Vísir - 13.09.1974, Side 16

Vísir - 13.09.1974, Side 16
Föstudagur 13. september 1974. Osta- og smjörsalan fœr nýja lóð Það hefur nú verið samþykkt i Borgarráði að gefa Osta- og smjörsölunni kost á nýrri lóð, og er sú lóð staðsett norðan Bæjar- háls og austan framlengingar Hraunbæjar. „Þaö hefur veriö á döfinni lengi aö fá stærra húsnæöi, þvi að húsnæöiö, sem við erum I núna, er allt of lltiö fyrir okkur og hefur veriö þaö lengi”, sagöi Sigfús Gunnarsson, skrifstofustjóri Osta- og Smjörsölunnar, þegar viö höföum samband viö hann i morgun. Sigfús sagði, aö þetta væri svo nýtilkomið, aö enn væri ekkert ákveöiö um framkvæmdir eöa hvenær þær hæfust, en hann sagöi að þaö yrði rætt mjög fljótlega. Þá sagöi hann, aö skoöað hefði veriö eitt og annaö erlendis varöandi bygginguna og fyrir- komulag, en beðið heföi veriö eftir samþykki til þess aö hægt væri aö hefja teikningar. —EA Nýtt dilkakjðt í verzlanir — um leið og nýtt verð er ókveðið „Þetta er fyrsta námskeiöið sem haldið er, þar sem kjötmats- menn frá öllum sláturhúsum á landinu koma saman, og er þetta gert I þeim tilgangi að samræma kjötmatið I landinu”, sagði Gunnar Aðalstcinsson, sláturhús- stjóri við Kaupféiag Borgfiröinga en i vikunni var tveggja daga námskeið fyrir kjötmatsmenn haldið I Borgarnesi. Slátrun hófst í Borgarnesi á mánudaginn og var byrjaö aö slátra 1000 og smáaukiöuppl 2000 fjár á dag, en full afköst eru 2300-2400 á dag, sem verður farið upp i strax að réttum afloknum. Gert er ráð fyrir aö slátra á þessu hausti 74 þús. fjár, sem er 4 þús. meira en I fyrra. Um 150 manns munu vinna viö slátrunina. Gunnar sagði, að endurbætur hefðu veriö gerðar á banaaöstööu og tekin upp ný aöferö viö kælingu á gærum, þannig aö þær væru kældar á færibandi og mundi þaö spara fólk, og gærurnar veröa betri. Þegar er byrjað að keyra kjötið til Reykjavikur, svo að Reykvikingar ættu aö geta fengiö nýtt kjöt, um leið og nýtt verð verður ákveðið. —BA/EVI r Islenzk alþýðulist í Leningrad „Við fengum hingað senda þjóðm in jasýningu frá Sovét- rikjunum fyrir tveim árum og þetta er svona til að endurgjalda það, að þessi Islenzka þjóðminja- sýning er nú sett upp I Þjóöfræöa- safninu I Leningrad”. Þetta segir Þór Magnússon, þjóðminjavöröur sem nýkominn er úr stuttri för til Leningrad, þar sem hann fylgdist meö uppsetn- ingu sýningarinnar. „Við sendum um 140 hluti bæðin héöan af safninu og láns- hluti á þessar sýningu, Þeir eru valdi meö þaö fyrir augum, aö þeir gefin innsýn i forna Islenzka alþýðulist, vefnað, útskurð og málmsmiði. Einnig er nokkuð af yngri hlutum, gerðum samkvæmt gamalli hefð og ljósmyndir”. Sýningin veröur opnuð núna um miöjan mánuöinn og stendur hún I mánuö. Þaö eru menntamála- ráöuneyti Islands og Sovét- rikjanna, sem haft hafa samráð og samvinnu um uppsetningu sovézku sýningarinnar fyrir tveim árum og islenzku sýningar- innar nú. —JB „Ekki viðlit að komast Æm 2 a I #1 ■ M ■ ■ IM ^ ^ — segir skipstjórinn á Hafrúnu QO eiamU m sem brann í fyrrinó« „Það slasaðist, sem betur fer enginn af okk- ur”, sagði Valdimar Eiðsson, skipstjóri og annar eigandi Haf- rúnar frá Eyrarbakka. Eldur kom upp i Hafrúnu i fyrrinótt er báturinn var staddur austur af Vestmanna- eyjum. „Þaö er ómögulegt að segja, hvaö valdiö hefur þessum eldi. Hann kom upp I vélarrúmi, og þegar ég opnaði lúguna þar niöur, gaus þykkur reykjar- mökkur á móti mér. Það voru slökkvitæki um borö, en þaö var ekki viðlit aö komast að eldinum vegna reyks. Þaö fyrsta og eina, sem við gátum gert, var aö senda út neyöarkall. Siðan tókum við gúmmibátana og létum þá fyrir borö. Reykurinn var það mikill aftur á, aö ekki var viðlit að haldast þar við. Við fórum þvi fram á og héldum okkur þar, unz viö fórum I bátana. Ég þurfti i eitt sinn aö skreppa aftur á til að ná i neyðarblys. Reykurinn var það þykkur, að ég sá ekki handa skil. Ég þekkti þó staöinn, sem blysin voru geymd á,og rataöi þvi á þau I blindni. Báturinn