Vísir - 04.01.1974, Side 9
8
George Best
týndur ó ný
Þá er George Best,
liinn frægi, irski lands-
liðsmaður hjá Manch.
Utd., heldur betur orð-
inn forsiðuefni enskra
blaða — þessi frægasti
(■corfíi' Ilest
glaumgosi knattspyrn-
unnar er týndur á ný.
Ekkert hefur frétzt af
honum á þriðja sólar-
hring.
Eftir leik Queens Park
Rangers og Manch. Utd. i
Lundúnum á nýársdag hvarf
Best — varð eftir i heimsborg-
inni, þegar aörir leikmenn fé-
lagsins héldu heim til Man-
chester. Æfing var hjá félaginu i
gær og Best lét ekki sjá sig þar
— og engar fréttir hafa borizt af
honum frá þvi á nýársdag.
Lið hans Manch. Utd. er i
mikilli fallhættu — og þetta nýja
mál Bests kemur varla til með
að styrkja samheldni leik-
manna liðsins. Hann var tekinn
i sátt hjá félaginu i sumar eftir
að hafa hvað eftir annað brotið
af sér — hvarf þá um tima alveg
á hönd hins „ljúfa lífs”. — sagð-
ist hættur knattspyrnu eftir að
stjórn Manch. Utd. tilkynnti að
hann mundi aldrei framar leika
með félaginu. En Best gat ekki
án knattspyrnunnar veriö — og
þrátt fyrir stóru orðin hjá
Manch. Utd. var hann tekinn i
sátt. Siðustu vikurnar hefur
hann verið fastur maður I aðal-
liðinu — og var óðum að nálgast
sitt fyrra form. Eraman af var
þann þungur —alltof feitur eftir
sællifið — en breytingar til hins
betra voru mjög greinilegar siö-
ustu vikurnar. Einkum lék hann
vel gegn QPR á nýársdag —
þrátt fyrir stórtap United, 0-3.
2 landsliðs-
menn Chelsea
ó sölulistal
Peter Osgood
Tveir af kunnustu
leikmönnum Lundúna-
liðsins Chelsea, Peter
Osgood og Alan
Iludson, sein taldir eru
hálfrar milljóna punda
virði, voru i gær settir á
sölulista.
1 tilkynningu frá Chelsea um
málið sagði, að leikmennirnir
heföu neitað að æfa með aðal-
liðinu — og þvf verið settir i viku
leikbann af þvi. Báðir vilja
skipta um félag og hafa farif
fram á sölu.
Peter Osgood lék i enska
landsliðinu i nóvember og hefur
verið þar nokkrum sinnum
miðherji. Hudson hefur leikið
með enska landsliðinu, leik-
menn 23 ja ára og yngri, og var
útilokaður frá landsleikjum um
tima, þegar hann mætti ekki i
keppnisför liðsins.
beir Hudson og Osgood voru
settir úr liði Chelsea i leiknum á
nýársdag gegn Sheff. Utd. Og þó
leikurinn væri háöur i Sheffield
tókst Chelsea aö sigra 2-1 —
fyrsti sigurleikurinn eftir fjóra
tapleiki.
Visir. Föstudagur 4. janúar 1974
Yisir. Föstudagur 4. janúar 1974
Allir gátu skorað og
Luther vann léttilega
— Öruggur sigur Luther-háskólans í hraðmótinu í körfuboltanum
Leikur bandariska liðsins var
mjög góður — sá bezti til þessa
hér á landi. — Aðeins sjö leik-
menn léku i fyrri hálfleik og liöið
er það gott, að sama virðist hver
þeirra kemst i skotaðstöðu hann
getur skorað. 1 fyrri hálfleiknum
gerðu þeir fimm leikmenn, sem
mest léku, frá átta til fjórtán stig.
Til dæmis um öryggi leikmanna
má nefna að fjórum sinnum i
fyrri hálfleik, blökuðu þeir knett-
inum i körfuna eftir misheppnað
körfuskot.
Þrátt fyrir yfirburði andstæð-
inganna var eiginlega aldrei hægt
að vera raunverulega óánægður
með islenzka liðið. Baráttuandinn
var ódrepandi, og alltaf var ein-
hver tilgangur i spilinu.
Það, sem gerði gæfumuninn,
var tvimælalaust, að öryggi i
körfuskotum af færi er mun
minna hjá islenzka liðinu en þvi
bandariska. Það er staðreynd, aö
beztu langskyttur okkar eru mjög
mistækar, og bakverðirnir áttu
ekki góðan dag að þessu sinni,
hvað varðar langskot. — Lær-
dómsrik reynsla, sem mætti hafa
i huga fyrir komandi Norður-
landamót.
t siðari hálfleik gekk islenzka
úrvalsliðinu betur. Vörnin var
þéttari á allan hátt, og flestir leik-
mennirnir virðast vera að ná tök-
um á varnarkerfi nýja þjálfar-
ans, Einars Bollasonar.
