Tíminn - 30.04.1966, Blaðsíða 2
LAUGARDAGUR 30. apríl Iws
TÍMlNNl
FH varð íslandsmeistari
Alf-Reykjavík. FH á bezta hand
knattlciksliS á íslandi 1906. í
gærkvöldi sigruSu FH-ingar Fram
í úrslitaleik fslandsmótsins meS
21:15 og var sá sigur þeirra mjög
verSskuidaSur, því FH var mun
betra liSiS allan tímann, sérstak
lega í síSari hálfleik.
í hálfleik var staðan jöfn 8:8,
en fljótlega í síðari hálfleik náði
FH forustu og jók bilið smám sam
an.
Það var einkum sterkur varnar
leikur FH, seim kom Fram úr jafn
vægi, og var Ragnar Jónsson einn
drýgsti maðurmn í vörn FH. Fór
svo, að bæði Gunnlaugur og Guð
jón í Eram-liðinu voru nær óvirk
ir mikinn hluta leiksins. FH lék
tvöfalda vörn og gat Fram ekM
hagnýtt sér glufurnar, sem mynd
uðust, með línuspili, sem er eina
ráðið við þessari vörn.
Reynir Ólafsson dæmdi leikinn
og tókst það eftir atvikum vel, en
mjög erfitt var að dæma leikinn.
í 2. deild léiku til úrslita Viking
ur og Þróttur og sigruðu Vikingar
með 27:15 og flytjast því upp
í 1. deild. Var sigur Víkinga mjög
sanngjarn. Sveinn Kristjánsson
dæmdi leikinn vel.
Vegna rúmleysis í blaðinu í dag,
er ekki hægt að geta nánar um
leikina.
íslandsraót í
badminton
íslandsmötið í badminton
verður háð um helgina og hefst
í dag í KR-ihúsinu. Þátttaka er
mjög góð, en alls eru skráðir
keppendur 73 talsins og verður
þetta því fjölmenasta badmin
tonmót hérlendis til þessa. Und
ankeppni befst í dag kl. 2 og
úrslitakeppnin á sama tíma á
morgun. Það er TBR, sem sér
um framkvæimd mótsins að
þessu sinni.
jlfcrír af nemendum Tónlistarskólans, sem fram koma á hinum fjölbreyttu
Tónleikum í Austurbæjarbíói á mánudagskvöld: Lára Rafnsdóttir (píanó),
GuSný GuSmundsdóttir (fiðla), Páll Einarsson (celló).
NEMENDATÓNLEIKAR
TÓNLISTARSKÓLANS
Tónlistarskólinn heldur fjöl-
breytta nemendatónleika í
Austurbæjarbíói næstkomandi
mánudag kl. 7.15 síðdegis. Þar
koma fram ellefu af eldri nemend
um skólans og leika einleik og
samleik á fiðlu, celló og píanó.
Meðal annarra viðfangsefna er
frumsaminn þáttur úr strengja-
tríói eftir einn nemenda, Pál Ein-
arsson. Nokkrir aðgöngumiðar
að tónleikunum munu verða fáan
legir við innganginn.
VORUSALA KRON NAM
TÆPUM 122 MILLJÓNUM
Aðalfundur KRON var haldinn
í Hótel Sögu laugardaginn 23. þ.
m. Fundarstjórar voru Guðgeir
Jónsson og Páll Bergþórsson, en
fundarritarar vorú Gunnar Árna-
son og Guðmundur Illugason. For
maður félagsstjórnar, Ragnar Ól-
afsson. hrl., setti fundinn og fiutti
skýrslu stjórnar. Ræddi hann um
þær framkvæmdir, sem nú eru á
döfinni hjá félaginu og næstu
verkefni.
Félagig hefur nú í smíðum verzl
unarhús við Stakkahlið og verður
því væntanlega lokið í haust. For
maður skýrði ennfremur frá því,
að félagið hefði sótt um lóð í
Kópavogi undir vörumarkað og
byggingarvöruverzlun.
Kaupfélagsstjórinn, Ingólfur
Ólafsson, flutti skýrslu um rekst-
ur félagsins síðastliðið ár og las
réikninga þess. Vörusala s.l. ár
var kr. 121.745.182,15 og hafði
aukizt um 8% frá árinu áður.
