Vísir - 24.03.1975, Side 17
Vísir. Mánudagur 24. marz 1975.
17
RÉTT ÞÓ ALDURINN FÆRIST YFIR
Eftir þvi sem maturinn er oftar
hitaður upp minnkar næringar-
gildi hans.
Hér eru nokkur
góð ráð:
Mjólk. Hálfur litri á dag.
Mjólkin inniheldur B vítamin.
Eggjahvita er mikilvægt efni og
nauðsynleg fyrir allar frumur
likamans. Kalkið styrkir beinin.
Jóghúrt og súrmjólk er einnig
gott að borða.
Ostur.Tvær sneiðar á dag. 30%
ostur gefur færri kaloriur
heldur en feitari, en er góður
samt. Ostur hefur að geyma
sömu næringarefni og .mjólkin.
Egg.Þrjú til fjögur á viku. Egg
innihalda lika mörg góð
næringarefni og hafa tak-
markað kaloriumagn.
Fiskur. Einu sinni til tvisvar i
viku. Sild er'góð, bæði ný, söltuð
og reykt. Þorskhrogn eru einnig
mjög holl.
Kjöt.Tvisvar til fjórum sinnum
I viku sem hádegis- eða kvöld-
matur og einnig sem álegg á
þrauð. Soðna kjötretti er oftast
auðveldara að tyggja, en þeir
eru auðmeltari en steiktir. Kjöt
til þess að sjóða er lika oftast
ódýrara, en kjöt til steikingar.
Þetta gefur eggjahvituefni og B-
vftamin.
Allir farsréttir eru auðmeltir.
Þá er einnig gott að borða lifur,
t.d. einu sinni i viku. Lifur
inniheldur mikið af A-vitamini,
og eggjahvftuefni, næringar-
efni, semþeir eldri þurfa talsvert
af. Lifrarkæfa er einnig mjög
holl.
Hjörtu og nýru er einnig gott
að borða af og til.
GRÆNMETI. Eins oft og
mögulegt er. Það eru sérstak-
lega B- og C-vitamin, eggja-
hvita og fleiri næringarefni sem
eru i grænmeti. Grænkál og kál
yfirleitt innihalda mest
Nokkrar kartöflur er hollt að
borða með matnum.
Avextir.Gott er að borða dálftið
af nýjum ávöxtum, og svo til
dæmis að drekka glas af
ávaxtasafa á dag. 1 appelsinum,
sltrónum og grapefruit er mikið
af C-vitamini.
Brauð og grjón. Borðið slikt
eftir þvi sem lystin leyfir. Rúg-
brauð er gott fyrir magann og
gefur eggjahvituefni, B-vítamln
og jámefni.
Engin matvara inniheldur öll
þau næringarefni sem menn
þurfa, þess vegna þarf matur-
inn að vera fjölbreytilegur.
Þvi fjölbreyttari sem hann er,
þeim mun auðveldlegar fáum
við nauðsynleg efni, sem
viðhalda heilsunni.
Munið einnig að vitaminpillur
innihalda aðeins hluta af þeim
efnum, sem likaminn hefur þörf
fyrir. Það getur verið gott að
taka inn vitaminpillu, sérstak-
lega að vetrinum, en hollur
matur er nauðsyn fyrir þvi.
Ekki of mikla suðu..........
Það verður að meðhöndla
matinn á réttan hátt til þess að
næringargildið haldist. Fisk á til
dæmis að sjóða hægt.
Grænmeti verður að
meðhöndla varlega. í nýju
grænmeti eru næstum öll víta-
min vernduð. Hrámeti er hægt
að geyma i isskáp án þess að
það missi mikið af C-vitamin-
um. Bezt er þó að borða hrá-
meti sem fyrst.
Þegar grænmeti er soðið þarf
svo mikið vátn, að það sé jafn
hátt grænmetinu eða fljóti að-
eins yfir það. Það má ekki sjóða
lengi. Grænmeti á að borða
nýsoðið, og við upphitun hverfur
mest af C-vitamininu. Soðið
inniheldur hluta af næringar-
efnunum og er þess vegna ágætt
I súpu eða sósu.
Hvað um djúpfrystar
vörur?
Þær eru oft góðar og innihalda
næstum jafnmikið af næringar-
efnum og nýjar vörur. Matur
sem hefur verið þiddur
eyðileggst þó miklu fyrr en
vörur, sem ekki hafa verið
frystar.
Ferhyrnt andlitslag
Þegar andlitið er ferningslagað.er ennið breitt og kjálkar
og kinnar ferhyrnt. Bezt er að greiða hárið upp frá enninu til þess
að andlitið virðist lengra. Ráðlegt er að hafa hárið stutt I
hnakkanum og i hliðum.
Kringlótt andlit
Bezt er að hafa hárið frekar mikið uppi á kollinum. Hárið við
eyrun og í hnakkanum ætti að hafa lengra til að fela hringiagið.
Ávalt andlitslag.
Hér kemur svo ákjósanlegasta andlitslagið. Hárið er hægt að
greiða og klippa á flesta vegu.
