Vísir - 03.01.1975, Blaðsíða 1
VISIR
65. árg. — Föstudagur 3. janúar 1975 — 2. tbl.
Jkumenn áttu í
Ikrir ökumenn lentu i
fiBleikum meö akstur i
/kjavik i morgun, og þurfti
eglan að hjálpa mönnum,
fest höföu bila sina.
fckki stafaöi þetta þó af þvi,
Ifannfergi væri tiltakanlegt,
Jdur lentu menn út úr
förunum af ýmsum ástæöum.
Viöa var mjög blint,
skafrenningurinn náöi
strik, og varö þaö til
menn sáu ekki gHj
fóru. Einnig r
hjólförum og
unum milli og uta
förin.
Ekki ber verulega á
þar sem
sér vel á
þess, aö
ar þeir
ar út úr
itöfl-
hjól-
að bilar
séu illa búnir til aksturs
en sumar geröir bila eru
hæfar til vetraraksturs
komast helzt ekkert nem.
keöjum. Einnig mun no
bera á þvf, aö menn kunna
aö aka i snjó og hálku, þrátt
fyrir nábýlið viö heimskauta-
svæöiö. —SH
....——.............-J
Tveir struku af Hrauninu
— annar hefur farmiða til Kaupmannahafnar upp ó vasann
Tveir fangar struku af
Litla-Hrauni i
gærmorgun. Annar
þeirra hafði undir
höndum opinn farmiða
til Kaupmannahafnar,
sem gildir hvenær sem
er.
Fangarnir eru ungir piltar,
annar 19 ára og hinn 21 árs.
Þeir voru viö vinnu I fangelsis-
garöinum i gærmorgun ásamt 18
öörum föngum. Fangarnir unnu
viö gerö netasteina og hellugerö.
Mikiö hriðarkóf var og dimmt úti.
Um klukkan tiu varö þess vart, aö
þessa tvo vantaði i hópinn. Leit
var þegar hafin, bæði I nágrenni
fangelsisins og á vegum i átt til
Reykjavikur. Piltarnir fundust
ekki.
Ef flugvélar eru ekki fullar,
mun auðvelt að komast með þeim
án nokkurs fyrirvara á opnum
farmiöa.
Flugvél frá Flugleiðum átti að
fara til Kaupmannahafnar um
niuleytið I gærmorgun. Henni
seinkaði hins vegar og fór ekki
fyrr en um tólfleytið. Er þvi ekki
loku fyrir þaö skotið, aö fanginn
hafi náð þeirri flugvél, ef hann
hefur haft snör handtök.
Taliö er, aö fangarnir tveir hafi
annaðhvort farið á puttanum til
Reykjavlkur eöa bill hafi komið
til aö sækja þá. Fangelsishliðið
var opiö, og munu piltarnir hafa
laumazt þar út, þegar
snjóhryöjur gengu yfir. '
Piltarnir tveir komu samtimis
á vinnuhæliö aö Litla-Hrauni I
byrjun desember.
Lögreglan á Keflavikurflug-
velli var látin vita I morgun af
þessu máli, og var flugvél til
Kaupmannahafnar I morgun höfö
undir eftirliti. Sú vél fór I loftiö
klukkan tiu, án þess að fangarnir
geröu tilraun til að komast um
borö I hana.
—ÓH
Skelfing
greip
um sig
í íbúðablokk
— Baksíða
Skemmdar-
vörgum
refsað
— Baksíða
Verkamenn
í kulda
og trekki
— Baksíða
Ofsarok á Eskifirði:
Bílar fœrðust
úr stað
Fárviöri gekk yfir Eskifjörö
snemma i gærmorgun. Geysi-
hvöss vestan átt var, og er
mest blés frá þvi um hálffimm
um morguninn til hálfsjö, fuku
þakplötur af nokkuö mörgum
húsum.
Þak á einu húsanna á Eski-
firöi lyftist af stafni og hrundi
klæðningin innan úr þvi.
Algjörlega óstætt var úti viö
og færöust jafnvel bilar úr
stað. Þannig var það t.d. um
sendiferöabil, sem stóð á
bersvæði, að hann færðist um
6-8 metra, en alltaf á hjólunum
samt. Ómögulegt var að
komast að bilnum til að koma
honum i skjól vegna þess, hve
hvasst var.
Veðrið lægði, er leið að
hádegi, og I morgun var hið
bezta veður á Eskifirði.
