Tíminn - 06.07.1966, Síða 9

Tíminn - 06.07.1966, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 6, iúlí 1966 TðMJNN 9 Hið virta bandaríska blað, New York Times, birti í vor greinarflokk um starfsemi bandarísku leyniþjónustunnar, Central Intelligence Agency, sem þekktast er undir skamm- s'öfuninni CIA. Blaðið leitaði víða fanga um upplýsingar. í greinum þessum er rakin í. stuttu máli saga leynistarfsem- innar og mistækur árangur hennar. Leyniþjónusta er ekki ný af nálinni, og margt af því, sem leyniþjónustur hinna ýmsu ríkja taka sér fyrir hendur, þætti ótrúlegt frásagnarefni i reyfurum. Óhætt mun að full- yrða, að engin leyniþjónusta liggur undir eins harðri gagn- rýni á opinberum vettvangi heima fyrir og CIA. Af leyni- þjónustu annarra ríkja heyrist lítið, og aldrei kemur fyrir að heildarstarf og stefna liggi undir stöðugri gagnrýni, eins og CIA má búa við í Bandaríkj unum. Þetta verður skiljanlegt þegar haft er í huga að hinn almenni borgari í Bandaríkjun- um kærir sig ekki um laumu- spil á æðstu stöðum. Banda- ríska leyniþjónustan spratt upp úr óförunum í Pearl Harbour. CIA var stofnsett með lögum um þjóðaröryggi árið 1947. • Stofnunin fékk strax í upphafi mikið sjálfsforræði, og sumt í Iögum, sem varða hana, brýt- ur í bága við almenn lög lands ins. Þetta hefur m. a. valdið sívaxandi tortryggni. En á hinn bóginn er á það að Iíta, að erf- itt verður um nauðsynlega leynd, ef svona starfsemi á að játast undir opinberar rann- sóknir. Þá hafa ýms mistök hent CIA, sem Bandaríkja- mönnum hefur reynzt erfitt að kyngja, bæði stórvægileg og smá. Leyniþjónustan hefur ver ið kölluð hin „ósýnilega ríkis- stjórn“ Bandaríkjanna. Þar geldur hún leynilegra afskipta sinna af stjórnmálum, hvernig hún hefur komið af stað bylt- ingum og jafnvel lagt á ráðin um strandhögg. Verksvið henn ar hefur því ekki einvörðungu bundizt við söfnun upplýsinga. Eðlilegt er að skrif um leyni- þjónustuna þyki forvitnileg. ■ Svo mundi vera um leyniþjón- ustu hvaða lands sem væri. TÍMINN birtir hér upphaf úr- dráttar úr greinum New York Times um CIA. Þær eru skrif- aðar fyrir bandaríska lesendur. En Bandaríkin eru voldugur bandamaður okkar Evrópubúa og m. a. þess vegna þykir ástæðu til að birta þennan úr- drátt hér í dag og á næstunni. i Sendibréf til Singapore Það var dag nokkurn árið 1960 að njósnari frá Leyni- þjónustunni kam á flugvöll í tæka tíð tiil að taka á móti gesti. Njósnarinn setti lyga- mæli i samband við ofhlaðið rafmagnskerfi hótelsins og öll ljósin slökknuðu. Rannsókn var gerð, og var njósnarinn og féilagi hans í C.I.A. handteknir og settir í fangelsi sem amerískir njósn- arar. Þetta atvik hafði alþjóðleg áhrif, það olli mikilli gremju í London, ekki í þetta eina sinn, heldur aftur. Það kom am erískum sendiherra í vandræði. Það olli því að amerískur ut- anríkisráðherra skrifaði fágætt afsökunafibréf til erlends for- seta. A Fimm árum síðar fékk áður- nefndur þjóðarleiðtogi tæki- færi til að ákæra bandarísku þjóðina og einkum C.I.A. fyr- ir svik, og auka þar með skiln- ing nágranna sinna í Austur- löndum á Leyniþjónustunni og bæta stjórnmálaaðstöðu sina heima fyrir. Endalok þessa atburðar urðu þau að stjórn Bandaríkjanna laug opinberlega en játaði síð- an lygina og vakti þá atburð- urinn enn meiri athygli. Efcki hafði fyrr verið flett ofan af ósannindunum en al- menningur, sem var reiðubú- inn til að gruna