Vísir


Vísir - 21.11.1974, Qupperneq 2

Vísir - 21.11.1974, Qupperneq 2
2 Vlsir. Fimmtudagur 21. nóvember 1974. vísnsm-- Ertu farinn aö tapa heyrn vegna hávaöa i vinnunni? Gunnar Þóröarson, járnsmiöur: — Ég held nú að min heyrn sé sæmileg i það minnsta miöað viö aldur. Ekki var annað að merkja á þeim mælingum, sem gerðar voru hér á starfsmönnunum og þar á meðal mér. Versti hávaðinn hér fiunst mér vera útvarpið. Þeir, sem eru með heyrnarhlifar, strekkja það upp úr öllu valdi. Siguröur Ingvason, járnsmiöur: — Ég vinn viö þó nokkuö mikinn hávaöa og hef gert i 38 ár, enda er heyrnin orðin mjög skert. Ég fór fyrst að nota heyrnahlifar fyrir 3 árum. Jónas Helgason, iönnemi: — Þaö er nú ekki langt siðan ég fór aö vinna i þessum hávaöa, um hálft ár. Ég hef ekki orðið var viö skerta heyrn, enda nota ég hllf þegar mest gengur á. Magnús Sigurösson, járnsmiöa- nemi: — Nei, enda hef ég ekki starfað við járnsmiðar það lengi. Ég nota llka hlifar þegar mikill hávaði er. Kristbjörn Theódórsson, vél- virki: — Ég hef ekki orðið var viö það, þótt ég hafi starfað i nokkuð miklum hávaða i á 5. ár. Ég fæ heyrnarhllfar frá vinnu- veitandanum, og þær hafa vafa- laust mikiö aö segja. Hjalti Jónsson, járnsmiöur: — Já, þaö hefur komið i ljós við prófanir, aö ég heyri ekki orðið hæstu tónana. Enda hef ég starf- að við járnsmiðar á fjórða áratug en slðustu 15-20 árin, hef ég notað eyrnatappa eða heyrnarhlifar, sem drepa niður mesta hávað- ann. LESENDUR HAFA ORÐIÐ RÖNG STEFNA AÐ STRÍÐALA DILKA A. haföi samband viö biaöiö: ,,Ég tel fulla ástæðu til þess að gera athugasemdir við þá þróun sem virðist i landbúnaði, aö bændur keppast við að ná sifellt meiri fallþunga dilka. Hefur fólk athugað hvað er að gerast með þessu? Það er ein- faldlega það, að dilkarnir eru aldir meira en gengur og gerist. Fyrir bragðið verða þeir spik- feitir, og þar er kominn mergur- inn málsins. Fólk hér á íslandi vill ekki feitt kjöt. Auðvitað eru til einstaka undantekningar, en þær eru fáar. En hvers vegna er þá verið að striðala dilka, til þess eins að framleiða kjöt sem er óætt vegna spiks? Þetta er ekki ann- að en sóun á fóðri bæði heyi og tilbúnu fóðri. Og hvaö fá bændur út úr þessu? Jú, þeir sem ná stærstu og feitustu dilkunum fá verðlaun, og nöfnin þeirra birt- ast I Tímanum og útvarpinu. Og þeir fá einnig meira fyrir kjötið. Fleiri kiló gera fleiri krónur. Kannski er það mergur- inn málsins. Ég vona að þetta veröi ekki talin „árás” á landbúnaðinn og tilraun til þess að koma honum fyrir kattarnef. Ég er einfald- lega að benda á það sem mér sýnist vera röng stefna I þessu ákveðna tilviki. Kjötið er framleitt fyrir ís- lendinga, og þá á það að falla að smekk íslendinga. Venjulegt fólk vill ekki kjöt af dilkum sem eru yfir 20 kg að fallþunga. En verðlaunadilkarnir ná sumir hverjir 35 kg fallþunga.” ÞUNNAR KÖKUSNEIÐAR MEÐ KAFFINU Kristján S. Jósefsson skrifar: „Ég finn mig knúinn til aö skrifa hér nokkrar línur. Ég borða á ákveðnum matsölustað hér i borginni. Fyrir nokkrum dögum kom ég I kvöldkaffi. Var þar fyrir gömul kona, sem af- greiddi mig með kaffi, og bað ég hana um eina jólakökusneið. Hún skar hana af kökunni og lét hana á litinn járndisk, en svo þunn var sneiðin, að hún datt i sundur. Ég bað þá konuna um þykkri sneiö, en þá vatt hún upp ' á sig i vonzku yfir þvi, aö ég skyldi ekki þiggja þessa sneiö, skar aðra I hasti, en sú sneið var ennþá þynnri. Ég sagði þá viö konuna að hún skyldi eiga þess- ar sneiðar, en ég borgaði 125 krónur fyrir kaffiö og þessa þunnu sneið. Ekki gaf konan mér neitt til baka, þótt ég tæki ekki jólakökusneiöina, svo þetta varð bara molakaffi. Svo kom ég I kaffi 19/11 á þriöjudagskvöldi. Varð þá fyrir mér sama „ungfrúin”, svo ég bað hana um kaffi, en rétt I þvi hreytti hún út úr sér: „Hvað viltu fá?” „Kaffi,” svaraði ég. Svo kom hún með kaffið, en mjólkina vantaði. Hún brá sér þá aö lúgunni, þar sem búið var að bera af borðum tók þar af- ganga úr könnum, sem gestirnir höfðu skilið eftir, og lét þá i eina könnu, svo ég hefði mjólk i kaffið. En ég neitaði að taka við þessari mjólk, sem var búin að standa lengi á borðunum eða aðrir voru búnir aö sulla I. Yfir þessu varö hún fjúkandi vond, að ég skyldi ekki þiggja leifarnar frá deginum, sem aörir skildu eftir. Endirinn varð þó sá, að ég fékk aðra mjólk, sem var boðleg. Tel ég þörf á aö þess háttar afgreiösla sé á annan veg, svo gestir fari þaöan út með gott kaffi og góða mjólk.” SJÓNVARPSÚTSENDINGAR TIL VESTFJARÐA LÉLEGAR Heiður Vestfirðingur skrifar: „Mig langar að koma á fram- færi óánægju með útsendingar sjónvarps til Vestfjarða. 