Vísir - 23.01.1974, Qupperneq 13
n □AG | D KVÖLD| Q □AG |
Sjónvarp
klukkan 21.35:
Þorra-
matur
og
skóla-
nesti
Það verður KrunkaO á
skjáinn i kvöld, „og að þessu
sinni er þátturinn að verulegu
leyti helgaður þorranum.
Hann Ib Wessman matreiðslu-
maður aétlar að kynna lögun
þorramatar og sitthvað i
kringum þá hluti”, sagði
Magnús Bjarnfreðsson, þegar
Visir ræddi við hann um þátt
hans.
„Svo ræði ég við Arna
Björnsson þjóðháttafræðing
um þorrann og þorrasiði.
Einnig kemur fram i þætt-
inum Kristrún Jóhannsdóttir
manneldisfræðingur, og mun
hún ræða um nesti skóla-
barna.
Þetta verður nú meginefni
þáttarins”, sarbi Magnús, og
ekki er að efa, að margan er
tekið að hungra eftir krass-
andi þorrasúrmetinu, og svo
verður áreiðanlega forvitni-
legt að heyra, hvað sér-
fræðingurinn segir um
innihald skólanestis barn-
anna.
—GG
Ib Wessman I Naustinu meO
þorrabakkann. Hann sýnir
handtökin og aOferOir viO gerO
súrmetisins I þætti Magnúsar
Bjarnfreössonar I kvöld.
Sjónvarp klukkan 20.55:
FIMM ÞÚSUND
ÓBOÐNIR
GESTIR
Fimm þúsund
óboðnir gestir heitir
hún, myndin, sem
Ásgeir Long, Ernst
Kettler og Páll Stein-
grímsson gerðu fyrir
sjónvarpið og lýsir
félagslegum áhrifum
Vestmannaeyjagoss-
ins. Þessi mynd
þremenninganna verð-
ur sýnd i kvöld í tilefni
af því, að nú er ár liðið
frá því gosið hófst og
hinir „fimm þúsund
óboðnu gestir" voru
fluttir úr Heimaey til
lands.
Ekki er að efa, að
það hefur verið vanda-
samt verk fyrir
þremenningana að
gera mynd um félags-
legar afleiðingar Vest-
mannaeyjagossins og
fróðlegt að frétta í
kvöld, hvernig til hefur
tekizt. — GG.
Magnús Magnússon, bæjar-
stjóri i Eyjum, var mikiö i
sviðsljósinu siðastliðið ár. Og
Magnús þótti standa sig af
prýði, og ritstjórn Visis þótti t.d.
ástæða til að velja hann „mann
ársins ”. Magnús er þarna
staddur i Eyjum að skýra ferða-
manni frá þvi, sem fyrir augu
ber á dögum gossins. Þátturinn
„Bein lina” i hljóðvarpi verður
i kvöld lika helgaður ársafmæli
Vestmannáeyjagossins.
Magnús bæjarstjóri svarar
spurningum hlustenda.
Hljóðvarp klukkan 19.00:
BEIN LÍNA
TIL EYJA
Bein lina verður að þessu
sinni til Eyja. Magnús Magnús-
son bæjarstjóri og þrir bæjar-
fulltrúar munu þar svara spurn-
ingum frá hlustendum á skrif-
stofu bæjarstjórans i Vest-
mannaeyjum.
Ekki er að efa, að enn sem
fyrr leita margar spurningar á
það fólk, sem sitthvað hefur
orðið að þola af völdum Vest-
mannaeyjagossins — en
Magnús og þeir bæjarstjórnar-
menn munu eflaust geta gefið
greið svör, svo vanir hljóta þeir
að vera orðnir þvi, að menn
spyrji brennandi spurninga.
—GG
Lœknanemasprell
\;s|, n ||
Sjónvarp klukkan 20.30:
Það verður Lif og fjör i
læknadeild i kvöld, eins og
önnur miðvikudagskvöld.
