Tíminn - 06.05.1966, Síða 1
Dómur fallinn í handritamálinu í Eystri landsrétti
• *• 'í'.
Dýrtíðin kemur mér ekki vÉö
segir íhaldið í borgarstjórninni
AK, Rvík, fimmtudag. — TiIIögu
þeirri, sem borgarfulltrúar Fram
sóknarflokksins fluttu í borgar
stjórn í gær um a3 borgarstjórn
lýsti yfir kvíða vegna hraðfara
aukningar dýrtíðar, er rýrðri sí-
fellt framkvæmdafé borgarinnar
og mótmælti sérstaklega síðustu
hækkunum á neyzluvörum al-
mennings er kæmu þyngst niður á
stærstu og efnaminnstu fjölskyld
unum, vísaði íhaldið hiklaust á
bug með þeim rökum að dýrtíðin
væri ekki verkefni borgarstjórnar.
Einar Ágústsson rökstuddi þessa
tillögu i stuttri en glöggri ræðu
með skýrum tölum og kvað að
Ihaldið neitar borgarbú-
um alveg um betri físk
Ak Reykjavík fimmtudag.
Eins og frá var skýrt í blaðinu í
gær fluttu borgarfulltr. Framsókn-
arflokksins till- um það á fundi
borgarstjórnar í kvöld, að horgar
stjórn reyndi að beita sér fyrir
því, fyrst og fremst með því að
koma á betri samvinnu útgerðar
manna og fiskkaupmanna i borg
inni að finna viðhlítandi ieiðir •
fisksölumálum, er tryggi liorgar
búum að staðaldri nægilegan goð
an neyzlufisk.
Kristján Benediktsson hatði
framsögu fyrir tillögunni og lýsir
því, sem borgarbúum er öllum
kunnugt, að ekki er völ á góðum
neyzlufiski nema með höppum og
glöppum, þótt íslendingar veiddu
afbragðsfisk. Þetta væri þó aðal
Framhald á bls. 14.
sínu áliti svo komið, að rétt-
mætt væri, að borgarstjórn léti
til sín heyra og reyndi með þeim
hætti að eiga þátt í dýrtíðarvörn
um og leggja sitt lóð á metaskál
ar, því að þetta væri brýnasta
hagsmunamál alls fjöldans.
Einar rakti síðan með nokkr
um tölum, hve dýrtíðarþróunin
hefur verið geigvænlega hrað-'
fara síðustu árin. Hann minnti
t. d. á að fjárlög ríkisins hefðu
hækkað um 152,7% á síðustu
sex árum og væri meðaltalshækk
un á ári rúm 25%.
Vísitala framfærslukostnaðar
hefði hækkað á síðustu sex árum
um 82,2% eða um 13,7% á ári,
og þar væru ekki teknir með i
þann reikning ýmsir þeir gjalda
liðir fjölskyldu, sem hækkað
hefðu mest, svo sem húsnæðis-
kostnaðurinn. Vísitala bygginga-
Framhaid á bls. 14.
„Borgarstjórn Reykjavíkur
telur mikilvægt og leggur á
það áherzlu, að sem flest börn
borgarinnar eigi kost nokkurr
ar sumardvalar, þar sem þau
geti kynnzt nýjum og þrosk-
andi viðfangsefnum og komizt
í snertingu við dýralífið í sveit j
inni.
Samþykkir borgarstjórnin að
beita - sér fyrir því, að börn
allt að 11 ára aldri, er óska
að komast til sumardvalar á
sumri komanda. eigi bess kost
við hóflegu verði.
Reynist svo, að þeir aðilar,
er undanfarin ár hafa séð um
sumardvalir Reykjavíkurbarna,
geti ekki annað eftirspurninni
nú í vor, felur borgarstjórnin
borgarstjóra og börgarráði að
,aka á leigu nauðsynlegt hús-
næði, t. d. heimavistarskóla,
þar sem hentugt er að hafa
sumardvalarheimili.
Til að standa straum af
kostnaði við þessa starfsemi
svo og til að auðvelda tekju
lá«um og barnmörgum fjöl-
skyldum afnot sumardvalarinn
ar, samþykkir borgarstjórnin
Framhald á bls. 14.
Aðils—Kaupmannahöfn, fimmtudag.
Klukkan 12 í dag að íslenzkum tima var kveðinn upp dómur í hand
ritamálinu í Eystra Landsrétti, þriðju deild, í Kaupmannahöfn.
Dómur féll þannig, að danska menntamálaráðuneytið var sýknað í
málinu, og sá úrskurður felldur, að lögin um afhendingu handrRanna
til fslands væru ekki í andstöðu við stjórnarskrána. Margir íslending-
ar voru viðstaddir, þegar dómurinn var kveðinn upp, og er úrskuð
urinn var fenginn, tókust þeir í hendur og óskuðu hver öðrum til
hamingju með ánægjulega niðurstöðu. Christrup, málaflutningsmaður
Árnasafnsnefndar, sagði blaðamönnum, að málinu yrði vísað til hæsta-
réttar Danmerkur eins og allir höfðu búlst við.
Mynd þessi var tekin fyrlr utan Eystri Landsrétt í yær, rétt áður en dómsúrskurður í handritamálinu var
kveðinn upp. Á myndinnl sézt Christrup hrl., málr flutningsmaður Árnanefndar, taka í hönd Gunnar/
Thoroddsen, ambassadors. — Símamynd.
I dómsorðinu segir orðrétt:
„Rétturinn telur, að leggja
verði til grundvallar, að þau hand
rit og skjöl, sem málið fjallar um,
og umræddir fjármunir stofnun
arinnar, tilheyri stofnuninni, og
að hún, þrátt fyrir náin tengsl
sín við Kaupmannahafnarháskóla,
sé sjálfseignarstofnun, stofnuð
samikvæmt einkaréttarfarslegri
viljayfirlýsingu. Þó verður við
dómsúrskurð í málinu, að taka
tillit til þess, að allir 11 stjórn-
armenn stofnunarinnar eru skip-
aðir af hinu opinbera, þar af
5 af hinum stefnda (menntamála
ráðuneytinu), sem einnig velur
formann stjórnarinnar, og að út
gjöld stofnunarinnar eru að
miklu leyti greidd af stefnda. Þar
sem þessar aðstæður gera stöðu
stofnunarinnar sérstæða, hljóta
þær að leiða til þess, að stefndi
hafi veruleg áhrif í málefnum
stofnunarinnar.
Á þessum grundvelli hefur
stefndi einnig sanngjarna ástæðu
til þess að vinna að framkvæmd
laganna frá 26. maí 1965, sem,
með því að verða við óskum ís-
lezku þjóðarinnar um, að hún
sjálf fái að hafa hluta ofan-
greindra handrita með fleiri, leys
ir þýðingarmikið deilumál í sam
skiptum íslands og Danmerkur.
Þótt afhendingarlögin feli í
sér, að afhendingin verði fram-
kvæmd sem skipting stofnunarinn
ar í tvær deildir, sem báðum skuli
Framhald á bls. 14.
Þarf ekki aö
hjálpa börn-
um að kom-
ast í sveit