Vísir - 09.05.1975, Side 16
vism
Föstudagur 9. mai 1975.
Fastur undir
stýri éftir
óreksturinn
Ilarftur árekstur varð á Hellis-
heiði á fimmta timanum i gær,
ekki langt frá Skfðaskálanum.
Þar rákust á tveir fólksbilar,
annar með X-númeri en hinn með
R-númeri. ökumaður X-bilsins
siasaðist mest, mun hafa rif-
brotnað og fleira, og var fastur
undir stýri, er að var komið.
Barn, sem með honum var, slas-
aðist einnig og sömuleiðis hjón,
sem voru I R-bilnum. Allir voru
fluttir á slysadeild Borgarsjúkra-
hússins.
— SHH
Ferða-
skrifstofa
íþrótta-
fólksins?
Svo kann að fara, að iþrótta-
samtökin stofni sina eigin
ferðaskrifstofu. Á sambands-
ráðsfundi íþróttasambands
tslands um siðustu helgi var
beint áskorun til Aiþingis og
rikisstjórnar um að fella niður
hinn nýja flugvallarskatt.
Þá var samþykkt að kanna
þátttöku iþróttasamtakanna i
rekstri ferðaskrifstofu. Ferða-
lög iþróttafólks eru orðin mjög
umfangsmikil, og hafa
iþróttasamtökin ekki verið allt
of ánægð með þau kjör, sem
stórum hópum bjóðast hjá
flugfélögunum.
—JBP—
RÆKJAN
VEKUR
UPP
„GULL-
ÆÐI"
Sannkallaö „gullæði” hefur
gripið um sig meðal þeirra, sem
fengu rækjuleyfi I Axarfirði.
Strax fyrsta daginn, sem bátar
nyrðra höföu rækjuleyfi, fóru bát-
ar á miðin. Múli frá Ólafsfiröi var
heldur betur heppinn, fékk 10 tonn
á tæpum sólarhring. Þennan afla
lagði hann upp á Akureyri hjá
niðursuðuverksmiðju KA. Fyrir
sólarhringsúthald tveggja manna
fékk hann hátt I hálfa milljón
króna.
Ekki er vist, að allir verði jafn
heppnir, og sumir sjómanna á
Kópaskeri telja, að Hafrannsókn-
arstofnunin hafi haft frammi
heldur undarlegar aðferðir við
rannsóknir á rækjunni i firöinum.
Var ekkert við sjómenn talað, en
þeir telja að mun meira sé af
rækju i Þistilfirði. Þar telur stofn-
unin þó að ekki séu nein veruleg
rækjumið.
Sjómenn segja, að úr fiski úr
Þistilfirði komi alltaf talsvert af
rækju, þegar fiskurinn er slægð-
ur.
Þá er strax kominn urgur i sjó-
menn við Axarfjörðinn yfir þvi,
að bátum frá Eyjafjaröarhöfnum
skuli leyft að veiða á miðum, sem
„eru upp undir kálgörðum hjá
okkur,” eins og einn sjómann-
anna sagði I viðtali við Visi.
Flugfreyjur sitja
við sinn keip:
Flug stöðvost á
miðnœtti ef ekki semst
„Þaö gerðist ekkert,
sem fær okkur til að
fresta verkfallinu, á
fundinum í gær," sagði
Erla Hatlemark, for-
maður Flugfreyjufélags-
ins, í morgun. „Við
heyrðum lítið frá þeim,"
sagði hún um viðsemj-
endur flugfreyja. Verk-
fallsboðunin stendur því
enn óbreytt og hefst verk-
fall á miðnætti, ef ekki
semst í dag.
Enn er þó tækifæri.
Samningafundur hefst i dag
klukkan þrjú.
Fundurinn i gær stóð frá
klukkan tvö til um 10 i gær-
kvöldi.
Erla sagði, að það væri
„ósmekklegt að láta leka út af
samningafundum og jafnvel
brot á vinnumálalöggjöfinni.”
Hún sagðist ekki skilja, hvernig
talan 43%, sem blaðið nefndi, að
flugfreyjur krefðust fyrir að
fresta verkfalli, væri fundin.
Þær hefðu farið fram á að fá
vaktaálag samkvæmt fyrri
kröfum og eitthvað meira fyrir
að fresta verkfalli og halda
áfram viðræðum.
—HH
Staðnir að
verki
Tvö innbrot voru upplýst á
staðnum aðfaranótt uppstigning-
ardags. Lögreglan greip tvo ungl-
inga inni i Rakarastofunni i
Bankastræti, og sömuleiðis inn-
brotsþjóf, sem hafði brotið upp
dyrnar að fiskbúðinni að Sund-
laugavegi 12, en var ekki kominn
inn er lögregluna bar að. Hann
tók þá til fótanna en komst ekki
iangt, áður en hann var gripinn.
—SHH
Hjólafólk fró í gamla,
gamladaga
Það er ekki annað hægt að
segja en hjólreiðamennirnir
þarna á myndinni taki sig vel út.
Sá til hægri, Karl Guðmundsson
leikari, er reyndar vanur að
hjóla,þvi við sjáum hann oft
þannig i umferðinni.
