Vísir - 26.10.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 26.10.1973, Blaðsíða 9
Visir. Föstudagur 26. oktöber 1973. 9 TRYGGINGARNAR OKKAR? Er ég ekki tryggður samkv samningum verkalýðs- félagsins? Við athugun sina á trygginga- málum komast hjónin að þvi, að nauðsynlegt geti verið fyrir þau að liftryggja sig og einnig tryggja sig gegn hugsanlegum sjúkdóm- um eða slysum. Samkvæmt samningum stéttarfélaga innan Alþýðusam- bandsins er húsbóndinn tryggður að nokkru, og eru greiddar dánar- og örorkubætur vegna hans. Fást vegna þeirrar tryggingar 500 þúsund krónur vegna dauða og 750 þúsund vegna algjörrar örorku. Er þarna miðað við slys, sem verða i vinnu eða á beinni leið milli heimilis og vinnustaðar. Þarna sjá hjónin okkar, að nauðsynlegt er úr að bæta, þvi margs konar atburðir, sem valda slysum eða varanlegum sjúk- dómum, geta orðið, þó ekki sé það á neinn hátt tengt vinnunni. Svo hljótum við að fó eitthvað fróTrygginga- stofnunni Eitthvað hleypur Trygginga- stofnun rikisins undir bagga með þeim, sem verða fyrir áfalli vegna sjúkdóma eða slyss. En hvað skyldi það vera mikið? Vegna slysa, svo sem atvinnu- slysa, greiðir Tryggingastofnunin vegna framfæranda 492 krónur á dag og einnig 106 krónur með hverju.barni, sem hann hefur á framfæri sinu. Er byrjað að greiða þessar bætur frá áttunda degi eftir að slysið verður. Geta þessar greiðslur staðið i allt að 12 mánuði. Dagpeningar vegna sjúkdóms eru greiddir frá og með 11. degi, sem sjúklingurinn er frá vinnu vegna sjúkdómsins. Greiddar eru 390 krónur á dag og minna, ef dvalizt er á sjúkrahúsi. Með hverju barni eru greiddar 106 krónur. Tryggingastofnunin greiðir þvi um það bil 250 þúsund krónur á ári, ef húsbóndinn eða húsfreyjan veröur fyrir vinnuslysi. Ef þau verða fyrir einhverjum sjúkdómi, eru ársbætur á fyrsta ári allt að 200 þúsund. Ef maðurinn nýtur til dæmis þriggja mánaða kaups frá vinnu- veitanda, eins og heimilisfaðirinn i okkar dæmi, þá renna þessir dagpeningar Tryggingastofnunar til hans á þeim tima. Hjónin eru sammála um, að ekki sé þetta nægileg aðstoð, ef alvarleg slys eða sjúkdóma ber að höndum. Rétt er að taka fram, aö þarna er aðeins um hluta af bótastarf- semi Tryggingastofnunarinnar að ræða, en ekki er ástæöa tii að fjölyrða um það mál hér. Hver er staða fjölskyldunnar, ef eiginmaður- inn fellur fró? Líf trygging Til viðbótar við dánarbætur samkvæmt samningum stéttar- félagsins er ákveðið að eigin- maðurinn sé liftryggður fyrir 2 milljónir króna. Hjónin eru sam- mála um, að æskilegt sé að koma i veg fyrir, að veruleg breyting verði á fjárhagslegum högum fjölskyldunnar, þó eiginmaðurinn falli frá. Að visu tryggir þessi lif- trygging það ekki um alla fram- tið, en þó gefur hún nokkurt ráð- rúm og möguleika til að gera fyrstu árin eftir dauða eigin- mannsins léttbærari fjárhags- lega. Þessar tvær milljónir eru rúm- lega tveggja ára tekjur fjölskyld- unnar, og auk þess er nokkur af- gangur til þess til dæmis að létta undir með greiðslu .