Vísir - 16.05.1974, Síða 3
3
Vlsir. Fimmtudagur 16. mai 1974.
Long drink-keppni
Barþjónaklúbbs
íslands:
Enn
bar
Daníel
sigur
úr
býtum
Enn einu sinni hefur Daniel
Stefánsson, barþjónn á Hótel
Sögu, unniö til verölauna fyrir
kokkteil. Hann hlaut fyrstu verö-
laun i long drink-keppni bar-
þjóna, sem fram fór aö Hótel Esju
1 gær, en drykkurinn, sem Daniel
blandaöi, ber nafnið
„Frostyamur”.
Keppendur voru tólf talsins. í
ööru og þriðja sæti höfnuðu
drykkir þeirra Bjarna Guðjóns-
sonar á Hótel Loftleiðum og
Garðars R. Sigurðssonar á Hótel
Borg.
Auk þess sem Daniel vann með
sigri slnum heimild til þátttöku i
næstu alþjóðlegu long drink-
keppni barþjóna, sem væntanlega
verður haldin á írlandi, hlóðust
aö honum I gær ýmiss konar verð-
launa- og farandgripir. Þar á
meðal var myndarlegur bikar,
sem hann vann til eignar og svo
hins vegar farandbikar, farand-
sverð og farandskjöldur einn
mikill.
Þetta er í sjöunda skiptið á niu
árum, sem Daniel sigrar i keppni
hérlendis. Sin fyrstu verðlaun
vann hann árið 1966.
Hér á eftir fer uppskriftin að
þeim long drykk, sem færði hon-
um fyrstu verðlaun i gær,
„Frostyamur”:
2 cl. Smirnoff vodka
2. cl. Southern Comfort
1. cl. Apricos Brandy Bolls
1. cl. Countruei
Og siðan skvetta af bananalikjör,
sitrónusafa og amorlikjör. Glasið
er siðan fyllt með seven-up og
drykkurinn skreyttur með kirsu-
beri og sitrónusneið. Þennan
verðlaunadrykk á að sjúga i
gegnum rör.
—ÞJM
Afbrotamenn!
Vinsamlegast fremjið af
brotin ó virkum dögum!
— fulltrúar sakadóms í stríði við
ríkisvaldið og neita að vinna um
helgar — rannsóknarlögreglan í
erfiðleikum með að fá dómsúrskurð
nema é virkum dögum
Vegna ákvöröunar allra full-
trúa I Sakadómi Reykjavikur,
um aö vinna ekki um helgar,
hafa þeir sett rannsóknarlög-
regluna I bobba. Ef einhver er
handtekinn á laugardegi, þá
veröur aö úrskuröa viökomandi
i gæzluvaröhald innan 24 tlma,
eöa láta hann ella lausan.
Fulltrúarnir hafa alltaf sinnt
þeim störfum, en rétt fyrir
páska neituöu þeir algjörlega aö
koma nálægt þeim.
Astæðan er kjaramál.
Fulltrúarnir vilja sinna svoköll-
uðum bakvöktum, þ.e.a.s. vera
viðbúnir til skiptis um helgar,
gegn greiðslu. Þetta er mál,
sem hefur verið barizt fyrir ár-
um saman, en aldrei fengizt i
gegn. Rikissjóður er tregur á
krónuna hvað þá að greiða
mönnum fyrir að sitja heima.
En fulltrúar telja, að
rannsóknarlögreglumenn verði
að búa við þaö öryggi að geta
náð i einhvern til að kveða upp
úrskurð um gæzluvarðhald, eða
t.d. húsrannsókn. Rannsóknar-
lögreglumenn eru sömu skoðun-
ar.
Sakadómarar sjálfir sinna
ekki þessum verkum. Það kem-
ur þvi i hlut yfirsakadómara
þessa dagana að gefa út úrskurð
um helgar, ef þess þarf með.
