Vísir - 04.10.1974, Síða 5
Vísir. Föstudagur 4. október 1974.
reuter
AP/NTB
Í MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson
Samsœrí um að myrða
Clerídes forseta Kýpur
Kýpurstjórn skýrði i morgun
frá þvi, að hún hefði komizt á
snoðir um samsæri til að myrða
Glafkos Clerides forseta.
Þessi yfirlýsing kom eftir að
byssubófar höfðu hafið skothrið á
lögreglubifreið, sem fylgdi for-
setanum i gærkvöldi. En árásin
var gerð 5 minútum, áður en
Clerides var ekið gegnum
Nicosiu — höfuðborg Kýpur.
Skotmönnunum tókst að sleppa
eftir að lögreglubifreiðar höfðu
elt þá um götur borgarinnar —
Ekkert manntjón varð.
Atburðir þessir verða á við-
kvæmu andartaki i stjórnmálalifi
Kýpur, þvi að allt hefur verið i
óvissu um, hvort Clerides yrði
áfram forseti, eða hvort hann viki
fyrir Makarios erkibiskup, sem
er i útlegð, en þó eini löglega
kjörni forseti Kýpur.
1 gær hafði Clerides fengið orð-
sendingu frá Makarios, sem lýsti
yfir stuðningi við hann. — Reuter-
fréttastofan ber fyrir þvi heimild-
ir innan Kýpurstjórnar, að Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri
SÞ, hafi átt simtal við Clerides i
gær, og hvatt hann til að vera
áfram i embætti.
Af Clerides var vænzt yfir-
lýsingar i dag um þetta atriði —
annaðhvort af eða á.
A meðan hafa legið niðri við-
ræður við fulltrúa tyrkneska
minnihlutans, sem er Rauf Denk-
tash — skólabróðir Cleridesar frá
háskólaárum i Bretlandi. En
menn gera sér vonir um að við-
ræðurnar haldi strax áfram, ef
Clerides gegnir eftir sem áður
forsetembættinu.
Skotárásin i gærkvöldi var gerð
skömmu áður en Clerides hélt af
stað heim frá skrifstofum sinum i
miðbænum. Lögreglubifreið, sem
ók leiðina nokkrum minútum áð-
ur, reyndi að fara i veg fyrir bif-
reið, sem lögreglumönnunum
Glafkos Clerides, forseti Kýpur
— Voru honum brugguö bana-
ráð?
þótti grunsamleg. Þá kváðu við
skothvellirnir.
Skýrslur sýna að
þœr þrauka 5-10
ár aðeins
„Gerald Kord forseti mun
örugglega ekki gefa kost á sér til
forsetaframboðs 1976, ef heilsa
konu hans þolir ekki kröfur þær,
sem gerðar cru til húsmóöurinnar
i llvita liúsinu,” sagði Gerald
terliorst fyrrum blaöafulltrúi
Fords, i gær.
TerHorst segir, að Ford sé
ljóst, að krabbameinssérfræðing-
ar ræði sin á milli um tilfelli eins
og konu hans með tilliti til þess
Við sjúkrabeð Betty Ford situr
Bandarikjaforseti og heldur I
hönd konu sinnar. — Terllorst
segir hjónaband þeirra ótrúlega
gott.
hve mörg ár þau eigi eftir ólifað,
en ekki um bata.
Taka varð af Betty Ford hægra
brjóstið i aðgerð sem hún gekkst
undir vegna krabbameins.
Skýrslur lækna i gegnum árin
sýna, að 62% kvenna með
krabbámein likt þvi, sem forseta-
frúin hafði við að að striða, lifi við
það i 5 ár, en 38% þrauki i 10 ár.
TerHorst, sem gekk úr blaða-
fulltrúastarfinu, þegar Ford for-
seti náðaði Nixon, segir, að sam-
band þeirra forsetahjónanna sé
mjög náið og hjónaband þeirra
gott —- og ótrúlega svo miðað við
hjónabönd margra manna, sem
helgað hafa sig stjórnmálunum.
Holskefla
glœpa
Eftir fyrstu 6 mánuði þessa
árs sýna skýrslur, að meiri
háttar glæpum hefur fjölgað i
Bandarikjunum um 16% mið-
að við fyrri hluta 1973 — og
höfðu þó glæpir þá aukizt um
6% frá þvi 1972.
1 Bandarikjunum veldur
þetta borgurum þungum
áhyggjum, og Washington-
stjórnin hafði lýst þvi yfir, að
ástandið sé ægilegt i þessum
efnum orðið. — En menn spá
þvi, að það eigi þó eftir að
versna enn á siðari hluta árs,
þvi að skýrslur FBI i gegnum
árin sýna, að glæpum hefur
ávallt fjölgað til muna frá júli
til september.
