Tíminn - 01.02.1966, Síða 11
ÞRIÐJUOAGUR 1. febrúar 1966
TÍMINN
eð Feisal var ekki lengur á snærum Hússeins og hann ætl-
aði ekki til Parísar, heldur til London. Bremond var grafinn
upp einhvers staðar á Vesturvígstöðvunum og sendur með
hraði til móts við Feisal og fékk þau fyrirmæli, að halda
hann sem gest franska ríkisins, en gæta þess að ræða ekki
stjórnmál við hann né fylgdarlið hans. Bremond átti einnig
að taka á móti Lawrence ef hann kæmi klæddur sem brezk-
ur ofursti, hann átti ekki að taka á móti honum, ef hann
væri klæddur sem Arabi.
Bremond tók fyrirmælin bókstaflega og þegar hann sá
Lawrence í arababúningi, tjáði hann Feisal strax fyrirmæli
stjórnar sinnar. Og það furðulega gerðist, að Feisal sagði
Lawrence að hverfa þegar í stað til London. Feisal héit
síðan um Frakkland með Bremond og þeir luku ferðinni
í París, þar sem honum var haldin veizla af utanríkisráð-
herranum og veitt móttaka af forseta lýðveldisins. Tveim
vikum eftir að hann lenti á Frakklandi hélt hann til Boulogne
þar sem Lawrence beið hans við skipsstigann á skipinu,
sem skyldi flytja hann til Englands. Síðan hófst ferð um
Bretland, Lawrence fyldi honum hvert sem hann fór. Það
voru opinberar móttökur, áheyrn hjá konungi, þar sem
Lawrence hneykslaði embættislýðinn með því að klæðast
arababúningi, og loks fundarhöld í utanríkisráðuneytinu varð-
andi kröfur hans til Sýrlands og til undirbúnings friðarráð-
stefnunni, sem var að hefjast í París um þetta leyti.
Tryggð Lawrence við Feisal var furðuleg, eftir framkomu
hans gagnvart honum í Damaskus? Hvers vegna hélt hann
áfram að styðja hann, þegar svo var komið málum, að
sundrungin meðal Araba hlaut að koma í veg fyrir sjálf-
stæði? Brezka stjórnin var hlynnt áætlun hans. En með hverj
um degi sem leið gerðúst kröfur Frakka háværari um Sýr-
land og almenningsálitið í Frakklandi heimtaði bætur fyrir
tjón það, sem Frakkar höfðu beðið á Vesturvígstöðvunum.
Það var ekki gerlegt fyrir Breta að binda sig við áætlun
Lawrence, þegar Arabar voru sjálfum sér sundurþykkir og
neita Frökkum um annað en Beirut og smáskika umhverfis.
Hvað var það, sem hvatti Lawrence áfram? Það hefur vafa-
laust verið ást hans á Sýrlandi, þessum „dásemdagarði,“ þar
sem hann hafði fyrst uppgötvað fegurð eyðimerkurinnar og
þar sem honum fannst ríkja endalaus hreinleiki. Þarna
hafði hann kynnzt mörgum beztu vinum sínum, Hamoudi
sheik og Ahmed. Hann hafði barizt vegna Sýrlands. Damaskus
var draumaborg hans frá þeirri stundu, sem hann hafði
nefnt hana í fyrsta skipti, sem hann hitti Feisal í Hamra.
Metorðadraumar hans máttu fara lönd og leið, hann hirti ekki
um laun fyrir þjónustu sína við Feisal og draumar hans
um frjálsa og óháða Arabíu máttu umbreytast í óskapnað
nýlendnaverndarsvæða og ófullvalda smáríkja. Hann
varð að bjarga Sýrlandi úr klóm Frakka. Það var kaldhæðnis-
legt að honum skyldi að lokum fakast að bjarga Feisal en
ekki Sýrlandi.
26.
Ráðstefnan.
