Tíminn - 06.07.1966, Blaðsíða 1

Tíminn - 06.07.1966, Blaðsíða 1
 Gerizt áskrifendur að Tímanum. Hringið i síma 12323. Auglýsing í Tímanum kemur daglega fyrir augu 80—100 þúsund lesenda. 150. tbl. — Miðvikudagur 6. júlí 1966 — 50. árg. ..........>»»»>» «•>:w >:•>:...... (Tímamynd Bj. Bj.) VIÐA KAL Sé3 yfir Reykjavíkurflugvöll úr Öskjuhllð. Höfum stjórnað Reykja- vikurflugvelll í 20 ár 1LAXA DAGÁ12 STENGUR KT—Reykjavík, þriðjudag- Eins og nýlega var s’kýrt frá, hefur laxveiði verið með drsemasta móti í veiðiám landsins. Vonuðu menn, að eitthvað af laxi gengi í árnar á flóðinu nú um mán aðamótin. Að því er veiði málastjóri, Þór Guðjónsson, tjáði blaðinu í dag, virðast þær vonir hafa brugðizt að mestu. Þó mun hafa lifnað yfir veiði í nokkrum ám. Tíminn hafði í dag sam- band við veiðihús við nokkr ar stærstu árnar og fékk eftirfarandi upplýsingar. í Norðurá í Borgarfirði hefur veiði aukizt dálitið, en þar lifnaði yfir henni um mánaðamótin. Hafði vsiði verið mjög lítil fram yfir 24. júní. í ánni hafa veiðzt rúmlega 100 laxar í sumar. í Laxá í Þingeyjarsýslu er veiði mjög treg. Þar eru í notkun 12 stengur á dag og hafa 30 laxar komið þar á land síðan 10. júni í gær veiddist einn lax í ánni og einn í dag. Mun það vera svipað því, sem verið hefur. í Víðidalsá og Vatnsdalsá hefur veiði verið treg í júní en hefur örlítið glæðzt í þessum mánuði í Vatnsdalsá hafa veiðzt nokkrir laxar á síðustu dögum, en næstum engir fram að þeim tíma. IGÞ—Reykjavík, þriðjudag. íslendingar eru orðnir að slíkri flugþjóð á skömmum tíma, að það kemur jafnvel á óvart, að ekki skuli vera liðin nema tuttugu ár síðan íslenzkir menn tóku við yfirstjórn Reykja- víkurflugvallar. Samt er þetta staðreynd, því það var 6. júlí 1946, sem Reykjavíkurflug- völlur var afhentur íslendingum með sérstökum samningi milli ríkisstjórna íslands og Bretlands. Skömmu síðar hófst millilandaflug Flugfélagsins og árið eftir byrjuðu Loft-| leiðir millilandaflug. Á þessum tuttugu árum hafa hátt í tvær milljónir flugfarþega farið um völlinn, og segir þessi háa tala farþega sitt um það, hversu fljót við vorum að notfæra ! okkur hina nýju samgöngutækni.Að vísu er stór hluti þessara mörgu farþega útlendingar. I En farþegafjöldinn sýnir samt, að flugið er orgjð eðlilegur, sjálfsagður og nauðsynlegur þáttur í samgöngumálum okkar, og sá veigamesti að fráteknum bílum. Nú eiga íslending ar tvö voldug flugfélög, og flugvélaeign landsmanna fer stöðugt vaxandi. Nokkur smærri flugfélög hafa verið stofnuð á síðari árum og vegnar vel. Þeir sem njóta fyrirgreiðslu þessara aðila í dag mega undrast þessa hröðu þróun, þegar haft er í huga, að ekki eru nema tuttugu ár síðan við fengum sjálfir flugvöll til umráða í höfuðborg landsins. NYRÐRA KT-Reykjavík, þriðjudag. Talsvert hefur borið á kali í túnum í Eyjafirði og Þingeyjar- sýslu. Ástandið er verst í sveitun- um inn af Skjálfandaflóa og bú- ast nokkrir bændur á þeim slóð- um við tæplega helmingi minni heyfeng en venjulega. Við þetta bætist að sprettá hefur verið með minna móti í vor og heybirgðir eru víða óverulegar. Blaðið hafði í dag samband við fréttaritara í Svarfaðardal og sagði hann, að dálítíð væri kalið af túnum, en ekki til skaða. Spretta væri hins vegar með minnsta móti. f Grenivík er talsvert kal í túnum, og spretta með minnsta móti. SJáttur er þar að hefjast á nokkrum bæjum. Fréttaritari blaðsins í Bárðar- dal sagði í dag, að tún þar í sveit- um