ýmissa skulda. Ekki er þó svo, ; að reikna þurfi með þvi, að skuld- irnar falli i gjalddaga við fráfall eiginmannsins. Hjónin eru með verðbólguhugsunarhátt og eru sammála um, að i þessum efnum muni verðbólgan sjá fyrir þvi að gera skuldirnar léttbærari eftir þvi sem timar liða. Liftrygging eiginmannsins kostai 7.782 krónur á ári. Þorf að leysa heimilið upp, ef eiginkonan deyr? Líf trygging Það er ekki aðeins eiginmað'ur- inn, sem getur látizt, þegar minnst varir. Ekki er siður nauð- synlegt að liftryggja eiginkonuna. Ekkill með tvö ung börn á ennþá að ýmsu leyti erfiöara en ekkja. Bætur almannatrygginga eru lægri til hans, og hingað til hefur varla verið reiknað með þvi, að ekklar stæðu fyrir heimilum með börnum sinum. Hjónin okkar eru sammála um, að nauðsynlegt sé að tryggja það, að ekki þurfi að Ieysa heimilið upp, þó eiginkonan falli frá. Þvi er ákveðið að liftryggja eiginkonuna fyrir 1.2 milljónir. Upphæðin er ekki ákveðin sem nægjanleg til að koma i stað hús- móðurinnar heldur aðeins til að létta undir fyrst i stað. Engin fjárupphæö getur komið i stað móðurinnar á heimilinu. Iðgjaldið af þessari lif- tryggingu húsmóðurinnar er 4195 krónur á ári. Og hvað með börnin? Bætur vegna barnanna eru innifaldar i heimilistryggingunni. Vegna dauða af völdum slyss eða mænuveikilömunar eru greiddar 20000 krónur. örorkubætur vegna slyss og mænuveikilömunar eru alltað300 þúsundum. Akveðið er að taka sérstaka tryggingu vegna hugsanlegrar slysaörorku barnanna til viðbótar. Upphæðin er ákveðin 1 milljón vegna hvors barns og er hugsuð til að standa undir ýmsum nauðsynlegum kostnaði, svo sem endurhæfingu, ef annað hvort barnið yrði fyrir varanlegri örorku af völdum slyss. Þessi trygging kostar samtals fyrir bæði börnin 1400 krónur. Hvað verður,ef eiginmaðurinn verður öryrki — eða verður fró vinnu í lengri tíma? Sjúkra- og slysatrygging Dagpeningar Eins og áður hefur verið sagt, nýtur eiginmaðurinn þeirra réttinda, að hann hefur þriggja mánaða veikindafri. Einnig fær hann allt að 750 þúsund krónur, ef hann verður fyrir örorku vegna slyss i ýinnu eða á leið að og frá vinnu. Til viðbótar þessu er ákveðið, að vegna húsbóndans sé keypt slysa- og sjúkratrygging, sem bæti algjöra örorku vegna sjúk- dóms eða slyss með 2.5 milljón- um. Gert er ráð fyrir þvi, að minni örorka bætist hlutfallslega minna. Einnig þarf að tryggja fjöl- skyldunni tekjur eftir að þriggja mánaða veikindafrfinu er lokið, ef afleiðingar slyssins eða sjúk- dómsins eru það langvarandi. Hann fær þvi 10000 i dagpeninga á viku frá tryggingafélaginu eftir að þriggja mánaða timabilinu er lokið. Eru þessir dagpeningar greiddir i allt að þrjú ár. Er þá búið að tryggja fjölskyldunni nær sömu tekjur þessi þrjú ár, eins og hún hefur i dag. Er þá að sjálfsögðu einnig reiknað með dagpeningum frá Tryggingastofnuninni. Iðgjaid af svona sjúkra- og slysatryggingu með ákvæðum um dagpeninga cr 12.400 