Vísir


Vísir - 21.11.1974, Qupperneq 7

Vísir - 21.11.1974, Qupperneq 7
Vlsir. Fimmtudagur 21. nóvember 1974. 7 cyVIenningarmál HNEGG Það var ekkert meðalhross sem lagði af stað listveginn hérna um árið þegar Stein- grimur Sigurðsson hóf listmálun sem atvinnu, heldur foli svo ótaminn að enginn bönd héldu honum, grindverk myndbyggingar var mölbrotið, litum var þeytt einsog undan hóf- um og afleiðingin varð sjaldan fugl né fiskur. Óstýrilætið og lifsbar- áttan settu sitt mark á verkin en þrjóska lista- mannsins hélt honum á skeiði gegnum árin. Maraþonmálunarferð- ir um landið og önnur lönd, hraðinn var ávallt MYNDLIST eftir Aðalstein Ingólfsson sá sami, og lifsfjör málarans óþrjótandi. Steingrímur er sennilega eini málari I heimi sem hefur gert sér ferð til Kennedyhöfða til að mála i hvelli kraftmestu og hröðustu maskinur þessa heims, eldflaugar, og það á flugi. Þannig er Steingrímur liklega arftaki fútúristanna, og er ekki sýnt að hann hætti i bili. Sýningafjöldinn er einnig tákn- rænn, 18einkasýningar, fleiri en flestir stórmálarar i Evrópu halda um lifstið. Og alltaf fór maður á sýningar Steingrims, ekki vegna myndanna, heldur vegna málarans sjálfs og þess bóhemska andrúmslofts sem rikti I kringum hann þar sem hann stóð með listamannshúfu og bál i augunum og útskýrði með drynjandi röddu tildrög og tilurð myndanna, hvatti til kaupa, striddi feimnum yngis- meyjum frá Stokkseyri, eða gaf afkvæmum sinum ordrur eins og hershöfðingi. Eða bara hló svo að glumdi i röftum. Þannig leit maður á Steingrim sem einskonar uppákomu, ,,one-man happening”, hressandi og styrkjandi eins og maltöl. En ekki ná allir þeir sem byrja við ósinn i listinni að finna uppsprettuna, og nú, á sýningu Steingrims i Hamragörðum, ber margt vott um að Steingrimur sé aö nálgast þá ljúfu lind, og folinn að spekjast og tölta fint. Vald Steingrims yfir litum hefur aukist mikið, og kemur i ljós að hann hefur auga fyrir afstrakt- formum og landslag hans er ekki lengur slæmt landslag, heldur Steingrimslandslag með karakter og fútti. ÞRYKKIFÉLAGIÐ Galleri SÚM er iðið við að fá hingað til lands sýnishorn af er- lendri list, og er það fagnaðarefni að þeir skuli sýna grafik eftir meðlimi hins danska „Trykkerbanden” frá Kaupmannahöfn. í fyrsta lagi er tækni hinna 14 listamanna sem sýna fyrsta flokks, samband þeirra við umheiminn beint, fölskvalaust og ástriðuþrungið, og i þriðja lagi stilla þeir verði mynda sinna i hóf. Af þessu þrennu geta islenskir lista- menn lært. Tæknin er fjölbreytt, seriógrafia, zinkógrafia, æting, offset þrykking, litó- grafia og dúkskurður. Knud Andersen sýnir fimm seriógrafiur i kringum sama mótifið, náttúruuppstillingu og hefur mjög gott vald yfir bæði tón og linu. Aske Dam sýnir fimm kringlóttar seriógrafiur, þar sem hann notar glans- myndaaðferð ljósmyndatækn- innar við uppstillingar á brúð- um og kúlum. Henrik Flagstad sýnir litlar myndaseriur i svart- hvitu þar sem hann rokkar á milli góðlátlegs gamans og biturrar ádeilu á efnishyggju- þjóðfélag. Johanne Foss sýnir fjórar litógrafiur með Grænland