Rekstur félagsins var heldur
hagstæðari en árið áður, þrátt fyr
ir allmikla hækkun rekstrarkostn-
aðar. Rekstrarafgangur var kr.
164.358.24, eftir að búið var að
greiða 6% vexti af stofnsjóði fé-
lagsmanna, afskrifa innréttingar,
áhöld og bifreiðir samkvæmt af-
skriítarreglum.
Allmiklar umræður urðu á fund
inum um framtíðarverkefni félags
ins og voru menn einhuga um á-
framhaldandi sókn í samvinnumál-
um höfuðstaðarins.
Utaníeriir fyrir æskufólk
KT—Reykjavík. föstudag.
Ferðaskrifstofan Sunna efnir í
umar til hópferða til nágranna-
mdanna fyrir æskufólk. Þessar
;rðir eru undirbúnar i samráði
ið æskulýðsnefnd þjóðkirkjunn-
r og verður séra Ólafur Skúla-
m fararstjóri í ferðunum. Kom
Kjarvalssýningin
Á sunnudagskvöld 1. maí lýkur
Kjarvalssýningu þeirri, sem staðið
hefur yfir undanfarnar vikur í
Listasafni íslands. Athygli skal
vakin á því, að þar er nú í fyrsta
sinn til sýnis málverkið Svana-
söngur, sem Kjarval gaf Lista-
safninu fyrir skemmstu. í dag,
laugardag og á morgun verður sýn
ingin opin frá kl. 13.30 til 22.
Fólki er bent á að nota þetta ein-
staka tækifæri til að kynnast lista
verkum Jóhannesar S. Kjarvai í
eigu Listasafns íslands.
(Frá Listasafni íslands).
þetta fram á fundi, sem Guðni
Þórðarson, forstjóri Sunnu efndi
til með blaðamönnum. Sagði
Guðni við þetta tækifæri, að fram
að þessu hefði það verið nær ein-
göngu eldra fólkið, sem færi utan
á sumrin, en með þessum ferðum
væri æskufólki gefinn kostur á
ódýrum ferðalögum undir öruggri
stjórn kunnugs leiðsögumanns.
Um tildrögin að áðurnefndu
samstarfi Sunnu og æskulýðs-
nefndar þjóðkirkjunnar sagði séra
Ólafur Skúlason við þetta tæki-
færi, að á hverju sumri hefði far-
ið hópur æskufólks á vegum kirkj
unnar til nágrannalandanna.
Hefði fólk petta starfað um ein-
hvern tíma í vinnubúðum og feng
ið fyrir það ókeypis fæði og ferðir
um nágrennið. Nú væru hins veg-
ar ekki verkefni fyrir þetta fólk,
og hefði því verið gripið til þessa
ráðs.
Þá sagði séra Ólafur að þörfin
fyrir slík ferðalög væri mikil. For
eldrar vildu gjarnan gefa börnum
sínum kost á að ferðast til út-
landa og þá fremur í skipulögð-
um ferðum en að senda þau ein
sér. Auk þess hefðu börnin
meira gagn af ferðunum ef þær
væru vel skipulagðar.
Æskulýðsferðirnar, sem um
verður að ræða í sumar, eru tvær.
Hin fyrri hefst 7. júlí og stendur
yfir í 15 daga Verður þá farið til
Danmerkur og síðan yfir sundið
til Noregs og eftir nokkurra daga
dvöl þar verður farið aftur til
Danmerkur. Á þessum slóðum
verða skoðaðir fjölda margir stað
ir, sem fólk hefur ánægju af að
sjá. Þátttökugjald i þessari ferð
er kr. 9.800.
Seinni ferðin hefst 24. júlí og
verður þá farið um Skotland og
England og tekur ferðin 14 daga.
í þessari ferð verða skoðaðir
fjölda margir staðir, sem fólk bef-
ur ánægju af að sjá. eins og '
hinni fyrri. T.d verður komið til
Shakespeareborgarinnar Strat-
ford-upon-Avon, Coventry, Car-
berry Tower í Skotlandi. þar sem
Framhald á 14. síðu.
Úr stjórn áttu að ganga Guðrún
Guðjónsdóttir, Ólafur Jónsson og
Guðmundur Finnbogason en voru
öll endurkjörin. Auk þeirra eru í
stjórn KRON: Ragnar Ólafsson,
Þorlákur Ottesen, Hallgrimur Sig
tryggsson, Sveinn Gamalíelsson og
Friðfinnur Ólafsson.
