Tíminn - 22.07.1966, Síða 14

Tíminn - 22.07.1966, Síða 14
14 TlMINN FÖSTUDAGUR 22. júlí 1966 NITTO JAPÖNSKU NinO HJÓLBARÐARNIR I flostum stærðum fyrirliggiandi f Tollvðrugeymslu. FUÓT AFGREIÐSLA. DRANGAFELL H.F. Skipholti 35 — Sfmi 30 360 BÍLA OG BÚVÉLA SALAN v/Miklatorg Sími 2 3136 LEIDRETTING f grein Gísla Auðunssonar, lækn is í blaðinu í gær, féll niður eitt orð í setningu fyrir ofan síðustu greinaskil. Rétt er setningin svona: „ . . . Nú reynir á það jafnvel enn frekar en áður, hvort há- stemmdar yfirlýsingar þingmanna um, hvort mikilvægi jafnvægis í byggð landsins eru meira en blað ur eitt . . .“ Þá féllu niður orð í niðurlagi greinarinnar. og er setningin rétt svona: „ . . . Einnig munu margir hugsa sig um tvisvar áður en þeir hverfa heim frá námi, ef eft- ir þeim bíður kvöð um að sitja í einangrun í útkjálkahéraði . . Fjögur íslandsmet í Hveragerði SJ—Reykjavík, fimmtudag. f kvöld var haldið sundmót í Hveragerði með þátttöku danska og íslenzka sundfólksins, og voru sett fjögur íslandsmet í 50 rn lauginni þar. í 200 m flugsundi synti Guð mundur Gíslason ÍR á 2.28,0 sem er nýtt íslandsmet. í 200 m baksundi synti Lone Mortensen á 2.56,9 sem er nýtt jóskt met og Matthildur Guð mundsdóttir Á, synti á 3.01.6 sem er nýtt íslandsmet. í 4x100 m fjórsundi sigraði fs- lenzka landsliðssveitin á nýju ís- lenzku meti — 4.37,4 en danska sveitin synti á 4.38,5. Guðmundur Gíslason synti 100 ■m baksundið í fjórsundinu og setti nýtt íslandsmet á þeirri vega lengd — 1.08,3 gamla metið var 1.09.8. FRÍMERKI Fyrir hvert íslenzkt fri- merki, sém þér senciið mér, fáið þér 3 erlend. Sendið minnst 30 stk. JÓN AGNARS, P.O. Box 965, Reykjavík. ÞAKKARÁVÖRP Innilegar þakkir fyrir hlýjar kveðjur og rausnarlegar gjafir á nýliðnu sextugsafmæli mínu. Sigríður Sigurfinnsdóttir, Birtingaholti. Guðmundur Einarsson frá Gröf í Bitruflrði andaðist á Elliheimilinu Grund, miðvikudaginn 20. júll. Vandamenn. Jarðarförin auglýst siðar. Útför konunnar minnar Guðnýjar Einarsdóttur Hlaðseyri við Patreksfjörð, sem andaðist 16. júli, fer fram frá Fossvogskirkju laugardaginn 23. júll kl. 10.30 f. h. Athöfninni verður útvarpað. Magnús Jónsson. SKJALDBREIÐ Framhald af bls. 1. breiðar, án þess að nokkurt skip sé fengið til að taka við hlutverki hennar óneitanlega til þess. Út af fyrir sig er ekkert við því að segja, að gömul og úrelt skip Skipaútgerðar ríkisins séu seld, en þá er það algert skilyrði að fengin séu hentugri skip til að leysa þau af hólmi. Þjónusta Skipaútgerðarinnar er ónóg og ófullkomin, en skörin fer að fær ast upp í bekkinn, þegar stórlega á úr henni að draga þvert ofan í hátíðlega gefin loforð ráðherra um hið gagnstæða. Það má telja næsta ólíklegt, að þeir, sem mest eiga undir strand ferðaþjónustunni - komið, muni taka þessum svikum þegjandi. BRÁÐABRIGDALÖG Framhald af bls. 1. greiðslum fyrir árið 1965, og vant ar t.d. 40 aura á lítra hjá Mjólkur samlagi KEA og meira hjá hin- um tveimur. Það liggur í hlutar ins eðli, að bændur geta ekki tek ið þeirri verðskerðingu, sem þeim yrði þarna búin, og ég vil undir strika það, sem Sigurður Sig- mundsson í Syðra-Langholti, einn af stjórnarmönnum héraðsnefnd anna hefur sagt, að sunnlenzkir bændur myndu ekki una slíkri skerðingu og ekki von, að norð- lenzkir bændur geri það heldur, og því legði hann þunga áherzlu á, að þessi vandi væri leystur nú þegar. Af þeim orsökum, sem hér hafa verið taldar, leit Akureyrarfund- urinn einróma svo á, að fjárhags vandinn væri ekki nema að nokkru leystur, og engin viðhlít- andi svör fengin við þeim kröf- um, sem fundur héraðsnefnd- anna á