Tíminn - 22.05.1966, Qupperneq 11

Tíminn - 22.05.1966, Qupperneq 11
SONNUDAGUR 22. maí 1966 TÍMINN VERÐIR LAGANNA TOM TULLETT 67 8290 dollara greiðsla til Outshorn og Landau trygginga- félagsins í Antwerpen. 669.860 dollara skyldi yfirfæra til Banca Report í Lugano í Sviss á nafn George Kaufman. 6850 dollurum átti Kredietbank að halda eftir til ráð- stöfunar fyrir Hantra. Tveim dögum síðar var bréf með staðfestingu á þessum ráðstöfunum afhent Verbruggen, bankastjóra Kredietbank. Það gerði von Hornung nokkur, búsettur í Basel, og sam- tímis afhenti hann verzlunarreikninginn um söluna. Næsta dag kom maður sem ekki lét nafns síns getið í Krediet- k bank með ræðismannsreikninginn, gefinn út af portúgölsku ræðismannsskrifstofunni í Antwerpen, þar sem staðfest var að farmurinn hefði verið kominn um borð í skip 13. maí. Skipið sem um var að ræða hét Trianon, eigandi Wilhelm- sen útgerðarfélagið í Noregi, og skipamiðlun í Antwerpen var fulltrúi þess. Áður en þetta gerðist hafði Mayers nokkur, forstjóri fyrirtækisins Marinex í Antwerpen, snúið sér til Putshorn og Landau, og eftir nokkurra daga viðræður var samið trygg- ingarskírteini og sent Kredietbank. Næsta dag voru öll gögn komin í hendur bankans — farmskírteinið, verzlunarreikn- inurinn sem von Homung frá Basel kom með, ræðis- mannsreikningurinn sem óvíst var hver afhenti og trygg- ingarskírteinið. Þessi skjöl voru öll send til Goa í flug- pósti, og samkvæmt fyrirmælum frá Hantra yfirfærði Kredietbank 669.860 dollara til Lugano. Þrem dögum síðar gaf maður að nafni George Kaufman, búsettur í Mílanó, sig fram við Banca Report í Lugano og tók út í reiðufé 1.571.874 svissneska franka, jafnvirði 366.859 dollara. Afgang innstæðunnar, 303.000 dollara, lét hann yfirfæra til Hoffmann Bank í Zurich á reikning Klotz nokkurs. Sama dag fól Hoffmann Bank gullsölu í Zúrich að afhenda handhafa 1000 líru ítalsks ríkisseðils rúm- er 6/85/18364 fjóra kassa með sextán gullstöngum. Mað- ur sem ekki lét nafns síns getið gaf sig fram, framvísaði ítalska seðlinum með tilgreindu númeri og tók við gullinu. Næsta dag, 26. maí, dró fyrsta skýhnoðrann upp á heið- an vipskiptahimin. Kredietbank barst skeyti frá Banco Nati- onal Ultramarino í Goa með fyrirspum um nafn skipsins sem í hlut átti og áætlaðan komudag þess til Mormugao. Bank- inn, sem fengið hafði nafn skipsins gefið upp fjórum dög- um fyrr, sneri sér nú til fulltrúa norska útgerðarfélagsins í Antwerpen, en svar hans vakt skelfingu. Trianon silgdi ekki með hrísgrjónafarm og átti alls ekki að koma við í Mormugao. Símað var til Osló og þessi uggvænlegu tíðindi staðfest. Hraðskeyti vai; sent til Lugano til að banna greiðslu á 669.000 dollurunum. Það kom of seint, féð hafði verið greitt daginn áður. Nú kom allur svikavefurinn í ljós. Kredietbank sneri sér til belgisku lögreglunnar, sem hóf rannsókn á svikunum þegar í stað. í fyrstu virtist málið tiltölulega einfalt, en eftir því sem rannsókninni miðaði áfram varð það flóknara og flóknara. Rannsókn varð að framkvæma með milligöngu Alþjóðalögreglunnar í Belgíu, Sviss, Englandi, Frakklandi og Ceylon áður en tókst að ráða gátuna. Rannsókn hófst í Belgíu, og lögreglumenn þar komust að raun um að Mayers frá Marines hafði snúið