Vísir - 23.01.1974, Síða 5
Vísir. Miövikudagur 23. janúar 1974.
5
AP/IMTB ÚTLÖNDI MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Fiski hœtt
vegna olíu-
vinnslunnar
í Norðursjó
„Fiskistofnunum í N-
Atlantshafi er hætta búin
af olíuvinnslunni í Norður-
sjónum," var aðalinntak
ályktunar, sem samþykkt
var á ráðgjafasamkomu
Evrópuráðsins í Strass-
burg í gær.
slegið föstu, að nýting hafsbotns-
ins og mengun sjávar hefðu skað-
vænleg áhrif á fiksistofnana.
I ályktuninni var skorað á rikis-
stjórnir aðildarlandanna að
undirrita alþjóðlega samninga,
sem til eru um verndun fiski-
stofna og um að stuðla að
visindalegri þróun nýrra fisk-
veiðiaðferða.
A ráðgjafafundinum, sem set-
inn eraf þingmönnum sautján að-
ildarrikja Evrópuráðsins, var þvi
Bilun í
Skylab
Fœreyingar lítt
hrifnir af EBE
Þingmaðurinn James Craig,
(studdur af tveim á mynd-
inni), var meðal þeirra rót-
tæku mótmælenda, sem lög-
reglan þurfti að fjarlægja úr
þingsölum á N-írlandi i gær.
Þeir settust i ráðherrastólana
og neituðu sig þaðan að
hreyfa, þegar þingmenn
gengu i salinn. Varð að rýma
salinn, en það gekk ekki
hljóðalaust fyrir sig, og t.d.
hafði séra Ian Paisley raðað
auðum stólum umhverfis sig
eins og virki.
en óttast samkeppnina við ísland og Noreg vegna
tollívilnana, sem fiskafurðir þeirra njóta hjó EBE-löndum
í bígerð að kalla
geimfarana niður
úr geimstöðinni
Geimferðarstjórnin,
sem aðsetur hefur á Kana-
veralhöfða, hóf i gærkvöldi
undirbúning að því að
hætta við frekari dvöl
geimfaranna uppi i geim-
stöðinni Skylab og senda
þá til jarðar á sunnudag, ef
nauðsyn krefur.
Flotaskipið „New Orleans”
fékk fyrirmæli um að leggja úr
höfn frá San Diego i Kaliforniu
þrem dögum fyrren ráðgert hafði
veriö, til þess að vera til taks að
hirða geimfarana þrjá upp úr
sjónum.
Dvölin uppi i Skylab að þessu
sinni er sú siðasta i Skylab-
áætluninni og átti hún aö standa
til 8. febrúar. En nú hefur komið
upp bilun um borð i Skylab. Eiga
geimfararnir i vandræðum með
„gýróskópið”, sem heldur geim-
stöðinni á réttri stefnu.
William Schneider, stjórnandi
Skylabáætlunarinnar, sagði i
gær, að þeir neyddust til að hætta
viðSkylab, ef þeir lentu i frekari
erfiðleikum með stjórn stöðvar-
innar.
Landsstjórn Færeyja
bað í gær lögþingið um um-
boð til þess að tilkynna
dönsku ríkisstjórninni, að
hún gæti ekki mælt með
því, að Færeyjar yrðu aðili
að E f nahagsbanda lagi
Evrópu, en að það beri þó
að hefja samningaviðræð-
ur um tengsl Færeyja við
bandalagið.
Atli Dam, lögmaður, sem lagði
fram ályktunartillöguna, sagði,
að menn mundu tæpast öðlast
betri möguleika til þess að taka
afstöðu til spurningarinnar um
EBE-aðild á næsta hálfu öðru ári.
Færeyjar hafa fengið frest til árs-
loka 1975 til að ákveða, hvort þeir
vilja sækja um aðild.
