Tíminn - 06.05.1966, Qupperneq 12
FÖSTUDAGUR 6. maí 19GS
12
TÍMINN
MINNING
Sigyrður Steinþórsson
fyrrv. kaupfélagsstjóri
(Gredn þessi er endurprentuð
vegna þess, að hún var mjög
brengluð af prentvillum hér í
blaðinu í gær).
Sigurður Steinþórsson var fædd
ur að Litluströnd í Mývatnssveit
11. október 1899. Að honum stóðu
miklar ættir norðlenzkar. Faðir
hans var Steinþór Björnsson bóndi
og byggingarmeistari á Litluströnd
kominn af Bucksætt í föðurætt
en Þúfnavallaætt í móðurætt. Móð
ir Sigurðar var Sigrún Jónsdóttir
alþingismanns Sigurðssonar á
Gautlöndum og er því Gautlanda-
og Reykjahlíðarætt móðurkyn
hans.
Heimahagar Sigurðar Steinþórs-
sonar voru að Litluströnd. Þar
ólst hann upp hjá foreldrum sín-
nm og með bræðrum sínum fjór-
um en þeir eru Steingrímur frv.
forsætisráðherra, Þórir frv. skóla-
stjóri í Reykholti, Eggert læknir
í Reykjavík og Þorgils skrifstofu-
stjóri í Reykjavík — allir mann-
kosta- og hæfileikamenn eins og
þeir eiga kyn til. Um tvítugsald-
ur fór Sigurður úr föðurhúsum til
náms í Samvinnuskólanum í
Reykjavík og lauk þaðan prófi
með ágætum vitnisburði enda voru
námsgáfur hans frábœrar.
Tæplega 24 ára gamall
eða vorið 1923 réðist
ist hann kaupfélagsstjóri að kaup-
féiagi Stykkishólms og var hann
fyrsti kaupfélagsstjóri félagsins.
Þessu starfi gegndi hann síðan
í nærri þrjá áratugi að hann flutt-
ist tH Reykjavíkur. Sigurður kvænt
ist eftirlifandi konu sinni Önnu
Oddsdóttur, hinn 28. ágúst 1926.
Anna er dóttir hinna góðkunnu
hjóna Odde Valentínusarsonar
hafnsögumanns í Stykkishólmi og
Guðrúnar Hallgrímsdóttur. Hjóna
band þeirra Sigurðar og Önnu var
farsælt og heimili þeirra löngum
rómað fyrir snyrtimennsku, gest-
risni og rausn enda var þar jafn-
an gestkvæmt. Þau eignuðust fjög
ur mannvænleg börn, sem öll eru
á lífi en þau eru Steinþór list-
málari, Gunnar deildarstjóri hjá
Loftleiðum, Haraldur jarðfræðing-
ur og Sigrún bankaritari. Auk
þess ólu þau hjón upp tvær fóst-
urdætur, systurbörn Önnu, þær
Ingibjörgu og Önnu Þorvaldsdæt-
ur.
Fundum okkar §igurðar Stein-
þórssonar bar fyrst saman er
hann réðist starfsmaður raforku-
málastjóra um miðjan marzmánuð
1954. En þar höfum við starfað
saman síðan. Kynni mín af Sig-
urði þessi 12 ár hafa öll verið á
þann veg sem hann kom mér fyrir
sjónir við fyrstu sýn — bjartur
og hreinn.
Sigurður var höfðinglegur mað-
nent an Ioeear
1 8 S 33
ur í framkomu, hlýr og traust-
vekjandi. Hann var meira en með-
almaður á vöxt og svaraði sér vel
— léttur og snarlegur í hreyfing-
um, skaphress og skapfastur. Hvar
sem hann fór var honum veitt eft-
irtekt. Persónuleiki hans var slík-
ur sterkur og athyglisverður.
Starf hans sem fulltrúi hjá
raforkumálastjóra var mjög fjöl-
þætt og leysti hann það af hendi
með festu og trúmennsku til
hinzta dags. Hann var starfsmað-
ur ágætur og kunni því bezt að
vinna í hörðum skorpum.
Þegar Sigurður kom til raforku-
málaskrifstofunnar var hann öll-
um ókunnugur þar, en þó fór það
fljótt svo, að enginn á þeirri
stofnun var vinsælli en hann. Slík-
ir voru persónutöfrar hans. Við
kusum hann sem trúnaðarmann
okkar í Starfsmannafélag ríkis-
stofnana og reyndist hann í því
starfi, sem annars staðar hinn
ágætasti maður. En nú er hans
sakmað á raforkumálaskrifstofunni.
