Tíminn - 18.03.1966, Side 13
FÖSTUDAGUR 18. marz 1966
ÍÍRÖITSR
(ÞRÓTTIR
TÍMINN
13
Góð þátttaka í knattspyrnu-
dómaranámskeiði
Stutt sjall við Hannes Þ. Sigurðsson.
Alf-Reykjavík, fimmtudag.
Um þessar mundir stendur yfir
námskei'ð, sem Knattspyrnudóm-
arafélag Reykjavíkur efnir til fyr-
ir væntanlega knattspyrnudómara.
Alls eru skráðir 15 þátttakendur
á námskeiðinu og eru þeir frá
Reykjavíkurfélögunum og Hafnar-
firði. Kennari er Hannes Þ. Sig-
urðsson, milliríkjadómari, en rúm-
lega 12 ár eru síðan hann tók
að kenna á námskeiðum sem þess-
um og hefur hann því töluverða
reynslu að baki.
íþróttasiðan átti stutt samtal
við Hannes og bað hann að skýra
fyrir lesendum í stórum dráttum
hvernig menn færu að því að öðl-
ast réttindi sem knattspyrnudóm-
arar.
Hannes sagði, að fyrsti áfang-
inn væri að öðlast réttindi sem
unglingadómari. Til þess að hljóta
slík réttindi þyrfti að taka þátt í
námskeiði eins og nú stæði yfir.
Námsefnið er tvíþætt, annars veg-
ar bóklegt og hins vegar verklegt.
Er farið yfir knattspyrnulögin með
dómaraefnunum og efni þeirra út-
skýrð rækilega. Að því búnu ganga
dómaraefnin undir tvenns konar
próf. f fyrra prófinu svara þeir
munnlega spumingum prófdóm-
ara, en síðara prófið er skriflegt
og verður þá að svara spurning-
um, sem dómaranefnd KSÍ sem-
ur. Ef nemendur standast þessi
próf, eru þeir tilbúnir til að snúa
sér að verklegu hlið prófsins, sem
er í því fólgin að dæma tvo ungl-
ingaleiki. Fer það próf venjulegast
fram á vorin, þegar mótin eru
nýbyrjuð. Standist nemendur verk
lega prófið einnig, hljóta þeir rétt
indi sem unglingadómarar. Starfs-
reynsla og hæfni færir mönnum
svo aukin réttindi, þ.e. til að dæma
leiki í meistaraflokki og stærri
leiki.
Hannes sagðist vera mjög
ánægður með þau dómaraefni,
sem hann hefði nú undir hönd-
um, því piltarnir hefðu allir stund
. Framhald á bls. 12
ÍR skoraði yfir eitt
hundrað stig gegn KFR
IR-ingar gersiguðu Rvíkurmeist
ara KFR í íslandsmótinu í körfu-
knattleik í fyrrakvöld, skoruðu
104 stig gegn 82 stigum KFR. Er
þetta í fyrsta sinn í mótinu, sem
1. deildar lið. skorar yfir 100 stig
í leik, en svona há skorun er
ekkert einsdæmi, því í fslands-
mótum síðustu ár, hcfur það oft
skeð, að sama liðið hefur skorað
100 stig og meira.
Ármenningar mættu íþróttafé-
lagi Keflavíkurflugvallar í fyrr2-
kvöld og sigruðu Ármenningar
82:56. Er ÍKF eina liðið án stiga
deild og er sýnt, að liðið mun
berjast gegn KFR um fallið.
Evrópubíkarkeppni bikarhafa:
ilil
(Tímamynd Sjarnleifur)
Dómaraefnin ásamt kennaranum, Hannessi Þ. Sigurðssyni.
Evrópumeistarar bikarhafa,
West Ham, varð á miðvikudaginn
þriðja brezka knattspyrnuliðið til
að tryggja sér rétt í undanúrslit
í Evrópukeppninni, þegar liðið
gerði jafntefli við austur-þýzka
liðið Magdeburg 1-1, en West Ham
vann fyrri leikinn með 1-0 í Lund-
únum. Þjóðverjar skoruðu á 79.
mín., en nokkrum sek. síðar jafn-
aði Sisson fyrir West Ham. I.eik-
urinn einkenndist mjög af sterk-
um varnarleik Englendinga.
Eftir í Evrópukeppni bikarhafa
eru nú Liverpool, West Ham,
Celtic og Borussia, Dortmund, og
má því segja að brezku liðin hafi
alveg einokað hana í ár. Aðeins
tvö brezk lið, Everton og Kilmarn
ock, hafa verið slegin út í hinum
ýmsu Evrópumótum, af þeim níu,
sem hófu keppni í haust. í fyrri
leik liðanna í Evrópukeppni borg-
arliða vann Dunfermline, Skot-
landi, Real Zaragozza 1-0 á mið-
vikudaginn.
