Tíminn - 22.07.1966, Síða 16

Tíminn - 22.07.1966, Síða 16
54 lóðum endurúthlutað í Fossvogi og Breiðholti TK-Reykjavík, 21. júlí. | að 54 lóðum undir einbýlishús og Borgarráð hefur nú endurúthlut- raðhús í Breiðholts- og Fossvogs- METÚRKOMA VELD- UR VEGASPJÖLLUM OG SKRIÐUFÖLLUM SJ—FB—Reykjavík, fimmtudag- I vatnsveðrinu 'í dag urðu miklar skcmmdir á öllu vegakerf- inu út frá Reykjavík, upp í Hvalfjörð og austur á Þingvelli. Tvær skriður féllu á Hvalfjarðarvcginn við Staupastein og Hvítanes, og skriða féll :étt við b*irr. Kambshól í Strandar- hreppi, og olli þar talsverðum skemmdum á túninu. Úrkoman í Reykjavík mældist frá kl. 9 til 18, 33,5 mm og er það meira en mesta úrkoma sem mældist á sólarhring á tímabilinu jútií — September frá árinu 1931 til 1950, en hún var 33,4 mm. — Það má búast við veðri eins og því, sem verið hefur hér á Suðvesturlandi í dag, að meðaltali einu sinni á 20 árum, sagði Páll Bergþórsson, veðurfræðingur, þegar við hringdum til hans í dag til þess að fá sem gleggstar upp lýsingar um úrkomuna. — Sam kvæmt skýrslum frá 1931 til 1950 varð mesta sólarhrings úrkoman á tímabilinu júní til september 33.4 mm, en í dag hafði mælzt 33% mm frá kl. 9 til kl. 18 hér í Reykjavík. — Úrkoman fer sjaldan yf- ir 20 mm á sólarhring hér, en ég man nú reyndar einu sinni eftir, að hér rigndi 17 mm á hálftíma, sagði Páll. Mest rigndi á Þingvöllum í dag frá 9 til 18. 42 mm úrkoman mæld ist 34 mm á Hellu 37 í Síðu múla, en annars rigndi víðast hvar eitthvað á öllu landinu í dag. Einu staðirnir, sem til kynntu ekki rigningu voru Fag urhólsmýri, Akureyri, Horn- bjarg Kjörvogúr og Æðey. í dag var súðvestanátt og hit inn i Réykjavík kl. 18 mældist 11 stig. Hlýjast var á Staðar stað 17 stig, og 16 stig á Akur eyri. Á morgun er spáð norð vestan og norðan átt og búizt við að létti til í Reykjavík. VEGASPJÖLLIN Um 4 leytið í dag fékk Vega gerð ríkisins fyrst fréttir af spjöllum vegna hinnar gífur- legu rigningar — bifreið, sem var búin talstöð skýrði frá því að skriða hafði fallið á móts við Hvítanes í Hvalfirði. Tveir vegheflar voru á þessari leið og tókst þeim að ryðja veg- inn, en skömmu síðar féll önnur skriða, sem veghefl unum tókst ekki að ryðja af veginum og var þá send ýta frá Vegagerðinni. Þegar ýt- an var á leið um Kjalarnesið, var hún rétt komin fram hjá ræsi við Móa, er vatns flaumurinn skolaði því burtu, og eftir það var ófært. Ýtan komst alla leið inn í Hval fjörð og tókst með hennar aðstoð að ryðja veginn á ný og var þeim aðgerðum lokið, um 7 leytið í kvöld. Ýtan átti að vera í Hvalfirði í nótt, en ekki er gert ráð fyrir, að skriðu föll verði meiri, þar sem veður spáin var orðin hagstæð í kvöld. Starfsmenn Vegagerðar- innar sögðu, að í mörg ár hefði ekki komið svo mikil úr koma á þessum tíma árs. Búizt var við, að vegarkafl- inn við Móa myndi senn verða fær bílum, og um leið vegur inn fyrir Hvalfjörð. Þá hafði Vegagerðinni bor- izt fregnir af því, að skriða, hefði fallið yfir Dragaveg og lokað fyrir alla umferð. Enn Framhald á bls. 14. Myndina tók GE af bíl, sem ók yfir tjörnina, sem myndaðist á Háaleitisbrautinni i dag. Eins og sjá má á myndinni, náði vatnið upp á mið hjól bílsins. um heyskapinn Mikil úrkoma hefur verið síðnstu