Tíminn - 01.02.1966, Qupperneq 12

Tíminn - 01.02.1966, Qupperneq 12
ÍÞRÓTTIR 12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÞRIBJUBAGUR 1. febrúar 1966 Þórdlfur skoraöi gegn St. Mirren Rangers hefur tekið forustuna afutr Kolbelnn Pálsson skorar körfu í fyrrl leiknum. Skotarnir náðu ekki að stöðva hann. (Tímamynd GE) Alf—Reykjavík, mánudag. Þórólfur Beck lék aftur með aðalliði Glasg. Rangers á Ibrox á laugardaginn en hann hefur ekki leikiS með aðalliðinu frá því í byrjun keppnistímabilsins. Mótherji Rangers á laugardaginn var St. Mirren hið gamla félag Þórólfs og átti Þórólfur mik- inn þátt í 4:1 sigri Rangers, samkvæmt því, sem skoiku blöðin segja, en Þórólfur skoraði sjálfur eitt mark- anna 2. markið og lagði knött inn fyrir Georg McLean í tvö skipti, en McLean skoraði í bæði skiptin. Fjórða mark Rangers skoraði Greig. Fyrri hálfleikurinn var vel leikinn aí' hálfu Rangers og skoraði liðið þá þrjú mörk. Þór- ólfur varð fyrir því óhappi rétt fyrir nlé að fá spark aftan í ökla, og naut sin ekki eins vel í síðari hálfleik. Þessi meiðsli munu vera lítils háttar. Að sögn skozku blaðanna forðaði mark- vörður St. Mirren, Liney, liði Framhald á 6. síðu. Körfuknattleikssambandið fékk beztu afmæiisgjöfina -tvöfaldur landsleikjasigur gegn Skotum Alf—Reykjavík, mánudag. íslenzka landsliðið í körfuknattleik gaf hinu unga Körfuknattleiks- sambandi, sem átti 5 ára afmæli á langardaginn, beztn afmælisgjöfina, nefnilega sigur í báðum landsleikjunum gegn Skotum, er háðir voru í íþróttahöllinni í Laugardal um helgina. Fyrri leiknum lauk 65:46 og síðari leiknum 66:43. Það er orðið svo langt siðan að ísland hefur unn- ið landsleiki, að menn spurðu, þegar þeir fréttu um úrslitin; hvað olli því, að okkar menn nnnu? Og gárungarnir svöruðu: Skotarnir voru svo sparir á stigin! En rétta svarið við spurning- unni er hins vegar það, að okkar menn voru greinilega betri aðil- inn í báðum leikjunum, og er það ekki sízt Þorsteini Hallgrímssyni að þakka, sem koma frá Dan- mörku til að taka þátt í leikj- unum. Frammistaða ísl. liðsins var mjög góð og byggðist á „taktiskum" og öruggum sóknar- leik, en auk þess voru skyndi- upphlaup liðsins einkar hættuleg, þrátt fyrir frekar skemmtilega leiki, setti þó „dómaraleikur” skozka dómarans Rab Petrie leið- inlegan svip á, en ekki var laust við, að hann væri hlutlægur á kostnað ísl. liðsins. Fyrri leikurinn, 65:46. Mjög fáir áhprfendur komu til að sjá leikinn á laugardaginn, og er ekki að efa, að óhagstætt veður hefur eitthvað dregið úr aðsókninni. Fyrir leikinn iék Lúðrasveitin Svanur undir stjórn Jóns Sigurðssonar þjóðsöngva land anna, en að því búnu, hófst léik-i urinn. Til að byrja með komst ísiand yfir 4:0 og skoruðu Kristinn Stef. og Birgir Jakobsson þessi íyrstu stig. En Skotarnir jöfnuðu stöðutia brátt og komust í 8:4. Það var ekki fyrr en um miðjan hálfleik, að ísl. liðinu tókst að jafna og litlu síðar að ná forustu á nýjan leik. í hálfleik hafði ísland yfir 27:21 og í síðari hálfleik smájókst bilið, en lokatölur urðu 65:46, eða 19 stiga munur. í þessu leik var Þorsteinn Hall- grímsson áberandi beztur, en hann skoraði 17 stig. Kolbeinn átti einnig góðan leik og skoraði 13 stig. Að öðru leyti var liðið nokkuð jafnt. — Af Skotum voru beztir George Turnbull (5), Bill Mclnnes (6) og Carl Millar (12). Guðjón Magnússon dæmdi á móti skozka dómaranum. Síðari leikurinn, 66:43. Yfirburður ísl. liðsins voru ótví- ræðir allan tímann í síðari leikn- um á sunnudaginn. ísland komst í 8:0, en í hálfleik var staðan 21:14. Glæsilegasti kafli ísl. liðs- ins var undir lokin, en þá breytt- ist staðan á nokkrum mlnútum úr 51:37 í 66:39, en lokatölur urðu 66:43. Þessi leikur var leikinn af mun meiri hörku en fyrri leikurinn og urðu nokkrir skozkir