1 lang- an tima hafa sjónvarpsút- sendingar hingað verið mjög lé- legar og myndin óskýr. Nú siðast i fyrrakvöld fór út- sending út um tima, og ná- kvæmlega það sama hefur gerzt næstu tvö kvöld á eftir, þ.e. seinast I gærkvöldi. Ég tel að kominn sé tími til þess að geta eitthvað til úrbóta I málinu. Fólk greiðir afnota- gjöldin á fullu verði fyrir þessa þjónustu, sem er miklu lakari en flestir aðrir landsmenn fá fyrir sömu peninga. Það er staglazt á sjónvarpsút- sendingum. Væri ekki nær að byrja á þvf að hafa svart/hvitar útsendingar boðlegar?” HRINGIÐ í sima86611 KL13-15 HVERSVEGNA ER BARA HÆÐZT AÐ BINDINDISMÖNNUM? Ar eftir ár heldur Landssam- bandið gegn áfengisbölinu sitt þing, semur viturlegar og mannúðlegar ályktanir og held- ur sinn bindindisdag. A þeim degi er reynt að fræða, vekja og benda á voðann, sem steðjar að yngri sem eldri á þessu sviði samfélagsins. En samt gerist fátt til úrbóta og vandinn eykst með ári hverju. Landssamband gegn áfengis- böli er stórt orð, fögur hugsjón. Hið sama má segja um Bindindisráð kristinna safnaða Stórstúku Islands o.fl. 011 gera þessi samtök sinar tilraunir, eru sönn i viðleitni sinni, stór i sinni fátækt, bjart- sýn á bölþrungnu umhverfi. En almenningsálitið ýmis sef- ur eða hlær, setur upp grettu eða geiflar sig. Þar hefur nefnilega peninga- valdið og heimskan kynt undir kötlum græðginnar og komið inn hjá fjöldanum sinnuleysi og litilsvirðingu. Og blinda al- mennings er svo algjör, heyrnarleysið svo hatrammt, að eyðingin hverfur og angistaróp- in heyrast ekki. Tjón af áfengis- bölinu meira en veiðar V-Þjóðverja í landhelgi Drykkjuskapurinn i landinu, slysin, tjónið, hjónaskilnaðirnir og hamingjuránið, sem af hon- um leiðir gerir þúsund sinnum meira tjón en Keflavlkursjón- varp og fiskveiðar Þjóðverja i landhelgi, og skal þó hvorugu mælt bót. Það er samt talið bera vott um þjóðhollustu að standa gegn menningarleysi myndanna og ráni togaranna, þótt litlu eða engu skárri myndirséu daglega sýndar I sjónvarpi hér, að ekki sé nú minnzt á kvikmyndahúsin, sem verða að keppa um klám og morð til að komast af með rekstur sinn. En i þá, sem vilja efla varð- stöðu, vernd og vöku gegn drykkjuskap er bara snúið baki og Heði hinum blinda — al- menningi á Islandi, fenginn mistilteinn háðsins i hendur til að skjóta að Baldri sannleikans, sem samt gengur seint að drepa alveg. Ríkið styður illa baráttuna gegn áfengisbölinu En hvers vegna? Er það kannski mammon og nú oröið sjálfur rikissjóður sem þarna kyndir elda heimskunnar? Þá höggur sá er hlifa skyldi. Þótt rikið sjái ekki sóma sinn I þvi að styðja við bak þeirra, sem berj- ast gegn böli drykkjuskaparins, fremur en milljónamæringur, sem gefur bezta barninu sinu fimmeyring til þroska, þá ættu þó vitrir menn að vita hve margar milljónir eða á nútíma- máli billjónir eða milljarðar — eða hvað þær nefnast þessar háu upphæðir — þarf til að kosta fangelsin, löggæzluna, sjúkradeildirnar og allt uppi- hald vesalinga, sem ekki megna sjálfum sér i sinni neyð að bjarga. Og vantar þó stöðugt fleiri hæli og stærri stofnanir, þrátt fyrir áfengisgróöann. Væri ekki nær að fylgjast með fræðslu Afengisvarnaráðs og bindindissamtaka i landinu, og vita aö þar er rödd sannleikans að tala. Sannleikurinn mun sigra Og sannleikurinn mun sigra, hvernig sem þeir krossfesta hann þá geta þeir ekki drepið hann. Fornmenn — sem ekki áttu þó eins víðan sjóndeildar- hring og nútiminn ætti aö eiga — trúðu á merkingu orðanna: „Mun böls batna. Mun Baldur koma”. Það var þeirra upprisutrú. Nú er baráttudagur Lands- sambandsins næsta sunnudag 24. nóv. Þá verður fræðslusamkoma i Safnaðarheimilinu við Sólheima kl. 8.30 að kvöldi. Þar segja AA menn frá. Sýndar verða kvik- myndir og fleira. Fjölmennið og leggið þannig lóð i vogarskál gegn vitfirringu áfengistizkunn- ar- Arelius Nielsson

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.