krónur á ári. Ef húsmóðirín verður öryrki vegna sjúkdóms eða slyss Sjúkra- og slysatrygging Ekki er siður nauðsynlegt að sjúkra- og slysatryggja húsmóð- urina. Það er meira að segja mjög athyglisvert, að samkvæmt skrám tryggingafélaga eru meiri likur á þvi i okkar dæmi, að hús- móðirin verði fyrir slysi en eigin- maðurinn, sem er verzlunar- maður. Það er ákveðið, að eiginkonan sé tryggð fyrir 2.5 milljónir við al- gjöra örorku vegna sjúkdóms eða slyss. Dagpeninga vegna tekjutaps er ekki nauðsynlegt að reikna með þvi bætur frá Tryggingastofnun nema um það bil sömu upphæð og tekjurnar, sem húsmóðirin i okkar dæmi fær fyrir starf sitt hluta úr degi. Eins og við segjum frá annars staðar, þá er trygging á eigin- konu að nokkru innifalin i heimilistryggingunni. Bætur eru greiddar samkvæmt henni við örorku eða dauða af völdum slyss eða mænuveikilömunar. Dánar- bætur eru 20 þúsund, og hæstu örorkubætur eru 300 þúsund. Sjúkra- og slysatrygging eiginkonu kostar 4075 á ári. Iðgjaldiö er svona mikið lægra en vegna eiginmannsins vegna þess, að ekki eru ákvæði um dag- peninga til hennar. Dagpeninga- trygging er nokkuð dýr og þvi dýrari, sem biðtimi eftir að slys eða sjúkdómur verður er styttri. Er hœgt að tryggja sig gegn skaða af eldgosi og jarðskjólfta? Eldgosið i Vestmannaeyjum er ofarlega i hugum fólks, og hjón- unum okkar dettur i hug, hvort ekki sé ráðlegt að tryggja ibúðina gegn skemmdum af völdum eld- goss. Ýmsir aðilar i Vestmannaeyj- um tryggðu sig, eftir að Surtsey gaus, en fáir munu hafa haldið tryggingunni við. Fáir ibúðareig- endur i Eyjum höfðu slika tryggingu, þegar gosið varð i Heimaey. Varla yrði hlaupið að þvi að fá keypta tryggingu gegn eldgosi, og örugglega yrði iðgjaldið mjög hátt. Endurtryggjendur úti i heimi fara vafalaust varlega i sakirnar svona nýlega eftir að gosið hefur i byggð hér á landi. Lika er það, að raunverulega eru mjög fáir aðilar það fjársterkir, að þeir geti hugsanlega bætt allt það tjón, ef stór þéttbýlissvæði legðust i auðn af völdum eldgoss. Hægt er að kaupa jarðskjálfta- tryggingar hjá islenzkum tryggingafélögum. Ekki er ólik- legt, að þau hafi fremur litinn áhuga á að selja slikar tryggingar, ef dæma má eftir hve litla áherzlu þau leggja á þessa tegund trygginga i auglýsingum sinum. Mjög mikill munur er á þvi,hve iðgjöld eru há og fer það eftir þvi, hvar á landinu húseignir eru. Einnig eru miklar sveiflur á töxtunum frá einum tima til annars. Stafar það af tiðni jarð- skjálfta iheiminum og skoðunum erlendra endurtryggjenda á þvi, hve tryggingaráhættan sé mikil. Mun dýrara er að taka slika tryggingu fyrir hús eða ibúðir á Suðurlandi, Reykjavik og viö Eyjafjörð, heldur en á Vesturlandi og á Austfjörðum. Stafar það af þvi,að likur fyrir jarðskjálftum eru taldar mun méiri á fyrrneíndu stöðunum en hinum. Iðgjöldin fara líka eftir þvi, hvernig húsin eru byggð, hvort þau eru timburhús, eða steinhús, einnig hvernig grunnur húsanna er. Iðgjöldin eru