Tíminn - 04.02.1966, Qupperneq 2
TÍMINN
FÖSTUDAGUR 4. febrúar 1966
Menmngarmálaráðherrar Norðurlanda leggja til
FRAMLAG í MENNINGARSJÓB
VERÐI 20 MILUÓNIR ÁRLEGA
Reykjavík, fimmtudag.
Menntamálaráðherrar Norður-
landa komu saman til fundar í
Helsingör 2. og 3. febrúar, þegar
að loknum fundi Norðurlandaráðs
í Kaupmannahöfn. Rædd voru ým-
is mál varðandi samvinnu Norður-
landa í menningarmálum. Meðal
annars var tekm formleg ákvörð
un um, að frá 1. janúar 1967
skyldi framlagið til Menningar-
sjóðs Norðurlanda hækka úr 600.
000. — dönskum krónum í 3
milljónir danskar krónur, eða um
það bil 20 milljónir íslenzkar
krónur. Jafnframt var ákveðið að
fela bráðabirgðastjórn sjóðsins,
Eysteinn Jónsson
talar á FIIF fundi
Félag ungra
Framsóknar-
manna í Reykja-
vík heldur fund
að Tjarnargötu
26 þriðjudaginn
8. febrúar og
hefst hann kl.
20.30. Eysteinn
Jónsson formað
ur Framsóknar-
flokksins heldur framsöguræðu tim
stefnu Fraimsóknarflokksins. Fram
sóknarfólk mætið vel og stund-
vfslega.
SPURNINGA-
KEPPNIUM
UMFERÐAR-
REGLUR
í dag fer fram spurninga
keppni úr umferðarreglun
um meðal skólabarna úr 12
ára bekkjadeildum barna-
skólanna í Reykjavík.
Keppnin fer fram í þrem
ur lotuim en keppt er um
fagran verðlaunabikar, sem
átta tryggingafélög hafa gef I
ið. Bikarinn er farandgrip
ur, en skólinn sem vinnur
keppnina fær annan lítinn
bikar til eignar.
Fyrsti hluti keppninnar
fór fram 30. nóvember s.l.
Þá voru tuttugu skriflegar
spurningar lagðar fyrir öll
12 ára börn í barnaskólum,
en síðan voru valin 7 börn
úr hverjum skóla til þess að
keppa fyrir hönd skólans.Fer
sú keppni fram í dag. Verða
þá lagðar fyrir börnin munn
legar spurningar. Keppnin í
dag er útslátarkeppni en
þeir skólar, sem bezt standa
sig, keppa síðan til úrslita
um tryggingabikarinn og fer
sú keppni væntanlega fram
i útvarpinu innan mánaðar
Lögreglan í Reykjavík og
Umferðarnefnd Reykjavíkur
gangast fyrir þessari keppni
sem skipuð er embættismönnum
frá menntamálaráðuneytinu, að
endurskoða reglurnar um sjóðinn,
þannig að fulltrúar Norðurlanda-
ráðs taki sæti í stjórninni. en
þing Norðurlandaráðs hafði sam-
þykkt áskorun til ríkisstjórn-
anna um hvort tveggja. Ennfrem
ur var rætt um reglur um þókn-
un til rithöfunda fyrir lán bóka
úr almenningsbókasöfnum, og
Fjárhagsáætl-
un Kópavogs
Á fundi bæjarstjórnar Kópa-
vogs sl. föstudag, 21 janúar var
afgreidd fjárhagsáætlun bæjar-
sjóðs og fyrirtækja hans. Var mik-
il samstaða um málið og fjárhags-
áætlun bæjarsjóðs og allra fyrir
tækja hans nema Vélasjóðs sam-
þykkt með samhljóða atkvæðum
allra bæjarfulltrúa.
Niðurstöðutölur fjárhagsáætlun
ar bæjarsjóðs eru 62,5 millj. króna
en voru sl. ár 47.9 millj. eftir að
áætlun hafði verið breytt. Útsvör
eru áætl. 45,5 millj. en voru í
fyrra áætl. 35 millj. Aðstöðugjöld
eru áætl. 4,2 millj. en voru í
fyrra 2,7 millj. Fasteignagjöld
áætl. 3 millj. í fyrra 2,6 millj.
Jöfnunarsjóðsframlag áætl. 9,4
millj. áætl. 7,8 millj. í fyrra.
Helztu gjaldaliðir eru:
Til félagsmála kr. 14.285.000.00
til fræðslumála kr. 13.230.000.00
og þar að auki kr. 6 milljóna
ríkisframlag til skólabygginga,
sem er þá alls 12 milljónir. Til
gatna- og holræsagerðar kr. 10,5
millj. og áætl. gatnagerðargjöld
5 millj. að auki eða alls kr. 15,5
milljónir. Til byggingframkvæmda
annarra en skólabygginga áætl-
kr.5.175.000.00
Á fundinum lagði form. bæjar-
ráðs, Ólafur Jensson bæjarverkfr.
