Vísir - 13.09.1974, Síða 5

Vísir - 13.09.1974, Síða 5
5 Vlsir. Föstudagur 13. september 1974. UN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson Vilja verk- fall vegna lóxusins Þaö þykir viðbúið, aö allur franski verzlunarflotinn stöðvist i verkfalli i næstu viku til að mót- mæla ætlun rikisstjórnarinnar um að setja stolt franska flotans, flaggskipið „France”, í brota- járn — Þetta glæsta farþegaskip er statt i höfninni i Le Havre, þaðan sem það getur sig ekki hreyft vegna aðgerða 900 manna áhafnar þess. Tvö stærstu sjómannasamtök Frakka hafa boðað til verkfalls á mánudaginn til stuðnings áhöfn „France”. Hún hefur lagt þessu 66.348 smálesta lúxusskipi i innsiglinguna inn i Le Havre, og komast stærri skip þar ekki fram- Farþegaskipið „France” i inn- siglingunni i Le Havre. — Áhöfnin lagði skipinu við akkeri og ncitar að hreyfa það úr inn- siglingariænunni. Bauð hún far- þegunum upp á snaps i sára- bætur fyrir, að þeir verða að láta ferö sinni lokið þarna. Allir farþegarnir 1226 voru fluttir frá borði. hjá. Áhöfnin neitar að fara írá borði. Um 1200 tilvonandi farþegar skipsins, sem komið höfðu irá New York voru fluttir frá borði. Frönsk yfirvöld sem ráðin eru i þvi að leggja skipinu fyrir fullt og allt i lok næsta mánaðar, vegna óhagkvæmni i rekstri, sýnast þó óhagganleg , þrátt fyrir þessi viðbrögð sjómannanna. Þau segjast tapa 100 milljón frönkum á ári á skipinu, og að nær væri að byggja sjúkrahús fyrir það fé. Jacques Chirac, forsætis- ráðherra, hefur reynt að sýna verkalýðssamtökunum fram á, að þau væru þarna að berjast fyrir þvi að viðhalda einu af skemmtitækjum auðmannastétt- anna. En aðrir en þær gætu ekki notfært sér „France” — ,,og mætti þykja hart að greiða 100 milljón franka á ári af almanr.afé, svo að þetta fólk — sem þar að auki er um 76% útlendingar — gæti lifað lúxuslifi um borð i lúxusfarþegaskipi”. Þetta hefur verið talað fyrir daufum eyrum sjómannasamtak- anna. Vor þoð Kissinger sem réð stríðs- viðbrögðum hersins? „Að vandlega athuguðu móli og eftir fund í öryggisróðinu höfum vér . . ." sagði Nixon eftir ó, en er sagður hafa lesið í bók allan tímann, meðan Kissinger tók af skarið Ástraiskt dagblað heldur þvi fram, að það hafi verið Henry Kissinger, utanrikisráðherra Bandarikjanna, sem réð þvi, aö Bandarikjaher var hafður i við- bragðsstöðu I október siðast, þegar strið israela og Araba stóð sem hæst. Fréttaritari „The Australian” frá New York, Johan Raedler, segist hafa það eftir aðstoðarrit- stjóra New York Times, Harrison Salisbury, að meðan þeir Kissinger og James Schlesinger, varnarmálaráðherra, áttu skyndifund um miðnæturskeið, þar sem þeir afréðu þetta, hafi Nixon setið i öðru herbergi i Hvita húsinu yfir bók. „Eftir 2 stunda viðræður hringdi loks Kissinger upp á aðra hæð til Nixons og sagði honum að skipa hernum að vera viðbúinn striði”, skrifar Raedler. Þetta er nokkuð öðruvisi lýsing á aðdraganda þessarar þýðingar- miklu ákvörðunar, heldur en Nixon gaf i ávarpi sinu til þjóöarinnar daginn eftir. Þar lýsti hann þeim hugarkvölum, sem hann hafði orðið að ganga i gegnum, áður en hann afréð — eftir fund i öryggisráðinu — að fyrirskipa hernum að vera við öllu búinn, vegna hugsanlegrar aðstoðar við israel til að hrinda innrás Egypta. Þjóðin hafði vaknað um Aðstoðarritstjóri bandarisks stórblaðs heldur því fram, aö Nixon hafi setið yfir lestri bókar, meðan Kissinger veiti fyrir sér vandanum við Schlesingers, áður en Kissinger afskipti Bandarikjanna af Yom Kippur-striðinu. — Daginn eftir ávarp- tók upp simann og skýrði Nixon aði Nixon þjóð sina og lýsti hugarvili sinu, áður en hann hefði tekiö hina frá, hvað gera þyrfti. afdrifariku ákvörðun. James Schlesinger, varnar- málaráðherra, átti fund með Kissinger um miðnæturskeið i Hvita húsinu, þegar striöiö milli Araba og israela brauzt út I október. morgunin við þau alvarlegu tiðindi, að landið var viðbúið kjarnorkustriði við Rússa. Raedler segir, að enginn fundur hafi verið haldin i öryggisráði forsetans. Eini fundurinn hafi verið samtal þeirra Kissingers og Var tœknigalli orsök mesta flugslyssins? Lundúnablaðið „Sunday Times” hefur leitað til dómstól- anna til að opna blöðum aðgöngu að rannsókn vegna versta flug- slyss heims, sem varð nærri Paris i marzmánuði. En blaðið heldur þvi fram, að tilraunir séu gerðar til að þagga málið niður. Blaðið hefur borið þessa kæru sina upp við dómstóla i Los Angeles og vill að McDonnell Douglas-Company verði neytt til að leyfa blaðamönnum að vera viðstöddum yfirheyrslur, vegna flugslyssins 3. marz, þegar 346 manns lét lifið i DC-10 þotu. Margir ættingjar hinna látnu hafi höfðað skaðabótamál á hendur fyrirtækinu, og gætu Sunday Times ber framleiðendum DC-10 ó brýn að reyna að þagga niður rannsókn flugslyssins í París skaöabæturnar, sem fyrirtækið kynni að verða að reiða fram, fariö yfir 10 milljarða króna. Sunday Times heldur þvi fram, aö lögmenn fyrirtækisins hafi reynt aö þagga málið niður með öllum ráðum, eftir að rannsóknin hófst. Hafa þeir neitað öllum blaðamönnum áheyrn að yfir- heyrslunum. Fyrirtækið léði góðfúslega húsnæði til yfirheyrsl- anna, en það ræður þvi auðvitað, hverjum það hleypir inn fyrir sinar dyr. Og blaðamönnum hleypir það ekki inn. Segir Times, að lögmennirnir hafi meira að segja reynt að fá dómsorð fyrir þvi, að dómarinn i málinu mætti ekki segja ættingjum hinna látnu, að þeir ættu rétt á að gera kröfur til skaðabóta fyrir dómstólum i Kaliforniu. Blaðið hefur mestan áhuga á að fylgjast með vitnisburði starfs- manna fyrirtækisins sjálfs, þegar þeir verða yfirheyrðir. Þessir starfsmenn bera aðalabyrgðina á hönnun og gerð DC-10, en ættingjar hinna látnu halda þvi fram, aö galli hafi verið á DC-10 vélunum. Þeir, sem höfðað hafa skaðabótamál á hendur fyrir- tækinu, halda þvi ennfremur fram, að fyrirtækinu hafi verið kunnugt um þennan tæknigalla 20 mánuðum fyrir slysið.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.