Vísir


Vísir - 23.01.1974, Qupperneq 7

Vísir - 23.01.1974, Qupperneq 7
Bergþóra Gísladóttir skrifar um leikrit: LEIKHÚS ÚTI f MÝRI Siguröur Skúlason, Þórir Steingrimsson, Flosi Óiafsson, Gisli Rúnar Jónsson, Höröur Torfason, Þórunn Magnúsdóttir og Þorgrimur Einarsson. Þjóöleikhúsið: Köttur úti i mýri Höf.: Andrés Indriðason Leikstjóri: Gisli Alfreðsson Leikmynd: Jón Benediktsson Leiður misskilningur Ég veit ekki hvað oft ég hef heyrt fólk segja að börn séu beztu og vandlátustu leikhús- gestirnir. Þetta er nokk- uð, sem hver étur eftir öðrum og þegar það hef- ur verið gert nógu oft, verður það sannleiks- igildi. Það er að visu rétt að börn eru afskaplega þakklátir leikhúsgestir en vandlát eru þau ekki, a.m.k. ekki yngri börn. Það er næstum sama hvað börnum er boðið upp á i leikhúsum og kvikmyndahúsum, þau gera sér mat úr þvl. Leikhúsferðin er barn- inu ævintýri án tillits til þess hvað gerist á svið- inu. Það væri synd ef ráðamenn i is- lenzkum menningarmálum not- færðu sér þetta þakkláta viðhorf barnsins og byðu þeim visvitandi upp á menningarúrgang. Gleði og eftirvænting. Það tekur alltaf eftirvæntingu, þegar Þjóðleikhúsið hefur sýn- ingar á nýju barnaleikriti, ég tala nú ekki um, þegar um er að ræða Islenzkt barnaleikrit eftir nýtt is- lenzkt leikritaskáld. Jarðvegur- inn hefur verið undirbúinn, blaða- menn hafa ekki látið sitt eftir liggja. Satt að segja man ég ekki til þess að nokkurt barnaleikrit Þjóðleikhússins hafi verið kynnt eins rækilega fyrirfram og þetta stykki. Var ekki eðlilegt að álykta sem svo að augu ráðamanna is- lenzkrar menningar væru loksins að opnast fyrir þvi, að menning fyrir börn er sjálfsagður hluti af menningu þjóðarinnar og þvi verðugt viðfangsefni? Dýr leikföng Leikritið er gjörsamlega mis- heppnað. Það byggist á sam- hengislausum fimmaurabröndur- um, sem fara fyrir ofan garð og neðan hjá börnunum. Ég minnist þess að hafa séð fyrirsögn i einu dagblaðanna” Leikararnir skemmta sér”, þegar sagt var frá leikritinu. Þessu trúi ég tæpast, en þó svo væri er það ekki nóg. Það er likast prógrammi, sem 11 ára krakkar hafi sett saman fyrir skólaskemmtun. Með einni und- antekningu þó. Krakkar i 11 ára bekk hafa ekki 1. flokks leikara og heilt þjóðleikhús til að leika sér aö. Ævintýrið sem aldrei hófst Þessu verki er ætlað að fræða ungt leikhúsfólk um leikhúsið, leiða barnið inn I þá töfraveröld sem leikhúsið i raun og veru er. Til þess er sett af stað heilmikið sjónarspil. Sögumaðurinn, Ævar Kvaran, er látinn hafa yfir langan formála, sem reyndar segir ósköp litið, minna en fylgdarmaður gæti sagt barni á milli atriða. Siðan kveður sögumaður sér til aöstoðar dreng úr „salnum” svo þeir geti ráðið ráðum slnum efni og framgang leiksins. Þeir ráða ráðum sinum. Þegar hér var komið leik, var margt barnið farið að ókyrrast i sæti slnu. Maður heyrði þá fullorðnu hvisla: „Nú fer þetta að byrja”. Kannski verður meira gaman eftir hlé” eða „Já, ég skal kaupa kók i hléinu”. Loksins hefst sjálft ævintýrið, sem beðið er eftir, og