Vísir - 22.01.1975, Blaðsíða 3
Vísir. Miövikudagur 22. janúar 1975.
3
Lögreglan í Keflavík rannsakar dularfullt laxahvarf:
Hefurðu rekizt á hvítan lax?
Hefurðu rekizt á vel
uppalinn lax nýverið?
Það er að segja það vel
uppalinn lax, að „hold
ið” á honum er hvitt en
ekki bleikt, eins og á
þeim, sem berjast
verða fyrir brauði sinu
sjálfir.
Saknað er 1800 slikra laxa,
1,5—2,5 pund að þyngd, sem
kappaldir voru i flotneti út af
Höfnum á Suðurnesjum. Flot-
netið var strengt milli skers og
lands, en rak svo dag einn á
fjörur i Sandgerði. Rannsóknar-
lögreglan i Keflavik er að
kanna, hvort hugsanlegt sé að
skoriö hafi verið á festingar
netsins og laxinum stolið úr þvi.
Hefði fiskræktarfélagið á staðn-
Lögreglan kannar nú.hvort netið hafi tekið upp af mannavöldum eða ekki.
Ljósm. Bragi.
um náö að ala laxinn fram á
næsta haust hefði það fengið 8
tonn af fyrsta flokks laxi, sem
selja má á 3 milljónir króna.
Hugsanlegt er einnig, að netið
hafi slitnað upp og fiskarnir
sloppið úr er netið rifnaði á
skerjum. Slikt þykir þó ólik-
legra, þar sem kaðlarnir virðast
vera skornir.
Laxinn var alinn i neti, og
hefði ekki lifað lengi i sjó, hefði
hann sloppið þangað. Hafi
laxinum aftur á móti verið stol-
iö, leynir liturinn ekki hvar
hann er fenginn. Þætti lögregl-
unni gott að frétta af þvi, ef ein-
hverjum hefur verið boðinn
hvitur vel uppalinn lax til
kaups. _ IR
Skarphéðinn Njálsson, lög-
reglumaður i Keflavík, sem nú
rannsakar málið, með eitt
bandanna, sem virðist hafa ver-
ið skorið i sundur.
Sandgerðingar vissu ekki hvaðan á þá stóð veðrið, er þennan grip
rak ásamt stórri flotgirðingu á iand hjá þeim. Maður frá land-
helgisgæzlunni var fenginn til að athuga gripinn og sá hann, að hér
var sjálfvirkur fóðrari á feröinni. Skömmu siðar tilkynnti fiskifélag
i Höfnum dularfullt hvarf á rekneti þess og löxunum er I þvi voru.
HVERS KONAR VARZLA OG
MEÐFERÐ KÓKAÍNS ÓHEIMIL
„Hér er aðeins verið að skera
niður möguleika á notkun efnisins
i lyf,” sagöi Almar Grimsson,
deildarstjóri I heilbrigöis- og
tryggingaráðuneytinu um aug-
lýsingu, sem birt er i Lögbirt-
ingablaðinu 10. þessa mánaðar.
Þar er sagt frá þvi, að hvers kon-
ar varzla og meöferð kókains sé
óheimil frá og með 15. janúar
1975, að tveimur nafngreindum
Tveir menn i Þorlákshöfn þótt-
ust á laugardaginn verða varir
viö grunsamlegar ferðir þriggja
Rússa þar i bænum. Að þeirra
sögn voru þeir þar á ferð i austan-
tjaldsbíl með CD skildi, sem
táknar, að billinn tilheyri sendi-
ráði.
Vitanlega verður mönnum
mjög bilt við, er slikt farartæki
sést á ferð. Mennirnir höfðu þó
rænu á að fylgjast með bilnum og
þóttust þeir sjá farþegana fara út
úr bflnum og niður i gryfju við
bæinn og pukrast þar með ein-
hver tæki, sem sjónarvottarnir
töldu vitanlega vera senditæki.
Þeir höfðu samband við lög-
regluna vegna þessa athæfis og
fylgdist lögreglan frá Selfossi,
sem þarna var á ferð I bll, með
sovézku sendinefndinni i smá-
stund, án þess þó að nokkuð kæmi
i ljós annað en að manngreyin
væru þarna á sakleysislegum
helgarakstri.