væru mikið skemmd af köfn- un eða roti. Mestar væru skemmd- Framhald á bls. 14 Hér fer á eftir fréttatilkynning, sem Agnar Kofoed-Hansen, flug- máiastjóri, sendi Tímanum i dag um afmæli flugvallarins. Undirbúningur að yfirtöku flug vallarins hófst haustið 1945, með því að sex íslendingar hófu störf og þjálfun á flugvellinum á vegum flugimálastjórnarinnar, þeir: Arn ór Hjálmarsson, Ásbjörn Magnús son, Björn Jónsson, Gunnar Slg- urðsson, Lárus Þórarinsson og Sig fús H. Guðmundsson. Störfuðu þeir með brezka flug hernum ásaimt fleiri íslendiugum, í um það bil 9 mánuði, áður en yfirtakan fór fram. Auk þess störf uðu nokikrir Bretar um stuttan tíma vegna frágangs á eignum flughersins, og til leiðbeiningar íslendingum í flugumferðarstjórn. Þar sem íslendingar höfðu ekki áður haft með höndum flug- vallarrekstur, varð að byggja her allt upp frá grunni, og var það ýmsuim erfiðleikum háð, sérstak- lega með tilliti til þess, hvers um- ferð sú er um völlinn færi þarfn aðist, þ. e- millilandaflug erlendra flugvéla, en flugvélar frá eftir- töldum flugfélögum höfðu her oft viðkomu á árunum 1946—1947: BOAC, AIR FRANCE, FRANCE CANADA AIRLINES o. fl. Millilandaflug íslenzku flug- félaganna var þá einnig á byrjua arstigi, með leiguflugi Flugfélags íslands til Kaupmannahafnar um Prestwick 1946—47, og Loftleiða h. f. með „Skymaster" vél sinni 1947. Fyrstu árin var einnig nokfcur umferð um Sjóflughöfnina á Skerjafirði, bæði erlendar flug- vélar í innanlandsflugi. Flugvall armannvirki þau sem Bretar af- hentu íslendingum fyrir tuttugu árum voru þá talin að verðmæti um kr. 130.000.000.—, eitt hundrað og þrjátíu milljónir króna —, en Reykjavíkurflugvöllur var þá að verðmæti til talinn nokkru hærri en Keflavíkurflugvöllur, þó síð an hafi þessi hlutföll breytzt. Reykjavíkurflugvöllur hefur á þessu tuttugu ára tímabili gegnt því hlutverki að vera aðalflugsam göngumiðstöð landsins, bæði að því snertir innanlandsflug og millilandaflug, og var farþega- fjöldi um völlinn kominn upp í því sem næst 175 þúsund árið 1963 áður en Loftleiðir fluttu til Kefla víkiur. Á s. 1. ári voru farþegar samtals um 150 þúsund og gera má ráð fyrir að þeir verði um 200 þúsund eftir tvö til þrjú ár. Á þessum tuttugu ára tímabili hafa um það bil 1.700.00. íarþeg Framhald á ols. 14 U THANT U Thant kemur á morgun EJ-Reykjavík, þriðjudag. Eins og TÍMINN hefur áður skýrt frá, kemur U Thant, fram- kvænidastjóri Sameinuðu þjóð- anna, í heimsókn til íslands á fimmtudaginn, og fer aftur á laug ardagsmorguninn. Er áætlað, að hann komi til Keflavíkur kl. 18,20 á fimmtudaginn. Þá um kvöldið verður fram- kvæmdastjórinn gestur í kvöld- verði hjá forseta Islands að Bessa stöðum. Á föstudaginn mun hann heimsækja forsætisráðherra og utanríkisráðherra fyrir hádegið, og hugsanlegt er, að hann muni sitja fund ráðherra og forustumanna stjórnarandstöðunnar. Klukkan 11 á föstudag verður ekið með U Thant til Þingvalla, og snæðir hann þar hádegisverð j boði ríkisstjórnarinnar. ' Síðan verður ekið með hann til Ilvera- gerðis og gufugosið skoðað, en komið verður til Reykjavíkur kl. 16.30. Klukikan 17 mun U Thant halda fyrirlestur í hátíðasal Há- skólans á vegum félags Samein- uðu þjóðanna, og að afloknum fyrirlestri verður blaðamanna- fundur. Um kvöldið snæðir hann kvöld- verð í ráðherrahúsinu, en kl. 8 á laugardagsmorgni heldur ■ hann I utan að nýju. I

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.