Tíminn - 18.03.1966, Síða 8

Tíminn - 18.03.1966, Síða 8
FÖSTUDAGUR 18. marz 1966 8 TÍMINN 8F32X I Egilsstaðabúar hafa áhuga á stofnun gaffalbitaverksmiðju Fkstum kunnungri högum og háttum fólks víðs vegar um Fljótsdalshérað er Björn Stef- ánsson kaupfélagsstjóri í Eg- ilsstaðakauptúni ,það var strax auðheyrt, þegar komið er inn í skrifstofu hans, því ekki linn ir simahringingum bænda hvað anæva að, þeir eiga margvísleg erindi við Björn og verða að nota símann meira en ella, þeg ar snjóar loka flestum vegum. Björn1 tók við stjórn Kaupfé- lags Héraðsbúa í ársbyrjun 1962, en áður hafði hann verið kaupfélagsstjóri á Akranesi, Stöðvarfirði og Siglufirði. Björn er Austfirðingur og bróðir rithöfundanna Friðjóns og Þorsteins og Unnsteins efna fræðing, sem reit doktorsrit- gerð um hafið. Björn hafði eng an tíma til að tala við blaða- mann í miðjum önnum dags- ins, ég varð að láta nægja að skjóta mynd af honum við sím- ann í skrifstofunni og hitta hann síðan um kvöld á heim- ili hans, en einnig þá var sím- inn sífellt að hringja. — Mjólkursamlagið og dreif ing mjólkur heyrir undir kaup félagið, Björn, hvernig hefur gengið að ná mjólkinni hing- að víðsvegar af Héraði eftir að vegir lokuðust? — Þetta hefur verið mikl- um erfiðleikum bundið eftir að fór að kyngja niður snjó. Und- ir venjulegum kringumstæðum flytja bændur mjólkina á jepp- um heiman af bæjunum í veg fyrir mjólkurbílana, en úr því það var ekki lengur fært fyrir snjóþyngslum, og bændur hafa fæstir hestasleða til að flytja mjólkina niður afleggjarana, hefur ýtan, sem annazt hefur mjólkurflutningana, orðið að sækja mjólkina heim á bæina, og það tefur óskaplega mikið fyrir flutningunum. Ytan hefur alls ekki komizt yfir þetta, t.d. er mjólkurdeild norður í Jók- ulsárhlíð, en þangað hefur ver- ið lokað lengi, heita má, að legið hafi niðri mjólkurflutn- ingar þaðan nokkuð á annan mánuð, einnig úr Hróarstungu og yztu bæjum í Hjaltastaða- þinghá. Þar hafa bændur bara orðið að strokka sína mjólk. — Hvernig hefur gengið að koma mjólkinni til neytenda, eða hvað eru þeir víða á ykk- ar svæði? .— Við höfum allmikinn markað fyrir neyzlumjólk, það er í þorpunum hér, auk Eg- ilsstaðakauptúns eru t.d. Reyð- arfjörður og Seyðisfjörður. En flutningur mjólkur á þessa staði er oft og langtímum sam- an svo kostnaðarsamur, að framleiðendur fá ekki nærri það í aðra hönd sem skyldi. Segja mætti, að betur borgaði sig að vinna meira úr mjólk- inni, en við verðum að hugsa um neytendurna, sem treysta á það. Það getur verið ótrú- lega dýrt að koma mjólkinni til neytenda, t.d. með snjóbíl- um, sem taka allt of lítið og eru dýrir í rekstri. Tveir snjó- bílar hafa annazt flutning nið- ur á Reyðarfjörð. Enn erfiðara hefur verið með Seyðisfjörð, því leiðin þangað um Fjarðar- heiði er lokuð langtímum sam -an. Snjóbíllinn þeirra Seyðfirð inga hefur oft ekki komizt leið- ar sinnar í vetur, og þá hafa þeir orðið að fara þetta á ýtu með tvo sleða í eftirdragi, en það er feikierfitt í hinum bröttu brekkum á þessari leið að ráða við bæði ýtu og sleða í einu. Svo hefur nú mjólkin líka verið send til Seyðisfjarð- ar með skipum frá Reyðarfirði. — En hvað með vistir og olíu á bæjum, sem erfitt er að komast til? — Ýmsir, sem lengst eru und an, t.d. á Fljótsdal og Jökul- dal, hafa haft garnla háttiun að birgja sig upp með aðalþunga- vöru, sem endist fram á vor. Það er yfirleitt reglan í þess- um hreppum. En nokkur brögð hafa verið að þvi á bæjum, sem mjólk er að staðaldri sótt til, hafi verið treyst of mikið á