Vísir - 21.11.1974, Side 16
vísm
Fimmtudagur 21. nóvember 1974.
EYRNA-
GÖTUN
VARHUGA-
VERÐ
— ef ekki er gœtt
fyllsta hreinlœtis
„Niutlu prósent af þeim eyrna-
lokkum, sem viö seljum núna,
gera ráft fyrir gati I gegnum
eyraft”, sagfti skartgripasali, sem
blaftift haffti samband vift i gær.
„Þaö er þvi mjög vinsælt hjá
stelpum núna aö láta bora I
gegnum eyrnasneplana á sér”,
bætti hann viö.
Annar skartgripasali, sem
blaöiö haföi samband viö, sagöi,
aö allir þeir lokkar, sem kæmu til
þeirra núna, geröu ráö fyrir gati i
gegnum eyraö. „En þaö er alltaf
viss hópur, sem ekki vill láta bora
I eyrun á sér og þá setjum við
aöra festingu á lokkana fyrir
þær”.
Nú eru um fjórir skartgripa-
salar hér i bæ er taka að sér aö
gata eyru kvenna. 1 grein i
erlendu blaöi nýveriö var fjallaö
um þessar gatanir og varað viö
hættunni á þvi, að ósnyrtilegar
aðferöir viö þær kynnu aö dreifa
hepatitis, sem er virus, er veldur
lifrarbólgu.
Hepatitis er algengur i heitum
löndum, en þekkist einnig hér. Af
og til koma slik smittilfelli inn á
sjúkrahúsin hér.
Bent er á að samkvæmt
rannsóknum dreifist virusinn
meö illa hreinsuðum nálum svo
sem viö tattóveringu og eyrna-
götun.
Einnota nálar hjá læknum
koma algjörlega i veg fyrir smit,
en hjá gullsmiðunum, sem Visir
ræddi viö, eru sömu nálarnar
notaöar hvað eftir annaö. Þeim
er dýft i spiritus eöa sterkari
lausn á milli aðgerða, en sannað
er, að slikt drepur ekki umgetinn
hepatitis virus. Til að losna við
hann þarf aö sjóöa nálarnar i 20
minútur eöa eins og nú er algengt
aö dauöhreinsa þær með
þrýstingi.
„Þaö væri kannski eðlilegast,
aö læknar tækju aö sér að bora i
gegnum eyru. Þegar ég var
starfandi sem heimilislæknir var
ég sifellt að þessu, en það er þó að
sjálfsögöu undir læknunum
sjálfum komiö, hvort þeir vilja
gera slikar aögeröir”. Þetta
sagöi Skúli Johnsen
borgarlæknir, er blaöiö ræddi viö
hann.
„Þessi aðgerð er þó þaö litil, að
þaö er ekkert, sem getur bannað
gullsmiöunum að framkvæma
hana. Mér er ekki kunnugt um, að
hepatitis smit hér hafi mátt rekja
til svona aðgerðar, en hins vegar
kemur fyrir, að fólk fái slæmar
bólgur við þessar stungur”, sagði
Skúli.
—JB
HITA HÚSIN MEÐ
ÚRGANGSOLÍUNNI
Úrgangsolia frá smur-
stöftvum og bátum hefur mjög
svipaft hitagildi og svartolia og
hefur verift tekin i notkun til
húsahitunar hjá nokkrum
aftilum. Meft þessu er stórt skref
stigift til náttúruverndar, auk
þess sem hagkvæmt hlýtur aft
vera aft nýta þannig oliuna til
fulls.
Þessar upplýsingar koma
fram I nýtútkomnu fréttablaöi
Skeljungs. Meö tilkomu 100
mllna mengunarlögsögu hefur
úrgangsolía frá bátum verið
vaxandi vandamál, og það
magn, sem frá þeim kemur til
þessara nota, stóraukizt.
„Þetta er þó ekki mjög veru-
legt magn”, sagöi Böövar
Kvaran hjá ollufélaginu Skelj-
ungi. „Þaö fer nokkuö eftír
athafnatima. Það er fremur
langt slöan fariö var að gera
þetta hjá þeim aðilum, sem
aöstööu höföu til. En nú höfum
viö veriö beönir aö athuga
möguleika á aö taka á móti
úrgangsollu, sem ella heföi lent
I sjó eöa á aöra óheppilega staði.
Nokkrir aðilar, sem hita
húsakynni með svartollu, hafa
tekiö aö nota úrgangsolíuna. Viö
gerum þetta á stöð okkar i
Skerjafiröi. Flugfélag Islands
hitar stóra skemmu á Reykja-
vlkurflugvelli á þennan hátt.
Heildverzlunin Hekla, sem er
meö smurstöð, notar afgangs-
oliuna frá stöðinni og fær það
sem á vantar frá okkur. Einnig
veit ég ekki betur en Oliufélagiö
hiti upp hús sitt I Sundunum á
þennan hátt.
Þessa ollu er aðeins hægt að
nota, þar sem kynt er með
svartoliu. En þaö verður aö fara
meö gát og hafa eftirlit með þvi,
aö ekki séu hættuleg efni saman
viö, svo sem bensln. Viö erum
meö 1009 litra geymi fyrir
Olíumengunar-
vandinn
úr sögunni?
úrgangsollu og erum aö búa
okkur undir aö geta hitað ijann
og flýtt þannig fyrir uppgufun
skaölegra efna. Einnig er stefnt
aö þvl aö taka prufur af oliunni,
einkum til aö tryggja aö blossa-
mark sé ekki of hátt.