Sigurður lézt á Landakotsspítal-
anum laust fyrir hádegi á föstu-
daginn var, þann 29. apríl. Dag-
inn áður sinnti hann sínutm venju
legu störfum til kvölds. Að lokn-
um kvöldverði með fjölskyldu
sinni fékk hann aðsvif og komst
ekki til meðvitundar aftur. Það
var heilablæðing sem olli því.
Ég veit að ég mæli fyrir munn
alls samstarfsfólksins þegar ég
votta frú Önnu og öllum öðrum,
aðstandendum innilega samúð og
kveð Sigurð með þökk og virð-
ingu.
Páll Hafstað.
BARNALEIKT ÆKI
★
ÍÞRÓTTATÆKl
VéiaverícstapSi
BERNHARÐ5 HANNESS.,
Suðurtandsbraut 12,
Simi 35816.
Hef vélbáta til sölu, einnig
fiskverkunarstöð og skreið
arhjalla á Suðurnesjum.
Hef kaupanda að 25 til 40
tonna vélbáti.
Hef kaupanda að 3 til 5
íbúða húseign. (Má þurfa
standsetningar við).
ÁKI JAKOBSSON,
lögfræðiskrifstofa,
Austurstræfi 12,
sími 15939 og á kvöldin
20396.
BÍLAKAUP
Af sérstökum ástæðum er til
sölu:
MERCEDES BENZ 1413 ‘1966 j
óekinn, með nýjum palli og :
sturtum.
Höfum á boðstólum langferða-
bifreiðar, flestar stærðir og
árgerðir.
Vöruflutningabifreiðar við
allra hæfi.
Vörubifreiðar allar árgerðir.
Jeppabifreiðar við allra hæfi
með og án dieselvéla.
Fólksbifreiðir i mjög fjöl-
breyttu úrvali.
Þungavinnuvélar, svo sem ýtur,
ýtuskóflur, skurðgröfur.
Mótorhjól — Skellinöðrur.
Bifreiðar fyrir fasteignatryggð
veðskuldabréf,
Bifreiðar fyrir mánaðargreiðsl-
ur.
Leigubifreiðarstjórar. Athugið
að við höfum nú nokkrar ný-
legar MERCEDES BENZ bif
reiðar með hinum vinsælu
diesel-vélum sem henta
leigubifreiðastjórum sérstak-
lega vel.
BÍLAKAUP
BÍLASALA
BÍLASKIPTI,
Bílar við allra hæfi.
Kjör við allra hæfi.
Gjörið svo vel að líta inn.
BÍLAKAUP
Skúlagötu 55 Rauðará,
Sími 15 8 12.
PÚSSNINGAR-
SANDUR
VIKURPLÖTUR
Einangrunarplast
Seljum aliar gerðir at
pússningasandi, heim
fluttan og blásinn inn.
Þurrkaðar vikurplöfur
og einangrunarplast.
Sandsalan víð Elliðavog sf.
Elliðavog 115. sími 30120.
Klæðningar
Tökum að okkur klæðningar j
og viðgerðir á tréverki á bólstr i
uðum húsgögnum.
Gerum einnig tilboð í viðhald
og endurnýjun á sætum i kvik-
myndahúsum. félagsheimilum.
áætlunarbifreiðum og öðrum
bifreiðu i Reykjavík og nær-
sveitum.
I
I
j Húsgagnavinnustofa
BJARNA OG SAMÚELS,
Efstasundi 21, Reykjavik,
Sími 33-6-13.
Þorsteinn Júlíusson,
héraðsdómslögmaður.
Laugavegi 22,
(inng. Klapparst.),
sími 14045.
Jón Finnsson,
hæstaréttarlögmaður.
Lögfræðiskrifstofa,
Sölvhóisgötu 4,
(Sambandshúsinu 3. h.),
Símar 23338 og 12343.
Jón Eysteinsson,
lögfræðingur.
Lögfræðiskrifstofa
Laugavegi 11,
sími 21516.
SKÓR -
INNLEGG
Smíða Orthop-skó og inn-
legg eftir máli. Hef einnig
tilbúna barnaskó með og
án innleggs.
Davíð Garðarsson,
Orthop-skósmiður,
Bergstaðastræti 48,
Sími 18893.
Kjörorðið er
Einungis úrvals vörur.
Póstsendum.
ELFUR
Laugavegi 38,
Snorrabraut 38.
HÚSBYGGJENDUR
Smíðum svefnherbergis-
og eldhússinnréttingar.
SÍMI 32-2-52.
RYÐVORN
Grensásvegi 18, sími 30945
Látið ekki dragast að ryð-
verja og hljóðeinangra bif-
reiðina með
TECTYL
Jón Grétar Sigurðsson
héraðsdómslögmaður.
Laugavegi 28b, II. hæð,
sími 18783.
Hörður Ólafsson,
hæstaréttarlögmaður.
Austurstræti 14,
10-3-32 — 35-6-73.