Ein af ástæðunum fyrir þvi, að
landsstjórnin æskir samninga við
EBE, er sú, að Noregur hefur nú
þegar i verzlunarsamningum
fengið tollaivilnanir fyrir hluta af
sinum fiskútflutningi til EBE-
landanna. Þetta kemur fiskút-
flutningi Færeyja i erfiða sam-
keppnisaðstöðu. — 1 greinargerð
með tillögu landsstjórnar er kom-
izt svo að orði, að aðstaða Fær-
eyja eigi eftir að versna enn til
muna, þegar samningar Islands
við EBE ganga að fullu i gildi.
Atli Dam sagði, að EBE vilji
ekki breyta grundvallaratriðum
stefnu sinnar i fiskimálum, fyrr
en niðurstaða liggur fyrir af haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna. Þess verður vart að vænta
fyrr en umhugsunarfrestur Fær-
eyinga er runninn út.
Þessi tundurspillir er úr flota Suður-Vletnam og heitir Tran Khanh Du.
Hann mun hafa sökkt klnverskri hersnekkju um sfðustu helgi við
Paracel-eyjar. Kínverjar sökktu I staðinn meö eldflaug fallbyssubáti
Suður-VIetnam, en um borö I honum voru 82 menn. — Hollenzkt skip
bjargaði 23 þeirra úr sjónum i gær.
FUNDUST I SJONUM
EFTIR SJÓORUSTUR
Hollenzkt skip bjargaði úr sjón-
um i gær tuttugu og þrem mönn-
um, sem komust lifs af suður-
vietnömskum fallbyssubát, en
hann sökk i skotbardögunum við
kinversku flotaskipin hjá Para-
cel-eyjum um hclgina.
Fallbyssubáturinn hafði áttatiu
og tveggja manna áhöfn, en hann
varð fyrir eldflaug frá tundur-
skeytabát Kinverja. Ekkert hefur
fundizt af hinum fimmtiu og niu,
sem voru um borð.
Þeir, sem björguðust, voru
fluttir yfir i suður-vietnamskt
skip i nótt. Voru fjórir þeirra
alvarlega særðir.
Þessi mynd var nýlega tekin af Solzhenitsyn og sonum hans tveim,
Ignati og Yermolai. Rithöfundurinn segist ekki láta gagnrýni þeirra,
sem fela sig á bak við „huglausa nafnleysu”, á sig fá.
Fordœma
félagann
„Rithöfundurinn,
Alexander Solzhenitsyn,
hefur slegizt i félag með
kinverskum maoistum,
vestrænum striðs-
æsingamönnum og
áhangendum Hitlers
með útgáfu bókarinnar
Archipelag Gulag,”
skrifar ,,Literaturnaja
Gazetta”, timarit
sovézka rithöfundasam-
bandsins.
1 grein, sem birtist i siðasta
tölublaöi þessa rits, er komist svo
að orði, aö „hefnendur og nýfas-
istar i V-Evrópu og Kina noti sér
Solzhenitsyn i fjandskap sinum
við Sovétrikin”.
„Andstæðingar friðsamlegrar
sambúðar, sósialisma og fram-
fara hafa bundist samtökum i
andsovézkri herferð. — Meðal
þeirra eru vestrænir striös-
æsingamenn, áhangendur Hitlers
og Maoistarnir. Solzhenitsyn er
einn þeirra. Hann er i þokkaleg-
um félagsskap,” skrifar timarit-
ið.
Solzhenitsyn, sem 1970 fékk
nóbelsverðlaunin, var visað úr
sovézka rithöfundasambandinu
1969.
Sovézka fréttastofan, TASS,
skrifar i gær, að yfirlýsingar
Solzhenitsyns við vestræna blaða-
menn sýni greinilegast hve djúpt
þessi Sovétóvinur sé sokkinn.
Petrosian
- Portisch
Tigran • Petrosian frá Sovét-
rikjunum, fyrrum heimsmeistari
i skák, og stórmeistarinn Lajos
Portisch frá Ungver jalandi,
gerðu jafntefli i þriðju skák ein-
vigis þeirra. Það fer fram á Mall-
orca. Þeir sömdu jafntefli eftir 22
leiki, og áttu báðir orðið litið eftir
af umhugsunartimanum. Hinar
tvær skákirnar urðu lika jafntefli.