Áður en friðarráðstefnan hófst í janúar 1919 voru komnar
upp deilur milli Feisals og Lawrence annars vegar og Frakka
og Hússeins hins vegar. Frakkar neituðu í fyrstu að viður-
kenna emírinn, sem fulltrúa ríkis, sem þeir töldu ekki vera
til, o? «em þeir myndu vinna að, að yrði aldref til. Hússein
neita' ð'viðurkenna Feisal sem fulltrúa Araba, og enn síður
sem fulltrúa arabisks ríkis, sem hann gerði sjálfur kröfur til,
og taldi Feisal valdaræningja að krúnu bróður hans Abdulla
í þessu sama ríki. Bretar studdu emírinn einir, og það var
með herkjum, að þeim tókst að telja Clemenceau, franska
forsætisráðherrann og Hússein á að láta af andróðri sínum.
Þetta spáði illu fyrir Feisal og Lawrence, þar sem þeir
tóku sér sæti í hinum glæsta Salon de l‘Horloge í utan-
ríkisráðuneytinu franska. Feisal sat þarna á móti fulltrúum
þeirra þjóða, sem áttu að ráða örlögum þjóðar hans og hans
sjálfs. Frakkar gátu illa dulið fjandskap sinn, Bandaríkja-
menn 'og Wilson forseti voru fullir samúðar með þessum
fulltrúa kúgaðrar þjóðar, höfundur hinna fjórtán atriða virt-
ist mjög hrifinn af afrekúm hans og sjálfstæðisbaráttu.
Brezka sendinefndin var í vandræðum, þeir höfðu komið
sér í erfiða aðstöðu og þurftu að gera mörgum til hæfis.
Vandræði brezku stjórnarinnar stöfuðu af því, að þeir höfðu
gert samninga og skuldbundið sig svo mjpg að úr því varð
flækja, sem erftitt var að ráða fram úr. í fyrsta lagi var
C The New Amerlcan Llbrarv
UNDIR FÖLSKU FLAGGI
ANNE MAYBURY
— Og þá er þetta nóg í dag.
Hún stóð upp og skalf svo í
hnjáliðunum, að það lá við, að
hún gæti ekki hreyft sig úr ctað.
Matthews lögregluþjónn délt d.yr-
unum opnum fyrir henni. Gamli
Joss sat í háum útskornum stói
í forstofunni og varðstjórinn bað
hann að koma inn.
Joss klappaði henni á handlegg
inn.
— Þetta var ekki svo siæmt
eða hvað?
Um leið hvarf hann inn í stof
una. Dyrunum var lokað, og
Vonnir hélt áfram að stríða við
sína sektartilfinningu. Það hefði
ekki þjónað neinum tilgangi, þótt
hún hefði sagt varðstjóranum
sannleikann. Þvert á móti. Það
hefði orðið orsök til þess, að einn
eftir annan hefði orðið fullur af
beizkju og ásökunum. Þar ao
auki var hún öllum hér okunnug
og hafði engar upplýsingar að
gefa, sem komið gætu upp um
morðingjann.
— Engar? — Og allt í einu
mundi hún eftir ljósinu í jofther
berginu.
Einhver hafði verið í húsi sem
talið hafði verið tómt, og hún
var sú eina, sem vissi um það. Hún
og morðinginn.
En hin brezka lögrelga var
þekkt að því að hafa góða menn
í sinni þjónustu. Þeir myndu sjalf
sagt finna morðingjann, án þess
að fá vitnisburð hennar um smá-
muni. Slíkar upplýsingar voru
áreiðanlega of háu verði seldar
Joss Ashlyn, sem sannarlega hafði
fengið nóg í bili, og Myru, sem
hafði rétt til þess að fá sinn mögu
leika til að höndla gæfu lífsins.
Líka með tilliti til sjálfrar mín,
hugsaði Vonnie. Ég hef gefið mig
I þetta og verð að framkvæima
það.
Hún heyrði, að einhver var í
borðstofunni og opnaði dyrnar.
Þar sat Fenella við borðið og
kveikti sér í sígarettu.