C.I.A. um græsku oig vissi ekiki hvað hafði raunverulega skeð í Singa pore fimm árum áður, tók að endurtaka spurningar, sem hafa ekki látið Leyniþjónustuna og stjórn Bandaríkjanna í friði um árábil: Lee Kuan Yew Var Leyniþjónustan, sem vit að var að hafði felilt ríkisstjórn ir og komið öðrum til valda, myndað heri, staðið fyrir árás á Kúbu, njósnum og gagn- n'jósnum, komið á flugsamgöng um, reist útvarpsstöðvar og skóla, stutt fjárhagslega bóka- útgáfu, tímarit og kaupsýslu, voldugri en ríkisstjórnin? Var Leyniþjónustan í raun- inni skaðleg, þegar hún reyndi að koma á framfæri hagsmuna málum bandarísku þjóðarinn- Dean Rusk ar? Notaði hún geysilegar upp hæðir í lausnargjöld, mútur og byltingar án þess að ráðfæra sig við stjórnina eða taka til- lit til afleiðinga. Laug hún eða hafi hún svo mikil áhrif á stjórnmálaleið- toga Bandaríkjanna að hún var í rauninni „ósýnileg stjórn“, jafnvel valdameiri en sjálfur forsetinn? Þetta eru spurningar, sem al menningur ber fram alls stað- ar í heiiminum. Sumar þeirra komu aftur fram, þegar ný- lega kom í ljós að Miohigan State háskólinn var bækistöð nokkurra njósnara Leyniþjón ustunnar í Suður Vietnam, þeg- ar háskólinn sá um framkvæmd á margra milljóna dollara tækni legri hjálp fyrir stjórn hins látna forseta Ngo Dinh Diem. Fyrir nokkru fréttist einnig að flóttamaður frá Eistlanrii, sem hafði verið lögsióttur fyrir rógburð í réttarsal í Baltímore, hefði aðeins verið að gera skyldu sína sem njósnari C.I.A. í opinberri greinargerð til réttarins sagði C.I.A., að hún hefði fyrirskipað njósnaranum, Juri Raus, að greina ekki nán ar frá málinu til þess að halda hlífiskildi yfir starfsemi Leyni- þjónustunnar erlendis Juri Raus krefst undanþágu frá ákærunni á þeim forsendum, að hann hefði unnið starf sitt sem opinber njósnari ríkis- stjórnarinnar. Atvik eins og þessi, sem í augum almennings gera starf- semi C.I.A. óljósa og grunsam- lega hafa valdið því, að banda- ríska þjóðþingið og bandarísku blöðin hafa óskað eftir nán- ari upplýsingum um hlutverk og réttmæti umdeildustu og torskildustu stofnunar i Wash- ington. Að minnsta kosti tveir forsetar Bandaríkjanna, Harr.v S. Truman og John F. Kenne- dy hafa grunað C.I.A. um græsku. Víðtæk rannsókn. New York Times hefur safn- að upplýsingum og skoðunum kunnugra Ameríkumanna um hekn allan til að fá áreiðan- leg svör við þessum spurning- um, til að greina, þar sem það er mögulegt, staðreyndir frá skáldskap og kenningu frá raunveruleika, til að finna hvaða gildi starfsemi C.I.A. hef ur fyrir almenningsheill í Banda ríkjunum og alþjóðleg sam- bönd. Það hefur safnað skýrslum frá tuttugu enlendum fréttarit- urum og ritstjórum, sem hafa nýlega starfað í yfir þrjátíu og fimrn löndum og frá blaða- mönnum í Washington, sem höfðu viðtal við meir en fimm- tíu núverandi og fyrrverandi embættismenn stjórnarinnar, þingmenn og liðsforingja. Þessi rannsókn, sem tók nokkra mánuði, leiddi meðal annars í ljós, að „Singapore málið“ var ekki afleiðing ónógr ar pólitískrar stjórnar heldur mistök ríkisstarfsmanna. Það ko mfram, að þrátt fyrir alræmdan orðstír er CI..A. und- ir harðari stjórn, stjórnmála- lega og fjárhagslega, en flestir gagnrýnendur hennar vita eða viðurkenna, og eftir slysið í Svínaflóa við Kúbu árið 1961 þá hefur stjórn hennar orðið mun strangari. Þeir, sem haft var viðtal við sögðu, að uppástunga gagn- rýnenda til að hafa