Tíminn - 26.01.1966, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 26. jannar 1966
Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN
Framkvæmdastjóri: Kristján Benediktsson. Ritstjórar: Þórarinn
Þórarinsson (áb). Andrés Kristjánsson, Jón Helgason og Indriði
G. Þorsteinsson. Fulltrúi ritstjómar: Tómas Karlsson. Aug-
lýsingastj.: Steingrímur Gíslason. Ritstj.skrifstofur í Eddu-
húsinu, símar 18300—18305. Skrifstofur, Bankastræti 7. Af-
greiðslusími 12323. Auglýsingasími 19523. Aðrar skrifstofur,
sími 18300. Áskriftargjald kr. 95.00 á mán. innanlands — í
lausasölu kr. 5.00 eint. — Prentsmiðjan EDDA h.f.
Isafjarðarkaupstaður
aldargamall
í dag á höfuðstaður Vestfjarða, ísafjörður, aldaraf-
mæli sem kaupstaður. Hinn 26. janúar 1866 var gefin
ú± og staðfest af Kristjáni konungi hinum níunda reglu-
gerð um að gera ísafjörð að kaupstað og um stjórn bæj-
armálefna han*.
ísafjörður á sér þó miklu lengri sögu sem verstöð,
samgöngumiðstöð og verzlunarstöð, þó að hún verði
ekki rakin hér. Kaupstaðurinn reis á Eyri við Skutuls-
fjörð og bar það nafn fyrst, og hann var allt fram yfir
tíma kaupstaðarréttindanna hluti úr Eyrarhreppi.
Fiskveiðar hafa jafnan sett svip sinn á ísafjarðarkaup-
stað sem aðalatvinnugrein, og var þar meðal annars
mikil togaraútgerð um skeið og einnig vélbátaútgerð á
síðari árum. Á síðustu árum hafa rækjuveiðar einnig
sett svip sinn á atvinnulífið. Verzlunin var og ætíð miltíl,
og áður en bílvegir komust á milli fjarða á Vestfjörðum
var ísaf jörður miðstöð samgangna við þennan landshluta
og er raunar enn.
Á síðustu árum hefur iðnaður orðið æ meiri þáttur í
atvinnulífi bæjarins og risið upp nokkur mjög myndarleg
iðnfyrirtæki. Bærinn hefur og stækkað og fríkkað með
hverju ári, myndarlegar byggingar risið upp, varanleg
gatnagerð komin nokkuð á veg, og ýmsar þjónustufram-
kvæsndir verið miklar. Á ísafirði hafa myndarlegar skóla
stofnanir átt aðsetur langa hríð, og þeim hefur fjölgað
og vaxið fiskur um hrygg með árunum. Nú er afráðið
að stofna menntaskóla á ísafirði, og verður kaupstaður-
iim þá í enn ríkari mæli höfuðstaður síns landshluta í
sfeótemálum.
Errm þáttur er nokkuð sérstæður í sögu ísafjarðar,
en það er hin mikla þjónusta við fiskiskip. ekki sízt er-
lend, er stundað hafa veiðar á djúpmiðum ifyrir Vest-
fjörðum. Þangað leita erlendir togarar gjarnah inn, þeg-
ar eitthvað fer úrskeiðis, og hafa jafnan fengið þar góða
og mikilvæga þjónustu, jafnt læknishjálp sem viðgerðir
á skipum, vélum og veiðarfærum, en vélaviðgerðir og
netagerð hefur lengi verið veigamikill þáttur í atvinnu-
lífi bæjarins.
ísafjörður er fagur bær. Hann stendur á mikilli og
sléttri sjávareyri í voldugu fjallaskjóli við djúpan fjörð,
þar sem góð höfn myndast af náttúrunnar hendi. Þar
hefur jafnan búið myndarlegt og athafn'asamt fólk og
félagsleg menning staðið á traustum og gömlum rótum.
Félagslíf hefur lengi verið með þrótti og blóma, og
kaupstaðurinn í heild haldið vel hlut sínum og reisn,
og mun svo enn verða.
ísfirðingar munu vafalaust minnast merkisafmælis
bæjar síns með þeim myndarskap, sem einkénnir líf
þeirra sjálfra og bæjarbrag. Aðalhátíðahöldin munu þó
ekki fara fram fyrr en á komandi sumri, enda sólin vart
farin að sýna sig á ísafirði enn á þessu ári. í tilefni af-
mælisins mun og koma út bók um ísafjörð eftir bæjar-
fógetann, Jóhann Gunnar Ólafsson, og munu margir
fagna henni frá hendi svo glöggs manns.
Tíminn vill fagna með ísfirðingum á þessu merkisaf-
mæli og gefur af þvi tilefni út aukablað, sem helgað er
bænum og íbúum hans. Jafnframt óskar hann ísfirð-
ingum gæfu og gengis á komandi árum og bæ þeirra
vaxtar og viðgangs í miklu framtíðarhlutverki.
___TÍMINN ________________________________s
<■’■■■■ ■■■ ■ ■■■■- ■—
Walter Lippmann ritar um alþjóðamál:
Fimm öldungadeildarþingmenn
skila merkilep nefntíaráliti
Hættan, sem stafar af styrjaldar þátttöku Bandaríkjanna í Asíu
VIÐ samkomu þingsins að
nýju lýkur því-- tímabili, þegar
forsetinn hefir notið óskoraðs
trausts 60—70% þjóðarinnar.