daga á Suðurlandsundirlendi KT—Reykjavík, fimmtudag. Úrkoma hefur verið mikil sið- ustu daga á Suðuriandsundirlendi og hefur hún tafið mikið fyrir hey skap, að því er fréttaritarar btaðs ins sögðu í dag. Víðast. hvar var i næstum aðgerðarlausir og bíða búið að slá, en víða lá hey á tún I eftir að stytti upp. Mest rlgncli um, þegar rigningin gc*kk í ?arð- í dag og eru vegir víðast livar orðn Liggur því niikið hey undir ir slæmir. skcmmdum meðan menn sitja Tún eru kafloðin, þar sem ekki hefur verið slegið og verða þau víðast hver úr sér sprottin ef ekki verður hægt að slá þau á næst- itnni. Eru margir því uggandi um heyskapinn í sumar. jhverfum. Fyrri úthlutun þessara lóða féll úr gildi, þar sem gatna- ' gerðargjald var ekki innt af hönd- um á tilskildum tíma. Gatnagerð- argjaldið er frá 43 þús. krónum upp í 165 þús. krónur, sem er þó áætlað lágmarksgjald. Þctta gjald skal greiða fyrir þessar lóðir fyrir 2. ágúst n. k. — ella fellur úthlut- unin úr gildi. Þessir hlutu einbýlishúsalóðir f Fossvogi (gatnagerðargjald 1® þús.): Bjarmaland 3: Hörður Einarsson Blönduhlíð 1. Bjarmaland 4: Hank- ur Guðjónsson, Mávahlíð 31. Bjarmaland 3: Hörður Einarsson son, Smáragötu 2. Bjarmaland 10: Finnur Björnsson, Sogavegi 7§. Bjarmaland 20: Georg Lúðvíkssoií, Kvisthaga 23. Bjarmaland 21: Helgi Hallvarðsson, Bjargi við Sundlaugaveg. Grundarland 3: Bogi Ingimarsson, Bræðraborgar- stíg 43. Grundarland 7: Sigurður Jónsson, Vallarbraut 7, Seltjarn- arnesi. Grundarland 12: Haraldur Gíslason, Nóatúni 19. Grundarland 16: Matthías Johannessen, Hjarð- arhaga 15. Grundarland 20: Árni Norðfjörð, Álfheimum 3. Haða- land 1: Leifur ísleifsson, Nesv. 14. Haðaland 2: Þórhallur Filippusson, Þórsgötu 19. Haðaland 13: Guðni Gunnarsson, c/o Sölumiðstöð Hrað frystihús. Haðaland 15: Vigfús Þórðarson, Njálsgötu 35. Haðaland 16: Baldur Tryggvason, Sogav. 54. Haðaland 17: Gunnlaugur Guð- mundsson, Freyjug. 15. Þessir hlutu einbýlishúsalóðir í Breiðholti (gatnagerðargjald 76 þús.): Brúnastekkur 2: Óskar Sigurðs- son, Goðheimum 23. Brúnastekkur 4: Margeir P. Jóhannsson, Laugar- nesvegi 96. Lambastekkur 1: Þor- steinn Sigurðsson, Fálkagötu 4. Urðarstekkur 9: Guðjón Jjíniusson, Sæviðarsundi 13. Þessir fengu lóðir undir raðhús í Fossvogi (gatnagerðargjald 43 þús.): Búland 8: Jón Abraham Ólafs- Framiiald á bls. 14. SR. SIGURÐUR PÁLSSON KOS- INN VÍGSLU- BISKUP SJ-Reykjavík, fimmtudag. Tilnefning vígslubiskups í Skál- holtsbiskupsdæmi hinu forna hef- ur farið fram, og voru atkvæði tal- in í skrifstofu biskups í gærkveldi. Alls bárust 67 atkvæði. Séra Sigurður Pálsson, prófast- ur í Selfossprófastsdæmi, hlaut 32 atkvæði. Séra Jón Thorarensen, sóknar- prestur í Reykjavík, hlaut 26 at- kvæði. Séra Þorgrímur Sigurðsson, pró- fastur á Staðastað, hlaut 5 atkv. og nokkrir prestar hlutu eitt atkv. í kosningunni tóku þátt prest- ar á svæðinu frá Norður-Múla- sýslu til Strandaprófastsdæmis, prófessorar við guðfræðideild há- skólans, biskupsritari, æskulýðs- fulltrúi þjóðkirkjunnar o. fl. Biskupsembættið hefur lagt til við Dóms- og kirkjumálaráðuneyt- ið að séra Sigurður Pálsson hljóti stöðuna, en það er forseti íslands sem mun veita hana.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.