Breki, sem nú heitir aö visu Hafbjörg frá Vest- mannaeyjum, kom strax að okkur, er viö vorum komnir i björgunarbátana, svo aö dvölin þar varð ekki löng. Þaö var dimmt af nóttu, en blysin beindu þeim strax aö okkur, og svo var Hafrún orðin alelda. Hafbjörg tók hana fyrst I tog, en siðan tók lóösinn I Vestmannaeyjum við, og við héldum með Hafbjörgu til Eyja. Þaö var ekki til eins að reyna aö fara aö slökkva eldinn, er svona var komiö, og dró lóösinn bátinn upp I Landeyjafjöru, og þar fékk hann að brenna. Viö vorum nú ekki með mik- inn afla, eitthvað um 4 tonn en tjóniö við aö missa bátinn er auðvitað geysilegt. Tryggingar- féö nær vart helmingi þess sem nýr bátur myndi kosta. Nú, okkar persónulegu eigur misstum við lika, þar sem við sváfum allir aftur I bátnum. Hvaö viö gerum núna? Það er nú ekki útséð um það. Ætli viö förum ekki á aðra báta, þvi að allir veröum viö að vinna eitthvað”, sagöi Valdimar Eiðsson aö lokum. —JB— ...þá tekur Hvaö iósköpunum skyldu þeir vera aö gera strákarnir? Athygli þeirra beinist öll aö einu og þaö viröist eitthvaö mjög merkilcgt. Reyndar cr þaö, en viö þaö kannast fáir aörir en Vestmannaeyingar. Þcir eru nefnilcga aö sleppa lundapysju þessir strákar úti i Eyjum. Lundapysjan, eöa pysjan — eins og hún er oftast köiluö, er afkvæmi lundans og þarf á talsveröri hjálp Eyja- skeggja aö halda, þegar tekur aö hausta. Lundatimanum er nú lokiö i Eyjum, en þá taka pysjurnar viö. Illutverki lundaveiöi- mannanna er lika lokiö, en þá tekur yngri kynslóöin viö. Þegar dimma tekur,leitar pysjan á þá staöi, þar sem Ijós eru og flýgur á þau. Eftir aö hafa hafnað á jöröinni, er hún ekki fær um að hefja sig til flugs á ný. Þá reynir á góösemi krakkanna I Eyjum. Þeir fara lika á kreik, þegar kvölda tekur, meö stóran kassa til þess aö safna pysjum saman I og sleppa þeim siöan daginn eft- ir. Þaö er þeim mikið kappsmái aö safna saman sem flestum pysjum, enda er stundum komið heim meö fullan kassa. Morguninn eftir er svo fariö með kassann og pysjurnar. Þær eru teknar upp ein I einu og sleppt til flugs, og þá alltaf viö sjó. Enginn kærir sig um aö gera þessu afkvæmi lundans mein, en þó er alltaf einn og einn, sem ekki virðist geta stillt sig, þvi miður. —EA —Ljósm : Guöm. Sigf. Gömul kona lézt af reyk — snör handtök fyrrverandi slökkviliðsmanns komu ekki að gagni „Ég var aö koma heim úr vinnunni um hálf eitt Ieytiö, þegar ég sá nokkurn reyk leggja frá húsi neðar viö götuna, sem ég bý f,” segir Guömundur Kristinsson, bifreiöaeftirlitsmaöur og fyrr- verandi siökkviliösmaöur. Eldur kom upp I húsinu Alfa- brekku 17 og varö Guömundur hans fyrst var. „Þeir, sem eru þarna að byggja, hafa mikið verið að brenna timbur og annað rusl undanfarna daga, en ég ákvað þó aö athuga þetta frekar. Þegar ég kom að húsinu, sá ég strax, að reyk lagði undan þakskegginu. Fyrrverandi bóndi, sem býr þarna rétt hjá, var nú lika kominn á staðinn. Viö reyndum við aðaldyrnar, en þar sem þær voru harð- læstar, brutum við rúðu i her- berginu, sem við vissum að gömul kona.ibúi hússins.byggi I. Ég fór inn og náði konunni út. Hún var þá án meðvitundar. Ég reyndi að beita blástursaðferðinni á meðan við vorum á leið á slysavarðstofuna i lögreglu- bilnum en það kom ekki að neinu gagni. Jú, ég skar mig aðeins á baki við að fara inn um gluggann, en það er ekki i frásögur færandi. Ég sá litið til sjálfs eldsins. Herbergi konunnar er i suðvesturenda hússins, en eldhúsiö, sem eldurinn logaði i, norðaustan megin. Mér er nú ekki kunnugt um eldsupptök, en hitaveita var komin i húsið, svo að ekki hefur það getað verið olia. Rafmagnsikveikja er senni- legust. Húsið er töluvert brunniö að innan en eldhúsið þó mest”. Konan sem lézt var 84 ára gömul og hét Salbjörg Nielsdóttir. —JB Þarna komst Guðmundur inn i hús gömlu konunnar og tókst aö koma henni út. Þaö var þó um seinan. Ljósm. Bj.Bj.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.