sér til Kre dietbank snemma í apríl og spurt hvort bankinn vildi lána fé til að standa straum af flutningum til portúgalskra ný- lendna á Indlandi á vegum útibús Hantra í Basel. Mayers hafði einnig snúið sér til tryggingafélagsins til að ræða vá- trygginguna. Við leit í skrifstofum Marinex fundust skrifuð minnis- blöð sem málð vörðuðu og sýndu að Mayers hafði átt bréfaskipti við Hantra í Basel. Mayers var hnepptur í varðhald, sagðist ekkert vita um málið, en von Hornung, útibússtjóri Hantra í Basel, hefði upp á síðkastið fengið afnot af skrifstofu sinni. Hann hafði svo aðstoðað von Hornung við að leggja málið fyrir Krediet- bank. Við rannsókn kom í ljós að von Hornung hafði komið til Antwerpen frá Basel 26. maí ásamt þrem mönnum öðr- um, einn þeirra mælti á ensku en hinir tveir á frönsku. Þeir sátu síðan á ráðstefnum í skrifstofunni. Annar flokkur lögreglumanna athugaði skjölin sem Kre- dietbank voru afhent. Kom í Ijós, að farmskírteinið og ræð- ismannsreikningurinn voru fölsuð, bæði stimplar og undir- QANSAÐ Á DRAUMUM HERMINA BLACK 28 Og það mundi vera satt, samt hafði Jill það á tilfinningunni, að hr. Carrington væri ekki — óþarf- lega réttlátur þegar hann var reið ur eða hafði ákveðið eitthvað. Og hún gat ekki annað en hugsað að það eina sem hún hafði gert, var að fá yfirhjúkrunarkonuna til að finnast hún vera kjáni — en það hjálpaði ekki upp á sært sjálfs- traust hennar eða gerði hana fús- ari til að fyrirgefa Vere. Ekki það að hún léti sér detta í hug að hann óskaði eftir fyrirgefningu. XH. kapítuli. Sandra virtist vera rólegust af þeim öllum. Þegar Jill kom inn í herbergið þar sem ljóshærða dansmærin hall aði sér aftur á koddana, rétti sjúkl ingur hennar út hendina með hálf iðrandi, en fagnandi brosi. — Ó, Jill, ég er svo gefin að þú ert komin aftur, sagði hún. — Drottinn minn dýri! Það er eins og ég hafi verið burtu í marg ar vikur, sagði Jill. En þrátt fyrir allt tók hún í granna h'indina og var ómögulegt að vera ströng á svip. — Þú hefðir varla getað gert meira af þér, ef ég hefði veriðj hérna, bætti hún við. I — En það er allt í lagi með mig — er það ekki, Systir? Sandra brosti glaðlega til næturhjúkrunar- konunnar. — Ég fékk bara kúlu á höfuðið. Systir Farrow sá spyrjandi til- lit Jill og sagði: — Hún svaf vel og virðist ekki vera neitt verri. — Hm! Jill tók línuritið og at- hugaði það. Síðan sagði hún við starfsystur sína: — Mér þykir leitt hve ég er sein, en ég var að tala við yfirhjúkrunarkonuna. Þú skalt bara fara, Systir. Næturhjúkrunarkonan var feg- in að fá að fara — því satt að segja hafði hún verið hrædd við að yfirgefa hina prakkaralegu, ungu konu, þó hún væri í rúm- inu. — Jæja! Jill horfði á sjúkling- inn undan upplyftum augabrúnum. — Ég veit! samþykkti Sandra. — Ég á skilið að fá skammir — og ég mun sannarlega fá þær þeg- ar yfirmaðurinn kemur! Ég held að ég hafi verið heppin að hafa rotað mig og vera því ekki í heppi- legu ástandi fyrir „sprengjuárás!" — Heyrðu nú! Jill dró djúpt andann. — Þú ert — óforbetran- leg. Fyrst reynir þú að eyðileggja allt sem hefur verið gert til að reyna að hjálpa þér, og síðan ligg- jur þú bara þarna og brosir til Imín. Ég áfellis ekki hr. Carring- ton ef hann hýðir þig ærlega. Hún var