Vísir - 16.05.1974, Síða 4
4
Sjalfboóalióar
á k jórdag
D-listann vantar fólk til margvislegra
sjálfboðastarfa á kjördag. Sérstaklega
vantar fólk til starfa sem fulltrúar listans i
kjördeildum auk margvislegra annarra
starfa.
Þeir sem vilja leggja D-Iistanum lið með
starfskröftum sinum á kjördag, 26. mai
næstkomandi, hringi vinsamlegast í sima:
84794.
Skráning sjálfboðaliða fer einnig fram á
skrifstofum hverfafélaganna.
Söluturn
Góður söluturn til sölu.
Tilboð sendist augld. Vísis f.h. laugardag
merkt ,,Nr. 62”.
Óskum að ráða
starfsmann á smurstöö vora.
Skodaverkstæðið hf.
Auðbrekku 44-46. Simi 42603.
Hraðbótur til sölu
17 feta plast-hraðbátur með 110 ha.
Mercury vél.
Uppl. i síma 36737.
Viljum ráða
nema og aðstoðarmenn við kjötiðnað.
Búrfell hf. Skúlagötu 22. Simi 19750.
Óskum að ráða
bifvélavirkja og nema.
Bónuskerfi vort býður upp á aukna tekju-
möguleika.
Skodaverkstæðið hf.
Auðbrekku 44-66. Simi 42603.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS
AÐAL-
FUNDUR
Aðalfundur H.f. Eimskipafélags tslands verður haldinn i
fundarsalnum i húsi félagsins i Reykjavik fimmtudaginn
30. mai 1974 kl. 13.30.
DAGSKRÁ:
I. Aðalfundarstörf samkvæmt 13. grein samþykkta félags-
ins.
2. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins sam-
kvæmt 15. grein samþykktanna (ef tillögur koma fram).
3. önnur mál, löglega upp borin.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins,
Reykjavík, 24-28. mai.
Reykjavik 26. marz 1974.
Stjórnin
Viðtalsllmar
framblöðenda
Á vegum Fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna i Reykjavik
og hverfafélaga Sjálfstæðismanna eru starfandi eftirtald
ar hverfisskrifstofur.
Skrifstofurnar eru opnar frá kl. 14.00 og fram eftir kvöldi.
Að jafnaði verða einhverjir af framgjóðendum Sjálf-
stæðisflokksins við borgarstjórnarkosningarnar til
viðtals á skrifstofunum milli kl. 17.00 og 19.00 siðdegis.
Jafnframt er hægt að ná sambandi við hvaða frambjóð-
anda sem er, ef þess er sérstaklega óskað með þvi að hafa
samband við hverfisskrifstofurnar.
Nes- og Melahverfi, Reynimel 22, sfmi 25635
Vestur- og Miðbæjarhverfi, Laufásvegi 46, (Galtafelli),
simi 28191.
Austur- og Norðurmýrarhverfi, Bergstaöastr. 48 sfmi
28365.
Hliða- og Holtahverfi, Suðurveri v/Stigahlið sfmi 28170.
Laugarneshverfi, Klettagörðum 9, simi 85119.
Langholts- Voga- og Heimahverfi, Langholtsvegi 124, sfmi
34814.
Háaleitishverfi, Miðbæ v/Háaleitisbraut simi 85730
Smáibúða- Bústaða- og Fossvogshverfi, Langagerði 21,
simi 32719.
Háaleitishverfi, Miðbæ v/Iláaleitisbraut slmi 85730.
Smáibúða- Bústaða- og Fossvogshverfi, Langagerði 21,
simi 32719.
Arbæjarhverfi. Hraunbæ 102, simi 81277.
Bakka- og Stekkjahverfi, Urðarbakka 2, simi 86153.
Fella- og Hólahverfi, Vesturbergi 193, sími 72722.
Stuðningsfólk D-listans erhvatttil að snúa sér tilhverfis-
skrifstofanna og gefa upplýsingar, sem að gagni geta
komið I kosningunum svo sem upplýsingar um fólk sem er
eða verður fjarverandi á kjördag o.s.frv.
