Tíminn - 06.05.1966, Síða 8

Tíminn - 06.05.1966, Síða 8
8 ÞINGFRÉTTIR TÍMINN ÞINGFRÉUIR FÖSTUDAGUR 6. maí 1966 Hvaða tæki henta bezt til þungaflutninga í snjó? Hjörtur Eldjárn Þóarinsson flutti á Alþingi tillögu tii þings- ályktunar um að Vegagerð ríkis- ins láti svo fljótt sem unnt sé fara fram ýtarlegar rannsóknir og tilraunir í því skyni að leiða í ijós, hvers konar tæki og tækni henti bezt til þungaflutninga hér á landi, þegar fannalög og óstöð- ug vetrarvertíð geri venjuleg sam göngutæki óvirk. Tillaga þessi komst ekki til um- ræðu á þinginu, en hér fer á eftir greinargerð sú, sem þessari til- lögu Hjartar fylgdi: Eitt af einkennum nútíma þjóð- félags er vaxandi þörf á greiðum og öruggum samgöngum. Þess vegna er uppbygging og viðhald samgöngukerfis eitt af meginvið- fangsefnum allra þjóða, sem eru á framfarabraut. Verkefni þetta er ákaflega mis- erfitt, ekki sízt uppbygging land- vegakerfis, og fer það einkum eft- ir náttúrufari og þéttbýli hinna ýmsu landa. Hér á landi er það fremur síð- ara atriðið, strjálbýlið, sem því veldur, að landsamgöngukerfið er þjóðinni dýrt. Þó er nú svo komið. að þjóðvegakerfið tengir saman að heita má allar byggðir landsins. Að vísu er það viðast af vanefnum gert og stendur til bóta. Vand- ræðalaust má það þó kallast undir •'illum venjulegum kringumstæð- lum . • En út af því bregður þó, þegar snjó kingir niður í vetrarhríðum. Þá getur svo farið og ber raunar við nálega á hverjum vetri, að heil héruð og landshlutar missa að einhverju eða öllu leyti not af vegakerfi sínu um lengri eða skemmri tíma, jafnvel mánuðum saman. Þá stöðvast öll samgöngu- tæki, sem á hjólum ganga, en þau, sem ganga á beltum, eru ým- ist svo veigalítil, að þau ráða eng- an veginn við þungaflutninga, eða þau eru svo hæggeng, að ógerlegt er að notast við þau á iengri leið- um. Stórvirk tæki til að ryðja snjó af vegum eru til og víðast fyrir hendi, en þau stoða lítið í óstöð- ugri veðráttu, þegar jafnvel lítils háttar stormur getur á nokkrum klukkustundum gert að engu margra daga verk öflugustu vinnu véla. Af þessum sökum skapast oft þvílikt öngþveiti í samgöngumál- um heilla landshluta, að neyðar- ástand má kalla, sem veldur ein- staklingum lítt yfirstíganlegum erfiðleikum og sveitarfélögum og ríki feikilegum útgjöldum. Það er því að vonum, að menn velti þessu vandamáli fyrir sér og leiti svars við spurningum svo sem þessum: Hvaða tæki koma helzt til greina, sem komizt geta leiðar sinnar með viðunandi burðar- eða dráttargetu og viðunandi hraða þrátt fyrir fannfergi og erfitt tíðarfar? Hvernig ber helzt að beita þeim tækjum, gamalkunnum eða nýjum, sem við kunnum að hafa yfir að ráða í viðureigninni við snjó og storm, þannig að árangurinn verði sem beztur? Ýmislegt hefur verið reynt í þessu sambandi af ein stökum mönnum víða á landinu og sitt hvað athyglisvert komið í Ijós. En öll slik „tilraunastarf- semi“ hefur verið óskipulögð og af vanefnum gerð, og víst er það, að meginvandamálið er enn óleyst, þ.e. hvernig unnt er að flytja þungavöru um kaffennta vegi með þolanlegum hraða og með hóflegum kostnaði. f öllum löndum kringum Norð- ur-íshafið er glímt við þetta sama vandamál og verið til miklu fé. Einkum mun það þó gert á vegum þeirra stofnana, sem vinna að varnarmálum þessara landa, fyrst og fremst á vegum landhersins. Það er skoðun flutningsmanns þessarar þingsályktunartillögu, að nauðsynlegt sé og aðkallandi, að íslenzka ríkið beiti sér einnig fyr- ir leit að lausn þessa vandamáls. Eðlilegt virðist, að Vegagerð rík- isins verði falið þetta verkefni hér. Gera má ráð fyrir, að nokkru fé þurfi að eyða í þessu skyni. f það má þó ekki horfa, þar sem hér er um meiri háttar vandamál að ræða, sem árlega gleypir gífurleg- ar fjárhæðir einstaklinga og opin- berra aðila. Má telja mjög liklegt, að skipu- lagðar rannsóknir og tilraunir í þessu efni