Vísir - 09.09.1974, Blaðsíða 11
MKKA GUÐIOG DÓM-
ARANUM SIGURINN!
— sagði belgíski landsliðsþjálfarinn eftir landsleikinn á Laugardalsvelli
Gocthals, þjálfari belgiska liðs-
ins, ranghvolfdi f sér augunum og
baðaði út öllum öngum sýnilega
mikið niðri fyrir, cr hann talaði
við blaðamcnnina helgisku eftir
leikinn i gær, og sagði þá m.a.:
,,Mér hefur verið legið á hálsi
fyrir að taka ekki nógu marga
unga menn inn i liðið, en ég
þakkaði guði fyrir það á siðustu
minútum leiksins, er þeir gömlu
hreinlega björguðu andlitinu á
okkur með þvi að halda höfði og
skora svo mark — úr vitaspyrnu
— þegar islenzka liðið var að
sækja i sig veðrið og að gerast
ágengt.
Goethals — Leifsson og Eðvalds-
son gætu leikiö með hvaða liði
sem væri í Belgiu.
Við getum lika þakkað dómar-
anum fyrir að sjá ekki vitaspyrn-
una, sem tsland átti að fá, en það
var að minu viti a.m.k. einu sinni
i leiknum. Ef lsland hefði fengið
aðra þeirra og skorað úr henni,
hefði það orðið hroöalegt áfall
fyrir okkur, nógu var það nú
slæmt samt.
Eg hélt að við myndum vinna
3:0 i það minnsta, en segi takk
fyrir 2:0, og tel það vel sloppið þvi
að islenzka liðið lék virkilega vel,
sérstaklega varnarleikinn. sem
var mjög vel hugsaður og útfærð-
ur.
Tveir leikmenn i islenzka liðinu
þóttu mér áberandi góðir, Guð-
geir Leifsson og Jóhannes Eð-
valdsson og gætu þeir báðir leikið
með hvaða belgisku 1. deildarliði
sem væri.”
Tony Kuapp þjáifari Islenzka
liðsins:
,,Ég er mjög áægður með leik-
inn og strákana mína. Þeir voru
frábærir, þótt þeim tækist ekki að
sigra i þetta sinn. Þeir gerðu lið á
heimsmælikvarða aö engu, og
er hægt að ætlast til meir af
áhugamönnum eins og þeim?
Við áttum vitaspyrnu siðast i
leiknum, og ef viö hefðum skorað
úr henni, þá er ekki gott að segja
hvernig leikurinn hefði farið”.
Ásgeir Sigurvinsson:
,,Ég er mjög óánægður með
þennan leik, islenzka liðið og völl-
inn, sem var hreint út sagt
Tony Knapp — ánægður með alla
strákana sina.
hörmulegur. Við áttum að geta
betur og þá ég ekkert siður en
hinir. Þá var ég langt þvi frá að
vera ánægður með að leika sem
miðherji, sem ég hef ekki gert
siðan ég var i 5. flokki, og fá ekki
að leika þá stöðu sem ég leik
venjulega.
Þessi úrslit er mikið kjaftshögg
fyrir Belgana, þeir ætluðu sér að
gera stóra hluti, en ekkert gekk
hjá þeim og þeir eru sársvekktir,
heyrði ég i baðinu”.
Paul Van llimst, fyrirliði belg-
iska liðsins:
„Það tala allir heima um litla
Paul Van Himst — meö beztu
áhugamönnum, sem ég hef leikið
á móti.
tsland i sambandi við knatt-
spyrnu. En þessiráhugamenn eru
ekkert litlir og þeir eru með þeim
beztu, sem ég hef mætt um dag-
ana. Þetta er ólikt betra lið nú en
fyrir tveim árum, er ég lék siðast
við Island.
Þetta var slæm útkoma hjá
okkur, og það er eins islenzka lið-
inu að kenna og taktikinni, sem
það lék, eins og okkur, sem áttum
að geta mun meir. En vöilurinn
ykkar er lélegur, já, mjög lélegur
vil ég segja, ójafn og þungur.”
Jóhannes Eðvaidsson, fyrirliði
islenzka liðsins:
„Það er ekki hægt að vera
annað en ánægður — 2:0 á móti
þessum körlum er betra en ég
bjóst við fyrirfram. Við áttum
skilið að skora, þó ekki væri nema
úr öðru vitinu, sem dómarinn lét
fara fram hjá sér.”
Þorsteinn Ólafsson, mark-
vöröur:
„Ég er svekktur yfir fyrsta
markinu, og að reyna ekki að
verja þá. En ég var öruggur um,
að boltinn væri framhjá, og þvi lét
ég hann fara. Annars held ég, að
ég hefði getað náð honum, þótt
hann hefði varla getað komizt
utar né ofar, það hefði alla vega
verið skemmtilegra að reyna en
að standa þarna og hafast ekkert
að.”