leikmenn að vikja af velli með 5 villur. Eini ísl. leikmaðurinn, sem fékk 5 vill- ur, var Hólmsteinn Sigurðsson, en flestir voru með 3 til 4 villur. Beztu menn íslands voru Þor- steinn (13 stig)) og Birgir Jak- obsson (14 stig). Þá átti Kolbeinn fyrirliði einnig góðan leik, en samt sem áður ætti hann að nýta skyndiupphlaupin betur. — Guð- mundur Þorsteinnsson dæmdi á móti Skotanum í þessum síðari leik. Það er fyllsta ástæða til óska ísl. landsliðsmönnum til hamingju með árangurinn, svo og stjórn KKÍ, og ekki sízt þjálfaranum, Helga Jóhannssyni. A-Þjóðverjar og llngverjar komnir í úrslit Austur-Þýzkaland og Ung verjaland hafa tryggt sér sæti í lokakeppni heims- meistarakeppninnar í hand knattleik í Svíþjóð næsta ár. Á sunnudaginn sigruðu A- Þjóðverjar Finna í Rostock með 27:9, en í hálfleik var staðan 14:2. Áður höfðu A- Þjóðverjar sigrað Rússa með nokkrum yfirburðum. Á sunnudaginn sigruðu Ungverjar Spán með 26:17 í leik, sem fram fór í Mad rid. í hálfleik var staðan 13:10. Þessi sigur nægir Ung verjum til að komast í loka keppnina. Eastham og Baker Deildarkeppnin í Englandi og Skotlandi s. 1. laugardag. 1. deild: Aston Villa — Sheffield Utd. 0—2 Burnley — Chelsea 1—2 Fulham — Blackpool 0—0 Liverpool — Leicester 1—0 Northampton — Everton 0—2 Nottingham F. — Newcastle 1—2 Sheffield W. — Manch. U. 0—0 Stoke City — Arsenal 1—3 Sunderland — Leeds 2—0 Tottenham — Blackburn 4—0 West Ham West Bromw. 4—0 2. deild: Bury — Cardiff City 1—1 Charlton — Bolton 0—1 Crystal Palace — Birmingh. 1—0 Huddersf. — Leyton Orient 1—1 Manch. City — Middlesbro 3—1 Norwich — Carlisie 2—0 Plymouth — Portsmouth 3—1 Preston — Ipswich 0—1 Rotherham — Bristol City 1—2 Southamp. — Derby County 3—1 Wolverhamnt.— Coventry 0—1 Skotland 1. deild: Aberdeen — Hamilton 5—2 Clyde — St. Johnstone 3—2 Dundee Utd. — Dunfermline 0—4 Falkirk — Dundee 3—2 Hearts Celtic 3—2 Kilmarnock — Stirling Alb. 2—1 Morton — Partick Thistle 0—0 Motherwell — Hibernian 4—0 Rangers — St. Mirren 4—1 Mesta athygli um þessar mund ir vekur brottrekstur landsliðs- mannanna Joe Baker og George Eastham úr aðalliði Arsenal. Þeir hafa báðir farið fram á að vera settir á sölulista. Arsenal gæti trú lega fengið greidd 60 þús. sterlings pund fyrir Baker, sem leikur stöðu miðherja í enska landsliðinu um þessar mundir, og 40 þús. fyrir Eastham. Radford kom inn fyrir Baker og skoraði tvisvar sinnum gegn Stoke Þetta eru fyrstu stigin sem Arsenal fær á 4 mánuðuim á útivelli. Chelsea sigraði í níunda skipti á útivelli, en heiima á Stamford Bridge hefur liðinu gengið illa, skorað aðeins ellefu sinnum í jafnmörgum leikj um. Maður dagsins í Burnley var hinn ungi miðherji Peter Osgood, sem skoraði bæði mörkin fyrir Chelsea. Fyrra markið var eitt glæsilegasta „sólómark" sem sézt hefur, að sögn fréttamanna. Hann fékk knöttinn nálægt miðlínu, lék síðan gegnum fjóra varnarmenn hjá Burnley, ofsahratt og af mikilli leikni, narraði markvörðinn Black law út og vippaði knettinum síð an yfir hann og snéri sér síðan að félögum sínum, baðaði út hand leggjunum, en þeir stóðu gapandi af undrun, meðan knötturinn valt inn í markið. Verst er ef, þetta mark verður deiluefni, ekki af því að það var ekki nógu gott, heldur af því, að það var skorað á 51. mín fyrri hálfleiksH Dómar inn hafði verið kominn á 6. mín. frarn yfir leiktíma og lét leika í 3 mín. til viðbótar. Það er margra spá, að þessi ungi piltur, Osgood, verði í peysu enska landsliðsins í júlí n. k. í heimsmeistarakeppn inni. Það var altalað á laugardags- morgun í Lundúnapressunni, að Chelsea hefði mikinn áhuga á að fá Joe Baker keyptan, en það mundi þýða að Osgood yrði að víkja úr stöðunni. Jimmy Greaves lék nú aftur með Framhald á 6- síðu.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.