Vísir - 30.01.1975, Page 1
VISIR
65. árg. —Fimmtudagur 30. janúar 1975 — 25. tbl.
GENGISFELLING?
Gjaldeyrisdeildir
bankanna voru ekki
opnaðar i morgun.
Hvað er að gerast?
„Ætli það verði ekki
gengisfelling,” svaraði
einn bankamaður. Hjá
stjórnvöldum fengust
ekki upplýsingar, en
vitað er, að gjaldeyr-
is,,sjóðurinn” er að
kalla þurrausinn og
ráðstafanir stjórnvalda
til að bæta þar úr skák
væntanlegar. —HH
Loðnan:
Á leið til
lands með
4390 lestir
37.995 lestir höfðu borizt að
landi á miðnætti siðastliðnu. t
morgun höföu 22 bátar tii-
kynnt um afla og voru á leið til
iands. Voru þeir samtals með
4390 lestir.
t morgun var hægt að taka á
móti afla á Djúpavogi, Horna-
firði, Vopnafirði og Raufar-
höfn. Ekki verður hægt að
taka á móti afla á Reyðarfirði
fyrr en á laugardaginn og
biður einn bátur þar nú þegar.
Bátarnir, sem tilkynnt höfðu
afla frá þvi á miðnætti siðast-
liðnu voru Náttfari 260 lestir,
Skirnir 250 1, Þorsteinn 200 1,
Ljósfari 190 1, Jón Finnsson
200 1, Súlan 650 1, tslendingur
2001, Fifill 3501. Magnús 200 1,
Þorbjörn II 90 I, Gissur 60 1,
Jón Garðar 150 1, Asver 80 1,
Arnarey 601, Höfrungur III120
1, Sæberg 100 1, Ólafur
Magnússon 150 I, Héðinn 280 1,
Viðir 1001, Asberg 3901, Ásgeir
250 1 og Sandafellið með 60
lestir. JB
Stórköf lóttur
leikur íslenzka
landsliðsins, en
Jón Gunnlaugsson
setti „hallarmet"
Sjó íþróttir í opnu
Meistarar
Evrópu 3ja
órið í röð
Sjó íþróttir í opnu
Vill keppa ó
íslandi og
hœtta svo
Sjó íþróttir í opnu
Ráðherra
fyrir dóm
— baksíða
Sjávarútvegsráðherra um stöðuna:
„Loðnuveiðar stöðvast
líklega í byrjun marz"
Miklar aðgerðir hins opinbera nauðsynlegar fyrir útgerð stóru fogaranna
r* |
3MK& .. .
m
„Það eru ákaflega litl-
ar líkur til, að borgi sig
að halda áfram loðnu-
veiðum snemma i marz,
þegar verðið verður
komið niður i 1,25 krón-
ur”, sagði Matthias
Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, i morgun.
Hann sagði, að veiðar eftir það
mundu vart borga sig fyrir út-
gerðina eða sjómenn. Þá verður
„fitan farin úr loðnunni”, svo að
lýsið, sem hún gefur, verður
hverfandi.
„Stjórnvöld geta ekki haldið
uppi veiðunum,” sagði ráðherra.
„Það verður ekki hægt að verð-
bæta fisk, sem er i skltnum á
markaðinum”. Eina vonin er, að
úr rætist með verðið á erlendum
markaði. Ráðherra sagði einnig,
að það ylli flotanum vanda, að á
hann væru lagðar kvaðir að sigla
langar leiðir. Heppilegasta lausn-
in hefði verið leigan á bræðslu-
skipinu Norglobal, en um hana
væri óvissa. Það mál væri i deigl-
unni og ófrágengið.
„Það er fyrirsjáanlegt, að
vandamál við útgerð hinna stærri
togara verða ekki leyst með fisk-
veröinu einu. Miklu meira þarf að
koma til”, sagði ráðherra, en
hann vildi ekki fara frekar út i,
hvaða aðgerðir stjórnvöld kynnu
aö gera. Hann sagði, að öll rekstr-
arvandamál útgerðarinnar væru i
athugun og unnið að lausn þeirra
„alls staðar”. Þjóðhagsstofnun
hefur gert úttekt á stöðunni og
verðlagningin er i höndum verð-
lagsráðs. Enn er fiskverð ókomið.
