Vísir - 13.09.1974, Page 2
2
Vísir. Föstudagur 13. september 1974.
vísiftsm:
Hvað kosta skólabækurnar, sem
þú þarft að kaupa?
Axei Pálsson I 3. bekk gagnfræða-
skóla: — Ég gæti trúað, að það
væru milli 5 og 6 þús. kr. Dýrasta
bókin, sem ég hef keypt núna, er
„Málið”. Ég vann sjálfur fyrir
bókunum i sumar.
Jóngeir Þórisson f 1. bekk
Iðnskóians: — Ætli ég sé ekki
búinn að kaupa fyrir 7 þús. kr. Ég
er að læra prentljósmyndun. Ég
borga fyrir minar bækur sjálfur.
Eriingur Þorsteinsson i 3. bekk
Menntaskólans i Kópavogi: — Ég
er ekki enn búinn að fá listann
yfir þær bækur, sem við eigum að
kaupa. Ætli það verði ekki i
kringum 10 þús. krónur sem við
þurfum að verzla fyrir. Ég kaupi
þær fyrir mina peninga.
Teitur Gunnarsson, efnaverk-
fræðinemi í Háskóla íslands. —
Sennilega þarf ég að eyða 8 þús.
núna fyrir jól og að minnsta kosti
öðru eins eftir jól. Ég er utan af
landi og býst við að veturinn kosti
mig I kringum 300 þús. kr. með
öllú.
Kristján Ottó Andrésson I 3. bekk
gagnfræöaskóla: Ég býst við að
ég eyði svona 7 til 8 þús. krónum,
þvl að eitthvað fæ ég gefins frá
bróöur mlnum. Ég kaupi bækur
fyrir eigin peninga.
Fjóla Björnsdóttir I 1. bekk gagn-
fræðaskóla: — Ég er búin að
kaupa fyrir eitthvað 1000 kr., ætli
ég fari ekki upp I 2 þús. Þetta fer
bara I blöð og önnur ritföng, við
þurfum engar skólabækur að
kaupa 11. bekk. Mamma og pabbi
borga þetta fyrir mig, þvi að það
sem ég vann mér inn við pössun i
sumar er allt farið.
Búast við
fœrrí bókum á
jólamarkaðnum
Eftir hljóðinu i útgef-
endum að dæma, má bú-
ast við færri bókum á
jólamarkaðnum i ár en
verið hefur. Róðurinn
virðist þyngri, og sumir
segjast meira að segja
hafa orðið að minnka við
sig, þ.e., færri bækur eru
gefnar út en ráð hafði
verið fyrir gert.
Hækkanirnar koma hart niður á
útgefendum sem öðrum, og sumir
eru hræddir um að miklu minna
verði keypt af bókum fyrir jólin,
Það fer að verða nóg að gera hjá
bókbands vinnustofunum.
Vertlðin hjá þeim hefst i
september. Ljósm. Bj.Bj.
þar sem bókaverðið verði það
hátt, og söluskatturinn er líka
talsverðúr. Gera má ráð fyrir, að
meöalbók kosti um 1600-2000
krónur.
Við ræddum við útgefendur i
gær og forvitnuðumst um jóla-
bækurnar I ár. Allir aðrir en örn
og örlygur og Prentverk Odds
Björnssonar á Akureyri, af þeim
sem við leituðum til, kváðust ekki
tilbúnir til þess að veita okkur
upplýsingar að svo stöddu, enda
ekki ákveðið með allt ennþá.
Stærsta og merkasta verk, sem
gefið hefur verið út hjá Erni og
örlygi, kemur út núna, en það er
Ferðabók Eggerts Ólafssonar og
Bjarna Pálssonar. Þetta er 2ja
binda ritverk, skreytt myndum
og prentað I litum.
Þá kemur út Bibliuhandbók,
sem skýrir orð og hugtök i Bibli-
unni og varpar bókin ljósi á það
timabil, sem Biblian spannar yf-
ir. Þykir bókin mjög fróðleg og
skemmtileg.
Þá kemur út bókin Náttúran
LESENDUR HAFA ORÐIÐ
Hvenœr verða kosningar þar?
Ilúsmóðir skrifar:
Ég er ein af þeim, sem hef
alltaf gaman af að heyra til Gisla
Astþórssonar og lesa eftir hann,
og mér þótti mjög fróðleg greinin
hans i Morgunblaðinu þann 1.
sept. s.l. Þar segir hann sögu af
konu, sem lifði af fangabúðarvist
hjá nasistum, og svo hugguleg-
heit kommúnistanna i
Tékkóslóvakiú, þar sem maður
hennar var drepinn.
Gisli spyr svo, hver sé
munurinn á einræði og alræði
kommúnistanna fyrir lif fólks,
sem I þessu lendir.
Mig langar til að svara þessu.
Ég er hægri sinnuð og þykist sjá
regin mun á þessu.