Sögu um daginn setti fram, og er það forsenda þeirrar ályktunar, sem Akureyrarfund urinn gerði einróma og tilmæl- anna um stéttarsambandsfund, til þess að ræða aðgerðir. Við telj um einnig, að ein meginorsök þess, að fullt verð næst ekki á yfirstandandi ári, sé setning , bráðabirgðalaganna í fyrra, því að þau hindruðu framhald tilfærslna á verði milli búvara, og því telj um við einnig, að þeir, sem settu þau lög beri mikla ábyrgð á því, hvernig komið er. Einnig koma til breyttar neyzluvenjur, sem ekki urðu séðar fyrir. Eins og nú er ástatt eftir að innvigtunargjaldið kom til, fá bændur yfirleitt kringum kr. 4.80 fyrir mjólkurlítrann, greitt út, en grundvallarverð er kr. 8.42. Auk þess verða þeir að greiða allt að 90 aura á lítra í flutningskostn að að mjólkurbúi. Liggur í augum uppi, að bændur standast það ekki til lengdar að fá áðeins tæplega helming kaups síns og þegar út lagðs kostnaðar við afhendingu fyrir íramleiðslun’a, og getur hver stétt litið I eigin barm um það, og sannfærzt um, að krafa hænda um leiðréttingu er réttmæt. Þess skal getið, að formaður Stéttarsambands bænda hefur tek ið beiðni um stéttarsambandsfund vel og munu svör stjórnarinnar væntanlega berast bráðlega og líklegast þykir mér, að annað hvort verði aukafundur haldinn, eða aðalfundi samtakanna flýtt. Fundarmenn á. Akureyri fólu okkur í stjórninni að hvetja hér- aðsnefndirnar eindregið til þess að sækja fund Stéttarsambands ins og fylgjast þar með málum og æskja bess að framkvæmda- I nefndin fái þar málfrelsi og til1 lögurétt. Að lokum vil ég að gefnu til- efni geta þess, að Akureyrarfund urinn gerði ekki annað með álykt un sinni en að ítreka samþykktir fundarins á Sögu, þar sem alger samstaða ríkti um afgreiðslu máls ins.“ ENDURVARPSSTÖÐ Framhald af bls. 1. innan skamms, enda hefði ríkis iitvarpið ekkert leyfi gefið til þess að hún yrði sett upp., Endurvarpsstöðin mun notast við eignir Landsímans i Vest mannaeyjum, og munu nokkur átök hafa átt sér stað milli póst- og símamálastjóra og samgöngu málaráðherra út af því. Mun póst og símamálastjóri hafa harðbann að, að eignir Landsímans yrðu not aðar á þennan hátt, en samgöngu málaráðherra leyft það. í gær gekk menntamála ráðherra 1 málið og fól ríkisút varpinu rannsókn þess. Útvarps stjóri tjáði blaðinu, að „verið væri að garfa í málinu" og stöð inni yrði væntanlega lokað. Á ánnað hundrað sjónvarpstæki hafa verið keypt í Vestmannaeyj- um að undanförnu, þótt móttöku- skilyrði séu slæm og mikil „snjó- koma“ á skerminum. METÚRKOMA fremur var ófært í Svínadal Framhald af bls. 16 , og ár flæddu yfir vegi í Norð urárdalnum. URÐU AÐ FLÝJA HEIMILI SITT Tíminn hafði spurnir af því í dag, að skriða hefði fallið rétt hjá bænum Kambshól í Strandarhreppi í Borgarfjarð- arsýslu, og náði blaðið sam- bandi við bóndann á Kambs- hól, Vilhjálm Þorsteinsson 33ja ára, og sagði hann m.a. — Við vorum öll inni þegar við heyrðum heil- mikla skruðninga, og álitum fyrst, að þetta væri flugvél, en þegar Við komum út, fór um við ekki í neinar grafgöt ur með, hvað hefði gerzt — skriða hafði fallið úr bröttu fjallinu fyrir ofan, yfir túnið, og rétt framhjá bænum. Hefði skriðan lent á bænum, hefði hún örugglega valdið spjöll um á honum. Okkur leizt ekki á að dvelja lengur á bænum með börnin, og fór ég með, konu mína og fimm börn ýfir að næsta bæ, sem heitir Eyri, og þar ætlum við að dvelja i nótt. —Það hafa áreiðanlega / margir orðið fyrir tjóni af völdum skriðuhlaupa, talsvert, stórt svæði af túninu á Kambs hól er grafið undir skriðunni, sem er u.