Tíminn - 30.04.1966, Blaðsíða 14

Tíminn - 30.04.1966, Blaðsíða 14
LAUGARDAGUR 30. apríl 1966 14 SUMARFÖTIN DRENGJAJAKKAFÖT frá 5 tQ 13 ára. MATRÓSAFÖT. MATRÓSAKJÓLAR. DRENGJAJAKKAR, stakir. irV ÍTAR NYLONSKYRTUR. ENSKAR DRENGJA- OG TELPUPEYSUR, mikið úr- val nýkomið. FERMINGARFÖT frá 33—37, terylene og nR, fyrsta fl. efni SÆNGURFATNAÐUR, kodd- ar, sængnrver, lök. GÆSADÚNN. HÁLFDYNN. FIÐUR. DÚNHELT OG FIÐURHELT LÉREFT. PATTONSGARNIÐ í litavali, 4 grófleikar, hleypur ekki. Póstsendum Vesturgötu 12, sími 13-5-770. 8IFREIÐA- EIGENDUR VatnskassaviSgerSir Elementaskipti Tökum vatnskassa úr og setjum í Gufuþvoum mótora o.fl. Vatnskassaverkstæðið, Grensásvegi 18 sími 37534. PÚSSNINGAR- SANDUR VIKURPLÖTUR Einangrunarplast Seljum alia.' gerðir at pússningasandi, heim fluttan og blásinn inn. Þurrkaðar vikurplötur og einangrunarplast. Sandsalan við Elliðavog st. Elliðavog 115. sími 30120. Enn slys á Keflavíkur veginum SJ—Reykjavík, föstudag. Uim kl. 11 í kvöld valt bifreið á mótum Reykjanesbrautar (Keflavlk urvegar) og Þúfubarðs. í bifreiðinni sem var Willis station, voru tvær stúlkur frá Reylkjavík og voru þær báðar fluttar á Slysavarðstofuna, en ekiki er talið að ,þær séu mikið slsað ar. FERMINGAR Ferming í Neskirkju, sunnudaginn 1. maí kl. 1L Séra Jón Thorarensen. Stúlkur: Ásdis Óskarsdóttir, Vesturgötu 57 Carole Ann Scheving Thorsteins- SKÓR - INNLEGG Smíða Orthop-skó og tnn- legg eftlr máli Hef einnig tilbúna barnaskó með og án innleggs. Davfð Garðarsson, Orthop-skósmíður. Bergstaðastræti 48, Sími 18893. EKCO SJÓNVARPSTÆKIÐ AFBORGUNARSKILMÁLAR. ODP&.CO Laugavegi 178, sími 38000. RAF-VAL Lækjarg. 6 A, sími 11360, EKCO-SJÓNVARPSTÆKIÐ SEM VEKUR ATHYGLI. Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, Sigurður Steinþórsson fulltrúl, andaðist að morgni 29. april. Eiginkona, börn tengdabörn og fósturdætur. Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðar för föður, tengdaföður og afa, Jóns Bjarnasonar Hofi í Öræfum. Sigrún Jónsdóttir, Gunnar Þorsteinsson og börn. TÍMINN son, Hofsvallagötu 61 (Halldóra Svava Halldórsdóttir, Kleppsvegi 66 Ólafía Guðrún Ottósdóttir, Þvervegi 78 Ragnhildur Þorbjömsdóttir, NeNsvegi 17 Svanhvít Bjarnadóttir, Þvervegi 42 Sigrún Bjamarson, Hagamel 34 Signrgjðrg Guömundsdóttir, Miðlbraut 1 Drengir: Bjöm Ólafsson, Skólalbraut 21 Eggert Bjami Ólafsson, Lynghaga 8 Einar Thorlacíus, Hofsvallagötu 55 Friðrik Örn Guðmundsson, Miðbrant 4 Grétar Örn Antonsson, Bjarkargötu 10 Gunnlaugur Marteinn LiláS, Gufunesi Hafsteinn Viðar Jónsson, Fornhaga 21 Halldór Egilsson, Bankastræti 11 Jón Tómas Erlendsson, Arnargötu 8 Kjartan Birgir Reynisson, Þvervegi 23 Kristinn Einar Skúlason, Skólabraut 13 Sigurður Guðjónsson, Framnesvegi 63 Vilhjálmur Fenger, Hofsvallagötu 49 Þórður Ágústsson, Nesvegi 9 LOFTLEIÐAHÓTEL Framhald af bls. 1. þeirra, sem að því hafa unnið, þurft að flytja mikið af efni til landsins flugleiðis frá útlöndum, og meira að segja varð að flytja húsgögn flugleiðis frá Akureyri vegna snjóþyngsla. Hið nýja hótel er um 1600 fer metrar að grunnfleti og stærð þess er alls um 25500 rúmimetrar. Loftræstingarkerfi er fyrir öll gestaherbergin, baðherbergi og snyrtiiherbergi, en loftkælikerfi fyr ir veitingasali, bari og aðrar stærri vistarverur á 1. hæð og fyrir eldhúsin. Gestir geta tempr að hitastig í herbergjum sjálfir og rakastigi hússins er einnig stjórn að aí sjálfvirkum vélum. Á 1. hæð er aðalanddyri hótels ins með gestamóttöku og skrifstof um. Þar er einnig sölubúð, tvö fundarherbergi og fatageymsla. Úr anddyri er gengið inn í aðal- borðsal hótelsins og vínstúku hót elgesta. Borðsalur þessi er fagur lega skreyttur blómum og rúmar unylOO manns í sæti. Úr