þó. Efni þess er ómögu- legt að rekja, þvi það er eins og fyrr segir aðallega samansett úr samhengislausum bröndurum og skortir þvi allt innihald. Sögu- maður og drengurinn eru ýmist innan eða utan verksins og eigin- lega þvælast þeir bara fyrir. Alla vega hafa þeir mjög ruglandi áhrif á áhorfendur, sem þeim er þó ætlað að fræða. Um frammi- stöðu einstakra leikara væri ósanngjarnt að dæma. Þó bjarga leikararnir þvi sem bjargað verð- ur. Og þeir velja einu færu leið- ina. Fyndnin byggist á skripaleg- um tilburðum og gauragangi á sviðinu. Hljóð úr salnum Talsvert hefur borið á þvi i um- ræðum leikhússfólks um leiklist að það langar til að ná nánara sambandi við áhorfandann, fá hann sem virkari þátttakanda i þvi sem er að gerast. Hér á landi hefur þetta einkum verið reynt af þvi leikhúsfólki, sem vinnur fyrir börn. Á bak við þetta liggur af- skaplega jákvæð hugsun, sem er góðra gjalda verð og riður á, að þeir sem reyna slika nýbreytni, blekki ekki sjálfa sig og aðra og viti hvernig þeir ætli sér að ná til- ætluðum árangri. 1 þessu leikriti eru börnin „virkjuð” með þvi að gefa þeim tækifæri til að kalla fram i leikinn á tilteknum stöðum. Á köflum er gengið talsvert langt og minnir leikhúsið meira á fótboltakapp- leik en leikhús. Þetta væri svo sem allt i lagi, ef tilganginum væri náð, þ.e. að börnin yrðu á þennan hátt virkari þátttakendur og þar með skapendur ævintýris. En allt er þetta blekking. Börnin eru ekki virk, heldur fyrst og fremst æst. Barn, sem hrópar, þar sem það veit að er ætlast til að það hrópi eða þaö er beinlinis hvatt til þess, er ekki endilega virkt. Aftur á móti barn, sem situr I sinu sæti og lifir sig inn i verk sem virkilega höfðar til þess, það er virkt. Og jafnvel stundum svo að það ósjálfrátt kallar fram i. Þessu má ekki rugla saman við hina yfirborðs- iegu þátttöku, sem leikrit eins og Köttur úti i mýri býður upp á. Hver er ábyrgur: Hingað til hefur verið vandað til vals á barnaleikritum i Þjóðleik- húsinu. Oft hafa orðið fyrir valinu viðurkennd erlend verk sem mega teljast til sigildra bók- menntaverka. Nægir að nefna leikrit Thorbjörns Egner, Karde- mommubæinn, Siglaða söngvara og Dýrin I Hálsaskógi. Eða þá leikrit gerð eftir ævintýrum H. C. Andersens. Litli Kláus og stóri Kláus og Snædrottningin. Eimmitt vegna þess hversu vel hefur til tekist hingað til er enn hrapallegra þegar mistök verða. Hvort sem þetta val byggist á misskilningi eða algjöru skiningsleysi, á bæði börnum og leikhúsi, hlýtur að vakna sú spurning, hver beri ábyrgð á slik- um mistökum. Þvi þetta er svo sannarlega dýrt spaug. Þórir Steingrimsson, Hörður Torfason, Klemens Jónsson, Þórhallur Sigurðsson og Jón Júliusson. Ljósmyndarinn okkar, hann Bjarnleifur, hefur hér brugðið á leik og sýnir okkur leikendurna f „Köttur úti i mýri” i gervum sinum. Inn í K-ið er felldur leikstjórinn, Gisli Alfreðsson, en þar við hiiðina er önnur stór andlitsmynd, sem sýnir höfund leikritsins, Andrés Indriðason. —ÞJM

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.