Sama dag var einnig síðasti sölu
dagur á enskum knattspyrnumark
aði í vor, og kom mest á óvart,
að Manch. City keypti hinn unga
innherja Colin Bell frá Bury fyr-
ir 45 þúsund pund. Fulham keypti
einnig ungan innherja, Alan
Clarke frá Walsall fyrir 35 þús-
und pund. Balckburn keypti Mart-
in Britt frá West Ham fyrir 20
þúsund pund.
Þá kepptu úrvalslið frá ensku
og skozku deildunum sama dag
í Newcastle og kom mjög á óvart,
að Skotarnir sigruðu með 3:1.
Greaves skoraði þó fyrsta markið
en Penman jafnaði og McBridge
skoraði tvö síðustu mörkin. Enska
liðið var þannig: Springett, Rean-
ey, Newton, Stiles, J. Charlton,
Hunter, Ball, Greaves, Kaye, East-
ham og Bobby Charlton.
f 2. deild sigraði Preston Bol-
ton með 3-1, og á Skotlandi vann
Dundee Utd. (kemur hingað i
sumar) góðan sigúr í Edinborg
gegn Hearts 1-0.
Arsenal lék gegn spánska lið-
inu Valencia á miðvikudaginn og
var leikurinn háður á Spáni. Úr-
slit urðu'13-12 Spánverjum í hag.
Eftir venjulegan leiktíma stóð
0-0 og upphófst þá mikil víta-
spyrnukeppni til að knýja fram
úrslit. Hver einasti hinna 30 bu«
und áhorfenda sat kyrr í sæti
sínu — og eftir 25 vítaspyrnur,
sem allar heppnuðust, en þá
„brenndi" Skirton af. — hsím.
Mancíi. Utd.
mætir
Partizian
í gær voru lið dregin
saman i undanúrslitum Evr-
ópubikarkeppni bikarhafa.
f keppni meistaraliða dróst
Manchester Utd. á móti
Partizian frá Júgóslafíu, og
| Inter Milan og Real Madrid
drógust saman. Má segja, að
Manchester hafi fengið „létt
asta“ liðið. Leikjunum á að
vera lokið fyrir 21. apríl.
f keppni bikarliða, þar
sem þrjú brezk lið eru eftir
(sjá frétt annars staðar á
síðunni) drógust Celtic og
Liverpool saman — og West
Ham og Borussia, V-Þýzka-
landi.
- - --------
Frá innanfá-
fagskeppni KR
; X|
Miðvikudaginn 9. marz var hald
ið innanfélagsmót í KR-húsinu í
frjálsíþróttum. Keppt var í þrem-
Framhald á bls. 12.
Þrjú frá Bretlandi
í undanúrslitunum!
Stúlkur úr Rvík Kópavogi og Kefla
vík skipa unglingalandslið kvenna
15 stúlkur valdar, þ. á. m. tvær, sem léku gegn Dönum.
Alf-Reykjavík, fimmtudag.
Eins og skýrt var frá hér
á síðunni í síðustu viku, ákvað
stjórn Handknattleikssambands
íslands, að sent yrði unglinga-
landslið kvenna í Norðurlanda
mót, sem háð verður i Gauta-
borg í Svíþjóð og nágrenni
um næstu mánaðarmót. 25
stúlkur voru valdar til æfinga
og hafa þær æft vel að und-
anförnu, en nú hefur unglinga
nefnd valið endanlega 15 stúlk-
ur, sem skipa munu liðið. Eru
þær frá Reykjavíkurfélögunum
Val, Fram, Ármanni og KR,
frá Breiðabliki í Kópavogi og
íþróttabandalagi Keflavíkur.
Eftirtaldar stúlkur skipa lið-
itk
Sigrún Guðmundsdóttir, Val
Björg GuðmundsdóttLr, Val
Ragnheiður Blöndal, Val
Halldóra Guðmundsd., *Fram
Edda Jónasdóttir, Fram
Geirrún Theódórsdóttir, Fram
Bjarney Valdimarsd., Fram
Fríða Proppé, Fram
Hanna María Karlsd., Keflav.
Steinunn Pétursd., Keflavík
Judy Westley, Keflavík
Edda Halldórsd., Breiðablik
Heiða Gunnarsd., Breiðablik
Eygló Einarsdóttir, Ármanni
Hansína Melsted, KR
Tvær af þessum stúlkum
hafa leikið með landsliði, þær
Sigrún Guðmundsdóttir, Val og
Edda Jónasdóttir, sem léku
gegn Dönum. Ákveðið er, að
stúlkurnar fari utan fimmtu-
daginn 31. marz, en komi heim
miðvikudaginn 6. apríl. Farar-
stjóri verður Haukur Bjarna-
son, en með í förinni verður
einnig þjálfari stúlknanna, Við
ar Símonarson.
Þess má geta, að þetta er
í fyrsta sinn, sem ísl. unglinga-
landslið kvenna tekur þátt í
Norðurlandamóti, en eins og
kunnugt er, þá hefur unglinga-
landslið pilta í handknattleik
tekið þátt í slíku móti nokkur
undanfarin ár.
Sigrún Guðmundsdóttir, Val. Beittasta vopnið i unglingalandsliði
kvenna, sem tekur þátt í NM í Gautaborg.