Þessi fjölgun tekur einkum
til meiri háttar afbrota eins og
morða, nauðgana, rána og
likamsárása, sem fjölgaði um
6%, en mest fjölgaði þó
auðgunarbrotunum, eðá um
17%.
Eru olíufélögin ákafarí í
hœkkun en framleiðendur
Framkvæmdastjóri samts.ka
oliuframleiðslurikja sagði i gær,
að það væru miklu fremur hin
risavöxnu oliufyrirtæki, sem
hvettu til þess, að oliuverðið væri
hækkað heldur en oliufram-
leiðslurikin sjálf.
Abderraman Khene, fram-
kvæmdastjóri, hélt þvi fram i við-
taii við blaðamann að aðildarriki
OPEC settu verðið lægra en
f jölþjóðaoliuhringarnir legðu
jafnan til.
„Akvarðanir okkar um að
hækka eru byggðar á efnahags-
legum sjónarmiðum, og þá á ég
ekki við að eltast við blind gróða-
sjónarmið olíufyrirtækjanna,”
sagði Khene.
Hann hélt þvi fram, að oliu-
fyrirtækin, hefðu fært sér ástand-
ið i nyt með þvi að hækka bensin
upp úr öllu valdi — og væri það
ekkert i likingu við hækkanir
framleiðendanna.
„Ef við hefðum farið eftir fyrir-
tækjunum, þá hefðum við ákveðið
verðið á oliunni 10 eða 12 dali
tunnuna, en ekki 7 dali, eins og við
gerðum,” sagði Khene.
Aðspurður, um hverra hækk-
ana menn mættu vænta i framtið-
inni, sagði Alsirbúinn, að erfitt
yrði að spá um það en oliukaup-
endur hefðu verið varaðir við þvi,
að verðbólga iðnaðarlandanna
mundi verða höfð til viðmiðunar
við ákvörðun oliuverðsins.
Ganga Panam og TWA
í eina sœng saman?
Panam og TWA hafa byrjað
viðræður um samruna þessara
Sakharov óttast þjóðarmorð íraka
á œttbálkum Kúrda í írak
Dr. Andrei Sakharov, sem leið-
ir mannréttindabaráttuna i
Sovétrikjunum, skoraði f gær á
Sameinuðu þjóðirnar að senda
friðargæzlusveitir til norðurhluta
traks, þar sem stjórnarherinn
heyr grimmilegt strið við Kúrda.
Sakharov beindi máli sinu til
Kurt Waldheim og til fulltrúa,
sem sitja 29. allsherjarþingið, og
til Brezhnevs, valdamesta manns
Sovétrikjanna.
óljósar fréttir hafa borizt af og
til af þvi, að íraksstjórn haldi
uppi jafnt og þétt loftárásum á
fjallaþorp Kúrda, og er þar beitt
napalmsprengjum. — Hefur
Iraksstjórn verið sökuð um að
vinna að þvi að fremja þjóðar-
morð á Kúrdum.
Sakharov álasaði Sameinuðu
þjóðunum fyrir að hafa ekki gert
nokkurn skapaðan hlut til að aftra
„útrýmingu heillar þjóðar með
vopnum og svelti”. — Sagði hann,
að „það mætti alls ekki endurtaka
harmleikinn frá Biafra, sem hófst
með svipuðum hætti”.
tveggja risaflugfélaga, sem yrði
þá heimsins stærsta flugfélag —
að Sovétrikjunum undanskildum
auðvitað.
Þessi tvö félög, sem liafa orðið
illa fyrir barðinu á oliukreppunni,
minnkandi farþegaf jölda og
heimskreppunni yfirleitt, hafa
hvort um sig á sinum snærum um
35 þúsund manna starfslið. Kviða
þvi nú margir, aö samruni þeirra
þýddi, að þúsundum yrði varpað
út á gaddinn.
TWA (Trans World Airlines)
var i upphafi tregt til að ljá eyra
tali um samruna við fyrirtæki,
sem er efnahagslegra veikara, af
ótta við aö TWA mundi skaðast
af. — En þegar Washingtonstjórn
hafnaði tilmælum þessara
tveggja um rikisaðstoð, kom ann-
að hljóð i strokkinn.
Flugfélögin gera sér vonir um
að geta betur staðið af sér þessa
þrengingartima sameinuð, held-
ur en sitt i hvoru lagi.
Panam, sem flýgur til 100 er-
lendra borga og 22 bæja i Banda-
rikjunum, er illa á vegi statt. Þaö
tapaði 174milljónum dala frá 1969
til 1973 og kviðir 65 milljóna dala
tapi á þessu ári.
TWA, sem flýgur bæði innan-
lands og erlendis, býst við 60-70
milljón dala tapi á þessu ári á er-
lendu flugleiðunum. En vegna
fjölbreyttari rekstrar, eins og t.d.
meðeign i Hilton-hótelkeöjunni,
þá stendur þaö ívið betur en
Panam.