Vísir - 11.12.1974, Page 1
64. órg. — Miðvikudagur 11. desember 1974 — 250. tbl.
Lýsir sig saklausan af
9 millj. kr. tollsvikum
— en það á eftir að sannreyna — boksíðfl
„Hagstœtt atvinnuástand"
319 atvinnuiaus á landinu en voru 485 á sama tíma í fyrra
//Þetta er hagstætt at-
vinnuástand/" sagði Jón
Sigurpálsson, fulltrúi i
félagsmálar áðu-
neytinu/ í viðtali við Vísi.
Nú eru 319 atvinnulausir
á landinu/ en voru 485 á
sama tíma fyrir einu ári.
Heldur fjölgaði á atvinnu-
leysisskránni i siðasta mánuði,
alls um 105 manns. t Reykjavik
eru 52 á skránni, en þar af eru
33 bifreiðastjórar, sem sækjast
eftir vinnu hjá borginni en eru
ekki „atvinnulausir” i rauninni.
Fyrir mánuði voru 43 skráðir
atvinnulausir i Reykiavik.
Talan er óbreytt á Siglufirði,
31 maður. Á Húsavik eru nú 19
komnir á skrá en þar var eng-
inn atvinnulaus fyrir mánuði. 21
er atvinnulaus i Keflavik, voru
20 fyrir mánuði.
Vopnafjörður hefur hæstu tölu
þorpanna, 37, sem er fjölgun um
18. 34 eru skráðir atvinnulausir
á Stokkseyri og 29 á Eyrar-
bakka. Þarna hefur orðið
fjölgun, en á þessu svæði var
litið atvinnuleysi, þegar það var
mest i þorpum landsins fyrrum.
Nú eru 32 atvinnulausir á Hofs
ósi, en voru 9 fyrir einum
mánuði. Þetta var þó ekki taliö
merki um, að ástandið hafi stór-
versnað þar, en það hafði verið
gott, heldur sé „dagamunur” á,
hve margir hafi vinnu.
Alls eru 152 atvinnulausir i
kaupstöðum, 6 i kauptúnum,
sem hafa 1000 ibúa eða fleiri,
og 161 samtals i smærri
kauptúnum.
-HH.
7,7 milljarða hrun
gjaldeyrisstöðunnar
— fengum 10 þús. á hvert mannsbarn hjá alþjóðagjaldeyrissjóðnum
Gjaldeyris-,,sjóður-
inn” okkar er kominn
niður i um 960 milljónir
króna. Hann var i árs-
byrjun rúmlega 6,2 mill-
jarðar á þáverandi
gengi, sem mundi sam-
svara um 8,7 milljörðum
á núverandi gengi.
Staða okkar hefur þarna
versnað um 7,7 mill-
jarða króna á árinu.
Þetta er ekki gott, enda fáum
við nú stuðning frá alþjóðagjald-
eyrissjóðnum, 2200 milljónir
króna að láni, sem eru rúmlega 10
þúsund krónur á hvert manns-
barn i landinu. Þetta er nokkurs
konar jólaglaðningur. Við getum i
nánustu framtið keypt til landsins
meira af vörum en elia ,án þess að
gjaldeyrisstaðan fari niður fyrir
núllið.
„ Nýyrði"
og skamm-
degisspé
- bls. 12-13
Ef þið vœr-
uð ung í
annað sinn
—Vísir spyr ó bls. 2
Þeir Ijón-
heppnu
leyna ó sér
— baksíða
•
Nú ó að
vera farið
að snjóa
Margur bölvaði sér til hita
þegar hann kom út í morgun
og veitti ekki af, því frostið
var 9 stig I Reykjavik
klukkan sex og 8 stig
klukkan niu.
Samkvæmt upplýsingum
Jónasar Jakobssonar,
veðurfræðings, mun verða
komin sjókoma f Reykjavik,
þegar Visir kemur út I dag.
Jafnframt dregur úr frosti,
og spáð er regni eöa krapa-
éljum i nótt.