1 ljós kom, að við eigum traust-
an miðframherja auk Kristins
Stefánssonar, þar sem Bjarni
Gunnar er. Þeir Gunnar Þorvarð-
arson og Jóhannes Magnússon
stóöu sig eins vel þann tima, sem
þeir voru inná.
Bandariska liðið átti góðan leik
að þessu sinni eins og áður er
sagt. Mesta athygli vöktu þeir
Tim O’Neill, Claussen, og Leix,
að ógleymdum Denner númer 23,
sem alls ekki virtist geta brennt
af langskotum sinum.
Aður en úrslitaleikurinn fór
fram lék úrvalsliðið af Keflavik-
urveili við B-lið KKI um þriðja og
fjórða sætið i mótinu. Sigruðu
sunnanmenn með 67 gegn 62 eftir
að vera búnir að hafa yfirhöndina
nær allan timann.
Að leik Luther háskóla og is-
lenzka A-liðsins loknum, afhenti
bandariski sendiherrann sigur-
vegurunum glæsilegan bikar,
sem hann gaf til keppninnar. ó(;
Karfan aftur
á dagskró!
I. deildar keppnin i körfubolta
hefst af fullum krafti aftur um
helgina eftir langt hlé vcgna ferö-
ar landsliösins til Bandarikjanna.
Strax á morgun er stórleikur á
Seltjarnarnesinu milli Váls og
KR. KR-ingar eru búnir að vera á
toppnum i mörg ár, en Valsmenn
hafa frekar staðið i skugganum.
Liðið er þó búið að ná þeim
þroska, að hvorugt stórveldanna
KR eða 1R getur bókað sigur gegn
þeim.
Margir liðsmenn'beggja félag-
anna voru með i Bandarikjaferð-
inni og eins og sést hefur i leik
landsliðsins við Luther háskól-
ann, eru margir þeirra i hörku-
þjálfun.
Úrslitin i leiknum eru þvi mjög
óviss og örugglega verður hart
barizt á báða bóga.
IR leikur við Skallagrim sama
kvöld og þó likurnar fyrir sigri
séu 1R megin, þá berjast Borg-
nesingarnir fyrir tilveru sinni i 1.
deild og ætla vafalaust að selja
sig dýrt.
A sunnudaginn eru tveir leikir i
1. deildinni i Njarðvikum. Þar
leikur Skarphéðinn við Skalla-
grim og N jarðvikingar við
Stúdenta. Ekkert þessara liða má
vel við að missa stig — til að
tryggja stöðu sina i deildinni.
Leikirnir á Seltjarnarnesinu
hefjast klukkan 4, en i Njarðvik
kiukkan 2.
—óG
Þannig var staðan i 1. deildinni
i körfunni, þegar hlé varð á
keppninni 11. nóvember siðastlið-
inn.
Vaiur 2 2 0 187:166 4
IR 1 1 0 102:64 2
KR 1 1 0 94:70 2
Ármann 1 1 0 81:77 2
IS 2 1 1 153:166 2
HSK 1 0 1 82:93 0
UMFN 2 0 2 161:175 0
UMFS 2 0 2 136:185 0
Stighæstir:
Bragi Jónsson UMFS 47
Þórir Magnússon Val 45
Bjarni Gunnar is 44
Brynjar Sigmundss. UMFN 40
Jóhannes Magnússon Val 38
Gunnar Þorvarðsson UMFN 38
Steinn Sveinsson is 36
Ingi Stefánsson IS 33
Kolbeinn Pálsson KR 29
Einar Guðmundsson UMFN 28
Vftaskot (4 skot eðafleiri)
Jón Sigurðsson A 4:4 = 100%
Jdn Björgvinsson Á 4:4 = 100%
Kolbeinn
Pálsson KR 6:5 = 83,3%
Gfsli Jó-
hannsson UMFS 6:5 = 83,3%
Þröstur
Guðmunds. HSK 6:5 = 83,3%
Kristinn
Jörunds. IR 6:5 = 83,3%
Stefán
Bjarkason Val 6:5 = 83,3%
Vftaskotanýting liðanna:
Ármann 24:17 = 70,8%
HSK 33:22 = 66,6%
IR 22:14 = 63,6%
UMFS 30:18 = 60,0%
KR 14:8 = 57,1%
Valur 34:19 = 55,9%
UMFN 36:17 = 47,2%
IS 36:15 = 41,7%
Flestar villur:
BragiJónsson UMFS 9
Torfi Magnússon Val 9
Einar Guðmundsson UMFN 8
Gunnar Þorvarðsson UMFN 8
Brynjar Sigmunds. UMFN 8
Pétur Jónsson UMFS 8
Hafsteinn Guðmunds. Val 8
Villur álið:
KR 20. IR 20. Armann 24. HSK 28.