sem viðfangsefni og nær af mik- illi næmni að vinna með hrjúf form og grænhvita jökulliti á áhrifamikinn hátt. Henning Hansen er sennilega eini veiki punkturinn i sýningunni með ætimyndir sinar, sem eru ófeimnislega skrautlegar. Leif P ús B CL iii - 4* Seria eftir Henrik Flagstad Kath á hér fimm dúkskurðar- verk, sem mjög persónulegt litaskyn hans, myndbygging og viðfangsefni gera áhrifamikil. Mogens Kölkjær á hér flest verkin, myndskreytingar sinar á bók spænska absúrdleikrita- skáldsins Arrabal, „Bréf til Frankos hershöfðingja” fjögur plaköt um sama viðfangsefni og fimm serigrafiur. Kölkjær notar ýmis mótif og aðferðir til að ná áhrifum sinum og tekst vel upp. Serigrafiur hans eru hinsvegar ekki eins merkilegar. Mogens Nörgaard á hér fjórar litógrafiur, vandlega teiknuð mótlf af heimilistækjum og fleiru sem einkennir nútima- þjóöfélag og Ole Sporring bregður á meiri leik en aðrir þátttakendur, en á bak við dans- andi linur hans dregur hann upp myndir af frumstæðri menningu á undanhaldi undan nútiman- um. Ingelise Westman vinnur með seriur andlita og trjáa, sem hún svo endurtekur eftir vissum tónstiga. Aðrir listamenn hér eru þeir Sören Hansen, Sys Hindsbo, Jörgen Tang Holbek og Susanne mark og eru verk þeirra allra vel gerð og höfða bæði til samvisku okkar og formskynjunar. Sýningin stend- ur til 30. nóvember og eru öll verkin til sölu á hlægilega lágu verði. SKRAUT Steinþór Marinó Gunnarsson hefur undanfarið sýnt oliumál- verk og lágmyndir á Mokka. Málverk hans eru aðallega af hrauni og fjöllum og er einnig hraunsvipur á lágmyndum hans, þar sem hann virðist byggja upp hrjúfan flöt á masónlt e. eitthv. þ.u.l. með sandi eða plasti. Málar hann siðan ferstrend form ofaná, en litir hans vilja vera of sætir, og væmnir, og virka þær myndir hans sennilega betur sem vegg- skreytingar, fremur en sjálf- stæð málverk. MYNDLIST ÁBÁGT Á AKUREYRI Stjórn myndlistarfélags Akureyrar hefur afhent bæjar- stjóra Akureyrar fundargerða- bók félagsins til varðveizlu með þeim orðum að vonandi geti sú bók orðið siðar einhverjum áhugasömum mönnum og kon- um að gagni, verði gerð tilraun til þess að endurvekja eða stofna sams konar félag og Myndlistarfélag Akureyrar var. Leyfi ég mér i stuttu máli að rekja aðdragandann og or- sakir fyrir þvi, hvers vegna félagið hættir störfum. Myndlistarfélag Akureyrar var alltaf fámennt félag, oft voru fundir boðaðir en fáir mættu, margir kallaðir til starfa, en fáar hendur unnu þau verk sem vinna varð,(Svipaðar sögur geta án efa fleiri sagt i öðrum félagasamtökumj En þrátt fyrir fáar vinnufúsar hendur hefur félagið staðið að á annan tug sýninga og þykjast félagsmenn hafa skilað drjúgu skrefi i þá átt að gera Akureyri að betri bæ og skemmtilegri með þvi að bjóða upp á list- sýningar, en þann þátt fannst félagsmönnum vanta I bæjar- lifið. A meðal stærri verkefna félagsins og kostnaðarmeiri voru sýningar á verkum Þor- valds Skúlasonar og Asgrims Jónssonar, ennfremur hafa félaginu borizt fyrirspurnir frá þekktum listamönnum, um sýningaraðstöðu hér i bæ. Starf- semi félagsins