hótelanddyrinu er einnig gengið beint inn í flugafgreiðslu Loftleiða í Reykjavík. Þar verður, auk ýmis konar þjónustu varðandi flugferðir, stór biðsalur, rakara- stofa, sölubúð og upplýsingamið- stöð um flugþjónustu félagsins. Þá er á 1. hæð veitingasalur fyrir um 160 manns, með sér inn ganigi að utan, rúmgóðu anddyri, aðalskrifstofu veitingastjóra og fatageymslu. Við þennan veitinga sal er yinstúka, er rúmar 70 manns í sæti, og fundarsalur. Þar er einnig veitingasala með sjálfsafgreiðslu, og rúmar hún um 60 manns í sæti. Þessi salar- kynni eru bæði ætluð hótel- og aðkomugestum. í aðalsal er hljóm sveitarpallur og dansgólf úr marm ara. Fyrir veitingasalina eru einn ig á 1. hæð eldhúsdeild fyrir upp- þvott, framleiðslu í veitingasali og morgunverðareldhús. í kjallara hússins er aðaleldhús hótelsins, sem er eitt hið full- komnasta sinnar tegundar i Norð urálfu. Þar er einnig mjög full- komið bakarí. Tilheyrandi eldhús inu eru ýmis? konar matvæla- geymslur, vínkjallari o.fl. 1 kjall- ara eru einnig ýmis konar þæg- indi fyrir starfslið hótelsins, svo í sem búningshehbergi, snyrtiher- bergi með böðum o. fl. Þá eru þar stór og vönduð snyrtiherbergi karla og kvenna fyrix veitingasal ina á 1. hæð hússins og önnur fyr ir hótelið, vörumóttaka, og salur fyrir loftræstingarvélar. Úr aðalanddyri hótelsins er gengið niður í sundlaugardeild- ina, sem einnig er í kjallaranum. í forstofu sundlaugardeildar eru hárgreiðslustofa og fótsnyrtistofa. Gestalytftur ganga niður í þessa forstofu. Þar inn af taka við búningsklefar, baðklefar, finnsk ar gufubaðstofur og hvíldarher- bergi. Þarna er einnig nuddstofa og aðstaða til ljósbaða. Sjálf sundlaugin er inn af baðdeildun um í fagurlega flísalögðum sal. Við enda laugarinnar er dálítil ker- laug, til heitari baða. í laugunum er hveravatn, sem fer stöðugt í gegn um fullkomin hreinsitæki. Fast starfslið hótelsins er um 100 manns. Þorvaldur Guðmunds son er hótelstjóri, veitingastjóri er Friðrik Gíslason, skrifstofu- stjóri Sveinn Guðlaugsson, sölu stjóri Friðrik Theódórsson, mót- tökustjórar Geirlaug Þorvaldsdótt ir og Emil Guðmundsson, aðstoðar maður hótelstjóra Robert Goethe, yfirmatsveinn Karl Finnbogason, gjaldkeri Bertha Johannessen, yf- irþjónn Bjarni Guðjónsson og yf irþerna Fríður Bjarnadóttir. Hljómsveit Karls Lilliendahls leikur fyrir dansi, í stóra veitinga salnum, sem opinn mun almenn ingi allar helgar og önnur þau kvöld sem hann verður ekki leigð ur til fjöimennra veizluhalda. UTANFERÐIR Framhald af bls. 2 búið verður um tíma og að sjálf sögðu komig við í London. Þátttaka í þessari ferð kostar 8.200 krónur. Siðasta ffrðin í þessum flokki er fjölskylduferð til Skotlands 6. ágúst, en sú ferð mun standa í 11 daga og kosta kr. 7.900 á mann. Fyrir börn er ferðakostnaðurinn 4.000 kr. Nokkurt nýnæmi er að þessari ferð, en hún er ætlug til þess ag gefa fjölskyldum kost á ódýrri hvíldarferg meg börnin til útlanda. Flogið verður til Glasgow og dvalizt i gömlum kastala í næsta nágrenni Edinborgar. í þessari ferð gefst fólki kostur á skemimtiferðum um nágrennið og að sjálfsögðu til Edinborgar og Glasgow. Um aldur þáttakenda í æsku- lýðsferðunum sagði Guðni Þórðar son, að miðað væri við, að börnin væru 15—18 ára gömul og hefðu einhverja þekkingu á enskri tungu. Þó yrðu gerðar undantekn- ingar frá þeirri reglu í ýmsum til- vikum. Tala þáttakenda verður hins vegar takmörkuð við 35—40 manns i hverri ferð. Þá sagði Guðni, að ein slík ferð hefði verið farin í fyrrasumar og hefðu allir komið mjög ánægðir heim úr ferð innd. ERLENT YFIRLIT Framhald af bis. 5 efnum, getur það ekki aðeins orðið vatn á myllu sjálfstæðis hreyfingarinnar í Austur- Pak- istan, heldur