Tíminn - 20.07.1966, Síða 16

Tíminn - 20.07.1966, Síða 16
 2 EFSTU SKIPIN MED 3209 TONN ÞÓRÐUR JÓNASSON OG JÓN KJARTANSSON aflahæstir. Læríð lífgunaraSferðina - komii í veg fyrír slysin HZ—Reykjavík, þriðjudag. Geigvænleg slysaalda hefur verið síðastliðna viku, og alls hafa 5 börn drukknað. Aldrei fyrr hafa jafnmörg börn drukknað á svo skömmum tíma. Það er því tímabært, að fólk landsins kynni sér .lífgun araðferðir og þeir, sem áður hafa lært þær, rifji þær upp. Það er aldrei að vita, nema ÞÚ, lesandi góður, getir bjarg að mannslífi með því að kunna munn við munn aðferðina. Slysavarnafélag íslands og Hjálparsveit skáta í Rvík hafa látið útbúa sipjald með aðferð- inni, og verður henni lýst hér að neðan, og myndimar tvær eru til skýringar. LÍFGUNARTILRAUNIR SKAL HEFJA STRAX. Athugið, að lífgunartilraunir eiga ekki eingöngu við í drukkn unartilfellum. Þær skal ALLT- AF reyna. ef öndun hefur stöðvazt (raflost o.fl.) Ef þið bjargið manni úr sjó, er mikil vægt að koma lofti niður í hann strax og til hans næst. Eyðið ekki tíma i að hreinsa munn eða hella úr honum sjó. nema nauðsynlegt sé. BLÁSTUURS AÐFERÐIN. 1) . Sveigið höfuð sjúklings- ins eins langt aftur og unnt er til að opna loftinu leið nið ur í barkann. Haldið um höfuð ið eins og myndin sýnir og opn ið munninri dálítið. 2) Dragið andann djúpt og umlykið munn sjúklingsins með ykkar munni. Lokið nös- um hans með því að leggja vanga ykkar að þeim, eða þrýst ið þeim saman með fingrum þeirrar handar, er hvílir á enni hans. 3) Blásið fyrst riösklega nokkrum sinnum, síðan rólega með jöfnu millibili, um það bil 10 sinnum á mínútu. Fylgizt með brjóstkassa sjúklingsins. Hann á að bifast, þegar blásið er. Ef ekki þá er leið loftsins lokuð, nasir opnar, eða aðskota hlutir stífla munn og kok. 4) Ef sjúklingurinn er lítið barn, er blásið samtímis um munn og nasir, því auðvelt er að umlykja hvort tveggja í senn. Blásið létt og varlega unz brjóstholið bifast. Endurtakið blásturinn um það bil 20 sinn um á mínútu. SJ—Iíeykjavík, þriðjudag. f skýrslu Fiskifélags íslands lun stöðu síldveiðiskipanna, sem gefin er út á hálfsmánaðar fresti, segir að kunnugt sé um 149 skip, sem liafi fengið afla. Þar af eru 137 með 100 lestir og þar yfir, og verð ur skýrslan birt í heild í blaðinu næstu daga. Skýrslan, sem nær til 16. júlí, er ekki alveg áreiðanleg, þar sem ekki hafa borizt upplýs- ingar um talsvert magn, sem lagt hefur verið upp hjá söltunarstöðv unum. Samkvæmt skýrslunni eru tvö skip hnífjöfn, Jón Kjartansson og Þórður Jónasson með 3.209 lest- ir. en í þriðja sæti er Barði Nes- kaupstað, sem var í fyrsta sæti fyr ir hálfum mánuði. Röð 20 efstu skipa: Jón Kjartansson, Eskifirði 3.209 Þórður Jónasson, Akureyri 3.209 Barði, Neskaupstað 2.811 Seley, Eskifirði 2.770 Jón Garðar, Garði 2,725 Gísli Árni, Rvík 2.671 Snæfell, Akureyri 2.632 Ásbjörn, Rvík 2.599 Óskar Halldórsson, Rvik 2,062 Bjartur, Neskaupstað 2.554 Reykjaborg, Rvík 2.492 Sigurður Bjarnas., Akureyri 2.479 Hafrún, Bolungavík 2.361 Arnar. Rvík 2.334 Ólafur Sigurðsson, Akranesi 2.270 Þorsteinn, Rvík. 2.260 Árni Magnússon, Sandgerði 2.200 Óskar Hldórsson, Rvik 2.062 Faxi, Hafnarfirði 2.023 Akurey, Rvík 1.989 Miðað við skýrsuna, sem birt var fyrir háfum mánuði er röð skiparina nokkuð svípúð, sum skip in færast til um nokkur sæti eftir því hvort lánið hefur leikið við þau eða ekki. Fyrst, þegar skýrsan um röð skipanna var birt, var Þórður Jónasson í 