Vísir - 22.01.1975, Blaðsíða 5

Vísir - 22.01.1975, Blaðsíða 5
Vfsir. Miðvikudagur 22. janúar 1975. ORGUN ÚTLÖND í MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson Ford í átökum við þingið Ford forseti stefnir til átaka við Bandarikjaþing vegna áætlana sinna um að gera Bandaríkin óháð olíuinnf lutningi. En í húfi er þó í raun- inni miklu meira. Nefni- lega/ hversu óskorað vald Bandaríkjaforseti hafi til að móta meginstefnu lands síns í utanríkis- og innanlandsmálum. A blaðamannafundi i gær staðfesti Ford, að hann væri ráðinn i þvi að hækka inn- flutningsgjöld á oliu um þrjá dollara tunnuna. Tilgangurinn er að hækka bensinið, og draga með þvi úr neyzlunni og inn- flutningnum. Sagðist Ford mundu núna i vikunni gefa út tilskipun 1 krafti sins embættis um fyrsta áfanga hækkunarinnar, sem nemur 1 dollar til að byrja með. Kvaöst hann mundu beita neitunarvaldi sinu gagnvart hverri tilraun þingsins til að koma á bensin- skömmtun i þvi skyni að spara orku. — Þingmenn, sem eru andvígir hækkun innflutnings- gjalda, búa sig undir að leggja fram frumvarp að lögum, sem gerir ráð fyrir bensinskömmt- un. Fjórir áhrifamiklir þingmenn hafa þegar hafið baráttu gegn þessari stefnu forseta sins. — Henry Jackson og Edward Kennedy, ásamt Thomas O’Neill hafa lagt fram frum- varp að lögum, sem felur i sér, að fresta má slikum hækkunum innflutningsgjalda um 3 mán- uði. — Samtimis þvi hefur A1 Ullman, formaður allsherjar- nefndar, sagt opinberlega, að fyrirhuguð innflutningsgjalda- hækkun Fords kunni að brjóta I bága við vérzlunarlögin, sem krefjast vendilegra athugana, áður en settir eru innflutnings- tollar. Meðal þingliða er þó ekki ein- ing um, hvaða ráðstafanir muni heppilegastar til orkusparnað- ar. Sumir vilja setja inn- flutningskvóta á oliu, en aðrir taka upp bensinskömmtun. Ford forseti hefur verið óánægður með afgreiðslu mála hjá þinginu, og virðist sem þolinmæði hans sé að þverra. Hann hefur lýst yfir óánægju sinni með afskipti þingsins af verzlunarsamningunum við Rússa, þar sem þingmenn gerðu að skilyrði fyrir vildarkjörum, sem Rússar áttu að njóta, að sovézk stjórnvöld leyfðu Gyð- ingum að flytjast óáreittir frá Sovétrikjunum. Kipptu Rússar þá að sér hendi, og varð ekkert af viðskiptum. „Slikar aðgerðir”, sagði Ford, „spilla mjög fyrir störf- um forsetans og framkvæmd ut- anrikisstefnu hans.” Ford lætur ekki við það sitja, að ganga i berhögg við meiri- hluta þingliða varðandi inn- flutningsgjöldin á oliunni. Hann hefur jafnframt tilkynnt, að hann vilji veita Suður-VIetnam og Kambódiu 300 milljón dollara aðstoð umfram það, sem áður hafði verið samþykkt, vegna baráttu þessara tveggja rikja við kommúnista. En margir þingmenn hafa látið á sér skilja, að þeim sé alls ekki að skapi, að Bandarikin leggi meira af mörkum til striðsins i Indókina. CHOU HJARTVEIKUR Japanskt dagblað skýrir frá þvi i dag, að Chou En-Lai, forsætis- ráðherra Kina, sem hef- ur siðustu niu mánuðina verið á sjúkrahúsi, hafi trúað japönskum gest- um sinum fyrir þvi, að Efnahagsbandalagsins, þar sem hann mun kynna þeim samkomu- lagiö, sem náðist i gær á fundi fulltrúa iandanna fjögurra. Allir fjórir slökuðu nokkuð á upphaflegum kröfum slnum, og sagði Evensen eftir á við blaöa- menn, aö þar hefði skynsemin borið sigur úr býtum. Togveiöibanniö er fyrst og fremst til þess að afstýra frekari árekstrum og veiðarfæratjóni á bátamiðum Norðmanna. Evensen sést hér t.h. á mynd- inni fyrir ofan skoða sjókort ásamt Hatlem, flotaforingja úr varnarmálaráðuneyti Norð- raanna. hann ætti við hjarta- kvilla að stríða. Blaðið segir, að hinn 76 ára gamli forsætisráðherra hafi sagt Shigeru Hori einum framámanna úr flokki frjálslyndra demókrata I Japan — hann var gestur Kina núna um helgina — frá þvi, hvað að sér amaði. Hori skýrði frá þvi, þegar hann kom til Japans frá heimsókninni, að hann og Chou En-Lai hefðu átt nær 1 1/2 klukkustundar viðræð- ur, og hefði ekki sézt þreytumerki á Chou En-Lai. Enda væri