reglulega gröm, því þegar allt kom til alls var það hún sem hafði fengið skammimar. — Ég gæti ekki verið meira sammála, sagði Sandra með af- vopnandi hógværð. — Ef ég væri þið, mundi ég kasta mér út! En í alvöru, þá var ég ekki að reyna að vera sniðug og hélt að ég vissi betur en læknirinn og hjúkrunar- konurnar. Þetta var bara ein af mínum heimskulegu augnabliks- hugmyndum, og ég hugsaði ekki um það sem ég var að gera. Mér leið alveg ljómandi vel og það virt- ist eins eðlilegt að standa upp og að anda. Mér datt aldrei í hug — — Að þú hefðir ekki staðið upp svo vikum skipti og yrðir að læra — virkilega læra að ganga upp á nýtt. Þegar Sandra hristi höfuðið. — Þú hlýtur að hafa séð smábbarn sem er nýfarið að ganga, og vita hvað kemur fyrir það ef það er ekki stutt? Sandra flissaði. — Já, það sezt harkalega niður og vælir. — Eða dettur á „nebbann“ — — Og rak höfuið í borðið — sem hlýtur að vera miklu sterk- ara en það lítur út fyrir að vera. En jafnvel það virðist vera að batna, sagði Sandra og bar hend- ina upp að sárabindinu. — Og ég er viss um að ég hef ekki eyði- lagt neitt. Ég get alveg hreyft fót inn og veifað tánum. Hreingern- ingar Hremgerningar með nvtízku vélum Fljótleg og vönduð vinna. Hreingerningar sf., Sími 15166, eftir kl. 7 e.h. 32630. 11 SKÓR - INNLEGG Smíða Orthop-skó og inn legg eftir máb Hef einnig tilbúna barnaskó með og án innleggs. Davíð Garðarsson, Orthop-skósmiður, Bergstaðastræti 48, Sími 18893. SERVÍÉTTU- PRENTUN SÍMI 32-101. OTVARPIÐ Sunnudagur 22- mai 8.30 Létt morgunlög 8.55 Frétt ir 9.10 Morguntónleikar. 11. Messa í Laugarneskirkju 12.15 Hádeigis- útvarp 14. 00 Mið- degistónleikar 15.35 f kaffitím anum 16.00 Guðsþjónusta fyrir Norðurlönd Biskup íslands hr. Sigurbjörn Einarsson, messar í Dómikirkjunni 17.30 Barnatími Helga og Hulda Valtýsdætur stjórna 18.30 islenzk sönglög: Liljukórinn syngur. 18.55 Til- kynningar 19.0 Veðurfregmr 19.30 Fréttir 20.00 Óbókonsert í Es-dúr eftir Bellini. 20.10 Með ferð lifandi máls Ævar R. Kvar an leikari flytur erindi. 20-40 Alþýðukórinn syngur. Stjórn- andi dr. Hallgrímur Helgason. 21.00 Á góðri stupd. Hlustendur í útvarpssal með Svavari Gests 22.15 Fréttir og veðurfregnir 22.25 Kosningafréttir — dans- tög og skemmtiefni. Dagskrár lok á óákveðnum tíma. — (01. 00 Veðurfregnir). Mánudagur 23. maí 7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádeg isútvarp 13.15 Búnaðarþáttur Agnar Guðnason ráðunaulur tal ar itm græn morgun fóður og illgresi 13. 30 Við 'vinnuna 15.00 Miðdegis útvarp 16-30 Síðdegisútvarp 18. 00 Á óperusviði Lög úr „Car men“ eftir Bizet. 18.45 Tilkynn ingar 19.20 Veðurfregnir 19. 30 Fréttir 20. Um daginn og v&g inn Árni Gunnarsson fréttamað ur talar 20.20 Nú er glatt í borg og bæ“ Gömlu lögin sting in og lei'kin 20.40 Á blaða- mannafundi Eiður Guðnason stj. 21.15 Konsert 1 A-dúr fyrir tvær fiðlur og strengiasveit „Bergmálskonsertinn" eftir Vi- valdi. 21.30 Otvarpssagan- Hvað sagði tröllið? eftir Þórleif Bjamason Höf flytur (7). 22. 00 Fréttir og veðurfregnir 22. 15 Hljómplötusafnið í umsiá Gunnars Guðmundssonar 23.J5 Að tafli Sveinn Kristinss. flyt- ur skákþátt 23-40 agskrárlok- HHHHHHHIMHMMRHHHHHHHlNpBiíi*--

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.