—JB
VÁ! - ER ÞAÐ NÚ KULDINN!
Þær höföu búizt viö þvi, aö hér
væri kalt, en ekki svona svaka-
lega, sögöu bandarisku hand-
knattleikskonurnar, sem i
kvöld, leika sinn fyrsta lands-
leik um ævina I Laugardals-
höllinni. Þær komu til landsins í
gær eftir mikiö og strangt feröa-
lag frá Bandarikjunum til
Luxemborgar og svo til tslands,
þar sem ekki var hægt aö
lenda hér. Og loks, þegar þær
komu hingaö, tók ósvikin is-
lenzk vetrarveörátta á móti
þeim. Sjá nánar um komu þess-
arar kvennasveitar i opnunni.
Ljósmynd Bj.Bj.
André
Previn
út-
keyrður
— aflýsir forinm
til íslands
Ráðgert var, að sá frægi
tónlistarmaöur André Previn
léki einleik með sinfóniu-
hljómsveitinni á hljómleik-
unum 9. janúar.
Miklar annir hafa veriö hjá
Previn aö undanförnu og hann
þvi orðinn útkeyrður. Hefur
Previn af þeim sökum aflýst
för sinni til Islands.
Vonazt var til þess i lengstu
lög, að Previn næði sér eftir
veikindin, i tima og kæmist
þvi á tónleikana hjá sinfóniu-
hljómsveitinni.
Nú er ljóst, aö af tónleikum
Previn getur ekki orðið.
Umboðsmaöurinn erlendis
hefur i hans stað útvegað
pianósnillinginn brasiliska,
Christinu Ortiz, til að leika á
hljómleikunum þann 9.
janúar.
Efnisskráin er óbreytt.
Leikin veröa verk eftir
Musorgski, Rachmaninov og
Sjostakovitz.
—JB
Versta veðrið á
Faxaflóasvœðinu
Versta veðrið á
landinu virðist i nótt og
morgun hafa verið um-
hverfis Stór-Reykja-
vikursvæðið, aldrei
þessu vant. Vindhraðinn
komst hér upp i 40
hnúta, klukkan sex i
morgun, samkvæmt
upplýsingum Markúsar
Á. Einarssonar, veður-
fræðings.
Við Vestfirði er lægð, sem er þó
aðeins að grynnast, en hún veldur
hvassviðri og miklum éljum,
einkum vestan- og suðvestan-
lands. Mest er hvassviðrið á
Faxaflóasvæðinu, en dregur úr,
þegar lengra kemur. Élin ná
vestur um land til Eyjafjarðar og
suöur um land til Suðaustur-
lands, en á austanveröu Norður-
landi og Austfjörðum er skaplegt
veður.
Ekki er búizt við stórvægi-
legum breytingum á veörinu i
dag, en þó gæti lægt eitthvaö og
dregið úr éljunum, þegar dregur
að kvöldi.
Drjúgmikill snjór hefur komið
úr þessum éljum, en þó mun fært
alla leið austur i Berufjörð um
Suðurland. Þæfingur er fyrir litla
bila á Hellisheiði og versta veður,
en þar voru ruðningstæki að
störfum strax i morgun til að-
stoðar. Smábilar eiga einnig
erfitt viða I Arnessýslu og vafa-
samt að leggja upp á þeim þar og
yfir Hellisheiði. Nokkrar vega-
skemmdir urðu af leysingum i
Skaftafellssýslu, einnig á Lóns-
heiöi og austan hennar, en þar
mun orðið sæmilegt yfirferðar.
A leiðinni yfir Hvalfjörð og I
Borgarfirði var vonzkuveður, en
ekki tiltakanlega mikill snjór.
Fært var um Heydali og Snæfells-
nes norðanvert i morgun, en
meðan Visir var að ræöa viö
Hjörleif ólafsson, vegaeftirlits-
Þœfingsfœrð
víðaó Vestur
og Suðurlandi
og sums
staðar ófœrt
mann, komu fréttir um, að vit-
laust veður væri komið I Stykkis-
hólmi og grennd og óvist um alla
færð.
Holtavörðuheiði var gersam-
lega ófær. Þar var áætlunarbil og
einhverjum fleiri hjálpað yfir I
gærkvöldí og stóð til að reyna
slikt aftur i dag, ef viðlit yrði.
öxnádalsheiði var opnuð i gær, en
lokaðist aftur I nótt. Þar átti að
reyna að opna aftur I dag.
—SH
1