R'ramhaid á bls 14
KALDASTA
NÓTTIN í
MANNA
MINNUM
NTB-Helsingfors ■)” Stokkhólmi,
fimmtudag.
í Finnlandi og Svíþjóð var síð-
astliðin nótt sú kaldasta í manna
minnum. „Heitasti“ staðurinn í
Finnlandi var Atka, en þar var
31 gráðu frost — en annars stað-
ar í landinu var frostið frá 35
til 40 gráður.
í Stokkhólmi mældist 25.5
gráðu frost, og er það mesta frost
ið þar í borg síðan 21 febrúar
1871.
Víða í Österbotten i Finnlandi
var 40 stiga frost. og metið átti
Lappland, en þar var 49 gráðti
frost. f Helsingfors var frostið 32
gráður en það er mesta frost. sem
mælzt hefur í tandinu frá upphafi
Frostið hafði mikil áhrif á um
ferðina. og loftþrýstikerfi öku
tækja frusu, þannig að bremsu
kerfi bíla virkuðu ekki.
mun embættismannanefnd fjalla
nánar um málið á næstuni.
Ráðherrafudinn sóttu af ís
lands hálfu Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra og Birgir
Thorlacius, ráðuneytisstjóri, svo
og Ólafur Jóhannesson, prófessor,
af hálfu menntamálanefndar Norð
urlandaráðs.
Þá ákváðu ráðherrarnir einnig,
að koma í framkvæmd norrænni
samvinnu innan rannsókna á al-
þjóðamálum, þ.a.m. rannsóknir á
deilum þjóða milli og hinar svo-
köiluðu friðarrannsóknir. Er ætl-
unin, a® komið verði á fót fastri
nefnd, sem stjórni þessu rann-
soknarstarfi.
Ráðherrarnir ræddu morg onn-
ur mál m.a. að gera námsmönnum
hægara að stunda nám í nágranna
löndum sínum — m.a. með því
að próf í einu Norðurlandanna
verði viðurkennt í hinum og um
frekari upplýsingar til náms-
manna um möguleikana á að fá
styrki, herbergi fyrir námsmenn
o.fl. Var ákveðið að fara þess á
leit við norrænu menningarmála
nefndina, að hún legði fram
ákveðnar tillögur í þessu efni.
Þá var einnig ákveðið að skipa
sameiginlega norræna stjórn nor
rænnar stofnunar, sem sjá á um
Asíu-rannsóknir. m.a. málarann-
sóknir.
KRUSTJOFF
Á SPÍTALA
NTB-Moskvu, fimmtudag.
Nikita Krústjoff, hinn 71
árs gamli fyrrverandi leið
togi Sovótríkjanna, sem
hefur lifað á ellilaunum sín
um í tæpt eitt og hálft ár,
liggur á sjúkrahúsi í Moskvu
með nýrnasjúkdóm, að því
er góðar heimildir í Moskvu
sögðu í dag.
Segja heimildirnar, að
Krustjoff hafi legið á sjúkra
húsi í marga mánuði, og að
hann þjáist líklega af nýrna
steinum. Sagt er að heilsa
hans sé „í meðallagi."
í fyrrahaust sagði dóttir
Krústjoffs, frú Rada Absju-
bei, að hann hafi verið á
sjúkrahúsi og hefðu nokkr-
ar rannsóknir verið gerðar.
TE-Volaseli, þriðjudag.
Kvenfélagið Grein í Lóni í
Austur-Skaftafellssýslu minntist
40 ára afmælis síns með myndar-
legu hófi í skólahúsi hreppsins,
1. febrúar. Var öllum hreppsbú-
um boðið' til fagnaðarinK ' ásanit
burtfluttum fyrrvérandi félögum.
sem til náðist og mökum þéirrá,
svo og formönnum annarra kven
félaga í sýslunni. Var þetta sann-
kallaður „góðra vina fundur.“
Yfir rausnarlegum veitingum
voru ræður fluttar og ávörp, upp-
lestrar, erindi, gamanbragur og
leikþátturinn „Bezt gefast biskups
ráðin,“ sem áhugafólk í hreppn-
um setti á svið að tilhlutan kven-
félagsins. Að lokum var stiginn
dans af miklu kappi fram eftir
nóttu. Ber öllum saman um, að
þetta hafi verið með afbrigðum
vel heppnuð samkoma og kven-
félaginu Grein til sóma. Gjafir
bárust og heillaskeyti i tilefm af-
mælisins. Fyrsti formaður félags
ins var frú Anna heitin Hlöðvers
dóttir á Reyðará. Núverandi for-
maður er Sigurlaug Árnadóttir í
Hraunkoti.
HZ—Reýkjavík, miðvikudag.