að fá reglulegar ferðr. En betta er ekki nægileg fyrirhyggja. Á svo að segja öllum bæjum er komin olíuhitun, og það er ákaf lega bagalegt, ef bændur geta ekki birgt sig upp með olíu til vetrarins. Enn eru of litlir olíu geymar nokkuð víða, sumir fengu sér stærri geyma í haust. Þannig þarf það að vera á öli- um bæjum, því að heita má . illmögulegt að standa í því að flytja olíu á snjóbílum eða með ýtum eftir að færð spiiltist eða vegir lokast. Vonandi læra menn af þessum erfiðleikum undanfarið að útvega sér olíu- Björn Stefánsson kaupfélagsstjóri í skrifstofu sinni. geyma, sem taka olíuforða til fimm til sex mánaða. Nokkuð margir hafa þurft að fá fóður- bæti héðan upp á síðkastið, og það vill svo til, að við höfum fóðurbæti með allra mesta mót hér á Egilsstöðum nú í vetur. — Hvernig hafa annars snjó bílarnir staðið sig í vetur? — Hér á Egilsstöðum er að- eins einn snjóbíU og hann er orðinn gamall og slitinn, hann hefur gengið út um sveitina Svo eru tveir minni snjóbílar, sem eru í förum milli Reyðar- f jarðar og Egilsstaða. En í raun inni nær það engri átt að hafa ekki nýjan og góðan snjóbíl hér á Fljótsdalshéraði, fyrst og Bragi Björnsson vlð kasínugerð i mjólkurstöðinni. fremst í sambandi við alvarleg sjúkratilfelli, því það má telja oft ómögulegt að flytja sjúkl- inga öðruvísi en í snjóbíl, sem kemst hjálparlaust leiðar sinn- ar. Þetta ætti að vera léttur bíll fyrir þrjá eða fjóra far- þega og einungis hugsaður til þjónustu og sjúkraflutninga, líkt og læknabílinn á Breiðu- mýri, sem Þingeyingar hafa eignazt. Slíkan bíl ættu hrepp- arnir tíu S Héraði að eiga f sameiningu. — Hafa hlotizt einhver vandræði nú í vetur af því að hafa ekki slíkan bíl? — Sem betur fer hefur það ekki orðið, en menn hafa samt verið áhyggjufullir. Nýlega þurfti að flytja tvær barnshaf- andi konur hingað í sjúkrahús- ið, af því að ekki voru Ijós- mæður fyrir hendi í hreppun- um, þar sem þessar konur búa, þessir ílutningar tókust vel, annar utan úr Jökulsárhlíð, hinn yzt úr Hjaltastaðaþinghá. Snjóbíllinn hefur verið svona tólf klukkutíma í hvorri ferð, en allan daginn á undan varð ýta að troða slóð alla leiðina, í báðum tilfellum, því að snjó- bíllinn er orðinn það slitinn. — Það er verið að byggja hér hjá ykkur kaupfélagsmönn um? — Já, síðan í fyrra hefur vörugeymsluhús verið í smíð- um og var ekki vanþörf á því, þar sem viðskipti hafa færzt mikið í aukana upp á síðkast- ið. Þetta er stórt hús, hefur verið vandað til þess, því að það á lengi að standa, er hugs- að sem hluti af væntanlegri að- albyggingu Kaupfélags Héraðs- búa í framtíðinni. —Er hér einhver iðnaður auk byggingaiðnaðar og verk- stæða, hefur kaupfélagið eitt- hvað slíkt á prjónunum, hvað t. d. mjólkuriðnað eða iðnað annara landbúnaðarafurða? — Kaupfélagið sjálft rekur ekki annan iðnað en trésmíða- verkstæði. Svo er reyndar Mjólkursamlagið á vegum kaup félagsins með smjörgerð og einnig nokkra framleiðslu á kasíni til útflutnings, einkum selt til Þýzkalands. Samband íslenzkra samvinnufélaga rekur hér garnahreinsun. En hér er mikill • áhugi á því að koma upp öðrum iðnaði landbúnað- arvara, t.d. var ákveðið að kanna möguleika á sútunar- verksmiðju. En markaður fyrir sútuð skinn er lítill eins og er, stofnkostnaður slíkrar verk- smiðju hins vegar það mikill, að ekki þótti fært að leggja í það að svo stöddu. — En hvað um niðxirlagn- ingarverksmiðju síldar hér á Egilsstöðum? Flogið til Fljótsdalshéraðs — Grein og myndir: G. B. J

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.