geti fljótlega gefið nið- urstöður, sem komið geti í veg fyrir margs konar mistök, mis- beitingu tækja og tímabæran snjómokstur á vegum og sparað með því þjóðinni stórfé. Verðbólgan versti óvinur bænda Er frumvarpið um að tryggja starfshæfni 6 manna nefndar til ákvörðunar búvöruverðinu var til umræðu í neðri deild 2. maí s.l. kom til nokkurra orðakasta milli viðskiptamálaráðherra, Gylfa Þ. Gíslasonar og Gunnars Guðbjarts- sonar, formanns Stéttarsambands bænda um framleiðni í landbún- aði. Fara hér á eftir meginatrið- in úr ræðu Gunnars Guðbjartsson- ar: Viðskiptamálaráðherra ræddi hér um hagkvæmni atvinnuveg- anna, fra-mleiðni þeirra og sam- keppnisaðstöðu. Komst hann að þeirri niðurstöðu, að landbúnað- urinn einn atvinnuveganna væri ekki samkeppishæfur á erlendum markaði, að hann sýndi of litla framleiðni. Ekki skýrði hann orsakir fyrir þessu, þó gat hann þess, að geysi mikil aukning hefði orðið í afla- brögðum í sjávarútveginum og samhliða því hefði útflutnings- verð sjávarafurðanna stórhækkað. Rétt er það, að aflabrögð í sjáv- arútvegi hafa stóraukizt, en þó hefði það dugað sjávarútveginum skammt, ef ekki hefði komið til sú feikna mikla verðhækkun, sem orðið hefur á framleiðsluvörum hans. Sú vei-ðhækkun hefur ennþá fleytt útgerðinni og bjargað henni frá strandi, en engin trygging er fyrir að slíkt haldi sífellt áfram. Ég held að mikið af iðnaðinum eigi nú í vök að verjast vegna verðbólgunnar. Aldrei er spurt um hagkvæmni í verzlun, viðskiptum og þjónustustarfsemi, þessir aðil- ar velta af sér kostnaðinum út í verðlagið og kynda undir dýrtiðar- bálinu. Landbúnaðurinn hefur auk ið afköst sín mjög mikið á undan- förnum árum. Það er rétt að af- staða hans til samkeppni erlendis hefur þrátt fyrir það stórversnað, því þar hefur verðlag landbúnað- arvara ekki hækkað, en fram- leiðslukostnaður innanlands stór- hækkað. Og hvers vegna hefur verðið ekki hækkað erlendis? Af því að það er ekki eðlileg eða frjáls verðmyndun meðal ná- grannaþjóða okkar á landbúnað- arvörum. Þær greiða landbúnað-1 inum mikinn hluta verðsins í bein- um og óbeinum styrkjum. T.d. fengu brezkir bændur 74% af nettótekjum sínum frá brezka ríkinu árið 1964. Norskir bændur fengu þannig 50% af nettótekj- um sínum, en íslenzkir bændur fengu aðeins tæp 40% af nettó- tekjum sínum á þann veg og þá eru útflutningsbætur meðtaldar. Bretar greiða sínum bændum háa stofnstyrki til ræktunar og húsabóta, þeir greiða niður verð rekstrarvaranna, svo sem áburðar og fóðurbætis, þeir greiða fram- leiðslustyrki pr. grip og svo greiða þeir uppbætur á afurðaverðið. Svipað er þessu farið meðal annarra nágrannaþjóða okkar. Hefur þá verðlag íslenzkra land- búnaðarvara hækkað meira en annað verðlag, t.d. kaupgjald á undanförnum árum? Nefndin, sem undirbjó þetta frumvarp lét athuga það. Mjólkurverð til bænda í verð- lagsgrundvelli hefur hækkað síðan 1943 um 633.9% miðað við sept. — des. s.l. En tímakaup verkamanna á sama tíma: almennur taxti 725.3% ifiskvinna 742.5% (hafnarvinna 781.1% Með öðrum oröum hefur tíma- kaup verkamanna hækkað rúmlega 100 stigum meira á s.l. 23 árum. Kjöt hefur hækkað svipað og al- mennur taxti verkamannakaups. Þetta þýðir, að allar kjarabæifur i landbúnaðinum eru fengnar með aukinni framleiðslu og hagræð- ingu í landbúnaðinum sjálfum og auk þess h efur landbúnaðurinn skilað til þjóðarbúsins lækkuðu mjólkurverði í samanburði við kaupgjald verkamanna. Því skal ekki neitað að erfitt er að flytja út vinnsluvörur úr mjólk, enda er verðlagningu hag- að með öðrum hætti á þessum vörum meðal nágrannaþjóða okk- ar en hér. M.a. eru vinnsluvörur víða seldar á raunverulegu niður- greiðsluverði, en það er ekki hér. Landbúnaðurinn á í erfiðleik- um með þennan útflutning eins og sakir standa, en bað er ekki af því að framleiðni sé lítil í land- búnaðinum, heldur vegna verð- bólgunnar, sem hefur