— Halló! Eru þeir nú farnir
að bombardera þig líka? spurði
hún.
— Það var ekkert, sem ég hafði
að segja, sem gat orðið þeim að
neinu liði.
— Nei, það hefur sjálfsagt ekki
verið. Hún ýtti sígarettupakk
anum yfir borðið. — Viltu reyk?
Með sígarettuna í munnvikinu,’
lyfti hún báðum höndum og
strauk fingrunum órólega gegn
um hárið. — Hvað gott getur leitt
af yfirheyrzlum aftur jg aft-
ur? Það sama upp aftur og aftur.
— Kannski varðstjórinn álíti,
að einhver geti rifjað eitthvað upp
sem kynni að hafa gleymzt, smá-
muni, eins og . . .
— Ég er búin að hugsa svo mik
ið, að allt snýst fyrir mér, sagði
Fenella grðmjulega. Ég hef sagt
þeim, hvernig ég held, að þetta
hafi skeð, en þeir vilja ekki hlusta
á mig. Ég mun framvegis halda
fast við, að það hafi verið einhver
að utan. Joss frændi heldur, að
meðölin hafi verið ætluð sér, en
er það ekki bjánalegt að trúa
því, að eitthvert okkar hafi vilj-
að sækjast eftir lífi hans. Við er-
um engir morðingjar. Við erum
mannað fólk
— Það er auðséð, að einhver
hefur ekki verið það, sagði
Vonnie.
— Þá er það líklega einh f
óvinum Felixar frænda, — og ég
held, að hann eigi marga óvini.
Hann var einfari. Joss frænui hef-
ur haldið uppi vörrum fyrir hann
en það er víst mjög sterkt sam-
band á milli tvíbura, og hann
hefði gengið í dauðann fyrir hann
ef honum hefði orðið á að stytta
manni aldur. Nei, hann hafði
sjálfsagt átt óvini, og einn þeirra
hafði komið hingað á eftir hon-
|um, og komið auga á afbra03s
! möguleika og — fyrir mér lítur
j það svo út, sem einhver óski hon-
um dauða en ekki Felix. Hún
gekk út að glugganun. og_ leit á
limgirðinguna og veginn. í fyrra
kvöld hafði hún gengið framhjá,
laumazt fram með limgirðingunni
til að sjá magnoliatréð. Hún hafði
I sézt frá grannhúsinu. Það hafði
líka einhver verið heima í húsinu
sem talið var tómt, kveikt og
í slökkt ljós á lofthæðinni. Var það
; herbergi, sem tilheyrði íbúð
Ralphs? Hún vissi það ekki onnþá
en varð að komast að því.
— Þetta verður ekki til að bæta
aðstöðu mína á vinnustaðnum. Yf
irmaður minn er mesti broddborg
ar' Þú e,rt heppin, sem ert þinn
eigin húsbóndi.
— En ég . . .
— En hvað?
— Allt hefur sína kosti, sagði
Vonnie hikandi, til að dylja ..ugna
bliks hugsunarleysi. Óskaplega
var létt að tala af sér, gleyma
hlutverkinu, og eyðileggja allt!
— Ég skil, hvað þú átt við, hélt
Fenella áfram. Sjálf get ég ekki
hugsað mér að bera ábyrgð á
neinu. Ef ég ætti að stjórna fólki,
væri út um mig. Nei. má ég þá
biðja um vel launaða stöðv sem
undirmaður. — eða það scm væri
ennþá betra, fúlgu af peningum.
án þess að þurfa að hafa nokkrar
skyldur á herðum Húr h!ó í’röggt
og . -.iega.
Hættan var liðiri hja i þetta
skipti, en náin samvera með íbúum
hússins mundi auka hættuna á því
að hún gleymdi sér. Sennileg*. var
Vachall varðstjóri ekki heldur bú
JJ
inn með hana. Hann var vís d
að fara að athuga sönnur fyrir
framburði hennar og komast að
raun um, að engin Myra Ashlyu
hefði verið með flugvélinni frá
Montreal til London þennan dag.