þ.b. fet á þykkt, þar sem hún er þykkust. Árnar hér í kring, Landá, Súlá, Glamma staðaá, og Grjótá flæddu allar yfir bakka sína og gerðu mikil spjöll á veginum, sem varð alveg ófær bílum, og ætla vega gerðarmenn að reyna að koma afur á vegasambandi á morg- un. VATNSFLAUMUR í REYKJAVÍK Geysilegur vatnsflaumur var á flestum götum Reykjavíkur í dag, og mátti sjá gusurnar ganga yfir bæði bíla og menn, sem létu hafa sig út í rign inguna. Niðurföll stífluð- ust víða, og gekk nokkuð seint að lagfæra þau, þar sem starfs lið er nú með minnsta móti vegna sumarleyfa. Lögreglu menn voru á ferð um allan bæ og reyndu þeir að fylgjast með því, að börn færu sér ekki að voða í húsagrunnum og skurð um sem fljótlega fylltust af vatni. Upp úr hádeginu voru menn byrjaðir að halda vatn- inu í skefjum að sem mestu leyti. Ekki hafði Lögreglan spurnir af neinum slysum eða vandræðum vegna veðurs ins hér í Reykjavík, en þó hafði flætt alveg yfir Háaleitis brautina á ein\im stað, og sömuleiðis yfir Borgartún ið fyrir framan Klúbbinn. VEGIR ERFIÐIR Mest úrkoma í dag var á Þingvöllum, 42 mm. Fréttarit ari blaðsins í Þingvalla- sveit sagði í dag, að vegir þar væru erfiðir og lítil umferð um þá. Nefndi hann að lækur einn, sem venjuléga er þurr á sumrum, hefði nú komið fram. Þá féll skriða inn á sumarbústaða land við Helgafell í Mosfellssveit og gerði talsverð spjöll á girðingu og í garðinum kringum sumar- bústaðinn. Eigendurnir, sem voru í bústaðnum, þegar skriðan féll, höfðu undanfarið lagt mikla vinnu í að snyrta og fegra garðinn. 54 LÓÐIR Framhald af bls. 16. son, Vesturbrún 2. Búland 15: Magnús Tryggvason, Einimel 11. Búland 36: Jón Hjartarson, Fram- nesvegi 27. Brúnaland 16: Gísli Jón Ólafsson, Flókagötu 57. Brúna- land 24: Helgi Hjálmarsson, Boga- hlíð 13. Brúnaland 36: Jón Júiíus Sigurðsson, Lynghaga 18. Geit- land 15: Örnólfur Björnsson, Skaftahlíð 33. Giljaland 11: Frið- rik Kristjánsson, Nesvegi 9. Gilja- land 15: Árni Gunnarsson, Haga- mel 41. Giljaland 22: Bjarni Sv. Kristjánsson, Tunguvegi 7. Hellu- land 10: Einar Þór Garðarson, Framnesvegi 24 A. Helluland 17: Kristinn Björgvin Þorsteinsson, Langhoitsvegi 152. Helluland 19: Ingvar Þorsteinsson, Langholts- vegi 152. Hjallaland 4: Helgi Guð- jón Samúelsson, Sigtúni 47. Hjalla land 5: Kári Tyrfingsson, Vífils- götu 9. Hjallaland 18: Guðjón Sig- urðsson, Háaleitisbraut 48. Hjalla- land 25: Bjarni Jörgensson Einars son, Laugavegi 142. Hjallaland 26: Baldvin Lárus Guðjónsson, Háa- leitisbraut 42. Hulduland 12: Krist ján Einarsson, Háaleitisbraut 41. Hulduland 14: Guðm. Óskar Ólafs son, Óðinsgötu 14 A. Hulduland 16: Ólafur Jónsson, Kaplaskjólsvegi 37. Hulduland 18: Helgi Scheving Jó- hannesson, Grundargerði 15. Hulduland 20: Sigmundur Guð- bjarnason, Laugav. 132. Hulduland 32: Ólafur Kristinsson, Klappar- stíg 27. Raðhúsalóðir í Breiðholti hlutu þessir (gatnagerðargjald 43 þús): Tungubakki 8: Páll Steinar Bjarnason, Rauðarárstíg 28. Tungu bakki .24: Björgvin Lúthersson, Sólheimum 23. Urðarbakki 28: Ingjaldur Sigurðsson, Þvervegi 28. Urðarbakki 30: Grettir Björnsson, Dunhaga 18. Vikurbakki 24: Hall- dór K. B. Runólfsson, Hverfisg. 40. Vikurbakki 32: Þór Eyfeld Magn- ússon, Sólvallagötu 52. Vikurbakki 34: Guðmundur Magnússon, Karla götu 19. Vikurbakki 36: Þorberg- ur Pétursson, Laugavegi 149. GOLFMÓTIÐ Framhald af bls. 12 Jónatan Ólafsson, Reykjavík, er með 94 högg, og Jón H. Guð- laugsson, Vestmannaeyjum. 95 högg. Keppnin heldur áfram í dag, og’verða þá enn leíknar 18 holur en á laugardaginn lýkur íslands mótinu. Mótsstjón er Guðlaugur Guðjónsson, Reykjavík.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.