magnazt síð- ustu 5—6 árin meira en nokkru sinni áður. Árið 1960 þurfti land- búnaðurinn lítið sem ekkert að nota útflutningsbætur, þó að nú séu þær orðnar allmiklar og full- nægi ekki þörfinni til að bæta all- an útflutninginn í innanlandsverð. Þar til kemur hin mikla og sí- vaxandi verðbólga. Eg hefði nú vænzt þess, að úr því að hv. við- skiptamálaráðherra fór að ræða vandamál landbúnaðarins að þá benti hann á einhver úrræði til stöðvunar verðbólgunnar. Þar ligg- ur megiii vandinn, höfuðvandamál allra okkar atvinnuvega. Það kann svo að fara fyrr en varir að aðrir atvinnuvegir, þar á meðal sjávar- útvegurinn fái að kenna harka- lega á dýrtíðarbálinu. Sam- tök bændanna hafa fullan skiln- ing á því að hagræða framleiðsl- unni eftir markaðsaðstæðum bæði heima og erlendis, en það er til of mikils mælzt að ætlast til að bændastéttin skeri niður fram- leiðslu sína í þjónustu verðbólgu- stefnu ríkisstjórnarinnar. Ég vænti þess, að þetta frum- varp, ef að lögum verður, tryggi betur en hingað til, að bændur hafi sambærilegar tekjur við aðr- ar stéttir, auk þess sem það skap- ar aukna möguleika til að hafa stjóm á framleiðslunni og eykur möguleika fyrir verðjöfnun milli framleiðenda. Ég vænti því þess, að hv. deild samþykki frv. MINNING Guðni Sævar Guðmundsson Hala Á gleðinnar stund gleymist oft hvað skammt er milli lífs og hels og hvað dauðinn er okkur þá fjar- lægur. En oft er hann nær en margur hyggur. Líklega hefur fáa grunað, í þeim hópi, sem var sam- ankominn f félagsheimilinu Ás- garður, í febrúar s.l. til leiks og lærdóms, að einn af þeim yngstu gengi þar sín síðustu spor og vera liðið lík nokkrum vikum síðar, fá- um klukkustundum eftir að sami hópur var að kveðja sinn ágæta leiðbeinanda. Þannig er okkar lífsins ganga, að enginn veit liver næst fellur. Guðni Sævar Guð- mundsson var fæddur í Reykjavík 27. des. 1942 og var því aðeins 23 ára, þegar hann dó. Foreldrar hans voru þau Guð- rún Magnúsdóttir, Ólafssonar frá Króki í Ásahreppi og Guðmund- ur Guðjónsson Einarssonar frá Rifshalakoti í sömu sveit. Þegar Sævar var 6 ára gamal) tóku þau hjónirn Guðrún Jóns- dóttir og Karl Ólafsson, Hala í Djúparhreppi hann í fóstur og átti hann heimili þar til dauða- dags. Naut Sævar bar mikillar ást- úðar og umhyggju, svo að engir fore.ldrar hefðu þar betur gert, enda meðhöndlaður eins og einn af systkinahópnum. Er hans líka sárt saknað af hinum öldruðu fást urforeldrum og börnum þeirra sak ir tryggðar hans, Ijúfmennsku og samvizkusemi, sem 'aldrei brást, enda einstaklega dagsfarsprúður og umgengisgóður. Vann hann því á heimilinu alla tíð eftir því sem kraftar leyfðu, en hann var aldrei heilsusterkur, og kærði sig ekki um breytingu, enda vissi hann að hvergi færi betur um hann, en þar sem hann var. Þegar Sævar liafði aldur til gekk hann í u.m.f. Ásahrepps og starf- aði þar æ síðar. Þar átti hann sínar fyrstu gleðistundir utan síns heimilis og þær einu, því hann var hlédrægör og ekki gefinn fyr- ir margmenni. Sótti hann því lít- ið þessar opinberu samkomur, sem nú tíðkast, enda ekki að hans skapi. Sævari þótti gaman að skemmta sér í mátulega fjölmenn um hópi, unni söng og naut sín vel í ferðalögum félaga sinna. Allt- af reiðubúinn að rétta fram hönd, ef með þurfti, bæði fyrir félag sitt og samferðamenn og til fyr- irmyndar hvað alla reglusemi snertir. Hafi hann þökk fyrir allt sem hann var félaginu sínu, því styrkur hvers félagsskapar byggist á fórnfúsum einstaklingum. Sæv- ar veiktist snögglega 25. febrúar af hættulegum sjúkdómi, sem leiddi hann til dauða 5. apríl sl. Var hann jarðsunginn að Kálf- holti 12. s.m. að viðstöddu fjöl- menni. Með Sævari er genginn góður drengur og mætti minning hans verða okkur sem eftir lifum hvatning til meiri og betri starfa fyrir einstaklinga og félagasamtök. U.mTélagL

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.