Auglýsing
„VERZLUNARFERDIR KOMU MER ALLTAF I VONT i
SKAP, ÞANGAÐ TIL ÉG UPPGÖTVAÐI AYDS
'##
„Ég hataði að máta föt í verzlunum! Mér fannst ég vera
kjánaleg, þegar ég stóð þar og var að reyna að troða mér I
föt, sem ég vissi að myndu aldrei hæfa mér. Ég var ekkert
ofsalega feit, bara 15 kg of þung. En hvaða máli skipta 15
kg? Reyndu að kaupa einhver sómasamleg föt á 17 ára
stúlku, sem þarf stærð nr. 16. Það eina, sem ég gat klæðzt,
voru buxur og mussa. Ég varð fljótt hundleiðá þeim.
Þetta vandamál mitt byrjaði I skólanum. Ég var vön að
fá heita máltíð þar, svo te (með brauði og kökum —
auðvitað!), og þegar ég kom heim, fékk ég mér heit&n
kvöldverð. Ég virtist alltaf vera glorhungruð. Þetta
lagaðist ekkert, þegar ég kom I Tækniskólann: þeir höfðu
mötuneyti, þar sem ég gat keypt snarl allan daginn.
Jæja, ég var að reyna ýmsa megrunarkúra og missti
fáein kiló, en þá var ég vön að slaka á og byrjaði að borða
ranga fæðið aftur, þannig að kilóin voru fljót að koma til
baka, þangað til að ég uppgötvaðu AYDS.
Ég hafði lesið um AYDS og ég uppgötvaði, að það var
starfandi megrunarkiúbbur I bænum, sem ég bý I (kallað-
urSOSS—the Society of Serious Slimmers) Þannig að ég
gekk I klúbbinn, borðaði minar AYDS, og hef ekki frá þvi
látið undan.
Aðeins 1 AYD (eða tvær) með heitum drykk um það bil
20 minútur fyrir hverja máltið og ég fann, að ég gat hamið
matarlystina. Það var dásamlegt! Ég byrjaði að klæðast
kjólum i fyrsta skipti i mörg ár — vinir minir voru farnir
að halda að ég hefði ljóta fótleggi! Og megrunarklúbbur-
inn keypti bikini handa mér.
Llfið er dásamlegt núna. Svo sannarlega stórkostlegt.
Þökk sé AYDS”.
Eftir Mary Coyce eins og hún sagði Anne Isaacs það.
Hvernig Ayds hefur áhrif. Visindamenn halda þvl fram,
að það sé hluti heilans, sem hjálpi þér til að hafa hemil á
matarlystinni. Það á rætur sinar aö rekja til magns
glukosasykurs i blóöinu, sem likaminn notar sem
orkugjafa Þannig, að þegar magn glukosans minnkar,
byrjar þú að finna til svengdar og þetta á sér venjulega
stað stuttu fyrir næstu máltið. En ef þú tekur 1 Ayd (eða
tvær) með heitum drykk (sem hjálpar likamanum að
vinna fljótar úr þeim) um það bil tuttugu minútum fyrir
máltið, eykst glukosinn I blóöinu og þú finnur ekki til löng-
unar til aöborða mikiö. Með Ayds borðar þú minna, af þvi
að þig langar i minna. Einn kassi Ayds inniheldur eins
mánaðar skammt
Hvers vegna þú þarfnast Ayds —óháð þvi hver þyngd þin
er.
Ayds innihalda engin lyf, né eru þær til uppfyllingar. Þær
innihalda vitamín og steinefni — mjög mikilvæg til þess að
vernda þá, sem eru að megra sig og eru ekki vissir um að
þeir fái næg vitamin, þegar þeir borða mjög hitaeininga-
snauða fæðu. Einnig finnst mörgu fólki erfitt að halda sig
að skynsamlegu fæði. Ayds hjálpar þeim einmitt við það.
Þær hjálpa þér við að endurhæfa matarlystina og halda
þyngd þinni I skefjum — vandamál sem er það sama,
hvort sem þig langar til að missa 2 kg eða 20 kg. Þú missir
liklega nokkur kiló tiltölulega fljótlega, en endurhæfing
matarlystarinnar tekur alltaf nokkurn tima.
Mary fyrir Avds: 72 kg.
Mary eftir Ayds: 57 kg.
88 75 95
83 62 87
Stærö 16.
Stærð 10.
Byrjið Ayds kúrinn á morgun
og eftir mánuð gœtir þú
orðið nokkrum kílóum léttari
f Vaniiia
I Flavour
Mánaðar megrunarkúr
hverjum kassa
NB: Ef þú ert alltof þung(ur) skaltu ráðfæra þig við lækni
þinn, áður en þú byrjar i megrunarkúr. Það er ekki mælt
með Ayds kúrnum fyrir fólk, sem þjáist af offitu vegna
efnaskiptasjúkdóma. Sérher Ayd inniheldur 25 hita-
einingar I mola og sérhver únsa er bætt meö: Á vítamini
850 I.U., B 1 vitamini (Thiamine hydrochloride) 0.425 mg
B2 vltamin (Riboflavin) 0.425 mg Nicotinic acid (Niacin)
6,49 mg, Calium 216,5 mg. Fosfór 197,6 mg. Járn 5,41 mg.
Ayds fœst í flest öllum
lyfjabúðum um land allt