Wilfried V'an Moer, einn þekkt-
asti leikmaður belgiska liðsins:
„Ég var viss um, að dómarinn
mundidæma vitaspyrnu á okkur,
þegar leiknum var að ljúka. Þar
sem ég var á vellinum, gat ég
ekki séðannað mögulegt. En við
vorum heppnir, og hann sá ekki
brotið eins og ég.
tslenzka liðið þótti mér gott og
það barðist vel, mjög vel af
áhugamannaliði að vera, og þvi
hefur farið mikið fram siðan
siðast ég sá það. Sumir leik-
mennirnir eru mjög góðir, eins og
Ásgeir Eliasson, Marteinn Geirs-
son, Jóhannes Eðvaldsson og sér-
staklega Guðgeir Leifsson, hann
er mjög góður og hefur næmt
auga fyrir spili. Svo að sjálfsögðu
Ásgeir Sigurvinsson, en hann
þekki ég betur — og hef séð hann
betri en i þetta sinn — enda leik-
um við i sama liði.”
Guðgeir Leifsson:
— Mundir þú taka tilboði frá
Belgiu, ef þú fengið það?
„Ég væri ekkert að hugsa mig
um, heldur færi eins og skot."
— Hvað svo með þennan leik,
ánægður?
„Ég er það, enda aldrei liðið
betur i landsliöi siðan Knapp tók
við. Hann er með auðvelt kerfi,
sem allir skilja og allir vita, hvað
þeir eiga að gera, og það er ekk-
ert rugl með hlutina þar. Hann er
einhver sá bezti, sem ég hef verið
hjá um dagana, a.m.k. hvað leik-
skipulag og annað snertir.” klp
Wilfried Van Moer — hrifinn af
leik Guðgeirs Leifssonar.
A-Þjóðveriar beztir
r. s n
Austur-Þýzkaland koinst i
efsta sæti á Evrópumeistara-
mótinu i Róm á lokadeginum i
gær — hlaut fimm gullverðlaun
— og náði þá i fyrsta skipti efsta
sætinu. Svo virtist áður sem A-
Þjóðverjarnir væru að missa
yfirburðastöðu þá, sem þeir
náðu á EM i Hclsinki, i hendur
sovézkra, en siöasti keppnis-
dagurinn bjargaði öllu, jafn-
framt þvi, sem Sovétrikin náðu
þá sinum lakasta árangri —
hlutu aðeins cin gullverðlaun.
Skipting verðlauna á EM varð
þannig:
A-Þýzkaland
Sovétrikin
Bretland
Pólland
Finnland
Frakkland
V-Þýzkaiand
italia
Júgóslavía
Búlgaria
Danmörk
Ungvcrjal.
Tékkóslóvak.
Rúmenfa
Sviþjóð
Noregur
Belgia
G S B
10 12 5
9 3 6
VERZLIÐ ÞAR SEM VARAN ER GOÐ OG VERÐIÐ HAGSTÆTT
Öll okkar málning á verksmiðjuverði
m m
mAlimiimc
gríð hús yðar með MET
STJÖRNU
LITIR
Armúla 36 Málningarverksmiðja Sími 8-47-80
Varnarmennirnir Isl. I sókninni — Marteinn nr. 5 skallaði á Jóhannes, sem spyrnti á mark með tilþrifum (til hægri) en
Belginn nr. 5 sló knöttinn. Ekkert dæmt. Ljósmynd Bjarnleifur.
Tvö víti á Belgana
en ekkert var dœmt
— Dómarinn hr. Reynolds frá Wales telur betra að hygla Belgum
en Islendingum til frama á dómarabrautinni
Heppnismark i fyrri hálflcik — ann-
að úr vitaspyrnu i lok leiksins færði
Belgiu sigur gegn islandi 2-0 I Evrópu-
keppni landsliða á Laugardalsvellin-
um I gær og þann sigur geta belgisku
atvinnumennirnir fyrst og fremst
þakkað lélegum dómara leiksins,
Reynolds frá Wales. Hann sleppti vita-
spyrnum á Belgiu — ekki einni, heldur
tveimur augljósum, og slikt er hrotta-
iegt i einum leik. Báðum á siðustu
fimm minútum leiksins —fyrst, þegar
Gisli Torfason lék skemmtilega i gegn.
Komst frír inn í vitateig Belga, en var
brugðið aftan frá i skotstöðunni og
ið eeigaði. Sfðan þegar Guðgeir
Leifsson. ‘ kastaði iangt inn til
Marteins, sem skallaði áfram til
Jóhannesar Eðvaldssonar. Hann
átti skot á mark og mark-
vörðurinn belgfski var viðs
fjarri — en á marklinunni sló mið-
vörðurinn Vanden Uaele knöttinn frá
með hendinni og spyrnti sfðan af
hættusvæðinu. Ekkert dæmt. En hr.