Austantjaldsbfllinn ók niöur i
lyfjum undanskildum.
Kókain hefur nær eingöngu ver-
ið notað I lyf til útvortisnotkunar,
en til eru önnur staðdeyfilyf, sem
koma að sömu notum, og nú á að
nota þau eingöngu, að þessum
tveimur undanskildum.
Auglýsing þessi á þannig eink-
um erindi til lækna og lyfjafræð-
inga.
1 sama blaði er listi yfir lyf,
Þorlákshöfn, framhjá kirkju-
garðinum og fram á Berg, sem
teljast verður alfaraleið. Þar
skammt frá öskuhaugum heima-
manna stönzuðu Rússarnir, sem
ekki er óalgengt hjá ferðafólki,
sem kýs að fylgjast með briminu,
sem þarna er nokkuð stórbrotið.
Lögreglan dólaði á eftir bflnum,
án þess þó að sjá nokkuð áhuga-
vert. Eftir smástund gengu
Rússarnir að bfl sinum á ný og
héldu sömu leið út úr bænum.
Svona til gamans fór lögreglan
aftur á staðinn, þar sem Rússarn-
ir höfðu stanzað. Þar sáust spor i
snjónum, sem bentu til þess, að
allir hefðu farið út úr bllnum og
einn þeirra þar að auki upp á ná-
lægan stein og hringsnúizt þar i
smástund, eins og hann væri að
gá að einhverju eða horfa i gegn-
um kiki.
Ekki sá lögreglan neina ástæðu
til að athuga þessa ferðalanga
nánar.
—JB
sem tekin eru af lyfjaskrá frá
áramótum, og að sögn Almars er
algengt, að lyf séu þannig tekin út
af skrá, oftast samkvæmt beiðni
framleiðenda, eða að frumkvæði
ráðuneytisins, gjarnan vegna
þess, að lyfin verða úrelt eða of
dýr. — SH
Sýslumaður
hengdi
bakara fyrir
smið
„Fólk er alltaf að spyrja
mig, hvernig ég ætli að leysa
málið. Þetta hefur veriö
óskaplega leiðinlegt fyrir okk-
ur,” sagði Sigurður Steinsson,
sem rekur rafgeymaverkstæði
á Hellu.
Tilefnið er, að sýslumaður
auglýsti nauðungaruppboð á
þvi, sem kallað var ,,raf-
geymahús” á Hellu. Þótt
heimilisfang væri tilgreint,
töldu margir, að um væri að
ræða verkstæði Sigurðar.
„Þaö eru nokkur ár siðan við
fórum úr þessu húsi, sem viö
höfðum á leigu. Siðan kom þar
prjónastofa og aðrir. Við höf-
um ekkert með þetta hús að
gera, sem auglýst hefur verið
til nauðungaruppboðs i lög-
birtingablaðinu og siðan i öðr-
um blöðum og útvarpi,” sagði
Siguröur.
„Ekki vil ég segja, að þetta
hafi kostað okkur viðskipti.
Við eigum mjög góða við-
skiptavini.” —HH
Rússagrýla á ferð í
Þorlákshöfn
Hér eru böndin, sem héldu netinu föstu. Þau virðast hafa verið skor-
in i sundur.
HÚN ER KOMIN
RAPIDMAN 801 - Kr. 5.800.-
+ MARGFÖLDUN
+ DEILING
+ SAMLAGNING
+ FRADRATTUR
+ KONSTANT
+ FLJÓTANDI KOMMA
+ PRÓSE.NTA
+ 9 V RAFHLAÐA
+ STRAUMBREYTIR
TENGJANLEGUR
+ 8 STAFA ÚTKOMA
+ 1 ARS ABYRGÐ
OLIVETTI
SKRIFSTOFUTÆKNI H.F.
Hafnarstrœti 17 Tryggvagötumegin
Sími: 28511
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráðið veitir styrki til kynnisdvalar
erlendis á árinu 1976 fyrir fólk, sem
starfar á ýmsum sviðum félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást i
félagsmálaráðumeytinu. Umsóknarfrest-
ur er til 1. mars n.k.
Vasatölvan fró Kanada