allt frá 0,4% af brunabótamati húseignar og allt upp i 3%. Við skulum ákveða fyrir hönd hjónanna að taka ekki jarð- skjálftatryggingu. Hvað kostar þetta svo allt? = 47 þúsund krónur Fóum við eitthvað dregið fró skatti? Iljónin okkar telja sig ciginlega vera koinin á lciðarenda. Þau eru sammála um, að þau þyrftu að tryggja sig og slna á þann hátt, sem sagt hcfur veriö frá hcr á opnunni Þá er aöeins eftir að athuga, hvað þetta kostar allt saman. Eins og fram liefur komiö cru bæturnar frá ýmsum aðilum: Tryggingastofnuninni, lögboðnar tryggingar frá trygginga- fclögum samningsbundnar tryggingar I kjarasamningum verkalýðsfélaga, cn stærsti hlutinn cr frjálsu tryggingarnar.sem þau ætla að kaupa hjá cinhvcrju tryggingaféiaganna. Bæturnar frá hinu opinbcra eru grciddar af skatttekjum rikis- ins, samningsbundnu bæturnar eru hluti af launum launþcga. Iðgjöld þarf aftur á móti að greiða af þcim tryggingum, sem teknar cru aö cigin frumkvæði hjá tryggingafélögum, einnig af bifreiðatryggingum, bæði skyldutryggingu og frjálsum. Hcildarkostnaður vegna iðgjalda er þá: Brunatrygging fbúðar samkv. lögum 1425 llúseigendatrygging 4000 Heimilistrygging 2400_____ Vegna Ibúðar og innbús 7825 Ábyrgðartrygging samkv. iögum 4900 ÖF & framrúðutrygging 1770 Kaskótrygging 6384______ Vegna bifrciðar 12054 Liftrygging eiginmanns 7782 l.iftrygging eiginkonu 4195______ Liftryggingar samtals 11977 Sjúkra-og slysatrygging eiginmanns 12400 Sjúkra- og slysatrygging eiginkonu 4075 Slysatrygging harna 1400______ Slysa-og sjúkratryggingar 17875 Samtals iðgjöld 49731 Söluskattur 13% af öllu nema llftryggingum 4908 54.639 -=- frádráttur af skatti 7G50 Raunverulegur kostnaöur _____________ vegna tryggingaiðgjalda 46.989 Alls kosta þessar tryggingar, sem hjónin telja sig þurfa að kaupa, þvi tæplega 55 þúsund krónur. Af þvl má draga frá áður en tekjuskattur er lagöur á, llftryggingariðgjald, brunabótaiö- gjald og niu tiundu af húseigendatryggingunni Nemur skattfrádráttur vegna tryggingaiðgjalda þvi samtals hjá þessum hjónum 17.002 krónur. Vegna þess að þau hafa náð hæsta þrepi skattstigans lækkar tekjuskattur þeirra um tæp- iega 45% af þessum 17 þúsund krónum. Eru þaö 7650 krónur, sem þau geta dregiö frá þeim kostnaði, sem þau grciða vegna trygg- ingaiðgjaida. Niðurstaðan er þvi sú, að raunverulegur kostnaður hjónanna vegna tryggingaiðgjaida er tæplega 47 þúsund krónur. Þegar þessi niðurstaöa er fengin, renna aö likindum tvær grlmur á hjónin okkar: Þetta viröist vera nokkuð stór upphæð. Þau hugleiöa máliö, tekjur fjölskyldunnar að meðtöldum fjöl- skyldubótum eru nálægt 900 þúsundum, þannig að iðgjöldin af tryggingunum eru rétt rúmlega 5% af þeim. Ekki ætlum við að geta okkur neitt til um, hver niðurstaða þeirra verður. Viö erum aftur á móti sammáia þeim um að ekki hafi verið neitt ofáætlað eða of riflcga áætluð bótaþörfin, ef eitthvaö bjátar á hjá fjöl- skyldunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.