Vísir - 21.11.1974, Page 5

Vísir - 21.11.1974, Page 5
Vísir. Fimmtudagur 21. nóvember 1974. 5 REUTER AP ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Umsjón Guðmundur Pétursson Kroftaverkoð svo margir komust iífs af Hópur vestur-þýzkra sérfræðinga mun í dag reyna að grafast fyrir um> hvað olli fyrsta jumbó- þotuslysinu. Það þótti ganga krafta- verki næst, að níutíu og átta farþegar Lufthansa Boeing 747 komust lífs af, þegar vélin hrapaði nokkr- um sekúndum eftir flugtak í Nairóbi. En fimmtíu og níu fórust. Þeir, sem sluppu úr flugvélar- flakinu, þökkuöu lifgjöfina flug- freyjum og þjónaliöi vélarinnar, en þaö haföi ýtt á eftir farþegun- um út um neyðardyr alls staðar, áöur en flugvélin sprakk f loft upp. Margir komust út um göt, sem komu á flugvélarskrokkinn, en hann hrpkk i þrjá hluta viö brotlendinguna. Vélin var á leiö til Jóhannesar- borgar, þegar óhappiö skeöi. Sjónarvottar segjast hafa séð vél- ina missa skyndilega hæö, þegar hún var búin að lyfta sér um 100 fet frá jöröu. Þetta er I fyrsta sinn, sem jumbóþota ferst siöan þessi gerö véla var tekin i notkun fyrir 5 árum. „Svarti kassinn”, sem skráir sjálfkrafa niður allar staöreyndir um flugiö, fannst óskemmdur i flakinu, og vonast menn til, aö geta glöggvað sig á orsökum slyssins af honum. Þessar konur voru meöal þeirra farþega, sem lifs komust af úr flugslysinu I Nairobi. Gins og frá var skýrt i blaöinu i gær, létu Ibúar I Beit Shean heift sina i garö arablskra skæruiiöa bitna á likum þeirra þriggja, sem felldir voru I fjöl- býiishúsi þar. Þessi mynd barst þaðan af þvi, þegar múgurinn kveikti I lfkunum. Miss World samkeppnin Yfir fimmtiu gullfallegar stúikur munu birtast á sjónar- sviöinu I London á morgun ýmist I siökjólum eöa sundfötum og keppa urn titilinn „miss World”. Þaö er áætlað aö um 200 milljónir manna um heim allan muni viröa þær vandlega fyrir sér frá hvirfli til ilja I sjónvarps- tækjum sinum — auk svo þeirra þúsunda, sem viðstaddar verða samkeppnina. — Eða „kjöt- söluna” eins og jafnréttinda- samtök kvenna hafa kallað þetta. Þingið Þegar Nelson Rockfeller var spurður að þvi, hvi hann gengist undir hnýsni I einkamál sin og fjármál, og hvi hann vildi núna varaforsetaembættið, sem hann eitt sinn hefði dáraö, svaraöi hann: „Það vill svo til, aö ég trúi á skyldur og vil þjóna minu föður- landi. — Ennfremur vill svo til, aö ég er maöur, sem einfaldlega hef ánægju af þvi aö glima viö erfið mannanna vandamál. Ég er bara þannig gerður.” Þetta sagðihann þingmönnum i dag, en þeir búa sig undir aö tregt segja af eöa á um, hvort þeir samþykki skipan hans i varafor- setaembættið. — Þetta voru þing- menn fulltrúadeildarinnar, þeir sömu, sem fjölluöu um, hvort ætti aö láta Nixon svara til saka fyrir þingið fyrir geröir sinar I forsetaembætti. Nefnd öldungadeildarinnar, sem fjallaöi um varaforsetatil- nefninguna, hefur lokiö störfum, og er búizt við þvi, að hún muni meö yfirgnæfandi meirihluta at- kvæöa samþykkja Rockefeller. En búizt er viö þvi, að fulltrúa- deildanefndin muni draga máliö ögn á langinn. Kommúnistar í Finnlandi njóta róða í Kreml Eitt af helztu blöðum Svia fullyrti i gær, að það hefði aðgang að leyndarskjölum, sem sýndu, að Sovétrikin væru að vinna að þvi i gegnum sendiráð sitt i Helsinki, að kommún- istar kæmust til valda i Finnlandi. 1 grein I „Svenska dagbladet” er sagt, að skjöl þessi geymi samræöur Rússanna og leiötoga 1 finnska kommúnistaflokksins, og 1 þar komi fram áætlanir um aö sósialisera smám saman finnskt þjóöfélag. Auk þess er finnsku kommúnistunum gefin ráö um, hvernig þeir eigi aö grafa um sig I hernum og lögreglu landsins. 1 greininni er ennfremur sagt, aö á fundi I Moskvu I júli sl„ þar sem finnskir fulltrúar hafi veriö gestir, hafi Rússar gefið þeim góö ráð um, hvernig bezt yröi sölsuö undir sig öll völd I landinu. „Svenska dagbladet” sagði, aö ein meginhindrun þess, aö ráöa- gerö Sovétmanna kæmist i fram- kvæmd, væri hugmyndafræöi- legur klofningur innan finnska kommúnistaflokksins, þar sem endurskoöunarsinnar mynda eina fylkingu og Stalinistar aöra. Stepanov, sendiherra Rússa I Finnlandi, kvaö samkvæmt þessari grein „Svenska dagblad- ets” hafa fengiö fyrirmæli um aö beita öllum ráðum, diplómatiskum og minna diplómatiskum, til þess aö ryöja þessari hindrun úr vegi. Kommúnistar eiga 37 þingsæti af alls 200 á finnska þinginu. Moro myndar stjórn Stjórnarkreppa italiu sýnist nú vera á enda, þannig að stjórnmála- menn geti snúið sér af alvöru að þvi að glíma við þann gifurlega efna- hagsvanda, sem ítalir eiga við að striða. Aldo Moro, væntanlegur for- sætisráðherra, skýröi Giovanni Leone forseta frá þvi I gærkvöldi, að hann gæti nú myndaö minni- hlutastjórn kristilegra demó- krata og svo lýöveldissinna. — Þar með yröi endi bundinn á sjö vikna öngþveiti. Hin nýja stjórn veröur sú 37. siöan fasistum var velt úr sessi. Hún mun njóta stuönings sósial- ista og sósialdemókrata. Moro mun i dag búa út ráö- herralista sinn, sem hann mun væntanlega leggja fyrir Leone forseta fyrir helgi. Ef allt gengur að óskum, ætti hann aö geta kynnt stjórn sina I þinginu I byrjun næstu viku til að fá yfirlýsingu um trúnaöartraust. Tveggja óra smyglrannsóknir Tveggja ára eiturlyfjarann- sóknir, sem teygzt hafa frá Noröurlöndum til Asiu, náöu hámarki i gær, þegar 46 manns voru ákæröir fyrir hlutdeild 1 smygli heróins og ópiums aö verömæti um 25 milljónir Bandarikjadaia. — Eiturlyfjunum á aö hafa veriö smyglað frá Asiu til Banda- rikjanna og Kanada. Sextán hafa veriö handteknir i New York, San Francisco, Vancouver og Brezku Kolombiu, en hinna er leitaö I Evrópu og Asíu. — Flestir hinna kæröu eru Kin- verjar, en meðal þeirra, sem er leitaö, eru Noröurlanda- búar og Þjóöverjar. Eiturlyfjunum á fólk þetta að hafa smyglað meö flug- vélum og skipum frá Asiu. — Rannsókn á máli þessu hefur staöiö i tvö ár, að sögn rikis- saksóknarans I New York.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.