Bæjarstjórn Akraness hefur
samþykkt áskorun til rikisstjórn-
arinnar um að gera nú þegar
nauðsynlegar ráðstafanir til að
fyrirbyggja stöðvun togaraút-
gerðar i bænum og viðar. Óttast
bæjarstjórnin stórfellt atvinnu-
leysi á útgerðarstöðum um land
allt. —HH
Þegar kuldinn bítur kinnarnar er skynsamlegt að vera vel
klæddur. Svo virðist, semskilningur hatvendurvaknað á ísiandi á
þvi, að við búum á heldur köldu heimshorni og þurfum að búast í
samræmi við það. Reynslan sýnir, að fátt er þá betra en blessaða
uliin okkar, þótt gott sé að hafa iétta úlpu yzt fata til að taka af
næðinginn. —Ljósm. R.Th.
ULLIN KEMUR í
GÓÐAR ÞARFIR
Jarðboranir ríkisins fá nýtt og vandað tœki
Afgangsbor frá olíumilljónera
— getur borað 3,6 kílómetra niður í jörðina
„Það var einstaklingur, sem
átti þennan bor,” sagði Sveinn
Scheving, verkstjóri hjá Jarð-
borunum rikisins, sem kom til
landsins i morgun eftir þriggja
vikna dvöl I Texas að kynna sér
stóra jarðborinn, sem Orku-
stofnun hefur keypt I Texas.
„Hann á þarna oliulinda-
svæði, en þar sem erfitterað fá
bora vestanhafs um þessar
mundir, varð hann að kaupa
upp jarðborunarfyrirtæki til
bess að verða sé úti um nauð-
synleg tæki. Þessi bor var
óþarflega stór fyrir hann, og þvi
var hann falur. Þetta er að
minnsta kosti skýringin, sem
við fengum.
Mennirnir, sem vinna við
þennan bor, eru afskaplega
hrifnir af honum og vildu helzt
allir koma með honum hingað.
Enda er hann mjög nýtízkuleg-
ur, allur rafdrifinn frá disilvél-
um, sem framleiða raforku
handa honum, og allt er tölvu-
stýrt frá einu stjórnborði. Hann
er mjög þægilegur I stjórnun og
honum fylgir miklu minni
hávaði á vinnusvæðinu en gufu-
bornum, sem hér er.
Alfka fjölda þarf á nýja borinn
og vinnur við gufuborinn, eða
15-16 menn. Það fer þó nokkuð
eftir vinnudagafjölda. En þetta
lið þarf að þjálfa allt upp frá
grunni, og við fáum menn að ut-
an til þess.”
Þessi bor getur borað niður á
3600 metra dýpi, en gamli gufu-
borinn borar jafnaðarlega á
1800—2000 metra dýpi, hefur
mest komizt i 2200 metra. Með
nýja bornum standa vonir til, að
takast megi að opna nýjar æðar
og auka þannig vatnsmagnið.
Með Sveini ytra var Rögn-
valdur Finnbogason, forstöðu-
maðúr Jarðborana rikisins, sem
er deild innan Orkustofnunar.
Rögnvaldur er enn I Texas og
mun fylgjast með flutningi
borsins. sem er um 600 tonn á
þyngd. Hann verður settur um
borð i Mælifell I Houston I Texas
og verður væntanlega kominn
hingað heim um mánaðamótin
febrúar-marz og verður hann þá
liklega fluttur beint þangað,
sem hans fyrsta verkefni
verður, en búizt er við, að það
verði i Mosfellssveit. Mastrið,
sem er 50 metra hátt, er sett á
hjólastell og dregið, þegar bor-
inn er fluttur, en aðrir hlutar
borsins eru á meiðum og dregn-
ir upp á flutningavagna. Ekki á
að taka nema nokkra daga að
setja borinn upp, þegar hann
er kominn á borsvæðið.
Kostnaðarverð borsins er 280
milljónir króna, en meðal verk-
efna Sveins i för hans utan var
að útvega nauðsynlega fyigi-
hluti og varahluti, þvi af-
greiðslutimi á slikum hlutum er
langur, og nauðsynlegt að eiga
að minnsta kosti helztu vara-
hluta tií eins árs.
Þá hefur Orkustofnun einnig
fest kaup á minni jarðbor, sem á
að geta borað niður á 1500 metra
dýpi. Hann er ónotaður og kem-
ur til landsins mánuði siðar en
sá stóri. Ekki liggur fyrir, hver
verða hans fyrstu verkefni.-SH