Ekki er hugsað að selja þessa
oliu á neinu veröi. En þaö liggur
kostnaöur I þvl að taka hana þar
sem hún fellur til, geyma hana,
fylgjast með efnainnihaldi
hennar og dreifa henni slðan.
Þann kostnað hugsum viö okkur
aö fá greiddan, en annaö ekki”.
—SH
Seldu kjötið í
Reykvíkinga
— Tilkynnt um 25 hrossoþjófnaði á
síðustu tveimur árum , eftir að
komst upp um hrossaþjófana tvo
— vísuðu á hrœ sem þeir höfðu grafið
Tvö hræ af hestum
voru grafin upp á Sel-
tjarnarnesi í fyrradag,
samkvæmt ábendingum
annars hrossaþjófanna,
sem sitja i gæzluvarð-
haldi í Hafnarfirði.
Hestunum höföu mennirnir
slátraö sjálfir, og selt kjötiö til
einstaklinga I Reykjavik. Haus,
bein og húöir höföu þeir grafiö
niöur á Seltjarnarnesinu.
Þetta eru einu hestarnir, sem
mennirnir hafa stolið, og drepið.
Þeir hafa viöurkennt aö hafa
stolið fimm öörum sem allir eru
lifandi. Þrir þeirra eru i vörzlu
lögreglunnar, og vitaö er um
dvalarstaö hinna tveggja. Þá
leikur einnig grunur á aö
mennirnir hafi stoliö áttunda
hestinum, og aö hann sé aö finna
fyrir norðan.
Annar hrossaþjófanna er
maður á miöjum aldri, og býr
hann á Kjalarnesi. Hinn er ungur
maður, og býr I Reykjavlk.
Menn þessir hafa staðið I ýmiss
konar viðskiptum. M.a. keyptu
þeir tvo kjörbúöarblla af Kaup-
félagi Hafnfiröinga, en þeir bllar
standa ógangfærir nú.
Eftir aö upp komst um hrossa-
þjófnaöi mannanna, hefur
rannsóknarlögreglunni i Hafnar-
firöi borizt vitneskja um 25 til 30
hrossahvörf á þessu ári og I fyrra.
Einnig kom I ljós, aö hasshund -
arnir fundu hræ af hesti grafið
niöur á æfingu I fyrra.
Dýraeftirlitsmaöur þeirra
Hafnfiröinga, Aöalsteinn Sigurös-
son, hefur nú I vörzlu sinni tólf
hesta, sem engin mörk hafa, og
ekki er vitaö um eigendur aö.
—ÓH
Lögreglumenn úr Hafnarfirfti draga fram hræin af hestunum sem
hrossaþjófarnir höfftu husiaft á Seltjarnarnesi.
frystikistur
BYÐUR GAMALT SÆLGÆTI TIL
SÖLU Á FÖLSKUM FORSENDUM
— Lions eiga í samkeppni um sölu á jóladagatölum, sem hreyfingin er með
einkaumboð fyrir hérlendis...
Þannig lita dagatöl Lions út. Þau
kosta 250 krónur, en sá. sem er
með dagatölin frá I fyrra tii sölu,
er heidur dýrari á þvl....
„Þaft var fyrir mistök nýs sölu
manns hjá þýzku framleiftend-
unum, sem tveir aftilar hérlendis
fengu sendingar af þessum sæl-
gætisjóladagatölum, sem vift i
Lionsklúbbnum Frey höfum haft
einkaumboð fyrir i fimm ár”
sagfti eitt Ljónift, Gunnar
Gunnarsson, i viðtali við Visi i
morgun.
„Annar þessara aðila féllst
þegar á það I fyrra að selja Lions
það, sem hann hafði fengið af
þessum jóladagatölum á
kostnaðarverði. Hinn aðilinn vildi
jú selja sitt, en með ósanngjarnri
álagningu” sagði Gunnar.
„Af þeim ástæðum varð þvi
ekkert af kaupunum og þessi
ákveöni aðili hélt áfram að selja
þetta sælgæti i samkeppni við
okkur”, hélt Ljónið áfram.
„Þegar Lions fékk svo sendingu
jóladagatala fyrir þessi jól og hóf
sölu þeirra, kom i ljós, að hinn
aðilinn var ennþá að selja
dagatölin og sælgætið frá I
fyrra”.
Og nú þyngdist brúnin á
Ljóninu til muna: „Þessi aðili er
greinilega ákveðinn i að losna við
afganginn núna og beitir til þess
óprúttnum aðferðum. Hann
gengur I hús og býður það til sölu
með þeim orðum, að ágóðinn af
sölu þess renni til Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra. Við fengum
þær upplýsingar hjá styrktar-
félaginu i gær, að það væri ekki
gert með þeirra vitund. Það
finnst okkur þó enn kuldaiegra af
þessum aðila, þegar hann þykist
vera á vegum Lions, þegar hann
býður dagatölin til sölu, en þess
eru dæmi”.
í þessu sambandi skal bent á
það, að Lions merkir sin dagatöl
mjög greinilega með nafni
hreyfingarinnar. Það skal líka
tekið fram, að skipt er árlega um
mynd á þessum dagatölum, en á
þvi einmitt má merkja aldurinn á
þeim.
Lions hafa sett lögfræðing i það
aö ieita réttar hreyfingarinnar i
máli þessu. —ÞJM