Klukkan niu I morgun
hafði dregið úr frosti á
vestustu kjálkum landsins
þannigaö aðeins eins stigs
frost var á Reykjanesi og
farið að snjóa þar. Frostið
hafði minnkað á Gufuskál-
um úr átta stigum i eitt, og
búizt var við, aö þannig
myndi fara á vestanverðu
landinu öllu, eftir þvi sem
snjókoman þokast inn ýfir.
t nótt var frostiö viða 10-12
stig á láglendi, kaldast á
Staðarhóli I Aðaldal, 13 stig.
Kaldast á landinu var í Sand-
búðum, 21 stig. -SH
13 DAGAR
TIL JÓLA
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn veit-
ir aðildarrfkjum sinum slika
. lánafyrirgreiðslu til að mæta
hluta af þeirri rýrnun gjaldeyris-
forða þeirra, sem stafar af hækk-
un oliuverðs og rfkin gætu ekki
staðið undir með öðrum hætti.
Fjárins er aflað með lántökum,
aðallega hjá rikjunum, sem flytja
út oliu og hafa grætt á hinu háa
verði.
t fbúöinni við Kleppsveg virðist sem eidur hafi komið upp samtimis á tveim stöft
um. Á myndinni er annar skápanna, sem eldurinn kom fyrst upp I. Ljósm. Bragi.
Mannlaus íbúð skemmdist í eldi:
VAR UM ÍKVEKKJU AÐ RÆÐA?
Eldur kom upp i kjallaraibúð
að Kieppsvegi 142 rétt fyrir
klukkan eitt I nótt og eru elds-
upptök mjög dularfull.
Slökkviliðið var kvatt á stað-
inn um klukkan eitt og var þá
nokkur eldur f fbúðinni. íbúðin
var mannlaus og varð að brjóta
rúöur til að komast inn. Fljót-
lega tókst að ráða niðurlögum
eldsins en Ibúðin er mikið
skemmd af reyk og eldi.
ibúðin var mannlaus, eins og
áður segir, og f morgun hafði
ekki tekizt að ná i ibúana. Ung
stúlka, sem bjó þarna i
kjallaranum var ekki talin vera
i b'ænum.
Rannsóknarlögreglan rann-
sakaði Ibúðina i morgun og
kom þá i ljós, að eldurinn hafði
verið mestur i tveim skápum,
sem þö eru fjarri hvor öðrum.
Þvi er taliö, að eldurinn hafi
jafnvel gosið upp á tveim stöð-
um f einu og gerir það eldsupp-
tökin mjög dularfull. 1 öðrum
skápnum var rafmagnsdós en
raflögn í veggnum á bak við
hinn. Rafmagnseftirlitiö veröur
þvf fengið til að kanna málið og
athuga, hvort rafmagn hefði
hugsanlega orsakað eldinn. JB.
Seðlabankinn hefur móttekið
framangreint lán til 7 ára. Það
verður afborgunarlaust i 3 ár, en
siðan endurgreitt á 4.
Nettó gjaldeyrisstaða okkar
var um áramót 6242 milljónir i
plús. Þá var gengi dollars hins
vegar 83,60 krónur. Þessar upp-
lýsingar er að finna I Hagtölum
mánaðarins, sem Seðlabankinn
hefur frumkvæði að. Gengi doll-
ars er nú um 117 krónur, svo að
leggja þarf um 40% ofan á gjald-
eyrisstöðuna frá áramótum til að
fá tölur, sambærilegar við núver-
andi stööu. Útkoman úr þessu
veröur, að gjaldeyrisstaðan hafi
verið um 8,7 milljarðar i plús um
siöastliðin áramót, þegar hún er
metin á núverandi gengi. Hrun
gjaldeyrisstöðunnar er þvi rúm-
lega 7,7 milljarðar frá þeim tima,
þar sem staðan er nú komin niður
fyrir einn milljarð.
Framundan eru miklar skuld-
bindingar um greiðslur, meðal
annars þarf að greiða Sovétrikj-
unum 1200 milljónir, sem er hluti
af skuld, sem myndazt hefur á
þessu ári vegna olfukaupa. Lán
alþjóöagjaldeyrissjóðsins leysir
þvi mikinn vanda. Hluti þess
verður notaður til að standa við
aösteðjandi skuldbindingar, en
hluti verður látinn fara til að
styrkja gjaldeyrisstöðuna al-
mennt.
—HH