Hún sneri sér snögglega frá
glugganum, eins og hún vildi
flýja frá svo hvimleðium áleitnum
hugsunum.
— Hvað er að? Fenella starði
rannsakandi á hana gegnum síg-
arettureykinn með hálfluktum
augum.
— Er að mér? Vonnie hló undr
andi, reikaði yfir að borðinu og
tók epli af silfurfatinu. — Ekkert.
— Ég hélt að þú hefðir að
minnsta kosti séð afturgöngu
Felixar frænda, það var naumast
að þ„ hrökkst við.
— Þó að ég sæi hana, gæti
ég ekki vitað, hver það væri.
Vonnie beit í eplið. Segir Joss
frændi nokkuð við því, þótt við
tökum ávexti?
— Nei, síður en svo. Þeir liggja
í hrúgum í kjallaranum.
Vonnie settist við borðið. Eplið
var súrt og hafði einkennilegan
keim.
Fenella veitti henni athyglL
— Þú ættir að breyta um fyrir
ætlun og flytja á hótel. Það er
engin ástæða til að þú sért hér.
Ég þekki Joss frænda,
hann myndi skilja það. Hann er
enginn viðkvæmur aumingi. sem
fvnHi-i 'ia’-in nafp verið móðg-
ÚTVARPIÐ
ÞriSjudagur 1. febrúar.
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg
isútvarp. 13.00 Við vinnuua: Tón
leikar. 14.40 l'ið, sem heima sitj
um 1500 Miðdegisútvarp. 16.00
ISíðdegisút-
varp.
17.20 Fram-
burðarkennsla i dönsku og ensku
17.40 Píanólög. 18.00 Tónlistartími
barnanna Jón G. Þórarinsson
stjórnar. 18.20 Veðurfregnir. 19.
30 Fréttir. 20.00 Við eruni ung.
Dagskrá Sambands bindindisfé-
lagá í skólum: 20.40 Hinn eini og
hinir mörgu Hendrik Ottósson
fréttamaður flytur síðasta erindi
sitt 21.00 Þriðjudagsleikritið:
„Hæstráðandi tii sjós og lands“.
Leikstjóri Flosi ólafsson. 22.00
Fréttir og veðurfregnir. 22.15
Átta ár í Hvíta húsinu. Sigurður
Guðmundsson skrifstofustj. flytur
kafla úr endurminningum Tru-
mans fyrrum Bandaríkjaforseta
(13). 22.35 Á vetrarkvöldi. Ella
belle Davis syngur negrasálma
og strengjasveit leikur ensk lög.
23.00 Á hljóðbergi. Björn Th.
Björnsson listfræðingur velur efn
ið og kynnir. 23.50 Dagskrárlok.
Miðvikudagur 2. febrúar.
7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádegis
Iútvarp.
13.00 Við
vinnuna:
Tónleikar. 14.40 Við, sem heima
sitjum. Sigríður Thorlacius les
skáldsöguna „Þei, hann hlustar"
eftir Sumner Locke Elliot (8). 15.
00 Miðdegisútvarp. 16.00 Síðdegis
útvarp. 17.20 Framburðarkennsla
f esperanto og spænsku. 17.40
Gítariög. 18.00 Útvarpssaga barn
anna: „Á krossgötum“ eftir
Aimée Sommerfelt Þýðandi: Sig
urlaug Björnsdóttir Lesari: Guð
jón Ingi Sigurðsson leikari (9).
18.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir.
20.00 Daglegt má! Árni Böðvars
son flytur þáttinn. 20.05 Efst á
baugi. 20.35 Raddir lækna. Valtýr
Bjarnason talar um svæfingar.
21.00 Lög unga fólksins. Gerður
Guðmundsdóttir kynnir.
22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.
15 „A vegamótum“. smásaga eft
ir Einar H. Kvaran. Sigurður Sig
urmundsson les. 22.50 Beigísk
tónskáld. 23.40 Dagskrárlok.