinfaldir gitarar!
Ákæran gegn Dönunum var
friðrof á aimannafæri.
Þeir upphófu semsé söng
mikinn, og það getur lögregl-
an auðvitað ekki þolað
mönnum. ,,Við elskum lög-
regluna”, sögðu Danirnir,
þegar fréttamaður Visis hitti
þá eftir yfirheyrsluna.
— Baksiða.
Menning fyrir
66 aura
r r •
a ari
„Við elskum
lögregluna"
Það kostar hvern islending
og hvern Norðurlandabúa
aðeins 66 aura islenzka á ári
hverju að reka Norræna hús-
ið I Reykjavik. Að vísu þyrfti
þessi styrkur að hækka ögn,
að þvl er hinn ungi forstjóri
Norræna hússins, Maj-Britt
Imnander sagði I gær. Yrði
slikt kærkomin afmælisgjöf
fyrir húsið, sem er reyndar 5
ára I dag. Myndin er af Maj-
Britt við hús sitt, en hún er
eini ibúi Vatnsmýrinnar. —
Sjá viðtal á bls. 3.
„KVALAFULLUR DAUÐDAGI
BÍDUR ÞÚSUNDA FUGLA"
— segja fuglaverndunarmenn, sem gengu fjörur í gœrkvöldi
,,Á allri strandlengj-
unni frá Sláturfélaginu
og inn i Selsvör hima
þúsundir fugla, sem
hafa orðið oliunni að
bráð. Það er útilokað að
bjarga þeim, og þeirra
biður kvalafullur dauð-
dagi innan fárra daga
eða vikna.” sagði
Grétar Eiriksson hjá
Fuglaverndarfélagi Is-
lands, en hann og Björn
Guðbrandsson læknir
gengu þessar fjörur i
gærkvöldi og könnuðu
fuglalifið þar.
,,Það er borginni til skammar,
ef þessir fuglar verða látnir
veslast upp og drepast þarna
fyrir allra augum. Það eina, sem
hægt er að gera er að reyna að
safna þeim saman og flytja þá i
burtu og aflifa þá á mannúölegan
hátt,” sagði Grétar. Sagði hann,
að Björn og hann myndu i dag til-
kynna borgarstjóra og fleiri aðil-
um um þessa könnun sina og fara
fram á að þegar verði gerðar ráð-
stafanir til þess að aflifa fuglana.
Eins og fram hefur komið i
fréttum þarf ekki nema örlitinn
blett af oliu á fiðrið eða á fætur
fuglanna til þess að það verði
þeim að fjörtjóni. Þeir sem
standa á oliumenguðum klöppun-
um fá oliu i fæturna og bera hana
siðan upp i fiðrið. Verður þar
óvarinn blettur og drepast
fuglarnir þvi beinlinis úr kulda.
Geta þeir kvalizt i margar vikur
áður en þeir deyja. Sagöi Grétar
að þar væri um að ræða ýmsar
mávategundir t.d. hettumáv
svartbak og silamáv og auk þess
sáu þeir tjald, sem var mjög illa
útleikinn og tildru og sendling.
,,Þetta eru ekki nokkrir luglar,
eins og sumir vilja vera láta,
heldur þúsundir af f'uglum. Málið
er miklu alvarlegra en menn hafa
almennt gert sér grein fyrir”,
sagði Grétar að lokum.
^ .. sins.
Myndina tök Ijösrhyndarr Visis^ í
fjörunni fyrir neöan málningarverk-
smiðjuna Hörpu viö Skulagötu r
morgun. Fuginn húkir þarna á skerinu
og getur litla eöa enga björg sér veitt.
22% verðbólgq ffoUpitlÓftUr VeX
miklu minna en undanfarin ár
Framkvæmdastofnun spáir
þvi, að verðbólgan verði 22 pró-
sent á árinu, og er þá miðað við
timabilið frá 1. nóvember i
fyrra til 1. nóvember I ár og
vlsitölu neyzluvöruverðs. Kaup-
máttur er talinn aukast miklu
minna I ár en siðustu ár.
Þvi er spáð, að kaupmáttur
tekna, sem heimilin hafa til ráð-
stöfunar eftir skattgreiðslur,
vaxi i ár um aðeins 3-4 prósent.
Þetta eru mikil umskipti frá
undanförnum tveimur árum,
segir i skýrslu stofnunarinnar,
sem barst I gær. Kaupmátturinn
jókst um 12,5 prósent i fyrra og
um 15,5 prósent i hittiðfyrra.
Aðalorsakir verðbólgunnar
eru i skýrslunni taldar vera
gengisbreytingar, erlendar
verðhækkanir og áhrif launa-
hækkana. Verðstöðvunin var
felld niöur um siðustu áramót,
eins og kunnugt er, en eftirsem
áður átti að hafa hemil á verð-
bólgunni með þvi aö allar inn-
lendar verðhækkanir skyldu
vera háðar samþykki verðlags-
nefndar og endanlega ákvörðun
rikisstjórnarinnar. Þrátt fyrir
þetta eru veröhækkanir taldar
verða meiri en lengi hefur veriö
hér á landi.
Við spána um 22 prósent verð-
bólgu er miðað við visitölu
neyzluvöruverðlags. Neyzlu-
vöruverð var um 15 prósent
hærra á timabilinu janúar til
mai eri það var að meðaltali árið
1972. Gert er ráð fyrir, að visi-
tala framfærslukostaðar hækki
um 17% milli meðaltala á þess-
um árum, þvi að reiknað er
með, að húsnæðisliður visitöl-
unnar hækki minna en vörur og
þjónusta og lækki töluna. —HH
Sjá nánar i leiðara á bls. 6.
Hundruðir þúsunda fengnar með búðahnupli
Það þarf ekki stórinnbrot til að
stcla hundruðum þúsunda. Hann
hefur sýnt þaö, pilturinn, sem
rannsóknarlögreglan hefur nú
undir höndum.
Siðan i vetur mun hann vera
búinn að stela skartgripum fyrir
fleiri hundruð þúsund krónur.
Skartgripunum hefur hann stolið
á þann hátt að fara inn i skart-
gripaverzlanir og hnupla af
búðarborðum.
Siðastliðinn vetur var hann
handtekinn fyrir slika þjófnaði.
Mun hann þá hafa verið búinn að
stela fyrir tæplega tvö húndruð
þúsund krónur.
Fyrir nokkru var hann svo
handtekinn aftur, og þá fyrir lika
þjófnaði. T.d. fannst hringur hjá
honum, sem hafði verið stolið
snemma i júni. Er verðmæti
hringsins 44.900 krónur.
Rannsóknarlögreglan skilaði i
gær þremur munum sem piltur
hafði komizt yfir. Verðmæti
þeirra er 76 þúsund krónur.
Ennþá stendur rannsóknarlög-
reglan uppi með skartgripi að
verðmæti 130-140 þúsund krónur
og biöur eftir að koma þeim til
eigenda sinna.
Málið liggur ekki allt ljóst fyrir,
og er nú unnið að rannsókn þess.
Má jafnvel búast við, að fleiri
skartgripir finnist, sem pilturinn
hefur hnuplað.
Hann mun ekki hafa átt auðvelt
með að koma þeim i verð.
— ÓH.