IS 43. UMFS 45. UMFN 46. Valur
51.
góðri æfingu og i stöðugri fram-
för. Staöreyndin er aöeins sú, að
bandariskur körfubolti er mörg-
um skrefum á undan þeim, sem
er leikinn hér á landi og i Evrópu.
Ef miðað væri við atvinnumenn,
kæmi enginn samjöfnuður þar til
greina.
Samt sem áður var úrslitaleik-
urinn i hraðmótinu vegna komu
Luther háskólaliðsins, milli A-liðs
Islendinga og Luther háskólans
skemmtilegur.
Liðin, sem þar léku, voru bæði
vel leikandi og leikurinn varð
aldrei þannig á að horfa, aö kött-
urinn væri að leika sér að mús-
inni. Að visu voru Urslitin þegar
ráðin um miðjan fyrri hálfleikinn.
Staðan var þá komin á 25-11
Luther háskólaliðinu i vil. Sá
munur hélzt út hálfleikinn og i lok
hans stóðu leikar 52-30. Lokatölur
leiksins urðu 89-76.
Sovétmenn enn
reiðir Rous!
Knötturinn er i netinu eftir skot frá Alderson nr. 40 i leik Luther College og landsliðsins i gærkvöldi.
Kristinn Stefánsson, stekkur upp til varnar og einnig Tim O’Neill, bezti maður bandarfska liðsins. Aftar
eru þeir Birgir Guðbjörnsson og Claussen, einnig mjög góður leikmaður.
Yfirburðir bandarisks
körfubolta sjást bezt af
þvi, að lið frá litlum
háskóla i Bandarikjun-
um — Luther College —
að visu með gott körfu-
knattleikslið getur
örugglega sigrað lands-
lið islendinga, þó þeir
noti alla sina fimmtán
leikmenn og þar af komi
þeirra bezta lið ekki við
sögu nema rúmlega
helminginn af leiknum.
Þetta sannaðist i gær. Hvað er
að? spyrja kannski einhverjir.
Svarið er einfaldlega: Ekkert —
það er ekkert að. islenzka lands-
liðið er að likindum óvenju gott
um þessar mundir. Liðið er i
Tekst Ármanni að stöðva
sigurgöngu FH-liðsins?
— Leikir í 1. deild íslandsmótsins í handbolta hefjast á ný. Tveir leikir í kvöld
Tass-fréttastofan
sovézka réðist heiftar-
lega á formann Alþjóða-
knattspyrnusambands-
ins, Sir Stanley Rous, i
gær og sagði hann vera
aö reyna að útiloka
Sovétmenn frá loka-
keppni heimsmeistara-
keppninnar.
A laugardag fer fram atkvæða-
greiðsla hjá FIFA um þá neitun
sovézkra að leika við Chile i
HM-keppninni — en eins og öllum
er kunnugt, sem fylgzt hafa með
málinu var Chile þá talið komið i
íslandsmótið i 1. deild
i handboltanum hefst að
nýju i kvöld eftir langt
hlé— og stóra spurning-
in er hvort FH-ingar
halda sigurgöngu sinni
áfram. Geir Hallsteins-
son mun ekki leika með
FH gegn Ármanni i
kvöld — en flestir höfðu
reiknað með þvi, að FH
mundi nýta hæfni Geirs i
kvöld fyrst hann er
staddur hér á landi.
FH-liðið hefur æft i vetur vit-
andi aö Geir mundi ekki leika
með liöinu — og byggt upp iiðið
með þá staöreynd fyrir augum —
og gengið mjög vel i leikjum sm-
úrslit HM. Óliklegt er að einhver
breyting verði á þvi máli i at-
kvæðagreiðslunni á morgun og
þess vegna kenna Sovétmenn Sir
Stanley nú um allt.
Ef' sovézkir fá ekki að leika aft-
ur við Chile hafa þeir komið með
þá varatillögu, að Rúmenia leiki
við Chile um réttinn i HM. Þá til-
lögu hefur stjórn FIFA ekki viljað
fallast á. Rúmenia varð i 2. sæti i
4. riðli Evrópu á eftir Aust-
ur-Þjóðverjum.
Teymer reynir skot i leik Luther
College og landsliðsins i
gærkvöldi. Til varnar eru Birgir
Guðbjörnsson og Kolbeinn
Pálsson. Dvcrsten nr. 20 og
Alderson nr. 40 fylgjast með.
um á Islandsmótinu. Unnið þá
fimm leiki, sem liðið hefur leikið.