Sýning á myndum
eftir barnask.börn
Á mánudaginn verður opnuð í
Ameríska bókasafninu, Hagatorgi
1. sýning á um 30 myndum ef'tir
barnaskólabörn hér og í Banda-
ríkjunum.
Sýning þessi er haldin á vegum
Rauða Kross íslands í samvinnu
við ameríska Rauða krossinn og
er liður á því alþjóðasamstarfi á
vegum samtakanna, sem fyrst og
fremst er ætlað að vera í þágu
yngstu borgaranna. Myndir eftir
íslenzk skólaböm eru þannig send
ar á vegum Rauða kross Islands
til ýmissa landa.
Sýningin verður opin 10—14
daga og verður opin sem hér seg-
ir: Mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 12—21, þriðjudaga
og fimmtudaga kl. 12—18 og laug
ardaga og sunnudaga kl. 13—19.
Aðalf. Norrænafél.
í Kópavogi
Norræna félagið í Kópavogi
heldur aðalfund sinn klukkan 3
síðdegis á laugardag, 30. apríl.
Fara þar fram venjuleg aðalfund
arstörf, en ainnig ræðir Magnús
Gíslason starf norrænu félaganna
á fundinum. Tvöfaldur kvartett
Kópavogsbúa syngur. Auður Guð-
mundsdóttir segir frá vinabæja-
ferð til Norðurlanda. Fundurinn
verður haldinn í Félagsheimili
Kópavogs.
Endurskoðendur félagsins eru
Björn Guðmundsson og Bjöm
Svanbergsson.
YFIRLYSING
„Herra ritstjóri.
Stjórn Flugbjörgunarsveitarinn-
ar harmar þann kafla úr skýrslu
forseta Slysavarnafélags fslands á
13. landsþinginu, sem fjallar um
aðfinnslur á störfum Flugmála-
stjórnarinnar í sambandi við leit
að flugvél, sem fórst við Norð-
fjörg þann 18. jan. s.l.
Stjórnin telur þessa aðferð ekki
spor í rétta átt til að vinna að ör-
yggismálum í landinu.
Stjórnin“.
Mótmæla kjara-
skerðingu náms-
manna.
Fundur haldinn í Félagi ís-
lenzkra háskólastúdenta í Frakk-
landi 16. apríl 1966 mótmælir
þeirri kjaraskerðingu, sem íslenzk
ir námsmenn erlendis urðu fyrir
við síðustu úthlutun námslána og
-styrkja. Félagið telur, að stig-
hækkandi fjárhagsaðstoð eftir því
sem líður á námstímann sé breyt
ing til batnaðar, en telur það víta
vert, að ríkisstjómin skuli not-
færa sér þannig hækkun á fjár-
lögum miðað við eðlilega fjölgun
námsmanna og stöðuga verðbólgu.
f F'rakklandi og flestum öðrum
löndum nemur þessi kjaraskerð-
ing 9 þúsund krónum á hvern
námsmann miðað við 5 ára náms
tíma. Félagið vekur athygli á því
að fyrir nokkrum árum voru styrk
ir lækkaðir og réttlætti hæstvirt-
ur menntamálaráðherra það með
því hærri lánum, en nú þegar lán-
in eru skorin niður álítur félagið
að um slæma þróun sé að ræða.
BAZAR KVENNADEILÐAR
SKAGFIRBINGAFÉLAGSINS
Kvennadeild Skagfirðingafé-
lagsins í Reykjavík heldur baz
ar og kaffisölu í Breiðfirðinga-
búð sunnudaginn 1. maí n.k.
til ágóða fyrir starfsemi sína
Kvennadeildin hefur starfað ai
miklum krafti í rúm tvö ár.
haldið fræðslu- og skemmti-
fundi. og síðastliðinn vetur vai
föndurnámskeið á vegum deiir
arinnar undir leiðsögn frk. Jón
ínu Guðmundsdóttur. Framund
an er hið árlega vorferðalag,
26. júni.
Stjórn íélagsins skipa: Guð-
rún Þorvaldsdóttir. formaður,
Margrét Eggertsdóttir, gjald-
keri, Jóhanna Þorsteinsdóttir,
ritari, Margrét Margeirsdóttir
og Stefanía Guðmundsdóttir,
meðstjórnendur.