Einhver maður sagði um
daginn, að kosturinn við þessa
læknadellu væri sá, að það væri
hægt að horfa á þáttinn og
skellihlæja, án þess að leiða
hugann sérstaklega að þvi, sem
fyrir augu ber. Kannski er það
rétt, og hvað sem þvi liður, þá
munu læknanemaþættir þessir
njóta vinsælda i mörgum
löndum. —GG
SJONVARP
18.00 Kötturinn Felix. Tvær
stuttar teiknimyndir. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.15 Skippi.Ástralskur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
18.40 Svona eru börnin.... á
Seylon. Norskur fræðslu-
myndaflokkur um daglegt
lif og leiki barna i ýmsum
heimshlutum. Þýðandi og
bulur Ellert Sigurbjörnsson.
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.30 Lif og fjör í læknadeild.
Breskur gamanmynda-
flokkur. Þýðandi Jón Thor
Haraldsson.
20.55 Fimm þúsund óboðnir
gestir.Siðastliðið vor samdi
Sjónvarpið við Asgeir Long,
Ernst Kettler og Pál Stein-
grimsson um að gera kvik-
mynd, sem lýsti félagsleg-
um áhrifum og afleiðingum
Vestmannaeyjagossins.
Myndin er nú sýnd á eins
árs afmæli gossins.
Þulur er Helgi Skúlason, en
lokaorð flytur forseti
Islands, dr. Kristján
Eldjárn.
21.35 Krúnkað á skjáinn.
Þáttur með efni varðandi
fjölskyldu og heimili. Um-
sjónarmaður Magnús
Bjarnfreðsson.
22.10 Staldrað við framfarir.
Fræðslumynd um visinda-
legar rannsóknir og kort-
lagningu úr lofti á óbyggð-
um svæðum með nýtt land-
nám fyrir augum. Þýðandi
og þulur Ingi Karl Jóhann-
esson.
23.00 Dagskrárlok
13
*2*
^ *
Spáin gildir fyrir fimmtudaginn 24. janúar 1974.
m
m
Ni
u
jÉ
Ilrúturinn, 21. marz—20. april. Þetta er fremur
þunglamalegur dagur, að þvi er virðist, og þó
sér i lagi þegar á liður. Þú ættir að nota kvöldið
til hvildar, ef unnt reynist.
Nautið, 21. april—21. mai. Það litur út fyrir aö
dagurinn geti nýtzt vel þótt svo að ekki verði
neinn asi á hlutunum þegar á liður. Taktu lifinu
með ró, þetta er stundarfyrirbæri
Tviburarnir,22. mai— 21. júni. Það litur helzt út
fyrir að þú þurfir að taka duglega til hendinni i
dag, en að einnig muni til nokkurs að vinna, ef
allt stenzt áætlun.
Krabbinn22. júni—23. júli. Þú hefur i mörgu að
snúast. Sumt af þvi er liklegt að reynist fremur
tafsamt, gættu þess að hafa taumhald á skaps-
munum þinum.
Ljónið24. júli—23. ágúst. Ekki beinlinsi erfiður
dagur, að þvi er virðist, en margt sem gengur
fremur seint, einkum er á daginn liður. Aftur á
móti getur kvöldið orðið gott.
Meyjan, 24. ágúst—23. sept. Taktu lifinu með ró.
Beittu lagi, ef það er eitthvaö sérstakt, sem þú
þarft að koma i framkvæmd; annað skaltu láta
biða unz betur horfir.
Vogin, 24. sept.-23.okt. Þetta getur orðið að
mörgu leyti þægilegur dagur, einkanlega i
peningamálum, þar sem vel getur verið að þú
verðir fyrir einhvers konar happi.
Drekinn, 24. okt,—22. nóv. Farðu þér hægt og
rólega, það má vel vera að þér finnist seina-
gangur á hlutunum, en ef þú beitir lagni, þá get-
ur flest gengið a.m.k. sæmilega.
Boginaðurinn, 23. nóv.—21. des. Þetta verður að
öllum likindum sæmilegur dagur, en vissara
samt að fara gætilega að öllu. Kvöldiö getur
orðið mjög ánægjulegt, einkum hjá þeim yngri.
Steingeitin, 24. des,—20. jan. Dagurinn verður
ekki allur, þar sem hann sýnist. Ákvörðunum,
sem þú tekur i dag, getur reitt misjafnlega af og
þvi eins gott að doka við.