Hins vegar hefur islenzka lands-
liðiö alltaf æft með tilliti til þess,
að Geir kemur til með að leika
með þvi i úrslitum heimsmeist-
arakeppninnar. Létt er þvi fyrir
Geir að falla þar strax inn.
Keppnin i kvöld kl. 8.15 með
leik Armanns og FH. Það ætti að
geta orðið skemmtilegur leikur
FH — eins og áður segir — enn
ósigrað i mótinu, en Armanns-lið-
ið hefur stöðugt verið i sókn eftir
slaka byrjun. Fyrri leikur liðanna
i Laugardalshöllinni i fyrra var
afar jafn — FH sigraði með eins
marks mun, 20-19. 1 siðari leik lið-
anna i Hafnarfirði hafði FH hins
vegar nokkra yfirburði — sigraði
með 26-18.
Siðari leikurinn i Laugardals-
höllinni i kvöld verður milli Vik-
ingsog Fram. Ingólfur Óskarsson
mun leika með Fram-liðinu og
verður það fyrsti leikur hans á
keppnistimabilinu. Ingólfur hefur
þjálfað KR i vetur og er kominn i
góða æfingu. Hann ætti þvi að
verða styrkur fyrir Fram-liðið.
Hvorki Fram né Vikingur hafa
uppfyllt þær vonir, sem bundnar
voru við liðin, þegar Islandsmótið
hófst. Fram með fimm stig úr
fimm leikjum, en Vikingur með
fjögur stig — einnig éftir fimm
leiki. Á íslandsmótinu i fyrra
sigraði Fram Viking i báðum
leikjunum, fyrst með 21-18 og sið-
an 27-20.
Þrír frá
íslandi
Metþátttaka verður i
lieimsmeistarakeppninni i
alpagreinum á siáðum i St.
Moritz i Sviss 2.-10. febrúar
næstkoinandi. 35 þjóðir bafa
tilkynnt þátttöku og kepp-
endur verða 302, 111 konur og
191 karlmaður.
Frá tslandi verða þrir
keppendur — allt karlmenn
— samkvæmt AP-frétt i
morgun. Hámarksþátttaka
frá þjóð er 18 — 8 konur og 10
karlmenn. Sjö lönd senda full
lið — Austurríki, Frakkland,
Sviss, italia, Vestur-Þýzka-
land, Japan og Bandarfkin,
Guðjón Guðmundsson, Akranesi — iþrótta-
maður ársins 1972.
Hver verður
íþróttamaður
ársins 1973?
iþróttafréttamenn afhentu atkvæðaseðla
sina i kjöri iþrótlamanns ársins uin
áramólin. Nú hefur vcrið talið — en sjö aðilar
liafa atkvæðisrélt. Daghlöðin fimm, útvarpið
og sjónvarpið og verða úrslit i kosningunni
tilkynnt i dag i hól'i i Glæsibæ.
Rciknaö er með tvisýnni kosningu — cn
niðurstaðan cr licrnaðarleyndarmál þar lil f
dag. Volvo-umhoðið á islandi tekur nú I
fyrsta skipti beinan þátt I athöfninni hér og
liefur gefið verðlaun til þeirra, sem verða i 10
cfstu sætunum. Einnig er cfsta manni boðiö
til Faliim i Sylþjóð, þegar Iþróttamaður
Norðurlanda 1973 vcrður krýndur.
Drengjamet
KR-sveitar
Ilrengjasveit KR náði ágætum árangri i
4x100 m skriðsundi á innanfélagsmóti KR I
Vesturbæjarlaug 30. dcsembcr — setti
drengjamet 4:15.5 miii. í sveitinni syntu
llalldór Kagnarsson, Elias Guðmundsson,
Atli Erlendsson og Jóhann Guðmundsson.
Af öðrum árangri á mótinu má nefna, að
Stefán Andrésson sigraði i 50 m skriösundi á
27.7 sek. Jóhann (íuðmundsson varð annar á
28.1 sek. Ilalldór Ragnarsson 3ji á 28.3 sek og
fjórði varð llafþór Guðinundsson á 28.5 sck. t
50 m flugsundi náði llafþór ágæluin tima 30.5
sek.
Fundur um
handboltann
Tækninefnd IISÍ gengst fyrir fundi með
dómurum og þjálfurum I handknattleik á
morgun kl. 14 að Ilótel Loftlciðum. Þar
verður dreift nýjum leikreglum og landsliðs-
nefnd HSt mun skýra frá förinni til
Austur-Þýzkalands.
Wottle gerist
atvinnumaður
Ólympiumeistarinn i 800 m hlaupi, David
Wottlc, USA, liefur ákveðið að gerast at-
vinnumaöur i hlaupum. Ilonum hefur borizt
mjög gott tilboöog kemur til með að byrja að
keppa við þá Ryan og Keino um miðjan
febrúar.