var orðin öllum kunn, og sýndu fjölmiðlar félaginu mikinn áhuga sem þvi miður fékkst ekki hjá yfirvöld- um þessa bæjar. Jafnt sýningahaldi hafði félagið forgöngu um námskeið i sameiningu við Námsflokka Akureyrar og siðar stofnun myndlistarskóla i Mynd- smiðjunni, þar sem félagsmenn unnu mikið endurbótastarf við að koma húsinu, sem var I niðurniðslu i nothæft ástand. Það starf tókst að loknu þrot- lausu starfi og erfiði og virtist langþráður draumur vera að rætast, þar sem skólinn var og sú sýningaraðstaða, sem þar skapaðist. Hefur öll vinna sem félagsmenn lögðu þar fram, orðið að litlu, þar sem Akur- eyrarbær hefur keypt húsið fyrir Námsflokka Akureyrar og nýtt húsnæðið starfsemi þeirra þó svo að myndlistarskólinn hafa fengið þar inni. Ljóst er að málverkasýningar verða ekki haldnar i húsinu, þar sem veggir hafa verið rífnir niður til þess að húsnæðið megi betur aðlagast þeirri kennslu sem Námsflokkar Akureyrar bjóða upp á. Þarna hefur siðasta vigi Myndlistarfélags Akureyrar fallið og verður ekki annað hlaðið i þess stað. Er þarna eini boðlegi sýningar- salurinn sem til var á Akureyri rifinn úr höndum félagsins án þess að annar komi i staðinn. Fyrir um það bil 25 árum var Akureyrarbæ gefið listaverk af þeim hjónum Barböru og Magnúsi A. Arnasyni, og átti það að verða fyrsti visir að listasafni á Akureyri, sá draumur hefur ekki rætzt. Þess má lika geta að árið 1948 höfðu akureyskir fristundamálarar stofnað með sér félag, var þess getið i blöðum að bæjarbúar mættu verða hreyknir af þvi félagi þvi þá væri þess vonandi að vænta að áhugi á myndlist myndi glæðast og auka hin sorg- lega fábreyttu tækifæri, sem bæjarbúar hefðu til að kynnast listum. Endalok þess félags veit ég ekki. Myndlistarfélag Akureyrar gerði sitt til þess að glæða áhuga bæjarbúa á myndlist, en þvi miður varð aðsókn að sýningum dræm og fjáröflunarleiðir, sem félagið reyndi t.d. með þvi að gefa áhugafólki um myndlist kost á að gerast styrktar- félagar, mistókust nær gjör- samlega. Virðist hér gæta i vaxandi mæli þreytu i andlegum efnum og virðist hún aukast með hinni efnalegu velsæld, hvernig svo sem á þvi stendur. Hér hefur verið lögð rækt við tónlist og leiklist um árabil og skáld- skapur hefur átt hér höfuðból, en myndlist ávallt átt erfitt — og nú hefur Myndlistar- félagið verið logt niður uppdráttar og virðist allt benda til þess að svo veröi enn. An riflegra styrkja og aðstöðu til sýningarhalds getur Mynd- listarfélagið ekki starfað i fyrri mynd og vafasamt hvort grund- völlur sé til að reyna það enn frekar. Undirritaður veit að það hefði staðið öðrum nær að rita þessar linur þar sem margir hafa lagt fram meiri vinnu en hann innan Myndlistarfélagsins. Mér hefur |' verið þetta bréf óljúft verkefni, og ég hefði að sjálfsögðu kosið að til þess hefði ekki þurft að koma. En að lokum er þeim hér með þakkað sem lögðu félaginu lið i erfiðu tafli, sem fór ekki i bið, heldur varð það mát, ef til vill heimaskltsmát, en um það má vafalaust deila. Valgarður Stefánsson.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.