Reynolds benti strax á vitaspyrnu-
punktinn, þegar Grétar Magnússon
brá van Moer innan vftateigs á 43.mfn.
s.h. Þá var ekki verið að hika við hlut-
ina — þaö er.von, að hinn fjölmenni
hópur belgisku blaðamannanna brosti,
að þessum sterka liðsmanni belgiska
liðsins, já, þeir voru ekki siður
hneykslaðir á hr. Reynolds en hinir is-
lenzku kollegar þeirra.
Þetta var ekki stór landsleikur —
siður en svo — og verður helzt minnis-
stæður vegna hinna miklu mistaka
dómarans. Bæði lið komu þó á óvart —
hið belgiska fyrir mun lakari leik en
reiknað var með, og hið nýuppstokk-
aöa belgiska landslið er ekki af sama
styrkleika og landslið Belgiu siðustu
árin. Aðeins 4-5 leikmenn voru nú með,
sem léku gegn tslandi i undankeppni
HM. Hið islenzka fyrir kröftugan
varnarleik, sem gerði það að verkum,
að Belgar fengu sárafá tækifæri til að
skora — já, i heild fyrir sterkan leik,
sem kom Belgum á óvart. Að visu
hafði belgiska liðið yfirburði i leik-
skipulagi, leikni leikmanna liðsins var
mun meiri, og það, sem kannski mestu
munaði. Þeir voru alltaf skrefinu
fijótari. En isl. leikmennirnir unnu
margt af þessu upp með ákafa sinum
og seiglu.
Liðsskipan tslands i byrjun kom á
óvart — GIsli Torfason og Jón Péturs-
son voru bakverðir. Landsliðsþjálfar-
inn Knapp hringdi i skozka landsliðs-
einvaldinn Ormond á föstudag og
breytti isl. liðinu vegna þeirra
upplýsinga, sem hann fékk frá
Ormond. Belgar leika án kantmanna
— en reyndu að færa tvo leikmenn utar
vegna styrkleika miðju islenzku
varnarinnar. Það breytti þó litlu —
Gisli, sem i fyrstu átti að „elta”
þekktasta leikmann belgiska liðsins,
van Himst, tók að sér Roger Henrotay
i staðinn og elti hann hvert, sem hann
fór — en Karl Hermannsson fékk það
hlutverk að gæta van Himst, eins
þekktasta leikmanns Evrópu, og sá
frægi sást varla i leiknum. Hin djarfa
tiiraun Knapp og landsliðsnefndar
meö bakveröina heppnaðist — en hvort
svo „þungir” bakverðir duga gegn
eldsnöggum útherjum i framtiðinni er
önnur saga. Gisli og Jón eru sterkir,
hávaxnir dugnaðarpiltar og voru
sterkir hlekkir i góðri vörn.
Jóhannes Eðvaldsson átti snilldar-
leik — kannski bezti maður á vellinum
og tapaði ekki skallaeinvigi. Við hlið
hans var Marteinn Geirsson einnig
„klettur” og þar voru beztu menn isl.
liðsins. Þorsteinn i markinu varði
þrivegis af hreinni snilld — átti stór-
góðan leik, þar sem honum tókst
tvivegis að stýra knettinum i þverslá
eftir skot Belga af stuttu færi. Mark
það, sem hann fékk á sig i fyrri hálf-
leiknum, var þó klaufalegt — greini-
legt, að Þorsteinn misreiknaði knött-
inn — hélt hann færi yfir eða framhjá
—- og slikt er erfitt að afsaka, þrátt
fyrir „skóg” varnarmanna, sem_
skyggðu útsýnið.
Guðgeir Leifsson gerði margt vel i
leiknum — sendingar hans bera af —
og Asgeir Sigurvinsson var hættulegur
einkum i fyrri hálfleik, þó svo hann
léki stöðu, sem hann hefur ekki fengizt
við lengi. Þá var Asgeir Elíasson
einnig góður meðan úthaldið entist —
Matthias Hallgrimsson kom i stað
hans siðasta stundarfjórðunginn.
Teitur barðist af krafti — stundum
fullmiklum krafti, og Grétar Magnús-
son er mikill „vinnuhestur” og þarf að
vanda sendingarnar.