Má þvi rétt imynda sér hvernig
ástandið gæti orðið, ef hann
skryppi út úr bænum yfir helgi.
Blaðið hefur fregnað, að i
nokkur skipti hafi þurft að láta
menn lausa eftir 24 timana, þótt
full ástæða væri talin til þess að
halda viðkomandi lengur inni.
Eins og fyrr sagði, þá er við
rikisvaldið að etja. Baldur Möll-
er ráðuneytisstjóri dómsmála-
ráðuneytisins sagði i samtali
við blaðið, að þetta mál yrði
rætt i þeim samningum, sem nú
standa yfir milli rikisins og
rikisstarfsmanna.
„Að vissu er þörf á þessari
þjónustu fulltrúanna, en það er
spurning, hvort þörfin sé virki-
lega svo brýn að beinlinis þurfi
að greiða þeim fyrir að vera að-
eins viðbúnir. Að sjálfsögðu eig-
um við að vera sparsamir á alla
vegu”, sagði Baídur.
Hann sagði, að fyrir ári siðan
hefði samizt um milli ráðuneyt-
isins og Sakadóms að prófa út-
kallafjöldann. Úr þeirri prófun
kom, að ekki væri tiður útkalla-
fjöldi.
„Við erum uppfullir af
sparnaðaranda hér, eins og lagt
er að okkur, og þar að auki háðir
fjárveitingum alþingis”, bætti
Baldur við.
Niðurstöðu úr þessari kjara-
deilu er að vænta á næstunni.
Þess má geta að þetta ástand
hefur varað I nokkur ár, að
rannsóknarlögreglumenn geta
ekki gengið að visum fulltrúum
til að láta kveða upp úrskurð.
Þeir eyða þvi oft talsverðum
tima i að leita að fulltrúa sem er
til taks. — óH.
Eins gott
að athuga
vel gœðin
Það hafa áreiðanlega marg-
ir náð sér i svartfugl i soðið nú
þegar, enda fæst sá ágæti fugl
bæði I kjöt- og fiskbúðum.
Upp úr 10. april fer fuglinn
að sjást i verzlunum, en leyfi-
legt er að skjóta hann til 20.
mai. 20. ágúst er svo heimilt
að byrja aftur.
Bjarnleifur ljósmyndari tók
þessa mynd af svartfugla-
kaupum, þegar verið var að
koma með svartfugl i fisk-
verzlunina i Gnoðarvogi. En
kaupmaðurinn þar var ákveð-
inn I að kaupa ekki fuglinn,
fyrr en hann hefði athugað
gæðin. Og það var kannski
eins gott að hann gerði það,
þvi að fuglinn var ekki alveg
eins ferskur og hann hefði átt
aö vera. Það varð þvi ekkert
af kaupunum i það skiptið.
Viðskiptavinir þurfa þvi vist
ekki að vera smeykir að kaupa
svartfuglinn, ef eins er farið
að i öðrum verzlunum, en einn
hamflettur fugl kostar nú 120
kr.
—EA
ko'twTi
„Karlai
klúbb"!
Fyrsta konan hefur gengið ij
Junior Chaniber á lslandi, enj{
eins og kunnugt er, liafa konur*
ekki átt svo greiðan aðgang aðg
fclögum á borð við Junior*
Chamber, Kiwanis, Lions.a
Rotary og öðrum slikum.
Það var JC-Akranes, sem ■
samþykkti inngöngu fyrstu ■
konunnar og var eiginmaðura
hennar þá tekinn i hreyfing-J
una um leið.
Mikil fjölgun hefur orðið !■
Junior Chamber að undan-*
förnu og tvö ný félög veriðg
stofnuð i vetur og undirbún-B
ingur að stofnun enn fleiri erj
vel á veg kominn.