Ávallt hefir verið merkilegt, að
þjóðin skuli hafa staðið í stríði,
sem aldrei hefir verið skýrt
nema mjög lauslega og aldrei
verið rökrætt alvarlega. Þessi
laumulegi ófriður hefir verið
framkvæmanlegur vegna þess,
að þjóðinni er gjarnt að treysta
forsetanuim og menn gera tíð
ast ráð fyrir, að þegar um er
að ræða stríð eða frið á fjar
lægu meginlandi, hafi hann að-
stöðu til að vita betur en þeir.
En nú er nýtt viðhorf komið
til sögunnar. Forusta forsetans
hefir nú verið reynd á vígvöll
unum í Suðaustur Asíu í heilt
ár. Þjóðin er nú smátt og smátt
að komast að hinu sanna um
gang og árangur stríðsins og
á þann kvarða er nú að verða
unnt að mæla það, sem henni
hefir áður verið sagt um hern
aðinn og horfurnar í styrjöld
innL
STR AUTVTH V ÖRFUM veldur
skýrsla, sem birt hefir verið, en
hún er byggð á könnun fimm
öldungardeildarþingmanna und
ir forustu Mansfields oíduhga
deildarþingmanns, en hinir þing
mennimir fjórir eru Aiken,
Muskie, Boggs og Inouye. Þetta
er í fyrsta sinn, er okkur berst
í hendur trúverðug skýrsla
um þetta stríð, samin af ábyrgð
og byggð á öruggum upplýsing
um. Til þessa hefir almenning
ur orðið að láta sér nægja upp-
lýsingar þær, sem fram hafa
verið látnar koma í opinberum
fréttatilkynningum og yfirlits
skýrslum í Saigon og Washing
ton, ef undan eru skildar frá
sagnir fáeinna framtakssamra
og óháðra blaðamanna.
Ósamræmið milli opinberu
tilkynninganna um stríðið og
staðreyndanna, sem smátt og
smátt hafa verið að koma í
ljós, hefir grafið undan trausti
almennings. Sannleikurinn er
sá, þó ófagur sé, að af hinni
laumulegu framkvæmd stríðs-
ins eru sprottin alvarleg vand-
ræði vegna skorts á tiltrú, eins
og Goldberg aðalfulltrúi játaði
núna fyrir skömmu. Þjóðin veit
ekki, hverju hún á að trúa af
því, sem henni berst frá Hvíta
húsinu, utanríkisráðuneytinu,
herstjórninni eða opinberum
aðilum í Saigon.
Eina leiðin til að endurvekja
traust almennings á sannleiks
gildi opinberra frétta og áreið
anleika embættismanna er að
taka málin til umræðu opinber
lega. í Mansfield-skýrslunni er
einmitt að finna það efni, sem
með þarf til að byggja umræð
urnar á, en þessi skýrsla á skil
ið miklu meiri útbreiðslu en
hún hefir hlotið til þessa.
MEÐAL þess, sem hvað nauð
synlegast er að ræða og * fá
neitun ríkisstjórnarinnar á, ef
hún getur á móti því borið, er
sú niðurstaða. sem fram kemur
Lmmommwmmm
í eftirfarandi orðum Mansfield-
skýrslunnar:
„Tilkoma fjölmennra her-
sveita Bandaríkjamanna og
þátttaka þeirra í bardögum
hefir að vísu hægt á framrás
Viet Cong, en hvergi nærri
stöðvað hana. Viðbrögð Viet
Cong við aukinni aðild Banda
ríkjamanna hafa verið fjölg
un í eigin hersveitum með
sjálfboðaliðum úr sveitum í
Suður-Vietnam, aukning liðs
afla úr norðri og þar af leið
andi almenn aukning hernað
arathafna. Af þessu leiðir, að
mörk yfirráðasvæða styrjald
araðilanna í Suður-Vietnam
eru nú í megindráttum hin
Mansfield foringi demokrata í
öldungadeildinni.
sömu og þau voru þegar
Bandaríkjamenn byrjuðu að
auka þátttöku sína í styrjöld
inni.“
Styrjaldarþátttakan hefir sí- S
fellt verið aukin í heilt ár. Ár- I
angurinn knýr öldungadeildar
þingmennina til að staðfesta á
ný hina gömlu kenningu Banda
ríkjamanna um styrjöld í Asíu:
„Ef svo heldur fraim sem
nú horfir, er ekki með neinu
móti unnt að fullyrða, hve
miklar hernaðarskuldbinding
ar Bandaríkjanna kunna að
þurfa að verða áður en átök
in eru til lykta leidd. Sú er
raunin, eins og hér stendur á
og samkvæmt þeirri þróun,
sem styrjaldargangurinn hefir
tekið, að ekki er um að ræða
að auka áhrif Bandaríkja-
manna á ákveðið og afmarkað M
hernaðarástand, heldur öllu
fremur að auka aðild að hern
aðarátökum, sem í raun og
veru eru á hvoruga hlið af-
mörkuð.“
Hér eru viðhófð um stríðið
í Suðaustur Asíu ummæli, sem
í raun og veru eru upprifjun
þeirrar hernaðarkenningar, sem
Bandaríkjamenn hafa til
skamms tíma fylgt, eða að
Bandaríkin eigi ekki að gerast J
aðili að styrjöld á landi á megin ú
landi Asíu, af því að slfk styrj jf
öld yrði „á hvoruga hlið af- p
mörkuð“, eins og komist er að l'
orði í Mansfield-skýrslunni. '
Ástæðan er, að í Asíu verða
Asíumennirnir a'ltaf fjölmenn
Framhald á bls. 14.