Vísir - 04.01.1974, Blaðsíða 7

Vísir - 04.01.1974, Blaðsíða 7
Visir. Föstudagur 4. janúar 1974 7 GÆ;SLULEIKVÖLLUR OG MÆÐRAGARÐUR VIÐ SUOURHOIA breioholti H. 1:100 »rYKJAVÍK i OKrÓBEV >ST’ Hvað er á döfinni í skipulagningu útisvœða og leikvalla? Samkeppni um leik- tœki og leikvelli í vor Þessi garður verður stærsti og fullkomnasti mæðragarðurinn hér á landi af þeim sem enn hafa verið teiknaðir, en hann verður á auða svæðinu austanvert við Breiðholt III. — unnið að skipulagningu nýrra útisvœða, sem verða bœði fyrir börn og fullorðna Leiksvæði barna og úti- svæði í borginni hafa nokkuð verið til umræðu undanfarið. Hefur mörg- um þótt tími til kominn að endurnýja leikvellina og skipuleggja útisvæði, sem ekki væru ætluð neinum sérstökum ald- ursflokki, heldur yrðu al- menningssvæði jafnt fyr- ir börn, fullorðna og aldr- að fólk. Nú hafa nokkur sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu skipað nefnd sem vinna skal að þvi að koma á fót samkeppni um leiktæki annars vegar og leiksvæði hins vegar. Er gert ráð fyrir, að búið verði að ganga frá út- boðsgögnum í febrúar og þá auglýst eftir tillögum. Þá er einnig búið að teikna nokkra garða víðs vegar um borgina, sem verða í senn leikvellir og almenningsgarðar. Hafa þessir garðar hlotið nafn- ið mæðragarðar, en fyrsti leikvöllurinn hér á landi, sem var í Lækjargötunni við styttuna „Móðurást" var einmitt með þessu sniði og kallaður Mæðra- garður. Kristján J. Gunnarsson, formaður leikvallanefndar sagði i viðtali við blaðið, að nú væri nefndin, sem sveitarfélög- in á höfuðborgarsvæðinu skip- uðu til þess að undirbúa sam- keppnina, um það bil að ljúka störfum. Er gert ráð fyrir, að samkeppnin verði auglýst i febrúar, en svo væntanlega gefnir 2-3 mánuðir til þess að skila inn tillögum. Verður sam- keppnin tviþætt, annars vegar er óskað eftir tillögum að leiktækjum og hins vegar að leiksvæðum og notkun leiktækja á þeim. Hefur nefndin lagt til við viðkomandi sveitarfélög, sem eru m.a. Reykjavikurborg og Kópavogur, að verðlaunin verði samtals 600 þúsund krón- ur, sem skiptast nánar á milli beztu tillagnanna. ,,Við gerum svo ráð fyrir að nýta þessar tillögur hjá viðkom- andi sveitarfélögum, og ef til vill verða nýttar fleiri tillögur en verðlaun hljóta”, sagði Kristján. Formaður undir- búningsnefndarinnar er Skúli Norðdahl, arkitekt. ,,Það er án efa ástæða til að ýta við þessum málum hér en i þeim hefur verið nokkur kyrr- staða undanfarið. Nú virðist áhugi á leiksvæðum og leiktækj- um vera mjög mikill allt i kring- um okkur og þvi sjálfsagt fyrir okkur að leita eftir nýjum hug- myndum”, sagði Skúli Norð- dahl, arkitekt, er við höfðum samband viö hann. Sagöi hann, að ekki væri ákveðið, hvort sett yrðu skilyrði með efni og annað i tillögunum, þar sem útboðs- gögn væru enn ekki tilbúin. Upphaflega var það Kópa- vogskaupstaður, sem ákvað að láta efna til samkeppni um leiktæki, en siðan tóku fleiri sveitarfélög þátt i samkeppn- inni. Verður lögð áherzla á að hafa samkeppnina eins frjálsa og unnt er, eftir þvi sem Skúli sagði, þótt hugsanlega yröu sett einhver skilyrði. Hafa sveitar- félögin nú samþykkt að veita samtals 600 þúsundum króna i verðlaunin og að samkeppnin verði tviþætt, eins og fyrr segir. Þess má geta, aö ámóta sam- keppni hefur verið haldin er- lendis og þótt gefa ágætan árangur. Hefur nú á seinni ár- um verið lögð mikil áherzla á, t.d. tréleiktæki, klifurtæki og ýmiss konar samsetningar- leiktæki, gúmmihringi ásamt vatns- og sandkössum og jafn- vel dýra- og skólagörðum og smiðaaðstöðu. Verður þvi sannarlega forvitnilegt að sjá, hvaða tillögur koma hér fram á þessu sviði. Þá hefur garðyrkjustjóri, Hafliði Jónsson teiknað svokall- aða mæðragarða, sem reistir verða m.a., við Asenda og Bás- enda, Suðurhóla i Breiðholti III og einnig er gert ráð fyrir tveimur slikum görðum i Arbæjarhverfi. ,,Það má enginn skilja það svo, að þessir garðar séu sér- staklega fyrirmæður. Nafnið er að nokkru dregið af fyrsta leik- vellinum, sem reistur var hér i Reykjavik, en hann var kallað- ur Mæðragarður og var við Lækjargötu. Við viljum einmitt að þarna mætist sem flestir aldurshópar, og þetta er ekki IIMIM 1 5Í-OAIM I sizt fyrir aldrað fólk”, sagði Hafliði. Gert er ráð fyrir, að strax og vorar verði hafnar fram- kvæmdir, t.d. við garðinn viö Básenda og hann verði tilbúinn um mitt næsta sumar. Garður- inn við Suðurhóla, sem er á auða svæðinu austur af Hólahverfinu, verður einna stærstur, en hann veröur jafnframt gæzluvöllur. Eru á þessum svæðum leiktæki af ýmsum gerðum, bekkir og sólbaðsbalar, grasfletir, malar- svæði, og gróður ýmiss konar. Þarna á aö vera góö aðstaöa fyrir fólk að vera með £örn I friði og ró, án hættu frá um- ferðinni.' Aðstaða verður fyrir sólböð, en slikir garðar eru al- gengir viða erlendis. Eru þeir jafnan vel sóttir þegar vel viðrar, og er þaö vissulega aö nokkru háð veðurfari, hvernig þessir garðar verða sóttir hér. — ÞS.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.