Chou nær búinn að ná sér eftir veikind- in. Ýmsar getgátur hafa veriðum, hvaða veikindi hrjáðu kinverska forsætisráðherrann, en af hálfu Hinn 76 ára gamli Chou En-Lai, forsætisráðherra Kina. Kina hefur það aldrei verið látið uppi. Dauða- BRENNDU ÞRETTAN INNI Það er ætlað, að 45.400 Bandarikjamenn hafi farizt i umferðarslysum á siðastliðnu ári, en það er lægsta dánartala i umferöinni siðustu 11 ár. Þakka menn þvi, að stjórn- völd lækkuðu hámarkshrað- ann niður I 55 milur á klst. I benslnsparnaðarskyni þegar oliukreppan herti aö. 1973 fórust 54.800 I umferö- inni I Bandarikjunum. — En árið 1963 höfðu 42.600 farizt, af völdum umferðarslysa. Lögreglan i Montreal virðist ekkert hafa til þess að fara eftir i rann- sókn sinni á fjöldamorð- um, sem uppvist hefur orðið um. — í brunarúst- um næturklúbbs eins þar i borg fundust 13 mannslik. Flogið hefur fyrir, að einhver hinna látnu hafi verið sjónarvott- ur að manndrápum, sem áttu sér stað I þessum sama næturklúbb á siöasta ári, og glæpamennirnir hafi viljað þagga niður i þeim. — En ekki hefur lögreglan viljað staðfesta það. Meöal þessara þrettán, sem brunnu inni, voru framkvæmda- stjóri klúbbsins, kona hans og tvær stúlkur aðrar. Þeim hafði veriö troðið inn i litla geymslu- kompu i „Chez Gargantua” — eins og klúbburinn hét, en þangað lagði undirheimalýður Montreal mikið leið sina. Morðingjarnir höfðu læst geymsludyrunum og dregið glymskratta fyrir dyrnar til frek- ara öryggis, en siðan kveiktu þeir i næturklúbbnum. öll höfðu kafnað af völdum reyks, nema framkvæmdastjór- inn, sem hafði verið skotinn til bana. 30. okt. siðastliðinn voru tveir menn, sem höfðu langan afbrota- feril að baki, verið skotnir til bana, þar sem þeir sátu til borðs i næturklúbbnum. Álverk- Gúmmitætlur og álstykki fljúga um loftið, meðan slökkvi- liðsmaðurinn forðar sér frá mesta voðanum, eins og myndin hér við hliðina ber með sér. Þessi sprenging varð í álverk- smiðju í borginni Yao i Japan á mánudag. Eldur hafði komið upp I verk- smiðjunni, og þrátt fyrir allan eldvarnaútbúnað réðst ekkert við eldinn. Atján manns slösuð- ust við slökkvistarfið, þegar sprengingin varð. Krefst lausn- argjalds fyrir fjögur börn Vopnaður haglabyssu og tveim skammbyssum tók maður einn fjögur börn fyrir gísla og heldur þeim á býli einu í Thamesford, sem er um 145 km frá Toronto í Kanada. Maðurinn krefst 10 þúsund dollara lausnargjalds fyrir börnin og lögreglubifreiðar til þess að flýja I. Samkvæmt frásögn lög- reglunnar réðst maðurinn inn á bóndabæinn i gærkvöldi og tók þá börnin á sitt vald. Þegar lög- reglan umkringdi bæinn, hóf hann skothrið á lögreglumennina og hæfði einn, sem varð þó ékki al- varlega sár. Þegar siðast fréttist i morgun, var lögreglan að reyna að telja manninum hughvarf, en virtist litið ætla að verða ágengt. Hjartaupp- skurður án svœfingar Átta menn voru látnir halda föstum manni á skurðarborði sjúkrahúss i Los Angeles, meðan lækn- ar skáru hann upp, tóku út hjartað og saumuðu fyrir sár á því án þess að svæfa sjúklinginn á meðan. Maðurinn, sem er 44 ára að aldri, var sagður á batavegi eftir aðgerðina, og voru læknar vongóðir um að hann mundi hafa þetta af. Hann hafði orðið fyrir árás þriggja manna, þar sem hann var á gangi með konu sinni i skrúð- garði. Varð hann fyrir hnifs- stungu. Læknarnir sögðu, að þeir hefðu sleppt svæfingunni, þvi að þeir höfðu óttazt, að maðurinn dæi i höndunum á þeim, ef þeir tefðu hið minnsta. Yfirlæknirinn sagði við fréttamenn eftir á: „Maðurinn var nánast látinn eða deyjandi, þegar komið var með hann. Blóðþrýstingurinn var enginn. Það var enginn púls. Hann sýndi ekki einu sinni merkí þess, að hann kenndi sársauka, þegar við opnuðum brjóstholið. Enda kom hann aldrei til meðvit- undar, meðan á aðgerðinni stóð.” Eftir að læknarnir höfðu gengið frá skurðinum og saumað hann saman, fóru vöðvakippir um manninn. Honum voru þó gefnar H#avfnnHi snrant.iir

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.