Vorþing hreyfingarinnarj
var haldið um siðustu helgi og ■
fór það að mestu fram áJJ
Suðurnesjum, þar sem fulltrú-H
ar aðildarfélaganna tiu, semjj
nú eru starfandi á landinu,*
voru mættir til skrafs og ráöa-J
gerða. Gestur þingsins var fráa
Bretlandi, Mike Ashton aðjj
nafni, en hann er alþjóðlegura
varaforseti Junior Chamber.5
—ÞJM-b
Ólqfur
Hauksson:
MANNFATT
SEINVIRKT
NIÐURDREPANDI
— þannig er réttarkerfi
w
Islendinga
Það hefur löngum veriö gagn-
rýnt i réttarfari tslendinga
hversu seinvirkt dómskerfið er.
Frásögn blaðsins af fólkinu
sem rændi gamlan mann um
helgina, er enn eitt dæmiö um
það. Þvi eins og sagöi frá I blaö-
inu í gær, þá gengur fólkiö laust,
og mun gera þaö þangað til eftir
nokkra mánuöi, þegar loks
verður dæmt i máli þess.
Þ.e.a.s. ef saksóknari tekur þá
ákvörðun aöhöföa mál á hendur
þvi.
Ef hægt væri að dæma sam-
stundis i málum sem þessum,
kæmi refsing strax til fram-
kvæmda, og rannsókn og dóms-
úrskurði væri lokið. Þess má
geta að i Bretlandi og Banda-
rikjunum tiðkast sú málsmeð-
ferð með smærri mál.
En eins og málum er háttað,
þá þarf að fara i gegnum þungt
og hægfara kerfi. Við getum
tekið fyrrnefnt ránsmál sem
dæmi.
Rannsókn þess gekk óvenju
vel, og ekki þurfti að gera mikla
leit að sökudólgunum. Þeir
játuðu, og mestallt þýfið fannst.
Fulltrúar eða dómarar i
Sakadómi Reykjavikur ákváðu
að ekki væri ástæða til að halda
fólkinu innilokuðu, meðan beðið
væri dóms.
Siðan tekur dómari eða full-
trúi við málinu og géngur frá
þvi i hendur saksóknara rikis-
ins. Það getur tekið drjúgan
tima að undirbúa málið þannig.
Saksóknaraembættið þarf að
taka ákvörðun um hvað gera
skuli i málinu, t.d. hvort frekari
rannsóknar sé þörf. Þegar sú
ákvörðun hefur verið tekin, er
mál loks höföað eða það fellt
niður.
Þá er að flytja málið fyrir
rétti og biða dóms.
Timinn sem þetta getur tekið
er...óútreiknanlegur.
Stytzti timi getur kannski ver-
ið nokkrir mánuðir og svo allt
upp i nokkur ár.
Að ekki sé talað um, ef við-
komandi hefur svo framið ann-
að afbrot á timabilinu sem
málsmeðferðin fer fram.
Réttargæzlumenn hafa löng-
um borið það fyrir sig, að skort-
ur á plássi fyrir afbrotamenn
væri tilfinnanlegur. En eins og
kom fram i blaðinu i gær, þá er
nóg pláss á Litla-Hrauni i
augnablikinu.
Lögreglumenn hafa oft kvart-
að undan þvi, að þeim finnist
dómsvaldið stundum drepa nið-
ur áhuga þeirra á starfinu. Það
eru tilfellin, þegar þeir verja
miklum tima til þess að eltast
við afbrotamenn og handsama
þá. Daginn eftir sjá þeir við-
komandi afbrotamann gang-
andi úti á götu með glott á vör.
Þá hefur afbrotamaðurinn ját-
að, visað á þýfið eða hvað það
nú var, sem hann gerði, og siðan
verið sleppt. Kerfið tekur sér
langan tima til að fara yfir mál
hans. Á meðan getur hann gert
það sem hann vill. Margar sekt-
ir dómskerfisins eru einnig
orðnar úreltar og hlægilega lág-
ar.
—CH