111
1» BÍLLINN
11verfisgötu 1.8
Simi 14411 T~
vUL L‘ue
VOLKSWAGEN 1303 ’73.
VOLKSWAGEN 1300 ’70.
TAUNUS 17M station ’70.
VOLVO 144 ’70 og ’72.
PEUGEOT 204 ’71.
MERC. BENZ 200 ’70.
VAUXHALL VIVA ’67.
Opið á kvöldin kl. 6-10 —
Laugardag kl. 10-4.
IVIohawk
Sumarhjólbarðar fyrir
ameríska bíla
Á mjög hagstœðu verði
HJÓLBARÐASALAN
Borgartúni 24 Sími 14925
Stakir teningar,
póker teningar,
Yatzy blokkir,
spilapeningar,
bikarar
Frímerkjamiðstöðin,
Skólavörðustig 21 A
Sími 21170
Vísír. Fimmtudag'ur ío! maí 1974.
ap/imtb
Bílbelti
lögleidd
einnig
af Svíum
Sænska þingið samþykkti I gær
lög, sem skylda til notkunar
öryggisbelta i öllum ökutækjum.
Lög þessi skulu öðlast gildi 1. jan.
1975, en áður verður farin
áróðursherferð um gjörvalla Svi-
þjóð fyrir öryggisbeltunum.
Samkvæmt lögum þessum
skulu allir farþegar, sem náð
hafa 15ára aldri, og eru meira en
150 sm á hæð skyldugir til að nota
öryggisbelti, þegar þeir sitja i
framsætum bifreiða.
Umferðarsérfræðingar gera
ráð fyrir að slösuðum fækki um
25% með þessum lagaákvæðum.
— Meðal þeirra landa, sem leitt
hafa i lög notkun öryggisbelta,
eru Ástralia, Frakkland og
Tékkóslóvakia. — Hér á landi er
skylda að hafa öryggisbelti i bif-
reiðum, en notkun þeirra er ekki
lögþvinguð.
Þóttist
ófrísk
—rœndi
hvítvoð-
ungi
Leyndardómsf ullt
barnsrán, sem f ramið var í
smábænum Thionville í
Frakklandi fyrir sex
mánuðum, upplýstist loks í
gær, þegar kona ein játaði,
að hafa keypt barnið af
foreldrum þess.— En áður
hafði hún blekkt mann sinn
til að halda, að hún væri
ófrísk.
Madame Simone Sebanne var
kærð fyrir að ræna ungabarni, en
var sleppt eftir játningu hennar,
og rannsóknardómarinn fól henni
umsjá sex mánaða gamals
drengsins sem málið snýst um.
Konan skýrði lögreglunni frá
þvi, að hún hefði verið sjúk i að
eignazt barn til þess lika að
tryggja hjónaband sitt. Komst
hún I samband við hjón, sem áttu
von á fjölgun i fjölskyldunni i
nóvember, og gerði hún við þau
samning um að kaupa af þeim
barnið fyrir 5.000 franka, en lék
það svo fyrir mann sinn og
nágranna.að hún gengi sjálf með
barn.
Þegar stundin rann upp, fór hún
á fæðingarheimilið ásamt syni
sinum frá fyrra hjónabandi, og
nam nýfæddan drenginn á brott.
Sakleysi manns hennar af þvi
að hafa tekið þátt i þessu bralli,
hefur verið staðfest. Hann sagði
blaðamönnum, að hann dáði konu
sina fyrir tiltækið, sem honum
fyndist sanna ást hennar. „Fáar
konur mundu ganga svo langt til
að tryggja hjónaband sitt,” sagði
hann.
Konan hafði fimm sinnum
misst fóstur á hjónabandsárum
þeirra, og þrátt fyrir læknisað-
gerðir, hefur henni ekki tekizt að
eignazt annað barn en soninn sem
hún átti frá fyrra hjónabandi.
Hinir réttu foreldrar unga-
barnsins, sem rænt var af
fæðingarheimilinu, þrættu i
fyrstufyrir að hafa selt barn sitt,
en siðan viðurkenndi móðirin sinn
hlut i málinu.