Vatnsberinn,21. jan,—19. febr. Þetta getur orðið
nokkuð undarlegur dagur — margt óvænt, sem
gengur vel,annað vel undirbúið getur hins vegar
mistekizt með öllu.
Fiskarnir. 20. febr.—20. marz. Þú ættir ekki að
hætta á miklar breytingar á næstunni, sizt ef það
hefur einhver aðsetursskipti i för með sér. Þú
veizt hvað þú hefur, ekki hvað þú hreppir.
UTVARP
Gjafir og áheit til
Styrktarfélags lamaöra og
fatlaöra.
Á sl. ári og það sem af er þessu
ári hafa Styrktarfélagi lamaðra
og fatlaðra borizt margar vegleg-
ar gjafir og áheit, frá einstakling-
um og félögum, sem félaginu er
mikill styrkur að og þá ekki siður
þeim hug, er að baki gjöfunum
býr. Meðal þeirra gjafa og áheita,
sem Styrktarfélaginu hafa hlotn-
azt, má m.a. nefna:
1. Tveggja herbergja ibúð (arfur)
frá Mariu Jónsdóttur.
2. Erlendur Magnússon, Kálfa-
tjörn, til minningar um eiginkonu
sina, Kristinu Þ. Gunnarsdóttur
kr. 100.000,-
3. Hvalur hf. kr. 100.000,-
4. N.N. kr. 100.000,-
5. Agúst Sigurjónsson og börn. frá
Erpsstöðum, Dalasýslu til
minningar um konu sina, Rann-
veigu Guðmundsdóttur kr.
50.000,-
6. Fjögur börn, Jón Þór Gunnars-
son. Bogi Baldursson. Arnþrúður
Baldursd. og Baldur öxndal
(ágóði af basar) kr. 21.150.-
7. Norðursiávarsiómaður kr.
20.000,-
8. Sigríður Eiriksdóttir kr. 10.000.-
9. Þórir Guðjónsson kr. 10.000.-
10. N.N. kr. 5.000,-
10. Steindóra Albertsdóttir. kr
5.000,-
Eru þá ekki taldar veglegar
gjafir - Kvennadeildar Styrktar-
félagsins i hverskonar tækjum og
munum. Fyrir alla þessa
fjárhagslegu aðstoð og hlýhug
færir stjórn Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra innilegustu
þakkir til allra þeirra, er hér eiga
hlut að, sem þó eru fleiri en hér
hafa verið upp taldir.
Stjórn Styrktarfélags lamaðra og
fatnaðra.
14.30 Siðdegissagan: „Fjár-
svikararnir” eftir Valentin
Katajeff Ragnar Jóhannes-
son cand. mag. les (13).
17.10 (Jtvarpssaga barnanna:
„Blesi” eftir Þorstein
Matthiasson Höfundur les
(7).
17.30 Framburðarkennsla i
spænsku
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá Bein lina til
Eyja Magnús Magnús-
son bæjarstjóri og þrir
bæjarfulltrúar svara spurn-
ingum hlustenda i skrifstofu
bæjarstjóra. Umsjónar-
menn: Arni Gunnarsson og
Einar Karl Haraldsson.
20.00 Kvöldvaka
sveit Islands leikur, Páll P.
Pálsson stj.
21.30 Útvarpssagan: „For-
eldravandamálið — drög aö
skilgreiningu” eftir Þor-
stein Antonsson. Erlingur
Gislason leikari les (10).
22.00 Fréttir
22.15 Veðurfregnir Eyjapistill
A ársafmæli Eyjagoss verð-
ur lýsing manns, sem sá
jörðina rifna og eldana
kvikna, svo og fyrsta hljóð-
ritaða lýsingin á gosinu.
Umsjónarmenn enn sem
fyrr: Arnþór og Gisli Helga-
synir.
22.45 Niltimatónlist Halldór
Haraldsson kynnir.
23.30 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★■.★☆★☆♦☆★^★☆★☆★☆★☆★☆**+*-*. ■*■•*.*■*.*■*•**•& ■*•☆*☆+☆★☆+☆*☆★☆★☆★☆*☆★☆★☆★☆★☆★☆★• ☆★☆★★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★*★☆