gæti það hæglega leitt til þess, að Pakistan klofnaði i tvö ríki. Kunnugir telja, að Austur-Pakistan gæti vel staðizt sem sjálfstætt ríki í samvinnu við Indverja, vestur veldin og Rússa, en hinsvegar myndi Vestur-Pakistan eiga erfitt uppdráttar í samvinnu við Kínverja eina, en Ayub leggur nú mikla áherzlu á nana. Þ. I>. RÆÐA GÍSLA Framhald af bls. 9. eða ræða að ráði, sem mér finnst vera á samningsgerðinni við Swiss Aluminium, aðra en þann megin- galla, sem ég hef þegar gert að umtalsefni. Eg hef reynt eftir föng um að kynna mér þá samninga, sem Norðmenn hafa gert við sama fyrirtæki eða gerðu fyrir fá- um árum, og sýnist mér þar vera allverulegur munur á, þó að sumt sem frétzt hafði að í norsku samn- ingunum stæði, kunni að vera á misskilningi byggt. Það er að bera í bakkafullan lækinn, að ég ræði þau samningsatriði, sem aðrir eink- um ræða og munu ræða. Þó að ég hafi nefnt nokkrar tölur í þessari ræðu, að vísu ekki margar og færri en aðrir, geri ég ekki kröfu til þess að vera talinn til reikningsglöggra manna, og varð- andi hina hærri talnafræði er ég vanur að taka reiknimeistara trú- anlega og reiknivélar þeirra. En út af þeim reikningum ýmsum, sem hér koma fram í greinargerð frumvarpsins, vil ég aðeins segja það, að síðan ég komst I kytmi við útreikninga frá 19. öld um vöxt einseyringsins, hinn ævin- týralega vöxt einseyringsins sem menn þá sýndu fram á, mjög reikningsglöggir menn, þegar ekki var verðbólga, — síðan ég komst í kynni við þetta, hef ég alltaf haft ótrú á því, sem kalla má reiknispár langt fram í tímann, að því er fjármuni varðar. Nú hef ég í þessum umræðum heyrt, að grundvöllur reiknispárinnar við Búrfell sé eins og hraunin þar eystra, lekur nokkuð og ótraustur og um það hafði ég þegar nokkurt hugiboð, þegar mér voru fengnir slíkir reikningar í nefndinni I fyrra. Mér þykir orkuverðið lágt, og mér þykir Þjórsárísar ískyggi- legir, eins og fleirum. Og þá verð ur mcr ósjálfrátt hugsað til þess að Jökulsá á Fjöllum er nú ísi lögð ofan fossa og streymir þar fram sem nokkurn veginn tær og jafnstreym lindá undir íshellunni. Samt var að ég ætla í áætluninni um Dettifoss gert ráð fyrir ís- vandamálum þar, en þau voru þá órannsökuð. Nú er því mjög á lofti haldig og haft eftir hr. Meyer forstjóra frá Swiss. sem hér var að rafmagnsverð muni bráðum laekka vegna kjarnorkunnar Þá minnist ég þess, er ég var i pmg mannanefndinni í fyrra • -> fengum í hendur bók eina mikiw og vandaða um starfsemi hi - margnefnda alúmínfyrirtækis --t, hér er á dagskrá. Þetta nar i bók, samin á vegum fyrirtæki' sjálfs. Þar stóð það. að éc r-- , skýrum stöfum á tiltekinm ■;■■■ síðu, sem ég man. að ork'i 1 muni verða hækkandi hjá b«um verksmiðjum, sem reistar ■ j>,■ Og mun það ekki verða svo íyrst um sinn, að kjarnorkunni sé var- lega treystandi til að þjóna at- vinnulífi manna og að örygginu verði þar að minnsta kosti nokkuð afatt fyrst um sinn, Eg er svo raunar þeirrar skoðunar, að fram- kvæmdir af því tagi, sem hér er um að ræða í þessu frv. séu varla tímabærar hér á landi elns og nú stendur á um verðbólgu stjóm- arfar og fleira. Á þetta fyrst og fremst við hér á höfuðborgarsvæð- inu þar sem vinnuaflsskortur hef- ur þegar sagt til sín, en að líkind- um einnig annars staðar. Eg lýk nú máli mínu. En ég mun Þegar þar að kemur, stuðla að því með atkvæði mínu, að fry. það, sem hér liggur fyrir, verði fellt, og þá í þeirri von, að þegar það er úr sögunni, verði hægt að taka upp nýja athugun á mögu- leikum til að hagnýta orku fall- vatnanna í þágu þjóðarinnar með þeirri fyrirhyggju, sem í hag kem- ur um langa framtíð og á heil- brigðum grundvelli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.