Lengi vel i byrjun komust Belgar
ekkert áleiðis — markskot þeirra slök
— en Asgeir Sigurvinsson átti tvivegis
hörkuskot framhjá. Það var ekki fyrr
en um miðjan f .h að Belgar áttu fallegt
upphlaup, en Marteinn bjargaði. Rétt
á eftir opnaöist belgiska vörnin illa —
Guðgeir var á „auðum” sjó hægra
megin, en fyrirgjafir hans nýttust
ekki. t siðara skiptiö hefði Guðgeir
betur reynt markskot sjálfur.
Framhald á bls. 13.
Fjórir náðu 8100
stigum eða meir
— og Pólverjinn Skowronsk sigraði í tugþrautinni
Pólverjinn Skowronek varð
Evrópunieistari i tugþraut á
laugardaginn i Róm. Náði
frábærum árangri 8207 stig, scm
er nýtt meistaramótsmet. Það
var ekki fyrr en i niundu grein,
sem hann komst i fyrsta sæti i
tugþrautinni. Þá kastaði Pólverj-
inn spjóti tæpum þrcmur metruin
lengra en helzti keppinautur
hans, Frakkinn Leroy, sem
keppti hér á Laugardalsvellinum
i fyrrasumar, en i sjöundu grein-
inni hafði Skowronek dregið mjög
á Leroy. Stökk þá 5.10 inetra i
stangarstökki.
Arangur i þrautinni var mjög
góður — fjórir fyrstu menn fengu
yfir 8100 stig. Stefán Hallgrims-
son meiddist i 110 m grindahlaup-
inu og hætti keppni.
Annars var 3000 m hindrunar-
hlaupið aðalgreinin á laugardag
— Pólverjinn Malinowski sigraði
sænska Evrópumethafann
Anders Gjærderud á geysi-
hörðum endaspretti. Sviinn hafði
talsverða forustu á siðustu
beygju, en var greinilega mjög
þreyttur. Sá pólski náði honum og
siöan hlupu þeir hlið við hlið um
skeið, þar til Malinovski reif sig
iram úr og var um metra undan i
mark. Þessi úrslit voru mikil von-
brigði fyrir Svia — Gjærderud var
talinn hinn öruggi sigurvegari
fyrir keppnina og hafði hlaupið
rétt við heimsmet Ben Jipcho. En
Sviinn átti við magaveiki að
striða i Róm — var meira að
segja veikur, þegar hann hljóp i
undanrásunum á miðvikudag.
Finninn Kantanen var mjög
óheppinn i úrslitahlaupinu — datt
tvivegis, en lét það ekki á sig fá,
og þó hann væri um tima langt á
eftir öörum, tókst honum að ná
ellefta sæti við mikinn fögnuð
áhorfenda, sem höfðu mikla
samúð með honum eftir öil
ósköpin á brautinni.
1 sleggjukastinu kom á óvart,
að austur-þýzki heimsmethafinn
Reinhard Theimer varð aðeins
þriðji. Spridonov, Sovét, náði
forustu i 1. umferð, þegar hann
kastaði 74.14 m, og hann var siðan
eini keppandinn, sem bætti þann
árangur, Þá kom á óvart i göng-
unni, að Olympiumeistarinn og
hinn margfaldi heimsmethafi,
Bernd Kannenberg, V-Þýzka-
landi, varð aðeins niundi eftir að
hafa haft forustu fyrstu 20 km.
Úrslit i Evrópumeistaraniótinu
i frjálsum iþróttum i Róm á
laugardag urðu þessi:
3000 m. hindrunarhiaup
1. B. Malinowski, Pólland, 8:15.0
2. A. Gjærderud, Sviþjóð, 8:15.4
3. M. Karst, V-Þýzkal. 8:18.0
4. F. Fava, ttaliu, 8:19.0
5. H.Wehrli, Sviss, 8:26.2
6. G. Cefan, Rúmeniu, 8:26.2
7. G. Frahmcke, V-Þýzkal. 8:26.6
Sleggjukast.
1. A. Spiridonov, Sovét, 74.20
2. J. Sachse, A-Þýzkal. 74.00
3. R. Theimer, A-Þýzkal. 71.62
4. V. Dimtriensko, Sovét, 71.18
5. U, Beyer, V-Þýzkal. 71.04
6. M. Iluning, V-Þýzkal. 70.58
7. H. Kangas, Finnlandi, 70.04
50 km. kappganga
1. C. Ifohne, A-Þýzkal. 3:59.05.6
2. O. Barch, Sovét, 4:02.38.8
3. P. Selzer, A-Þýzkal. 4:04.28.4
4. V. Visini, ítaliu, 4:05.28.4
5. V. Soldalenko, Sovét, 4:09.31.6
6. W. Skotniicki, A-
Þýzkal. 4:10.19.0
Tugþraut.
1. R. Skowronek, Póll. 8207
(100,. 10.97 — langst. 7.49 — kúla
13.10 —hást. 1.95 —400 m 47.90
Framhald á 13- siðu.