betra taum hald á Leyniþjónustunni — þingmannanefnd sem hefði yf- irsýn yfir starfsemi C.I.A. — mundi líklega ekki veita meiri stjórn en nú væri en gæti jafn- vel , takmarkað framkvæmdir hennar. Að vilja eða vilja ekki? Aðrar mikilvægar niðurstöð- ur rannsóknarinnar leiddu i ljós eftirfarandi: Þótt pólitísk stjórn virðist miikilhæf, þá veltur á miklu að hvað miklu leyti upplýsingar og uppástunga C.I.A. hafi áhrif á ákvarðanir stjórnarinnar í utanríkismálum. Hvort sem stjórnmálalegt að hald er eða ekki, þá er sú spurning alvarlegri, hvort til- vera dugandi Leyniþjónustu veldur því, að stjóm Banda- ríkjanna reiði sig um of á leyni lega og ólöglega starfsemi, „baktjaldamakk," byltingar og það sem kallað er á óvönd- uðu máli „smáskitleg brögð“. Að lokum, án tillits til stað- reynda, þá er orðstír C.I.A, í heiminum svo ógnvekjandi og hlutverk hennar í heimsfrétt- um slíkt, að hún er orðin byrði í utanríkismálum Bandarikj- anna, fremur en það leynivopn sem henni var ætlað að vera. Atvikið í Singapore, sem kom aftur í fréttirnar fimm árum síðar, er lærdómsríkt dæmi um hvað raunverulega skeði, þótt ótti gagnrýnenda sé í engu réttmætur þrátt fyrir staðreynd ir þessa eina máls. Vandræði í Singapore. Óheppni njósnarinn, sem sprengdi öryggin, flaug frá Tokyo til Singapore rétt eftir langar deilur innan C.I.A. Singapore, sem er hernaðarlega mikilvæg hafnarborg, þar sem búa margir Kínverjar, komst undan yfirráðum Breta og gekk í Malasíusambandið. Átti C.I.A. að senda njósnara, eða átti hún að treysta eins og fyrr á MI-6, brezku leyniþjónustuna og á hæfileika Breta að viðhalda góð Harry S. Truman um samböndum og fá áreiðan- legar upplýsingar um ástand- ið í Singapore? Allen W.'Dulles, sem þá var fulltrúi C.I.A. ákvað að senda njósnara til Singapore til að vera öruggur um að Bretar héldu engu leyndu fyrir þeim. Þótt þessi ákvörðun væri um- deild þá er það algengt í Allan DuMes leyniþjónustum að gera „endur- tekna athugun." (Á ferðalagi Humphreys vara forseta til höfuðborga Japan, Suður-Kóreu, Taiwan og Fil- ippseyja seint á síðastliðnu ári, fundu njósnarar þrjá hljóð- nema I einkaíbúð hans.) Njósnarinn, sem flaug frá Tokyo til Singapore, var send- ur til að útvega nýliða, lyga- mælirinn, tæki sem C.I.A. not- ar til gagnnjósna á sína menn, var hafður þarna til að reyna traustleika Singapore nýliðans, sem njósnara. Þegar lygamælirinn sprengdi öryggin á hótelinu þá fannst njósnarinn, sem kom í heim- sókn, nýliðinn og annar mað- ur frá C.I.A. Þeir voru settir í fangelsi í Singapore. Sagt var að þeir hefðu verið „píndir" annað hvort raunverulega eða til að krefjast lausnargjalds. Hátt lausnargjald. Leynilegar umræður, sem C.I.A. hafði stofnað til, voru haldnar um möguleikana til að kaupa frelsi njósnaranna með aukinni amerískri fjárhagsað- stoð, en ráðamenn í Washing- ton komust að þeirri niður- stöðu að lausnargjaldið væri of hátt. Mennirnir voru síðar leyst ir úr varðhaldi. Dean Rusk utanríkismálaráð- herra — en stjórn Kennedys hafði tekið við -’öldum I janú- ar 1961 — skrifaði formlegt aísökunarbréf tíl Lee Ruan Yew forseta í Singapore og lofaði að refsa sakborningunum. Þessi urðu endalok málsins þar til Lee forseti sagði sig úr Malasíusambandinti og leitaðist við af stjórnmálalegum ástæð* um að koma á nánari sam- skiptum við Bretland, heldur Framhald á bls 7.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.