1 gamla daga var hægt að halda
uppi einræði með her og öðrum
djöfulskap, en aldrei þó um aldur
og ævi. Núna, þegar einræði
kemst á, þá höfum við reynsluna
fyrir þvi, að þetta stendur ekki
lengi. Það fer eins fyrir þeim
manni, sem drepinn er, hvort það
eru herforingjastjórnir eða
kommúnistar sem taka hann af
lifi. En hvaða maður sér ekki
muninn á einræðinu t.d. i
Portúgal, þar sem fólkið var al-
frjálst, nema það mátti ekki kjósa
kommúnista, eða einræðinu i
Rússlandi og öðrum kommún-
istarikjum.
Allir vita hvers vegna her-
foringjastjórn komst á i
Grikklandi. Kommúnistarnir þar
I landi voru búnir að gera ólíft i
landinu með gömlu ráðunum sin-
um. Eitt verkfallið tók við af
öðru, svo allt athafnalif lamaðist.
Ekki var hægt að tala eða semja
við þá, þvi þeir ætluðu að koma á
kommúnistisku þjóðskipulagi.
Þegar kommúnisminn er
kominn á i einu landi, þá er aldrei
hægt að losna við hann, þvi hans
kerfi er þannig byggt upp. Eftir-
litsmennirnir, sem i Rússlandi
voru um 1960 1 á hverja 2-3 verka-
menn, eins og segir i sögunni,
Valdið og þjóðin, passa kerfið.
Það eru búnar að vera tvær
herforingjastjórnir i Grikklandi á
ekki mörgum árum. Sú fyrri
ætlaöi að losa um tökin, en
hvernig fór. Kommúnistarnir
höfðu nefnilega alls ekki allir ver-
iö fangelsaðir eða drepnir, og
þegar þeir komu aftur, byrjuðu
þeir ballið á ný. Núna heyrir
maður, að þeir ætli að leyfa bráð-
lega frjálsar kosningar i
Grikklandi. Hvenær verða
boöaðar frjálsar kosningar, þar
sem kommúnistar ráða? Það
verður aldrei, þvi ég er viss um,
að i sjálfu Rússlandi mundi
flokkurinn ekki fá eins mörg at-
kvæði og Alþýðsambandið hérna.
Siðan og ekki sist hafa lifskjör
almennings og ferðafrelsi aldrei
verið sambærileg I einræðis-
löndunum og eru i kommúnista-
rikjunum.
Gisli hlýtur að kunna þetta:
„Með illu skalt illt útdrífa”, og
það er þetta, sem herforingja-
stjórnirnar verða að gera til þess
að bjarga þessum ógæfusömu
þjóðum, þar sem kommúnist-
arnir eru komnir I valdaaðstöðu,
annars verða þær kommúnism-
anum aðbráðog þá vita allir hver
örlög þeirra verða.
Ég vil gera mikinn mun á lifi
fólksins, sem byggir Suður- og
Norður-Vietnam. Báðar þessar
þjóöir fengu frelsi á svipuðum
tima. Suður-Vietnamar létu allar
aðrar þjóðir i friði, en Norður-
Víetnamar eru alltaf i árásar-
striði til að útbreiða
kommúnismann. Þetta kalla ég
reginmun, og fleirum á að finnast
það lika.
LESENDUR
M HAFA
(m ORÐIÐ
Að öðru leyti
fór allt frið-
samlega fram
Þ. simaði i gær:
Vegna lesendabréfs sem birt-
ist i Visi á miðvikudaginn undir
fyrirsögninni: Drykkjusaga úr
útlandinu, langar mig að koma
að athugasemd. 1 lesendabréf-
inu var f jallað um hópferðina á
flugsýninguna i Farnborough.
Er þar um svolitinn misskilning
að ræða.
t fyrsta lagi er talað um
óreglu og óreiðu á pari, sem var
með I ferðinni og olli þvi að
brottför var seinkað um tvo
tima, þegar halda átti heim.
Ástæðan fyrir þessu var sú, að
viðkomandi stúlka hafði sofnað
á hóteli þvi, sem dvalizt var á,
en kærasti hennar var kominn á
flugvöllinn. Hélt hann, að hún
hefði farið á undan með fyrsta
áætlunarbilnum sem þangað
fór.
Þegar það kom i ljós, að hún
var ekki mætt, var hringt til
hennar á hótelið. Hún var beðin
um að ná sér i leigubil strax og
koma, ef hún vildi ná vélinni.
Þetta var gert, þar sem fyrir-
sjáanleg var þriggja kortéra bið
eftir þriðja og siðasta áætlunar-
bilnum, sem kom með farþega á
völlinn.
Stúlkan kom að visu ekki fyrr
en farþegar voru komnir upp i
vélina og hreyflarnir farnir i
gang, en stiginn var enn við
vélina.
Sá er skrifar lesendabréfið á
miðvikudag sagði að það væri
sér hulin ráðgáta, hvernig
stúlkan hefði getað borgað leigu-
bll á flugvöllinn, sem kostaði 15
pund. — Það var kærasti
stúlkunnar, sem sá um borgun á
honum.
Annars er það min skoðun, að
þessi hópferð hafi farið friðsam-
lega fram að flestu leyti.
r*------------—"—---
Hestamennska
Vinur minn á alveg ólman hest,
ekki valdi hann nafnið hans sem best,
þvi honum finnst að sumu leyti synd
að segjast þurfa út að ieysa Vind.
Ben. Ax.