Mynd þessa tók Bjarnleifur i
leikhúsgöngu L.R. I gær, en
þessi fjölskrúðuga leikhúsganga
var til þess gerð að vekja
athygli á byggingu hins nýja
borgarleikhúss.
Gamlir bilar, litskrúðugir
búningar og dixielandhljóm-
sveit settu mikinn svip á borg-
ina I gær.
—EA
„Ef verk-
falisboðun
er, loga
allar línur"
— aukaferð til Glasgow
og London ef
verkfall verður, og
athugun ó aukaferð-
um innanlands
„Aiitaf ef verkfallsboðun er, þá
loga allar linur,” sagði Sveinn
Sæmundsson blaðafulltrúi Flug-
leiða I morgun, en flugfreyjur
hafa sem kunnugt er boðað verk-
fall frá miðnætti i nótt.
Sveinn sagði, að ef fyrirsjáan-
legt væri að af verkfallinu yrði,
yrði farin aukaferð til Glasgow og
London klukkan 9 i kvöld. Far-
þegar eru m.a. þátttakendur i
brezkri læknaráðstefnu, sem á-
ætluðu brottför á morgun.
Athugun stóð yfir á þvi hvort
aukaferðir yrðu i innanlandsflug-
inu, en þar er liflegt núna, að
minnsta kosti i simanum, var
okkur tjáð á afgreiðslu Flugfé-
lagsins.
Fólk hringir mikið og spyr.
Sumir vilja fá ferðum sinum flýtt,
en aðrir eru bjartsýnir á að sam-
komulag náist eða frestun á verk-
falli komi til.
Ekki er þó fullt I allar ferðir
innanlands i dag. Þess má geta,
að ófært var til Vestfjarða og
Vestmannaeyja i morgun. Rétt er
lika að geta þess, að þó af verk-
falli verði, geta menn komizt
flugleiðis leiðar sinnar með minni
flugfélögunum, þar sem flug-
freyjur eru ekki meðal starfs-
krafta.
—EA
Harður árekstur
í miðbœnum
Harður árekstur varð á
Hverfisgötu við Lækjartorg
um sexleytiö I gærkvöldi. Þar
var stórum ameriskum fólks-
bfl ekið beint frá Lækjartorgi,
viðstöðulaust I hiiðina á litlum
Evrópubil, sem var á leið úr
Hafnarstræti upp Hverfisgötu.
Tvær konur, sem voru i litla
bflnum, slösuðust nokkuð og
voru fluttar á slysadeild á-
samt tveimur börnum, sem
með þeim voru. Billinn
skemmdist mikið. Grunur
leikur á, að ökumaður stóra
bflsins hafi ekki verið allsgáð-
ur.
Þessi gatnamót, þar sem
saman koma fjórar miklar
umferðaræðar, eru nokkuð
viðsjárverð og þykir mörgum
sem þar væri timabært að
koma upp ljósum. —shh
Pilturinn úr Kópavogi enn á ferðinni:
FÓR AFTUR INN
GLUGGA AÐ NÁ
UM SAMA
SÉR í BÍL
Drengurinn, sem á sunnu-
dagsmorguninn velti stoinum
bíl á flótta undan Hafnarfjarð-
arlögreglunni, fór aftur á stúf-
ana á aðfaranótt fimmtudags-
ins. Hann skreið aftur inn um
sama gluggann hjá Kr.
Kristjánssyni h .f. og stal sér þar
öðrum bil og enn var hann ölv-
aður.
Eitthváð gekk honum ekki
eins vel i bflavalinu nú og um
daginn, þvi litiö var um lykla á
glámbekk og hann virðist hafa
forðazt I lengstu lög að taka sér
jeppa. Meðal annars hafði hann
rifið leiðslur i japönskum bil og
tengt saman, en hann gat ekki
annað en bakkað honum beint
út, þvi stýrið varlæst. Eitthvað
hafði hann skemmt fleiri bfla,
en loks gengu gamlir lyklar,
sem hann fann I skúffu, fyrir til-
viljun að jeppa með Y-númeri,
sem þarna beið nýs kaupanda.
Að þessu sinni hafði hann ekki
kvenlega aðstoð, heldur voru
með honum tveir piltar úr
Reykjavik á svipuðu reki og
hann, en hann er fæddur 1960.
Nú var farið út að keyra og
komið viða við til innbrota og
þjófnaðar. Loks kom að þvi að
lögregluþjónn á sérstöku nætur-
eftirliti á óeinkenndum bil,
veitti piltunum athygli inni á
Kleppsvegi. Honum þótti hátta-
lag þeirra athyglisvert, og hélt I
humáttina á eftir þeim. Þeir
fóru þá að velja sér krókaleiðir,
til að athuga hvort raunveru-
lega væri verið að veita þeim
eftirför, en aldrei kom til kapp-
aksturs. Þessu lauk svo með
þvi, að með aðstoð tveggja lög-
reglumanna úr umferðardeild,
sem tilkallaðir höfðu verið,
tókst að króa drengina af á
Kleppsmýrarvegi og ná þeim
þar. Þá voru þeir meðal annars
með 18 karton af sigarettum I
bflnum og brúsa af bensini, sem
þeir höfðu nýlokið við að stela á
Kleppsveginum, þegar þeim
var veitt athygii.
—SHH