5. sæti, næst í 3ja s'æti og nu'dóilir hann 1. með Jóni Kjartanssyni, sem frá byrj- un hefur verið í 1. eða 2. sæti. Sel ey -er aftur á leiðinní upp var f fyrsta sæti í byrjun, næst í 3ja, síðan í 6. og nú í 4. Jón Garðar, sem ekki var meðal 12 efstu skipa síðast, er nú í 5. sæti. HREINDYRUNUM HEFUR FJOLGAÐ LITIÐ ÞRÁTT FYRIR F SMfÐA SÍNA FYRSTU BLOKK HA-Egilsstöðum, þriðjudag. íbúum Egilsstaðakaup- túns fjölgar ört og hafa skapazt af því nokkur hús- næðisvandræði. Um þessar mundir er mikið byggt af íbúðarhúsnæði. Munu alls vera 20—30 íbúðarhús í byggingu, en auk þess er nú verið að byggja fyrstu íbúða- þlokkina hér á staðnum. Þessi blokk á að vera á tveimur hæðum, 8 íbúðir, 70—75 ferm. hver. Það er næstum eingöngu ógift fólk, Framhald á bls. 15. GÞE—Reykjavík, þriðjudag. Svo sem frá var skýrt í Tím anum nýlega, fóru þeir Björn Pálsson, flugmaður, og Ágúst Böðvarsson, forstöðumaður Landmælinganna í flugferð yfir hreindýraslóðir snemma í s.l. mánuði í því skyni að telja hreindýrin. Hafa dýrin nú verið talin eftir Ijósmyndum- er teknar voru af hópnum, og hefur komið á daginn, að dýrunum hefur f jölgað tiltölu lega lítið þrátt fyrir friðun á s.l. ári. i Töldust fullorðin hreindýr 1894 og kálfar 494 eða samtals 2390 dýr, og því einungis 112 dýrum fleira en þegar talning fór fram í fyrra. f fréttatilkynningu, sem blaðinu barst frá menntamálaráðuneytinu í dag, segir, að ekki sé talin á- stæða flil að leyfa hreindýraveiðar á þessu ári, og hefur verið gefin út auglýsing um það. Þó verða væntanlega veitt leyfi til að veiða nokkur dýr í því skyni að halda á fram vísindalegum rannsóknum á heilbrigði hreindýrastofnsins, en þær rannsóknir hefur annazt Guð mundur Gíslason, læknir að Keld um að beiðni ráðuneytisins. Svo sem að framan greinir vóru hreindýrin algjörlega friðuð í fyrra, en á fyrri árum hafði verið leyft að veiða allt að 600 dýr ár- lega á tímabilinu frá 7 ágúst til 20. september.. En samkvæmt skýrslum Egils Gunnarssonar á Egilsstöðum í Fljótsdal sem ann- Framhald á bls. 15. HÉRAÐSMÓT FRAMSÓKNAR- MANNA Á SNÆFELLSNESI Verður haldið að Breiðabliki sunnudaginn 24. júlí n. k. og hefst kl. 9. Ávörp flytja Jón SkaftaSon alþingismaður og Gunn ar Guðbjartsson, Hjarðarfelli. Æv- ar Kvaran Ieikari skemmtir, og Ríótríóið syngur. Að lokum leikur hljómsveitin Straumar fyrir dansi. Gunnar Jón Kjörbúðarbíll- inn úr Kópavogi er kominn til Egilsstaða HA-Egilsstöðum, þriðjudag. Kaupfélag Héraðsbúa keypti fyrir skemmstu kjör- búðarvagn þann, sem KRON gerði út í Kópavogi. Þessi vagn hóf ferðir sínar hér á föstudag og virðist fólk hér ætla að taka þessari nýjmig mjög vel. Kjörbúðarvagninn á að vera á, ferðinni um Egils- stáðakauptún fyrri hluta dags og mun stanza á þrem- ur eða fjórum stöðum. Ef þessi tilraun gefst vel, verð- ur reynt að senda vagninn til Eiða og í Hallormsstað á meðan gistihúsin starfa. Einnig kemur til mála að senda hann á þessa staði í vetur í góðri færð. Frú ein, sem var að verzla i í kjörbúðarvagninum sagði;- við fréttamann Tímans, að, gott væri að geta hlaupið - frá þvottinum til þess að ’ verzla fyrir utan garðshlið- ið. Kjörbúðarstjóri og jafn- framt bílstjóri er Sigurður Björgvinsson. Myndin er úr vagninum. (Tímamynd HA) ■ó,vV''VA ’-t 'V4AV K1. ý -! þ U i' U ii ii U (]iiu úV'ii'í.-u' VÍ.Y‘’í b' <V >( >1 f't' ( A.VV'V'V V\,V.v\ \\ -V »\ '\ W - ' •' ,r 'yvtw r/’.ft'it »'t sf 'f -yf / 1* M U

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.