í nótt sem leið var brotizt inn
í verzlun í Bankastræti 2 og stol-
ið þaðan töluverðu magni af
tóbaki, 40 lengjum af Camel síga-
rettum, 5 lengjum af Roy síga-
rettum og einhverju magni af
King Edward vindlum. Lögreglan
vinnur nú að rannsókn málsins.
KS-Eskifirði, fimmtudag.
í sumar munu Eskfirðingar
hafa aðstöðu til þess að bræða
rúmlega 5000 mál síldar á sólar-
hring, en eins og komið hefur
fram í fréttum verður reist þar
ný síldarbræðsla, og er undirbún
ingur að byggingu hennar langt
a vég kominn. Síldarbræðslunni
hefur verið ákveðinn staður á
uppfyllingunni við nýju höfnina á
Eskifirði, og er nú unnið kapp-
samlega að því að ljúka við upp-
fyllinguna, svo hægt sé að hefjast
handa um byggingarframkvæmd
irnar. Það er vélsmiðjan Héðinn
í Reykjavík, sem mun sjá um
bæði vélar og byggingu verksmiðju
hússins, og er gert ráð fyrir, að
byggingin hefjist mjög fljótlega.
Nýja verksmiðjan á að geta af
kastað um 3000 málum á sólar-
hring, en síldarbræðslan, sem
fyrir er getur brætt um 2500 mál
á sólarhring.
SJ-Reykjavík, fimmtudag.
Jón Jónsson, fiskifræðingur,
hélt erindi á Fiskiþingi er nú
stendur yfir um fiskistofnana á
miðunum kringum ísland. Að svo,
stöddu er ekki hægt að skýra frá
helztu niðurstöðum í þessu er-
indi, þar sem sérstök milliþinga-
nefnd fiskifræðinga á eftir að
fjalla um skýrsluna. Aðaluppistaða
skýrslunnar eru rannsóknir ís-
lenzkra fiskifræðinga, og er vitað
að niðurstaða þeirra mun vekja
athygli og eflaust verða grundvöll
ur stjórnmálalegra athafna eða
umræðna.
De Gaulle
heimsækir
Sovétríkin
NTB-Moskvu og Prís, fimmtudag.
Charles de Gaulle, forseti Frakk
lands, hefur þegið boð frá Æðsta-
rá^ Sovétríkjanna og ríkisstjórn
þeirra um að heimsækja Sovét
ríkin, og mun hann fara þangað
í lok júnímánaðar, að því er segir
í opinberri tilkynningu frá TASS
í Moskvu.
Sagt er í París, að heimsókn
forsetans muni líklega taka 5—6
daga, og er líklegt, að hann muni
heimsækja ýmsar borgir þar aðr-
ar en Moskvu, og jafnvel er hugs-
anlegt, að hann muni koma við
í höfuðborgum nokkurra Austur-
Evrópuríkja á heimleiðinni.
Frá Moskvu er símað, að
stjórn Sovétríkjanna telji heim-
sókn de Gaulles mjög þýðingar-
mikla. enda hafi sambúð Frakk-
lands og Sovétríkjanna batnað
mjög á síðasta ári.
EINS OG SKOTGÖT Á RÚDUNUM
FB—Reykjavík, fimmtudag.
í fyrradag hófst mikið óveður
og rok í Fljótshlíðinni, stóð það
yfir í fyrrakvöld og allan gær-
dag, en náði hámarki um há-
degisbilið í gær. Mikið grjót
kast var í þessu oveðri, og að
sögn Eggerts Ó. Sigurðssonar
bónda í Smáratúm í Fljótshlíð
gekk þetta svo langt að um 20
rúður fóru að meira eða rr.inna
leyti hjá honum bæði í ihúðar
húsi og í útihúsum Ekki fóru
rúðurnar allar i mask. heldur
var harkan svo mikil að göt
komu á rúðurnar á stærð við
tveggja krónu peninga, og ekki
sprakk einu sinni út frá þeim.
Á sumum rúðunum eru allt
upp í tíu göt. og tolla þær 1
eftir sem áður. er þetta einna
líkast skotgötum.
Víða losnuðu plötur af hús-
um, til dæmis fóru nokkrar
plötur af íbúðarhúsinu í Kirkju
lækjarkoti og af skúr i Smára
túni og í Deild. Nokkuð fauk
af heyi á einstökum bæjum, en
þó ekki tilfinnanlega -mda eiga
fæstir mikið af heyi utanhúss.
Almennt varð veðrið verst upp
úr hádeginu. en um sjöleytið
í gærmorgun var mjög hvasst
og fóru þá rúður að fara úr.
en eftir það lygndi nokkuð, en
herti svo aftur rokið undir há-
degið. Engin snjókoma hefur
verið í þessu veðri, og reyndar
hefur verið litið um snjó
Fljótshlíði'nni vetur.
Rafmagnslaust var á þremur
bæjum ailan daginr, í gær, og
síminn hélzt ’ lagi.